Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Síða 36
. 48 : LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988. Polu sneri við blaoinu og vann Kortsnoj! - og þar með var sigurinn í höfn á skákmótinu í Haninge Þeir sem fylgdust meö IBM- skákmótinu á Hótel Loftleiðum í fyrra muna eflaust eftir því er Vikt- or Kortsnoj sté upp á svið í ráð- stefnusalnum og útskýrði fjálglega skák sína við Lev Polugajevsky. Nokkurrar fyrirlitningar gætti í orðum Kortsnojs er hann lýsti skákinni og þurfti engan að undra. Kortsnoj fór létt með Polu á mótinu eins og svo oft áður. Þetta kverka- tak hans á fyrrum landa sínum hefur oftar en einu sinni orðið þeim er þetta ritar að umfjöllunarefni. Kortsnoj lét sig hverfa frá Sovét- ríkjunum fyrir fullt og allt árið 1976 og árið eftir tefldi hann áskorenda- einvígi við Polugajevsky. And- rúmsloftið var lævi blandið, ekki síst vegna þeirrar spennu sem flótti Kortsnojs hafði skapað. Vitaskuld var ætlast til þess af Polu heima fyrir að hann léti flóttamanninn fá fyrir ferðina. Á honum hvíldi því mikil byrði sem reyndist honum ofraun. Kortsnoj vann þrjár fyrstu skákir einvígisins, síðan urðu tvær skákir jafntefli en næstu tvær vann Kortsnoj einnig og þar með var ein- vígiö í raun útkljáð. Lokatölur urðu 8,5-4,5 Kortsnoj í vil. Það væri fulldjúpt í árinni tekið að halda því fram að Polu hefði aldrei náð sér eftir þetta áfall. Polu hefur engan bilbug látið á sér fmna við skákborðið þessi ár sem liðin eru og er enn í fremstu röð. Til- hugsunin um „Viktor grimma" sit- ur þó enn á sálinni. Enn má Polu ekki heyra minnst á Kortsnoj án þess að hann spretti upp og titri af skelfingu. Að þessu gefnu er líklegt að Polu hafi átt erfitt með svefn nóttina fyrir viðureign sína við Kortsnoj á skákmótinu í Haninge, utan við Stokkhólm, sem lauk um síðustu helgi. Þeir áttu að tefla saman í næstsíðustu umferð. Polu hefur varla talið ástæðu til bjartsýni, þótt hann hefði teflt vel á mótinu til þessa og væri einn efstur með 6,5 vinninga. Kortsnoj hafði 5,5 vinninga og gat því náð honum og hefur sjálfsagt ekki búist við öðru. En margt fer ööruvísi en ætlað er. Polugajevsky tefldi skákina óaðfinnanlega og knúöi Kortsnoj til uppgjafar eftir aöeins 26 leiki. Þótti mörgum tími til kominn að hann léti áskorandann fyrrverandi finna ærlega til tevatnsins. Þar með var sigur Polu á mótinu nánast tryggð- ur. Með jafntefli í lokaskákinni við Chandler hlaut hann 8 vinninga, vinningi meira en Ulf Andersson sem hreppti 2. sæti. Lokastaðan á mótinu varð þessi: 1. Polugajevsky 8 v. 2. Andersson 7 v. 3. Agdestein 6,5 v. 4. -5. Kortsnoj og Sosonko 6 v. 6.-8. Chandler, Schussler og Tsí- búrdanidze 5,5 v. 9. L. Karlsson 5 v. 10. Wedberg 4 v. 11. -12. Barlov og Pinter 3,5 v. Ég hef grunum að líta þurfi langt aftur í tímann til að fmna vinnings- skák Polugajevskys gegn Kortsnoj. Sigurinn á skákmótinu í Svíþjóð hlýtur því að hafa verið sætur. Hann beitti eftirlætisleikaðferð sinni gegn Grtinfeldsvörn Kortsnojs og virtist vera betur með á nótunum. Kortsnoj fórnaði peði til að reyna að ná gagnfærum og síðan skiptamun. Þetta dugði ekki til, þótt kóngur Polugajevskys dansaði um á miðborðinu. Lítum á þessa sögulegu skák. Hvítt: Lev Polugajevsky Svart: Viktor Kortsnoj Grönfeldsvörn. 