Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Blaðsíða 34
46 MÁNUDAGUR 30. MAÍ 1988. LífsstOI ■ Sjóstangaveiði í Vestmannaeyjum: Tíu vindstig og haugasjór gerir sportíð eftirsóttara Þeir láta ekki að sér hæða, sjó- stangaveiðiraenn, 10 vindstig og haugasjór er krydd í tilvenma, ger- ir sportið eftirsóttara og þátttak- endur fá tækifæri til að takast á við höfuðskepnurnar, í þess orðs fyllstu merkingu. Þetta á allt saman við um síðasta hvítasunnumót Sjóstangaveiðifé- iags Vestmannaeyja, sem haldið var í austan stormi og stórsjó. í fyrsta skipti í 26 ára sögu félags- ins þurfti að kalla bátana inn, en þátttakendur létu það ekki á sig fá, þótt veðrið hefði áhrif á aflabrögð- in, aflinn hefði kannski mátt vera meiri. Þá var enginn leikur að hand- leika stöngjna um leið og veiði- mennimir, flestir landkrabbar, þurftu að halda sér í veltingnum. En veðrið hefur líka leikið við stangaveiðimenn á hvítasunnu- mótunum. Bæði í fyrra og Mtti- fyrra var frábært veður, sól, hægur vindur og sléttur sjór. Þá var aflinn lika margfalt meiri en nú og fisk- amir stærri. Löng forsaga Hvitasimnumótin, sem eiga sér orðið nokkuö langa sögp, sennilega um 30 ára gömul, eru viðamestu sjóstangaveiðimót landsins, en auk þeirra eru haldin mót á ísafirði og Akureyri á hverju ári. Mótiö stend- ur í tvo daga og hefst með því að á fóstudagskvöldinu er mótið sett. Menn em látnir draga um á hvaða bát þeir róa, spáð er í veðriö og gamlar veiðisögur rifjaðar upp. Alvaran hefst klukkan 6 á laugar- dagsraorgninum þegar flotinn læt- ur úr höfn. í þetta skiptið era þeir 15 og keppendur 107: konur, karlar og börn á ölium aldri sem eiga það áhugamál sameiginlegt aö veiða fisk úr sjó og það skal vera á stöng. Þegar komið er á miðin reynir á veiðikunnáttuna og hve fljótir menn eru að afgreiða hvem fisk. Spennan er mikil, metnaður milli manna, góðlátleg skot tjúka og stundum gengur pelinn á milli, þannig líður dagurinn fram að há- degi. Bátamir eiga að vera komnir að bryggju klukkan 2 síðdegis. Er handagangur í öskjunni þegar þeir streyma inn hver af öðram og bæj- arbúar fjölraenna á bryggjuna til að fylgjast meö. Menn bera saman bækur sínar eftir daginn. „Ertu með einn eða tvo kassa? Ég frétti að þeim á Tvistinum hefði gengið vel. Er það satt að Ester á Gamla spítalanum sé efst eftir daginn?“ Þannig er spjallað á bryggjunni meöan aflanum er landað, minnir á vertiðir meðan þær voru og hétu. Sama sagan Á sunnudeginum endurtekur sagan sig, á sjó klukkan 6, að landi klukkan 2. Aflinn vigtaður, hver ftskur mældur, veginn og allt er talið því verölaun era veitt fyrir stærsta fisk af hverri tegund, fyrir flesta fiska og heildarvigt. Afla- hæsti skipstjórinn fær verðlaun, skipað er í sveitir sem fá verðlaun og svo mætti lengi telja. Að kvöldi sunnudags er slegiö upp dansiballi, þar er borðað, hleg- ið, drukkið, sungið og sagðar veiði- sögur bæði sannar og lognar. En númer eitt eru úrslitin sem þá era kynnt. Verðlaununum, sem eru mjög vegleg, er útdeilt. Anægja sig- urvegaranna er ósvikin, en að sönnum íþróttasið er aðalatriðið að taka þátt í leiknum. „Og við kom- um aftur,“ sagði Karl Jörundsson frá Akureyri þegar honum vora veitt verðlaun fyrir að hafa dregið stærstu ýsuna og geta það verið lokaorð þessarar greinar. Elínborg Bemódusdóttir: „Þeir bundu mig fasta á laugardaginn" Elinborg Bernódusdóttir hefur tekið þátt í sjóstangaveiði í mörg ár ásamt systrum sínum, þeim Þóra, Lillu og Þuru. Hafa þær löngum sett svip sinn á