Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Qupperneq 34
46
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
Knattspyma unglinga
3. flokkur karla A:
Gullaldarlið Fylkis
Reykjavíkumieistari 1988
- sigraði Víkinga í lokaleik, 3-0
Með sannfærandi sigri á Víkingum
tryggði 3. flokkur Fylkis sínu félagi
enn einn bikarinn í safnið. Það er
óhætt að fullyrða að þessi kjarni er
sá besti sem komið hefur fram hjá
því ágæta félagi. Þessir strákar hafa
haldið svo til allir hópinn frá því í 6.
flokki - og hver man ekki eftir þeim
sigurstranglega flokki hér um árið?
Það er því óhætt að segja að ef fer
fram sem horfir þarf félagið ekki að
kvíða framtíðinni. Það eru þvi bjartir
dagar fram undan hjá Fylki ef tekst
að fylgja vel eftir þessum glæsta hópi.
Eins og úrslitin gefa til kynna áttu
Víkingar aldrei möguleika þó að þeir
hafi aö vísu átt kost á að minnka
örlítið muninn undir lok leiksins.
Fylkisstrákarnir leika sterkan og
um leið árangursríkan fótbolta sem
skilar sigrum. Aftur á móti mætti
færa ýmislegt til enn betri vegar, eins
og til dæmis hvað varðar móttöku
knattar og knattrak. Úrvinnsla leik-
manna mætti og á stundum vera
betri því það skiptir virkilega miklu
máh aö sendingar hitti á rétta staði.
En þetta eru ungir strákar og nægur
tími tii lagfæringar eða fínpússning-
ar, eins og sumir myndu vilja kalla
það. Eins og ég hef tekið fram eru
hér mikil efni á ferðinni og nauðsyn-
legt að stefna sé tekin í rétta átt.
Víkingsliðið skorti baráttuvilja að
þessu sinni. Að vísu lék það nú gegn
toppliði 3. flokks sem var því fremra
á margan hátt. Það leynist margt
gott efnið í Víkingsliðinu en sem liðs-
heild var það engan veginn nógu
sannfærandi. Tækni sumra í liðinu
var til mikillar fyrirmyndar og skipt-
ir það vitanlega miklu varðandi síð-
ari tíma.
Bæði þessi félög skarta stórum og
góðum hópi því að B-liðin sýndu
virkilega góða takta. Leiknum lauk
þó með sigri Fylkis, 2-0. Með þeim
sigri tryggði B-lð Fylkis sér Reykja-
víkurmeistaratitilinn sem er óneit-
anlega glæsilegur árangur.
Mörk Fylkis í A-liði gerðu þeir
Auðun Freyr Ingvarsson, Þórhailur
D. Jóhannsson og Finnur Kolbeins-
son.
Það vakti athygh aö með hinum
stóra og föngulega hópi drengja
frá Akureyri var enginn þjálfari
eða leiðbeinandi. Hópinn skipuðu
alls 15 drengir. Þaö sem er enn
furöulegra við þetta er að á Akur-
eyri er formaður unglinganefnd-
ar KSÍ, Sigurbjöm Gunnarsson.
Ljóst er aö norðanmenn verða að
gera betur en þetta. Það hlýtur
nefnilega að skapa vis9t óöryggi
hjá þeim yngri ef þeir em látnir
afskiptir eins og i þessu tilfelli.
Frá Akureyri hafa komið marg-
ir mjög efnilegir knattspymu-
menn sem skipað hafa bæði
drengja- og unglingalandslið ís-
lands og er því framkoma þeirra
sem starfa aö unglingamálum þar
á bæ ekki til fyrirmyndar, eða
hvaö finnst Sigurbimi Gunnars-
syni, unglinganefhdarformanni
KSÍ?
_____________________-HH
Meiraum
drengjalandsliðið
næsta laugardag
Vegna plássleysis verður efni
aö bíða næsta laugardags, þar á
meðal viötöl og annað við ungl-
inga sem komu víða aö af landinu
í hiö svokallaða úrtökumót KSÍ
vegna drengjalandsliðsins og
Knattspyrnuskóla KSÍ.
-HH
Úrslit leikja í
Reykjavíkumiótinu
5. flokkur A:
Fylkir-Fram 0-3
5. flokkur B.
Fylkir-Fram 3-4
3. flokkur A:
Fylkir-Víkingur 3-0
2. flokkur B:
Víkingar Reykjavíkurmeistarar
2. flokkur kvenna:
Fylkir-KR 0-5
Reykjavikurmeistarar Fylkis í 3. flokki A 1988, fremri röð frá vinstri: Grétar Grétarsson, Finnur Kolbeinsson, Gunn-
ar Þór Pétursson, Birgir Hilmarsson, Sólmundur Björnsson, Auðun ingvarsson, Róbert Gislason, Dagur Eggerts-
son og Brynjar Pétursson. - Aftari röð frá vinstri: Tómas Kristinsson liðsstjóri, Halldór Steinsson, Pórhailur D.
