Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988. 47 Knattspyma unglinga Þetta er hinn föngulegi hópur 4.flokks stráka sem mættu á gervigrasvöllin. 24 af þeim verða síðan valdir til þátttöku í knattspyrnuskóla KSÍ. DV-mynd HH. Drengjalandslið íslands í mótun 150 unglingar undir smásjá landsliðsnefndar- Knattspymuskóli KSÍ starfræktur með venjubundnu sniði Dagana 20.-21. maí sl. var haldin á gervigrasvellinum í Reykjavík keppni landshlutaúrvalsliöa 3. og 4. flokks. Keppnin er liöur í undirbún- ingi fyrir val á liði íslands sem tekur þátt í Norðurlandamóti drengja- landsliða sem fram fer í Vesterás í Svíþjóð í sumar og fyrir val á leik- mönnum í Knattspyrnuskóla KSÍ í haust. Alls voru þama saman komnir um 150 leikmenn sem tilnefndir hafa ver- ið af félögum hvaðanæva af land- inu. Fjögur lið voru vahn til keppni úr hvorum flokki þannig að eitt var frá Reykjavík (lið A), eitt frá UMSK- svæði (liö B), eitt frá Suðurnesjum, Suður- og Suðvesturlandi (lið C) og eitt frá Norðurlandi, aö viðbættum Vestfjörðum og Austfjörðum (Uð D). Drengjalandsliðið í ár er vahð úr hópi 3. fl. strákanna en þátttakendur í Knattspyrnuskóla KSÍ eru drengir úr 4. flokki. Svona til gamans má geta þess að úrsht uröu þau að Reykjavíkurliðin sigruðu í báðum flokkum. Lárus Loftsson unglingaþjálfari. Koma verður af stað vormótum úti á landi Eftir að hafa horft á leiki lands- hiutaúrvalsliðanna var greinilegt aö þeir drengir, sem komu frá félögum á Reykjavíkursvæðinu, voru betur staddir en strákarnir utan af landi. Þegar þetta er skoðað nánar er það kannski engin furða þar sem f gangi hefur verið Reykjavíkur- mót og Faxaflóamót sem skilað hafa þeim leikæfingu fram yfir þá sem koma af landsbyggðinni. Hér þyrfti að verða breyting á. Vorleikir fyrir yngri flokka úti á landi eru ákaflega brýnt verk- efni. Faxaflóamótið hefur tekist mjög vel og ættu ekki að vera nein vandkvæði á því að slíkur háttur væri hafður á í hinum ýmsu byggðarlögum. - HH „Þjálfunin og kennslan skiptir mestu máli hjá þessum aldurshópum" - segir Lárus Loftsson unglingaþjálfari Lárus Loftsson, þjálfari drengja- og unglingalandshðanna, kvaðst vera nokkuð ánægður með þann stóra hóp drengja 3. og 4. flokks sem voru und- ir smásjá drengjalandshðsnefndar dagana 20, og 21. maí sl. „Það er greinilegt að breiddin er meiri en áður og það má greina framfarir hjá strákunum ef miðað er við fyrri ár. En það sem þessa stráka vantar, og þá alveg sérstaklega utan af landi, er að þeir þurfa að koma miklu oftar saman til æfinga og leikja svo að þeir séu betur undirbúnir þegar kemur th að velja úr hópnum. Svo er þjálfunin sjálf náttúrlega kapítuli út af fyrir sig því allt veltur þetta á því að sá þáttur sé í sem bestu lagi. Við höfum hér undir höndum rjómann úr íslenskri unglingaknatt- spymu og má raunar segja að fram- tíð knattspymunnar á íslandi sé hér í mótun. Það er því mikil ábyrgð sem hvílir á herðum þjálfaranna í hinum ýmsu byggðarlögum. Einn þátturinn meö boðun þessara stráka hingað suður að þessu sinni er að við þjálfar- ar berum saman bækur okkar í lokin því við verðum að standa saman í þessu ef þessi vinna á að skila sér. Það eru nefnilega þjálfararnir og leiðbeinendurnir sem skapa árang- urinn,“ sagði Lárus í lokin. Hittast aftur á Akureyri Hinn fríði hópur 3. og 4. flokks stráka mun aftur koma saman á Akureyri til æfinga og keppni 18. og 19. júní í sumar og eftir þá samveru verður vahnn 20 manna hópur úr 3. flokki til æfinga með drengjalands- hðinu og úr hópi 4. £1. drengja verður vahnn 24 manna hópur til þátttöku í Knattspyrnuskóla KSÍ sem verður starfræktur í sumar í lok ágúst að Laugarvatni. HH 3. flokks strákarnir úr SV-liðinu biða eftir að fara inn á og skakka leikinn. Þessir strákar eru að keppa um sæti i drengjalandsliðinu 1988. Frá vinstri: Stefán Þórðarson, Akranesi, Aron Jóhannsson, Selfossi, Hinrik Bjarnason, Þór, Vestm., Nökkvi Sveinsson, Tý, Vestm., og Hjalti Þorvarðar- son, Selfossi. Umsjónarmaður liðsins er Einar Friðþjófsson, framkvæmda- sfjóri og þjálfari yngri flokka Týs, V. DV-mynd HH Sigurður Ólafsson, 3. fl., Höfn í Homafirði: Þarna fengum við tíunda mark- ið á okkur. Langar þig ennþá til að fara inn á!!! Gústi „sweeper“: Þarf maður að vera í einhverri klíku til að komast i knattspyrnu- skóla KSÍ: Ég bara spyr!!! -I Frábært að vera innan um alla þessa góðu stráka Sigurður Ólafsson, 3. fl. Sindra. Sigurður Olafsson er leikmaður í 3. fl. Sindra frá Höfn í Hornafirði. Hann er eini leikmaðurinn sem th- nefndur var þaðan í þessum aldurs- flokki: „Ástæða þess að ég er bara einn er sjálfsagt frekar þunnskipað- ur 3. flokkur Sindra í ár og er vafa- mál hvort við verðum með í íslands- mótinu að þessu sinni. Það er frábær aðstaða th knattspyrnuiðkunar á Höfn því að þar er bæði malar- og grasvöllur og að auki gott íþrótta- hús. Albert Eyvindsson er og frábær þjálfari og hefur hann vakið mikinn knattspyrnuáhuga á staðnum. Th að mynda vann Sindri sig upp í 3. dehd sl. ár. Það er frábært að vera innan um alla þessa góðu stráka hér á gervi- grasinu og hef ég þegar lært mikið af þessari ferð hingað sem mun koma mér til góða síðar,“ sagði Siguröur að lokum. -HH Unglinganefnd KSÍ Eftirtaldir skipa unghnganeflid KSÍ: Sigurbjörn Gunnarsson formaö- ur, Helgi Þorvaldsson, Sveinn Sveinsson og Jón Þór Brandsson. Formaður drengjalandshðsins er Helgi Þorvaldsson og honum th að- stoðar eru Gylfi Orrason og Lárus Loftsson. r'
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.