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 c5 7. Bc4 Bg7 8. Re2 0-0 9. Be3 Rc6 10. Hcl!? Hróksleikur hvíts er ný tilraun Polugajevskys í þessari þvældu stöðu. Hann beitti honum fyrst gegn júgóslavneska stórmeistaran- um Sokolov á skákmóti í Sarajevo í fyrra. Varla þarf að. rifja upp leikjaröðina 10. 0-0 Bg4 11. f3 Ra5 12. Bxf7 + !? Hxf713. fxg4, sem þeir félagar Karpov og Kasparov skemmtu sér við í heimsmeistara- einvíginu í Sevilla. Leikur Polu er allrar athygli verður. 10. - cxd4 11. cxd4 Da5+ 12. Kfl Hvítur hefur hvorki áhuga á 12. Dd2 Dxd2+ 13. Kxd2 Hd8 14. d5 e6 né 12. Bd2 Db6 með óljósu tafli. Nú tapar hann hrókunarréttinum en kóngurinn er þó sæmilega öruggur og kóngshrókurinn gæti verið nyt- samur á h-línunni. 12. - Bd7 í skákum Polu við Sokolov í Sarajevo og Ricardi í Argentínu skaut svartur inn 12. - Bg4 13. f3 og setti biskup sinn svo á d7. Þann- ig tekst honum að veikja svörtu reitina í herbúðum hvíts eilítið en á móti kemur að kóngurinn fær góðan reit á f2. Leikur Kortsnojs er rökréttari en Polu hefur sjálfur stungið upp á öðrum möguleika, 12. - Hd8!? með þrýstingi að mið- borðinu. 13. h4 e5?! Þaö er spurning hvort þessi fram- rás sé ekki of snemma á ferðinni. Betra virðist 13. - Hac8 14. h5 e5! og ef 15. hxg6 hxg6 16. d5 Rd4! 17. Rxd4? exd4 18. Bxd4 lumar svartur á 18. - Hxc4! 19. Bxg7 Da6! og vinn- ur. 14. d5 Rd4 15. Rxd4 exd4 16. Bxd4 Bxd4 17. Dxd4 Hac8 18. Ke2! Skák Jón L. Árnason 8 1 Sé' 11 Sl á á 6 á »* & élV& & 2 £ 11 1;. 4? & A OöO S y. mitA: ■ A B C D E s F G H Kóngur hvíts virðist á hættu- svæði en hvítur hefur svo góð tök á stöðunni að það kemur ekki að sök. Með síðasta leik tengir hann saman hrókana. Kortsnoj hefur ekki nægar bætur fyrir peðið. 18. - Hfe819. f3 Hxc4 20. Hxc4 Dxa2+ Svariö við 20. - Bb5 yrði 21. Ke3! Bxc4 22. Dxc4 Db6+ 23. Dd4, eða 22. - Da3 + 23. Kf2 og hvítur á yfir- burðatafl. 21. Ke3 Dxg2 22. Hhcl f5 Lev Polugajevsky sigraði glæsilega og lagði sjálfan erkifjandann, Viktor Engu betra er 22. - Dh2 23. Df6! og 24. Hc7 er erfið hótun. 23. e5! g5 24. hxg5 Dh2 25. e6 b5 26. Hc7 - Og Kortsnoj gafst upp. Hollenski stórmeistarinn Genn- andi Sosonko gerði út um titilvonir Svíans Harry Schusslers í lokaum- ferðinni. Schússler þurfti að vinna til að ná stórmeistaraáfanga en lenti í byrjun sem Sosonko gjör- þekkti eftir skák við hollenska út- varpshlustendur, sem lauk rétt fyr- ir mótið. Sosonko tefldi annars nokkuð frísklega á köflum. Lagði þó fullmikið á stöðuna gegn Wed- berg eins og sjá má hér á eftir. Hvítt: Tom Wedberg Svart: Gennadi Sosonko Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3 Rc6 8. Dd2 (M) 9. Bc4 Rd7 Sjaldgæft afbrigði, sem þó er ekki alvitlaust. Hvítur leikur best 10. h4! og hraðar sér að opna h-línuna. 10. 0-0-0 Rb6 11. Bb3 Ra5 12. Dd3 Bd7 13. h4 Hc8 14. h5 Rbc4 15. hxg6 hxg6?! Betra er 15. - fxg6! og þar er kom- in ástæðan fyrir því hvers vegna hvítur leikur best h-peðinu fram strax í 10. leik. Eftir uppskipti á g6 yrði svartur þá nauðbeygður til að drepa aftur með h-peði sínu, því að f-peðið væri leppur. 16. Bg5 Rxb3+ 17. cxb3 Da5!? 18. Bxe7 Re5 19. Dc2!? Endurbót Wedbergs á skákinni á skákmótinu í Haninge í Svíþjóð Kortsnoj, að velli. Marjanovic - Sax, Sarajevo 1982, en þar var leikið 19. Dd2?! Hfe8 20. Bxd6 Dxa2 21. Rc2? Dxb3 og svartur náði vinnandi sókn. Sosonko reyn- ir að flækja stöðuna. 