Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 37
49 LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988. Sveitarstjóri Laust er til umsóknar starf sveitarstjóra Súðavíkur- hrepps. Umsóknarfrestur er til 8. júní nk. Nánari upplýsingar veita oddviti í síma 94-4899 og sveitarstjóri í síma 94-4912. Aðalsafnaðarfundur Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði verður haldinn sunnu- daginn 5. júní, nk. að aflokinni messugerð í kirkjunni sem hefst kl. 14. Safnaðarstjórn Matreiðslumenn Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli óskar að ráða fag- lærða matreiðslumenn til starfa. Um er að ræöa einn yfirmatreiðslumann og 2 aðstoðaryfirmatreiðslu- menn. Mjög góð enskukunnátta nauðsynleg. Um- sóknir berist varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneyt- isins, ráðningardeild, Brekkustíg 39, 260-Njarðvík eigi síðar en 13. júní nk. Nánari upplýsingar í síma 92-11973. FYRIRSÆTUSTÖRF ERLENDIS STELPUR - STRÁKAR Viltu starfa erlendis við fyrirsætustörf og ert á aldrin- um 17-22 ára? Ef svo er þá sendu okkur myndir ásamt ýmsum upplýsingum sem fyrst. Við erum með umboð fyrir nokkur heimsþekkt fyrirsætufyrirtæki í þremur Evrópulöndum. Tilboð sendist DV, merkt „Fyrirsætustörf erlendis", fyrir 5. júní. Icelandic Models HÁRRÆKT! ERTU AÐ MISSA HÁRIÐ? HÁRLOS? SKALLI? ERUM MEÐ ÁHRIFARÍKA MEÐFERÐ SEM EYKUR HEILBRIGÐI HÁRSINS OG ÖRVAR EÐLILEGA ENDURNÝJUN HÚÐAR OG HÁRS. SELJUM HÚÐ- OG HARSNYRTIVÖRUR FRÁ HINU ÞEKKTA FYRIRTÆKI JOICO. fíKUGEisunn 5/f FAXAFEM 10 - fFfíAMTfÐMM 5ÍMI: 686086 ^RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir til- boðum í eftirfarandi: RARIK-88008: Háspennuskápar, 11 kV, fyrir að- veitustöð Fáskrúðsfirði. Opnunardagur: Þriðjudagur 28. júní 1988, kl. 14:00. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með mánudegi 30. maí 1988 og kosta kr. 300,- hvert ein- tak. Reykjavík 26. maí 1988. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Iþróttapistill Hann tók bamavagn með 1 golfið yÞað verður ekkert að marka þetta Islandsmót fyrr en um miöjan júní. Þegar liðin ieika á möl og gervi- grasi getur allt gerst og eðlileg geta margra leikmanna kemur ekki fram. Auðvitaö er maöur hunds- vekktur yfir þessari stöðu en viö þessu er ekki nema eitt ráð, að bíöa meö að hefja íslandsmótið þar til í fyrsta lagi í byrjun júní.“ Þetta sagði vinur minn við mig á dögunum en sá hinn sami er mikill knattspymuáhugamaöur. Kappinn var frekar fúll yfir gengi sinna manna sem unnu mótið í fyrra. Og aö mörgu leyti get ég tekið undir það sem hann sagði, það er ekkert að marka leiki liðanna á malarvelli eða á gervigrasi. Og mikið held ég að sé til í því sem margir halda aö það lið sem komi best út úr þessum fyrstu leikjum í íslandsmótinu muni standa vel að vigi þegar farið verður að leika við eðliiegar aö- stæöur. Veðurfarið undanfarna daga hef- ur verið með þeim hætti sem helst varð á kosið. Astand grasvalla viða um land gerbreyttist á skömmum tíma sem gerir það að verkum aö hægt verður að byrja að leika á þeim fyrr en útht var fyrir í byrjun. Gífurlegur áhugi á Islandsmótinu Það er ekki ofsögum sagt aö áhugi á nýbyrjuðu íslandsmóti sé meiri en hann hefur