Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 30. MAÍ 1988.
Fréttir
íslenskur uppfinningamaður
stofnar fyrirtæki í Danmörku
- þar sem framleiddir verða pólskór og rafmagnsklemmur
Gizur Helgason, DV, Þýskalandi:
íslenski uppfinningamaðurinn
Jóhannes Pálsson er nú í þann veg-
inn að hefja rekstur verksmiðju
sinnar í bænum Nakskov í Dan-
mörku. Fyrirtækið nefnist Jopel
A.S. Hlutverk þessa fyrirtækis er
meðal annars að framleiða
ákveðna tegund af pólskóm en auk
þess klemmur sem nota á við raf-
magnsgirðingar.
Einhverjar fleiri vörutegundir
verða framleiddar hjá fyrirtækinu
en allar eiga þær það sameiginlegt
aö vera fundnar upp af Jóhannesi
Pálssyni.
Fyrirtækið í Nakskov er stutt af
þróunarstofnun svæðisins, dönsku
tæknimiðluninni, íjármálastofnun
héraðsbankanna, Lalandia-fjár-
festingu A.S. og danska launþega-
sjóðnum.
Svæðisdagblöðin segja í fréttum
sínum aö framleiðslan hafi þegar
verið hafin á íslandi en verði nú
öll flutt til Nakskov. Framleiðslu-
stjóri fyrirtækisins á íslandi, Gísli
Gíslason, flyst til Nakskov og var
þar fyrir allnokkru þegar undir-
búningur fyrirtækisins var í bí-
gerð. Hann fór til íslands í byijun
maí til að sækja fjölskyldu sína og
er nú væntanlegur innan fárra
daga.
Jóhannes Pálsson segir sjálfur að
hann hafi kosið að flytja fyrirtækið
til Danmerkur vegna betri og auð-
veldari samvinnu við uppfinninga-
skrifstofuna og dönsku tæknistofn-
unina. Uppfinningamaðurinn
reiknar fastlega með að útflutn-
ingsmöguleikar séu góðir fyrir
megnið af framleiðslunni, ekki
hvað síst pólskóna, en þeir hafa
vakið mikinn áhuga á alþjóðlegum
vettvangi og sér í lagi hjá bifreiða-
framleiðendum.
Reiknað er með að 6-8 manns
starfi hjá fyrirtækinu.
Flugfélag Norðurlands:
Flugvél féll
hundrað meba
Flugvél frá Flugfélagi Norðurlands
féll nokkur hundruð metra í aðflugi
viö Grímsey á föstudagskvöld. „Það
er rétt að véhn lenti í ókyrrð. Það
var engin hætta á ferðum. Vélin gat
ekki lent sökum dimmviðris og sneri
aftur til Akureyrar,“ sagði Sigurður
Aðalsteinsson framkvæmdastjóri.
Einn farþegi var í vélinni. Vörur,
sem voru aftast í henni, köstuðust
til, þar á meðal var tjörudunkur.
Lokið fór af honum og skvettist tjar-
an yfir innréttingar aftast í véhnni.
„Aðkoman var ljót og það tók um 40
vinnustundir að þrífa vélina," sagði
Sigurður Aðalsteinsson. -sme
Fundað um fiskverð:
Nýr fundur boðaður í dag
Yfirnefnd Verölagsráðs sjávarút-
vegsins fundaði á laugardag. Á fund-
inum var fjallaö um nýtt fiskverð,
en að sögn Helga Laxdal, formanns
Vélstjórafélags íslands, hefur nýr
fundur verið boðaður í dag klukkan
4.
Sjómenn hafa lagt fram kröfu um
10%.hækkun á verði aö sögn Helga,
en það er innan ramma bráðabirgöa-
laganna. „Sjómenn hafa dregist aftur
úr hvaða varðar almenna launaþró-
un,“ sagöi Helgi í samtali við DV í
morgun, „og teljum við þessa kröfu
hógværa.“
Núverandi fiskverð gildir til nk.
miðvikudags, 1. júní.
-StB
Rrthöfundasambandið:
Einar Kárason
kosinn formaður
Einar Kárason hefur verö kosinn
formaður Rithöfundasambands ís-
lands og tekur hann við af Sigurði
Pálssyni sem gegnt hefur starfinu
í fjögur ár. Aðrir í stjóm voru kosn-
ir Steinunn Sigurðardóttir varafor-
maöur, Þórarinn Eldjám, VUborg
Dagbjartsdóttir og Andrés Indriða-
son. Þá vora kosin til vara Vigdís
Grímsdóttir og Sjón.
