Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Page 16
16
LAUGARDAGUR 28. MAl 1988.
Nýkjörin
fegurðar-
drottning
fékk
„flugferð"
í sundi:
Linda Pétursdóttir var ófeimin að skella sér út í heita pottinn og strákarnir litu á hana með aðdáunaraugum. DV-myndir Gunnar V. Andrésson
Það þurfti ekki að biðja strákana tvisvar að koma i laugina með fegurðar-
drottningu íslands. Eins og sjá má voru þeir glaðbeittir á svip eftir að hafa
kastað henni nokkrum sinnum á loft og gripið hana aftur.
„Rosalega er hún sæf'
- sundlaugargestir litu aðdáunaraugum á Lindu Pétursdóttur
„Er þetta Linda," spurði ellefu, tólf
ára gutti blaðamann DV er fegurðar-
drottning íslands vatt sér út í einn
af heitu pottunum í sundlaugunum
í Laugardal í vikunni. Stráksi lyftist
allur upp er honum var tjáð að svo
væri. „Rosalega er hún sæt,“ sagði
sá stutti þá, strauk hökuna og hélt
áfram: „Bara maður væri nokkrum
árum eldri.“ Það voru ekki bara litlu
strákamir sem tóku eftir fegurðar-
dísinni. Þrír ungir herramenn voru
aldeilis til í að kasta drottningunni í
loft upp fyrir myndatökur DV er þeir
voru beðnir um það og létu ekki
spyija tvisvar. Augu annarra beind-
ust að fegurstu stúlku landsins og
það voru ekki bara karlmennimir
sem tóku eftir henni. Linda Péturs-
dóttir, fegurðardrottningíslands
1988, vakti geysilega athygli allra
þeirra fjölmörgu sundlaugargesta
sem sóluðu sig þennan dag.
Ósköp grönn
Eldri maður vatt sér að blaöa-
manni DV og spuröi hvort hann
mætti ekki vera með fegurðardísinni
á einni mynd. „Væri ekki skemmti-
legt að hafa það gamla og unga sam-
an á mynd?“ spurði hann. „Þetta er
fallegur kvenmaður en mikið ósköp
er hún grönn,“ sagði maöurinn enn
fremur er hann hafði virt fegurðar-
drottninguna betur fyrir sér. „Það
er annaö en þessi þama,“ sagöi hann
og benti á eldri konu sem gekk um
á sundlaugarbarminum. „Þið á blöð-
unum þurfið að kenna þessum eldri
að borða heilnæmari fæðu,“ hélt
maðurinn áfram. Samræöur okkar
urðu ekki lengri en greinilegt var að
feguröardrottningin og hinir vask-
legu karlmenn, sem hentu henni í
loft upp, skemmtu sér vel og skelli-
hlógu að öllu saman.
Linda, sem heimsótti okkur á DV
með fallega greitt hárið og vel snyrt,
var nú orðin rennandi blaut eftir
volkið en glaðleg. „Þetta var
skemmtilegt og mjög hressandi,"
sagði hún þegar „flugferðunum" var
lokið. Reyndar sagðist hún oft fara í
sund en líkamsræktinni kynntist
hún ekki fyrr en þjálfun fyrir keppn-
ina hófst. „Ég var með fitu á mér frá
því ég var skiptinemi í Bandaríkjun-
um og ég hef alltaf ætlað að fara í
líkamsrækt til að ná henni af mér.
Það varð þó ekki úr fyrr en núna og
ég er ákveöin í að ná jafnvel einu til
tveimur kílóum af mér í viðbót,“
sagði Linda.
Fyrstafegurðar-
drottning að austan
Fegurðardrottning íslands hefur
aldrei fyrr verið frá Austfjörðum
þannig að Linda er kannski braut-
ryöjandi fyrir aðrar stúlkur frá þeim
landshluta. Má nokkuð víst telja að
einhver bóndinn hafi orðið stoltur
af „stúlkunni sinni“. Linda segist
þess fullviss aö margir Austfirðingar
telji sig eiga pínulítiö í henni. „Ég er
mjög glöð yfir því,“ segir hún. „Eg
hef fengið heillaóskaskeyti og blóm
frá fólki fyrir austan og ég hlakka til
að koma heim. Ég ætlaði aö vinna á
hótelinu heima í sumar en þau áform
hafa breyst með titlinum. Engu að
síður fer ég í heimsókn fljótlega."
Austfirðingar hljóta að taka vel á
móti fyrstu fegurðardrottningu ís-
lands úr þeirra heimabyggð. Linda
segir að þaö sé mjög gott aö búa á
Vopnafirði á sumrin en á vetuma
þurfi þeir sem hafa lokið grunnskóla
að yfirgefa staðinn. „Það er eiginlega
bara hjónafólk eftir í þorpinu á vet-
uma. Ef framhaldsskólar væm á
staðnum gæti ég hugsað mér að búa
þar í framtíðinni. Hins vegar reikna
ég frekar með aö setjast að í Reykja-
vík,“ segir hún. Linda hefur ákveðn-
ar skoðanir á lífinu og segist ákveöin
í að giftast ekki né eignast böm fyrr
en í fyrsta lagi eftir átta ár. Hún er
núna 18 ára. „Ég ætla að lifa lífinu
og skoöa heiminn áður en ég stofna
fjölskyldu. Ég hef mikinn áhuga fyrir
að ferðast og í framtíöinni langar
mig að starfa sem leiösögumaður
erlendis."
Unnur Steinsson
í uppáhaldi
Linda hefur ákveðnar skoðanir á
hvernig fegurðardrottning eigi að
vera. „Hún á auðvitað að haga sér
almennilega, vera vel til fara, vel
snyrt og kynna land sitt og þjóð þar
sem hún kemur.“ í framhaldi af
þessu svari var hún spurð hvort hún
ætti sér einhverja uppáhaldsfegurð-
ardrottningu. „Unnur Steinsson er í
miklu uppáhaldi hjá mér eftir að ég
kynntist henni í gegnum fegurðar-
samkeppnina. Móðir hennar saum-
aði tvo kjóla fyrir mig, annan fyrir
Austurlandskeppnina og hinn fyrir
keppnina núna,“ svaraði Linda.
Húri tók þátt í keppninni um
ungfrú Austurland fyrir hreina til-
viljun. Kona, sem búsett er hér í
Reykjavík og þekkir til hennar,
hvatti hana til þátttöku en það var
ekki fyrr en hringt var í hana utan
af landi sem hún fór að huga að þátt-
töku fyrir alvöru. „Ég gaf ekki svar
fyrr en hálfum mánuði fyrir keppn-
ina og sé ekki eftir því,“ segir Linda.
Hún er fædd og uppalin á Húsavík
til tíu ára aldurs. Þá fluttist fjölskyld-
an til Vopnafjarðar er faðir hennar
fékk starf þar sem framkvæmda-
stjóri Tanga. „Ég var svo ung þegar
ég flutti frá Húsavík að ég get varla
gert samanburð á þessum tveimur
stöðum. Margt skyldmenna minna
býr þó fyrir norðan og ég kem þang-
aðoft.“
Linda segist ekki reykja enda telur
hún heilbrigt líferni nauðsynlegt.
Hún segist hlakka til að taka þátt í
Miss World keppninni í haust. „Þetta
leggst allt saman vel í mig og mér
finnst gaman að þessu,“ sagði ný-
kjörin fegurðardrottning endurnærð
eftir sundferðina með DV.
-ELA