verið í nokkum tíma. Ég minnist þess ekki aö tjöl- miðlar hafi sýnt mótinu meiri áhuga og svo viröist sem knatt- spyrnuunnendur æth aö mæta á leiki íslandsmótsins af enn meiri krafti en áður. Betrí einstaklingar -betrilið? Þaö hefur víst ekki farið framhjá neinum að margir ieikmenn sem leikið hafa erlendis eru komnir eöa eru á leiðinni til landsins. Víst er aö fjöldi góðra einstaklinga í liðun- um í 1. deild mun aukast gífurlega en síðan verður tíminn aö skera úr um það hvort það skilar sér í betri liðum en verið hefur. DV kynnir 1. deildar félögin í DV í sumar munu íslandsmót- inu verða gerð öfiug skil og verður þar sagt frá gangi mála í öllum deildum. DV hefur sýnt íslands- mótinu mikinn áhuga enda áhugi lesenda mikOl. Og til að fræða les- endur sína ura liðin tíu í 1. deild- inni höfum við gefið út tólf síðna aukabiað um hðin en það fylgdi DV á fimmtudaginn. í blaðinu er mynd af öllum leikmönnum 1. deildar félaganna, viðtal við fyrir- hða eða þjálfara auk ýmissa atriða um hðin. Blað þetta er kærkomiö fyrir knattspyrnuunnendur og ætti enginn slíkur að láta það framhjá sér fara. Þá má geta þess að í blað- inu er mótaskrá yfir leikina í 1. deild en mótabók KSÍ hefur ekki enn htið dagsins Ijós. Alfreð stóð sig vel Alfreð Gíslason, landshösmaður í handknattieik, var aðeins feti frá því að verða Evrópumeistari með liöi sínu Tusem Essen frá Vestur- Þýskalandi á dögunum. Essen lék sem kunnugt er til úrslita gegn ZSKA Moskva og vann sovéska hð- iö sigur á fleiri mörkum skoruðum á útivelh. Hefði Essen sigraö hefði Alfreö orðið fyrsti íslenski íþrótta- maðurinn tii að verða Evrópu- meistari f flokkaíþróttum en því miður tókst það ekki. Árangurinn er engu að slöur góður. Lélegt gegn Portúgal Ólymplulandsliö okkar i knatt- spyrnu lék gegn Portúgal sl. þriðju- dag og var leikur hösins vægast sagt slakur. Portúgalar unnu sinn fyrsta útisigur í riölinum og ljóst er aö íslenska liöið verður aö taka sig veralega á fyrir síöasta leikinn gegn ítölum á Laugardalsvelli á morgun, sunnudag. Þegar á heild- ina er litið er fraramistaða íslenska liösins slök og fátt viröist geta kom- ið í veg fyrir aö viö vermum botn- sæti riðilsins. Golfvertíðin að hefjast fyrir alvöru Nú er golfvertíðin að hefjast fyrir alvöru og hvert mótiö af öðra er á dagskrá á næstu dögum hjá golf- klúbbum viðs vegar um landið. Gífurlegur áhugi er ríkjandi á þess- ari skemmtilegu íþrótt. Fjöldinn, sem sækh' í golfvehina, fer sífeht vaxandi og nú er svo komið að oft verða kylfingar að bíða í langan tíma eftir því aö komast að á völl- unum. Undirritaður hefur af veik- um mætti veriö að berja á hvítu kúlunni á undanfómum dögum á golfvellinum aö Korpúlfsstöðum og þar hefur mjög mikih fjöldi kylf- inga verið að reyna meö sér. Áltug- itm er mikiU og um daginn sást th kylfings á KorpúlfsstaðaveUi og hatði sá hinn sami barnavagn meö- ferðis. Dró hann golfkerruna með annarri hendi og bamavagninn með hinni. Þeta er að hafa áhuga á golfi. Stefán Kristjánsson • Alfreð Gislason var mjög nálægt þvi að verða Evrópumeistari með Tusem Essen. Hér sést hann i hörðum slag með liði sinu i Vestur-Þýskalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.