Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Qupperneq 12
12
Útlönd
MÁNUDAGUR 30. MAÍ 1988.
DV
Mið-Austuriönd
helsta málið
Miö-Austurlönd og deilurnar milli
araba og ísraela er þaö svæðamál
sem þeir Ronald Reagan Bandaríkja-
forseti og Mikhail Gorbatsjov, aöal-
ritari sovéska kommúnistaflokksins,
ræða á leiðtogafundi sínum sem
hófst í Moskvu í gær. Á fyrri leið-
togafundum þeirra hefur það verið
Afganistan og hernaðarafskipti Sov-
étmanna þar sem hefur fengið mesta
athygli leiötoganna tveggja, en eftir
samningana um brottílutning so-
véska herliðsins þaðan fellur það mál
að mestu af dagskrá þeirra.
Bandarísku forsetahjónin komu til
Moskvu í gær, þar sem Andrei Gro-
myko, forseti Sovétrikjanna, tók á
móti þeim.
Reagan og Gorbatsjov áttu svo sinn
fyrsta fund í Kremi í gær og eftir
þann fund voru fulltrúar þeirra
bjartsýnir á að nokkur árangur
myndi nást á fundunum í dag og
næstu daga.
Leiðtogarnir munu skiptast á stað-
festum eintökum af samningnum um
eyðingu meðaldrægra kjarnorku-
vopna, þar sem öldungadeild banda-
ríska þingsins og sovéska þingið hafa
nú staðfest hann.
Búist er við að leiðtogunum verði
nokkuö ágengt í viðræðum sínum
um gagnkvæma fækkun langdrægra
kjarnorkuvopna.
Fundir leiðtoganna tveggja í gær
og í morgun báru nokkurn svip af
gagnrýni þeirri sem Reagan hefur
undanfarna daga beint gegn Sovét-
mönnum vegna mannréttindamála.
Segja Sovétmenn bandaríska forset-
ann enn halda í gamlar kreddur í
þeim efnum.
Þeir Ronaid Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhail Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, á fyrsta
fundi sínum í Moskvu í gær. Símamynd Reuter
Sovéskir þingmenn staðfesta samninginn um meðaldrægar eldfiaugar með
lófataki á laugardag. Simamynd Reuter
Robert Dole, leiðtogi repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins, og
Robert Byrd, leiðtogi demókrata í deildinni, skýra Reagan forseta frá því
í sima að samningurinn um meðaldræg kjarnorkuvopn hafi verið staðfestur
af þingmönnum. Simamynd Reuter
Moskvubúar fagna bandarisku for-
setahjónunum í gær.
Simamynd Reuter
Eiginkonur leiðtoganna, þær Nancy
Reagan og Raisa Gorbatsjova,
ræddu við fréttamenn í gær á skoð-
unarferð sinni um Kreml. Mikil sam-
keppni er talin ríkja milli kvennanna
tveggja og er haft á orði að þetta
megi meðal annars marka af því að
þaö verður Lidiya Gromyko, forseta-
frú Sovétrikjanna, sem fer með Nan-
cy Reagan til Leningrad.
Símamynd Reuter
Reagan forseti veifar til Moskvubúa i gær. Forsetahjónin fóru þá í göngu-
ferð um Arbat-stræti í Moskvu og var fagnaö svo að öryggisverðir gengu
hálfgerðan berserksgang af ótta. Simamynd Reuter
Andrei Gromyko, forseti Sovétríkjanna, tók á móti Bandaríkjaforseta á
Vnukovo-flugvellinum við Moskvu í gær. Símamynd Reuter
i
Leiðtogarnir tveir, Reagan og Gorbatsjov, heilsast í Moskvu i gær.
Símamynd Reuter
\ \rZBUc"ONOK
m
Gyðingar í Jerúsalem krefjast þess að sovéskir andófsmenn verði látnir
lausir. Þeir skipulögðu mótmæli sin í tengslum við heimsókn Reagans til
Sovétríkjanna. Símamynd Reuter