Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
21
Á sextugsafmæli Bergmans krýndi Caroline von Rosen hann blómakransi. í baksýn sést Ingrid eiginkona hans.
Caroline von Rosen hneykslast á bók Önnu Bergman:
„Ingmar Bergman á ekkert
Iaunbam í okkar fjölskyldu"
Hvorki ég né neitt af mínum systkin-
um er launbam Ingmars Bergmans.
Faðir okkar er Jan-Carl von Rosen
og enginnánnar.
Auövitað urðum við mjög hissa
þegar Anna breiddi út að eitthvert
okkar systkinanna væri launbam
Ingmars. Hún skrifar þetta bara til
að fá athygli. Allt sem hún skrifar
verður að taka með fyrirvara," segir
Caroline von Rosen, elsta dóttir
Ingrid von Rosen, núverandi eigin-
konuBergmans.
„Ef ég þekki Önnu rétt á lítið af því
sem stendur í bókinni sér stoð í raun-
veraleikanum. Hún er skrifuö til aö
særa aðra, vekja hneyksli og koma
óorði á okkar íjölskyldu,“ sagði
Caroline í blaðaviðtali á dögunum.
Anna Bergman gaf nýlega út bók í
Svíþjóð sem hún nefnir „Inte pappas
flicka" eða lauslega þýtt Ekki dóttir
fóður míns. í bókinni flettir Anna
ofan af mörgum atriðum varðandi
Bergman og von Rosen fjölskylduna.
, ,Faðir minn og eiginkona hans
eiga saman launbam sem hefur fariö
mjög leynt fyrir almenningi. Ég hitti
bam þeirra í fyrsta sinn er Ingmar
varð 60 ára þegar öll börn hans og
Ingrid hittust ásamt þeim í Færeyj-
um,“ segir Anna í bók sinni.
Þegar hún var spurð hveiju þessi
umsögn sætti svaraði hún því til að
ekki vildi hún slá því fóstu hvert fjög-
urra barna Ingrid væri hálfsystkini
hennar en hún vissi að eitthvert
þeirra væri það. Caroline, Maria og
tvíburamir Anna og Friðrik von
Rosen fæddust öll í hjónabandi
Ingrid og Jan-Carl von Rosen.
I bókinni segir Anna frá því er
Ingmar kom til London að heim-
sækja hana og eins árs gamalan son
hennar árið 1968. Þar hafði hann tal-
að um konurnar sem hann hefði
elskað síðastliðin 20 ár, þeirra á með-
al var greifynjan Ingrid sem hann
sagðist einnig hafa átt launbarn meö.
Þremur árum síðar skildi Ingrid og
giftst Ingmar Bergman. Og á síöasta
ári, er Ingmar varð sextugur, hittist
öll fjölskyldan og segir Anna að mik-
ill kærleikur sé á milli sín og systkin-
Anna Bergman segir föður sinn og
ingrid hafa átt launbarn saman.
anna. Hins vegar segir Caroline að
enginn vinátta sé á milli systkina
sinna og Önnu Bergman. „Ég vil ekk-
ert með hana hafa,“ segir Caroline.
^■■■■■■■■■■“■■■■■■■■■■“^™"" Brautarholti 20, símar 23333 og 23335.“““^™"~
Diskóið á sínum stað á 1. hæð
MorroKusTAm'
<m AUAN8Æf
Él Til dæmis:
Sportlíf
Eidistorgi
Sportbær
Hk Hraunbær 102
■ Straumnes
v Vesturbergi 76
■ Sportbúöin
Drafnarfelli
Innrömmun og hannyrdir
Leirubakki 36
Verö niitVjst viö framköllun og koperingu á inynda
litfilniuog 24 niynda KOMCA litfilmu sem þú færö til baka