Einar sagöi að þaö væri ekkert
sérstakt sem biði framundan í
hagsmunabaráttu rithöfunda þó
vissulega væri þar margt sem
þyrfti að laga, td. greiðslur fyrir
útlán í bókasöfhum. En er gott að
vera rithöfundur hér á landi?
„Almenningur hér virðist vera
hlynntur bókum og bókmenntum
og hér er keypt hlutfahslega meira
af bókum en annars staöar. Þaö er
hins vegar annaö mál að rithöfund-
ar fá afskaplega htið í sinn hlut
enda gina flestir aðrir yfir þeim
tekjum sem bækurnar skfia.“
Einar sagöist vera aö fást viö rit-
störf nú eins og reyndar tíu síðustu
ár. Hann heföi á þeim tíma skUað
frá sér fimm bókum og bjóst hann
við að halda áfram á þeim hraöa,
það kæmi því ekki bók eftir hann
um næstu jól. -SMJ
Stjörnukort í Kringlunni:
Fasteignasalanum
óviðkomandi
Eigandi stjömukortafyrirtækisins
í Kringlunni vUdi koma á framfæri
leiöréttingu við frétt DV á laugardag,
þar sem einstæð móðir segir einn
þeirra sem sviku hana um mihjónir
vera eiganda stjömukortafyrirtæk-
isins í Kringlunni.
„Þetta er einkafyrirtæki og hefur
verið mín eign frá því að fyrirtækið
var stofnað. Mér er það mál, sem
umrædd frétt snýst um, meö öUu
óviðkomandi og í fréttinni er farið
með rangt mál, sagði eigandi
Stjömukorta. -sme
Johann Rafnsson með tvihendis stöng, en hann kastaði vel og var i öðru sæti í einhendunni.
DV-myndir G. Bender.
Ámi Guðbjömsson, leiðsögumaður í Vatnsdalsá:
Vann í báðum flokkum og
veiðileyfi í Laxá í Kjós
„Ég er mjög hress með keppnina
og þátttökuna í þessari fyrstu kast-
keppni okkar og við stefnum að
svona á hverju ári hér eftir,“ sagði
HaUgrímur Marinósson, eigandi
Veiðihússins, í samtali við DV í lok
hennar. „Þetta vora mjög góð köst
hjá keppendum og mest hafa verið
um 70 manns aö fylgjast með,“ sagði
Hallgrímur.
Það var Árni Guðbjömsson, leið-
sögumaðurinn úr Vatnsdalsá, sem
vann í keppni með einhendis og tví-
hendis stöngum. Með einhendu kast-
aði Ámi 30,22 metra og annar var
Jóhann Rafnsson sem kastaði 29,54
metra. Með tvíhendu kastaði Árni
40,96 metra og næstur var Svavar
Gunnarsson með 39,22 metra.
Þessi keppni kom á réttum tíma fyrir
veiðimenn og gaman að sjá kastara
eins og Anahus Hagvaag, kominn á
níræðisaldurinn, sveifla flugustöng-
inniglæsUega. G.Bender
Vísindaleiðangur til Kolbeinseyjar
íslenskir og þýskir vísinda-
menn kafa eftir örverum
í þessari viku halda nokkrir ís-
lenskir og þýskir vísindamenn í
rannsóknarleiöangur með þýska
rannsóknarskipinu Polarstem að
Kolbeinsey. Við Kolbeinsey veröur
farið í tveggja manna kafbáti niður
að neöansjávarhverum á 100 metra
dýpi til að kanna jarðfræðilegar og
líffræðUegar aðstæður.
TUgangurinn er að leita áður
óþekktra tegunda hitakærra ör-
vera sem e.t.v. hafa aðra eiginleika
en þær sem hingað tU hafa verið
rannsakaðar. Á því dýpi, sem hver-
imir eru við Kolbeinsey, er suðu-
mark vatns tahð vera langt yfir 100
gráðum vegna þrýstings. Því
kynnu að lifa þar örverur við
hærra hitastig en á yfirborði jarö-
ar. Hjá Iðntæknistofnun er verið
að vinna að líftækniverkefni sem
felst í að einangra hitakærar
hveraörverar og framleiða hitaþol-
in ensím.
Stjómandi verkefnisins er dr.
Jakob Kristjánsson, forstöðumað-
ur Uftæknisviðs Iðntæknistofnun-
ar íslands. Leiðangursmenn auk
hans era frá Líffræðistofnun, Ha-
frannsóknastofnun og Orkustofn-
un. Leiðangurinn kom til vegna
samvinnu við dr. Karl O. Stetter,
prófessor við háskólann í Regens-
burg í V-Þýskalandi.
Vísindamennimir koma til
Reykjavíkur úr leiöangrinum 4.
júní nk„ en hann hefur verið í und-
irbúningi í þijú ár.
-StB