hvítasunnumótin og oft unnið til verðlauna. Ekki hafa þær látið veðrið hafa áhrif á sig nú frekar en endranær. „Ég byrjaði í þessu árið 1979,“ sagði Elínborg, en hvað er það sem gerir sjóstangaveiði svona eftirsótta? „Númer eitt finnst mór gaman að veiða, félagsskapurinn er frábær og það sem gerir þetta svo sérstakt er að í raun er verið aö keppa fyrir 3 - fyrir sjálfan sig, sveitina og bátinn. Ef vel gengur getur það orðið til þess aö allir þessir fái verðlaun. „Þetta var sannkallað sjóævin- týri,“ sagði Elinborg þegar hún var beöin um að lýsa mótinu núna. „Ég reri á Sæfaxa VE og var aftast á bátn- um, þar sem erfitt var að fylgjast með mér. Veðrið var svo slæmt á laugardaginn að þeim fannst vissara aö binda mig niður svo ég dytti hrein- lega ekki útbyrðis, en allt gekk þetta vel.“ Að lokum vildi hún koma á fram- færi þakklæti til skipstjóranna, án velvilja þeirra yrði ekkert sjóstanga- veiðimót haldið. Elinborg Bernódusdóttir mundar stöngina. Karl Jörundsson: Möguleiki á stórum fiskum Akureyringar hafa alla tíð verið aufúsugestir á hvítasunnúmótunum í Vestmannaeyjum, hefur verið mjög gott samstarf þama á milli og menn verið duglegir að sækja mót hver hjá ööram. Akureyringum hefur oft gengiö- betur á hvítasunnumótunum en í ár, en það virtist ekki spilla ánægju þeirra, smávandamál eins og suð- austan 10 vindstig er bara eitthvað til að Mæja að. „Við komum aftur," sagði Karl Jörandsson frá Akureyri við verðlaunaafhendinguna, en hann dró stærstu ýsuna á mótinu. Þarna sagðist hann tala fyrir munn allra Akureyringanna. Til fyrirmyndar Karl sagði í viðtali við útsendara DV að Sjóstangaveiðifélag Akur- eyrar hefði verið stofnað árið 1964 og var hann formaður þess um tíma. „Stærsta verkefm okkar á Akureyrí til þessa er Evrópumótið sem við héldum árið 1974. Þátttakendur voru um 160 og var helmingurinn útlend- ingar. Vestmannaeyjamótin hafa alltaf verið til fyrirmyndar í alla staði. Það sem gerir þau svo sérstök er mögu- leikinn á stóram fiskum, einkum lúðunm sem er alltaf númer í sjó- stangaveiöinm.“ Ekki vildi Karl gera mikið úr bræl- unm, sagði að sér hefði gengið vel þrátt fyrir veður. En hann vildi koma því á framfæri svona í lokin að þeir Akureyringarmr hefðu lært margt af Magnúsi Magnússym mótsstjóra, þar væri réttur maður á réttum stað. Magnús Magnússon mótsstjóri: „Fyrsta skiptið sem þarf að kalla bátana inn" Magnús Magnússon hefur staðið við stýrið í landi á sjóstangaveiði- mótunum undanfarin 18 ár sem mótsstjóri. Undirbýr hann allt sem lýtur að verðlaunum og sér um aö koma þeim til skila, að öll verðlaun lendi á réttum stað. „Á meðan á mótunum stendur fylg- ist ég með þegar aflinn er vigtaður, þar verður allt að passa og mikið í húfi að engu skeiki. Ef vandamál koma upp verð ég að vera til taks og Tíðarandi skera úr um ef þarf. Þetta er í fyrsta skiptiö sem þarf að kalla báta inn vegna veðurs, eins og var á sunnu- dagsmorguninn. Kom til minna kasta að taka ákvörðun um þetta, það gerði ég þó ekki fyrr en ég hafði talað við skipstjórana, sem sögöu um níu- leýtið að veðrið væri orðið mjög slæmt.“ Magnús sagðist hafa stundað veið- arnar sjálfur til að byija meö en síð- an hann tók við mótsstjóminm væri það ómögulegt. „En ailtaf er þetta jafngaman, en það sem situr kannski helst eftir er sá fjöldi af góðu fólki sem maður hefur kynnst í gegnum þetta,“ sagði Magnús að endingu. Diddi í Svanhól í öllum herklæðum. DV-myndir Ómar Garðarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.