19. - Hxc3!? 20. bxc3 Hc8 21. Kb2 Db6 22. Bg5 Rc4+ 23. Kal Ra3 24. Db2 Rb5 25. Rxb5 Dxb5 H tir l t ÉL 1 A ABCDEFGH 26. Be3! Undirbýr 27. Bd4 og þar með yrði sókn svarts endanlega runnin út í sandinn. 26. - Bxc3 27. Dxc3! Hxc3 28. Bd4 Í5 Hvítur hótaði máti á h8 og hrók- urinn var því feigur. Næstu leikir svarts flýta samt fyrir ósigrinum. 29. Bxc3 fxe4?! 30. Hxd6 Bf5 31. Hf6! exfi 32. Hh8+! Kxh8 33. Hf8+ Ætlunin var auðvitað ekki 33. Hxf5 + ? Kh7 34. Hxb5 f2! og svartur vekur upp nýja drottningu. Svartur gafst upp, því að eftir 33. - KIi7 34. Hh8 er hann mát. .jlá Evrópubikarkeppni Philip Morris: Úrslit PHILIP MORRIS Evrópubikar- keppninnar voru háð í Kaupmannahöfn dagana 25.-27. mars. Austurríkismenn sigruðu naumlega, Svíar urðu í öðru sæti og Ungverjar í þriðja. Danir, sem vörðu titilinn, ráku lestina af sex þjóðum enda stilltu þeir tæplega upp sínu besta liði. Austurrisku meistararnir eru Berger, Feichtinger, Fucik, Kriftner, Kubak og Meinl. Þeir spiluðu vel og höfðu þar að auki heppnina með sér eins og spihð í dag frá leiknum við Danmörku sýni. S/O * ÁG42 V 832 ♦ 652 + D53 ♦ KD53 V Á6 ♦ ÁK984 + G7 * 1076 V KD109754 ♦ DG7 + ♦ 98 V G ♦ 103 + ÁK1098642 í opna salnum sátu n-s Austurríkis- mennimir Meinl og Berger en a-v Dan- imir Jörgen Hansen og Erik Brok. Sagnir gengu þannig: Suður Vestur Norður Austur 2G pass 3T 3H 5L dobl pass pass pass TVeggja granda sögnin var hindrunar- sögn í einhverjum lit og þrír tíglar vom biðsögn. Suður stökk síðan í fimm lauf og þegar vestur doblaði þá fmnst mér BREMSUKLOSSAR t HJÖRULIÐIR • AUKALJÓS • BÚKKAR • TJAKKAR • HÖGGDEYFAR Þokuljós og kastarar. Verð frá kr. 1.975,- settið SIÐUMULA 3 ÖRYGGISBELTI • KERTI • VARAHLUTIR • AUKAHLUTIR • HJÓLKOPPAR Bridge Stefán Guðjohnsen endilega að iiorður hefði getað gripið bláa miðann og redoblað. Suður var raunar óheppinn að fá ekki 12 slagi því að tveir hæstu tíundu í trompi er oftast tapslagalaus tromplitur. Austur- ríki fékk því 550. í lokaða salnum sátu n-s Jörgen Anker Pabst og H.K. Sörensen, en a-v Feicht- inger og Kriftner. Sagnir tóku töluvert aðra stefnu: Suður Vestur Norður Austur 1L pass 1T 2H 3L 3H 4G 5H 6L pass 7L pass pass pass Norður fékk skiljanlega slemmuáhuga, þegar norður sagði þrjú lauf frjálst við tveimur hjörtum austurs og hann spurði því um ása með fjórum gröndum. Austur gmggaði vatnið með fimm hjörtum og líklega hafa n-s ekki notað DOPI ROPI, því norður sagði sex lauf. Þeim sem ekki kannast við DOPIROPI skal bent á að það er vamarsagnkerfi gegn hindrunarsögnum þegar spurt er á fjórum gröndum. Svarhöndin doblar meö engan ás DO, en segir pass með einn PI. Nú, norður fór rakleiðis í sjö lauf og liklega átti vestur fyrir dobli. Hann lét sér hins vegar nægja að leggja niður spaðaás og beið síðan eftir laufslagnum. Þetta spil var að visu áfall fyrir Danina en þeir hugguðu sig viö það að sex lauf myndu líka tapast og því yrði tapið ekki nema 2 impar. Það er hins vegar umhugsunarefni fyr- ir Danina að með því að nota DOPIROPI og dobla síðan flmm björtu, þá áttu þeir möguleika á því að bæta árangurinn í opna salnum og fá 800, a.m.k. var auð- velt að fá 500 í fimm hjörtum dobluðum. Barn situr þægilega og öruggt í barnabílstól. Það á það skilið! yUMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.