Jóhannsson, Magnús Björnsson, Gunnlaugur Ingibergsson, Axel Axelsson, Kristinn Tómasson fyrirliði, Magnús
S. Bragason, Axel örn Ársælsson, Árni G. Eyþórsson og Axel Axelsson þjálfari. DV-mynd HH
3. flokkur karla, A-lið:
Friðrik Sigurðsson fór á
kostum í 2-1 sigri yfir KR
Ríkarður Daðason skoraði bæði mörk Framara
„Við erum mættir hér úti á Fram-
velli til að hirða í það minnsta annað
stigið af Frömurunum, það er alveg
klárt,“ sagði Sigurður Helgason,
þjálfari 3. flokks KR, fyrir leikinn
gegn Fram sl. miðvikudagskvöld. En
það fór nú á annan veg því Framarar
sigruðu með tveimur mörkum' gegn
einu. Eftir á spurði unglingasiða DV
Sigurð hvað hefði í rauninni skeð.
Hvað var það sem olli tapinu? „Þrír
af betri mönnum liðsins voru á
sjúkralista. Það tel ég vera aðalá-
stæðuna fyrir þessu tapi,“ voru orð
Sigurðar. .
Framarar góðir úti á vellinum
Yfirburðir Framara í þessum leik
byggðust að mestu á hreyfanleika og
góðum samleiksköflum á miðjunni.
Aftur á móti mistókst þeim oft þegar
að vítateignum kom og reka átti
endahnútinn á sóknirnar. Sérstak-
lega hætti Þorra Ólafssyni til að dútla
einum um pf með boltann á hægri
kantinum. í þau skipti, sem hann
kom boltanum fyrir markiö, skapað-
ist ávallt hætta og var hinn mark-
sækni Ríkarður Daðason heppinn að
bæta ekki við 3. markinu í síðari
hálfleik.
Þaö er erfitt að gera upp á milli liðs-
manna Fram því liðið er skipað mjög
jöfnum strákum. Þó bar Friörik Sig-
urðsson nokkuð af. Úrvinnsla hans
var frábær og tæknin góð. Fram-
strákarnir verða þó að gera sér grein
fyrir því að það er ekki nóg að spila
vel úti á vellinum; það verður að
ljúka sóknarlotunum á viðeigandi
hátt og þeim ætti ekki að verða skota-
skuld úr því með hinn marksækna
Ríkarð Daðason sem fremsta mann.
Framarar geta orðið erfiðir viður-
eignar í sumar - það er klárt.
KR-ingar mættu mjög einbeittir til
þessa leiks heföu meö smáheppni
getað náð að knýja fram jafntefli,
eins og til dæmis þegar brotið var
illilega á einum þeirra í vítateig
Framara og var um augljósa víta-
spyrnu að ræða. Jafntefli hefði þó
engan veginn verið í neinu samræmi
við gang leiksins.
Margir góöir einstaklingar eru í hði
KR-inga en serp Mðsheild voru þeir
ekki nógu sannfærandi. Magnús
Schram var þeirra besti maður að
þessu sinni. Einnig skiluðu þeir vel
sínu Óskar Þorvaldsson, Sigurður
Ómarsson, mikill baráttujaxl, og
Ómar Bendtsson.
Það verður fróðlegt að fylgjast með
viðureign þessara liöa í riðlakeppni
íslandsmótsins.
Mörk Framara gerði Ríkarður
Daöason. Óskar Þorvaldsson skoraöi
eina mark KR-inga.
-HH
f SKOT ^
j Félögin bera ábyrgð á að
i dómarar mæti til leiks
. Nk. miðvikudag, 30. maí, fer
boltinn að rúlla í íslandsmóti
yngri flokka í knattspyrnu. Þegar
hugsað er til baka koma ósjálfr-
átt upp í hugann öh þau vanda-
mál í sambandi við dómara og
dómgæslu sem hrjáð hafa yngri
flokka mörg undanfarin ár.
Hvaö er til ráða? spyija menn
ávallt, og hverjir bera ábyrgðina?
Félögunum er mjög umhugað
um að senda alla flokka til keppni
í íslandsmótið og þjálfari er ráð-
inn í hvern flokk ásamt aðstoðar-
mönnum. En þegar kemur aö
dómaramálunum er áhugi félag-
anna mjög takmarkaður. Sum
hafa staðið sig með miklum ágæt-
um en víðast hvar eru þessi mál
í miklum ólestri. Knattspyrnufé-
lögin verða að fara að gera sér
grein fyrir því að það er eins
nauðsynlegt að eiga haröskeytta
Umsjón:
Halldór Halldórsson
L
sveit dómara og fuhskipaða
flokka því enginn verður leikur-
inn nema dómarinn sé til staðar.
Unglingasíða DV hvetur félögin
til að gera átak í þessum málum
til heilla íslenskri knattspyrnu.
Fátt er jafnniðurdrepandi fyrir
unglinga, sem bíða spenntir eftir
að spila og frestun vegna þess að
dómarinn lét ekki sjá sig.
-HH