Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1988, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 28. MAÍ 1988.
5í
Aðstaða til dýfinga er góð. Þessi átti eftir að magalenda.
Nýr áfangastaður á Mallorca:
Enn einn áfangastaður hefur nú
bæst við allan þann fjölda sem ís-
lenskum sólarlandaforum stendur til
boða. Staöurinn heitir Cala d’or,
Gullvíkin.
Mallorca var einn fyrsti áfanga-
staður íslenskra sólarlandafara. Og
enn nýtur eyjan mikilla vinsælda.
Samkeppni ferðaskrifstofanna gerir
það að verkum að stöðugt eru leitað-
ir uppi nýir staðir á eyjunni.
Cala d’Or er á eyjunni suðaustan-
verðri. Þarna er ströndin klettótt og
vogskorin, ekki ósvipuð Costa Brava.
Miklir hamraveggir ganga í sjó. Á
milli þeirra eru skjólsælar víkur og
eru þær sendnar í botninn. Er utar
dregur eru grynningar litlar. Slíkar
aðstæður eru kjörnar fyrir siglingar,
enda eru stórar smábátahafnir í
mörgum víkanna.
Sex víkur
Cala d’Or-þorpið stendur við sex
smávíkur. íbúðir Samvinnuferða
standa við Cala Ferrera, smávík
skammt frá miðbænum. Frá hótel-
byggingunni er örskammt niöur á
smáströnd í botni víkurinnar.
Ströndin sjálf er í smærra lagi. Að-
staða til sólbaða er þó ágæt.
Sumum finnst ferðamannaflóöið á
Mallorca yfirgengilegt. Cala d’Or
hefur þann kost að stutt er í ómeng-
aöa sveitamenningu eyjarinnar. Hót-
elin eru öll við ströndina.
Hægt er að leigja sér reiðhjól, mót-
orhjól eða bíl gegn vægu gjaldi og
fara sjálfur í eigin skoðunarferðir.
Sem dæmi um verð má nefna að dag-
gjald bifreiðar er um 600 krónur. Það
e'r aðeins fimm mínútna akstur út í
sveit. Þar tekur við önnur veröld,
algjör andstæða ferðamannaiðnaö-
arins. Ólífutré á stangli, möndlu-
lundir og ávaxtarækt ber blómlegum
landbúnaði vitni. Gamlir bændur á
asnakerrum eru ekki óalgeng sjón.
Aðalatvinnuvegur eyjarskeggja
var áður landbúnaður. Nú er ferða-
mannastraumurinn svo mikill að
tekjur af landbúnaði eru næsta
óveruiegar. 98% af tekjum eyjarinn-
ar koma frá ferðamönnum en aðeins
2% frá landbúnaði.
íþróttaiðkun
í Cala d’Or er frábær aðstaða til
hvers kyns siglinga. Hægt er að leigja
sér báta af öllum gerðum og halda
til hafs. Á þessu svæði er aðdjúpt og
mikil fiskigengd. Veiðar eru þvi vin-
sæl íþrótt, svo og köfun.
Sólin
sleikt á
klettum.
Cala Ferrera. DV-mynd PLP
Þeir sem ekki viija ganga svo langt
að leigja bát geta farið í siglingar. Þar
er ýmislegt í boði. Sem dæmi um
styttri ferðir er sigling á bát með gler-
botni. í gegnum glerið geta ferða-
menn virt fyrir sér fjölskrúðugt
dýralíf sjávarins.
í Cala d’Or er frábær golfvöllur.
Þá skiptir ekki máli hvort kunnátta
er fyrir hendi því að boðið er upp á
kennslu. Þá eru tennisvellir margir.
Vinsælasta íþróttin á sólarströnd-
um er þó tvímælalaust sjóböð. Við
víkumar er sjórinn tær og hlýr.
Staðurinn hefur verið í hraðri upp-
byggingu undanfarin ár og nýtur nú
mikilla vinsælda hjá norrænum
ferðamönnum. Hins vegar er þetta í
fyrsta sinn sem íslendingar birtast
þarna.
-PLP