Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Side 10
10
MÁNUDAGUR 30. MAÍ 1988.
Utlönd
‘\erð miðast virt fninikiillun og koperingú á 24 mynda
litfilimi og 24 mvnda KONICA litfilmu sem þú færd til baka
MOTTOKUSTAOn
iUM AUAN8Æ'
h Til dæmis:
Sporthf
Eiöistorgi
Spörtbær
Hraunbær 102
Straumnes
Vesturbergi 76
Sportbúöin
Drafnarfelli
Innrömmun og hannyröir
Leirubakki 36
Forsætisráðherra Pakistans, Mohammad Khan Junejo, var settur af i gær og boðað var til almennra kosninga i
landinu innan níutíu daga. Þessi mynd var tekin fyrir nokkrum dögum er Junejo heimsótti Corazon Aquino, for-
seta Filippseyja. Simamynd Reuter
Bhutto fagnar al-
mennum kosningum
Benazir Bhutto, einn helsti stjóm-
arandstæðingurinn' í Pakistan,
kvaðst í gær fagna því að boðað hefði
veriö til almennra kosninga í landinu
innan níutíu daga. Hún hefur frá því
að hún sneri heim úr sjálfviljugri
útiegð árið 1986 farið fram á almenn-
ar kosningar.
Forseti Pakistans, Mohammad
Zia-ul Haq rauf þing í gær og rak
forsætisráðherrann, Mohammad
Khan Junejo, frá völdum. Kvað for-
setinn þingmönnum hafa mistekist
að koma stefnu múhameöstrúar-
manna á í landinu.
Bhutto vildi ekki tjá sig um hvort
hún teldi að þessi aðgerð forsetans
væri í tengslum við tilkynningu frá
fjölskyldu hennar fyrir fjórum dög-
um um að hún ætti von á bami.
Stjómmálafræðingur nokkur sagði
forsetann hafa beðið eftir þessum tíð-
indum.
Bhutto vildi heldur ekki segja
hvort flokkur hennar ætlaði að taka
þátt í kosningabaráttunni. Sagði hún
að áður en ákvörðun yrði tekin þyrfti
hún að lesa kosningareglur.
Zia, sem steypti fóður Benazirs
Bhutto af stóli árið 1977 og leyfði síð-
an að hann yrði hengdur vegna um-
deildrar morðákæm, heldur því
fram að kosningamar 1985, sem ekki
voru flokkskosningar, hafi komið á
lýðræði í Pakistan. Allir helstu
stjórnarandstæðingar tóku ekki þátt
í þeim kosningum.
Hundrað og fimm-
tán manns saknað
Óttast er að hundrað og fimmtán
manns hafi farist þegar ferja sökk
við sunnanverðar Filippseyjar í
gærkvöldi.
Talsmaður filippseysku strand-
gæslunnar sagði í morgun að einn
maður hefði fundist á lífi á slys-
staðnum, hangandi á braki úr ferj-
unni. Engin lík hafa enn fundist á
staðnum.
Að sögn talsmanns strandgæsl-
unnar var það eitt þúsund tonna
ferja, Farida, sem sökk eftir að vél-
arbilun kom upp í henni í slæmu
veðri á Moro-flóa, við strönd eyj-
unnar Mindanao. Sendi ferjan út
hjálparbeiðni um talstöð um
klukkan 8.30 í gærkvöldi.
Slæmt veður og lélegt skyggni
var á slysstaðnum.
Þetta er þriðja alvarlega ferju-
slysiö sem verður við Filippseyjar
á undanfórnum sex mánuðum.
Talið er að yflr þrjú þúsund manns
hafi farist þegar ferjan Dona Paz
sökk á leiö til Manila í desember
síðastliðnum. Þann 5. maí síðastlið-
inn er talið aö um tvö hundruð
manns hafi farist með flutninga-
skipi viö eyjarnar.
Óeirðalögregla
barði mótmælendur
Óeirðalögregla í Suður-Kóreu
réðst með barsmíð að mótmælendum
í Seoul í morgun. Áður hafði lögregl-
an beitt táragasi til þess að reyna að
tvístra mótmælendum sem voru um
fimm þúsund talsins.
Höfðu mótmælendur, sem flestir
voru námsmenn, safnast saman til
þess að heiðra minningu stúdents
sem fyrirfór sér í síðustu viku. Var
hann aö mótmæla því að stúdenta-
uppreisnin 1980 var bæld niður af
yfirvöldum.
Eftir að líkfylgdin haföi fariö frá
járnbrautarstöðinni í Seoul til
Kwangju, þar sem uppreisnin átti sér
stað, voru margir námsmenn um
kyrrt á stööinni og kyrjuðu söngva
gegn stjóminni. Einnig brenndu þeir
bandarískan fána.
Nokkur hundruð lögreglumenn,
sem umkringt höfðu jámbrautar-
stöðina, gerðu þá árás á mótmælend-
ur með táragasi og skelfingu lostnir
ferðamenn fiúðu inn í símaklefa og
miðasöluskrifstofur.
Stúdentar I hvitum sorgarklæðum í Seoul í Suður-Kóreu bera kistu látins
félaga sins sem fyrirfór sér í síðustu viku. Eftir útförina var efnt til mótmæla-
aðgerða. Simamynd Reuter
Óeinkennisklæddir lögreglumenn um námsmannanna og spörkuðu í
með hvíta hjálma börðu á nokkr- þá.