Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Page 16
MÁNUDAGUR 30. MAÍ 1988.
FRÁBÆRU PAPUFFI
AFAINNISKÓRNIR
KOMNIR í SUMARLITUM
Þægilegir og góðir fyrir alla fjölskylduna. Stærðir
34-46. Verð aðeins 795,- kr. Póstsendum um allt
land. Einn útsölustaður í Reykjavík,
FLEX
Laugavegi 48
Einkaumboð á íslandi
HEILDVERSLUNIN EINN TVEIR. SÍMI 13930.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við grunnskóla.
Norðurlandsumdæmi vestra:
Stöðu skólastjóra við grunnskólana Hólum í Hjaltad-
al og Akrahreppi.
Stöður sérkennara í fræðsluumdæminu.
Stöður grunnskólakennara vió grunnskólana: Siglu-
firði, meðal kennslugreina íþróttir drengja, raungrein-
ar, samfélagsfræði, erlend mál og sérkennsla. Sauð-
árkróki, meðal kennslugreina danska og tónmennt.
Staðarhreppi V.-Hún, Rípuhreppi, Haganeshreppi,
Blönduósi, meðal kennslugreina kennsla yngri barna,
tónmennt, mynd- og handmennt. Höfðakaupstað,
meðal kennslugreina íþróttir. Hofsósi, meðal kennslu-
greina mynd- og handmennt, íþróttir, danska og
kennsla yngri barna, ódýrt húsnæði í boði. Laugar-
bakkaskóla, meðal kennslugreina hannyrðir og
íþróttir, ódýrt húsnæði í boði. Vesturhópsskóla, með-
al kennslugreina smíðar og handmennt. Húnavalla-
skóla, meðal kennslugreina stærðfræði og raungrein-
ar. Steinsstaðaskóla.
Norðurlandsumdæmi eystra:
Stöður skólastjóra við grunnskólana: Hrísey, Lundi
Öxarf. og Svalbarðshreppi.
Stöður grunnskólakennara við grunnskólana: Akur-
eyri, meðal kennslugreina islenska, stærðfræði,
danska, enska, íþróttir, samfélagsfræði, raungreinar,
hand- og myndmennt, tónmennt, heimilisfræði, sér-
kennsla. Húsavík, meðal kennslugreina sérkennsla.
Dalvík, meðal kennslugreina danska. Grímsey, Hrís-
ey, Saurbæjarhreppi, Svalbarðssströnd, meðal
kennslugreina íþróttir. Bárðardal, Lundi Öxarfirði,
Raufarhöfn, meðal kennslugreina íþróttir. Þórshöfn,
meðal kennslugreina íþróttir, handmennt, raungrein-
ar. Árskógarskóla, Þelamerkurskóla, meðal kennslu-
gréina heimilisfræði, íþróttir, mynd- og handmennt.
Grenivíkurskóla, meðal kennslugreina íþróttir.
•1_______________________________________________
Fréttir
Biskupinn, herra Pétur Sigurgeirsson, flytur ræöu eftir að hafa tekið fyrstu skófiustunguna að nýrri kirkju og
Snorrastofu. DV-mynd Snorri
Reykholtsstaður á tamamótum:
Framkvæmdir við Snorrastofu
og nýja kirkju að hefjasf
- Biskup íslands iók fyrstu skóflustunguna á hvrtasunnudag
Snoni Kristleifeson, DV, Borgaifirði;
Á hvítasunnudag var tekin fyrsta
skóflustungan aö nýrri kirkiu og
Snorrastofu í Reykholti. Athöfnin
hófst meö guðsþjónustu í Reykholts-
kirkju. Biskup Islands, herra Pétur
Sigurgeirsson, þjónaði fyrir altari og
honum til aðstoðar voru, auk sókn-
arprestsins séra Geirs Waage, þeir
séra Brynjólfur Gíslason í Stafholti
og séra Jón Einarsson í Saurbæ.
Að guðsþjónustunni lokinni var
gengiö út á stæði hinnar fyrirhuguöu
kirkju, sem er vestan kirkjugarðsins,
norðan prestsbústaðar. Biskup flutti
bæn og tók fyrstu stunguna að
grunni hinnar nýju byggingar. Not-
aði hann til þess gamlan íslenskan
pál. Þá flutti biskup stutta ræðu og
talaði um söguna og lifandi menn-
ingu. Hann ræddi um að á meðan
menn erlendis til forna reistu lista-
verk sín úr steini og gleri hefðu ís-
lendingar unnið sín Ustaverk á bók-
fell. Hann talaði um þátt kirkjunnar
í íslenskri menningú, kirkjan hafi
fóstrað fombókmenntimar, og um
nauðsyn þess að efla höfuðból ís-
lenskrar menningar aö fomu og
nýju. Kirkja og Snorrastofa væm
veröugt verkefni í því tilliti. Þá var
sunginn sálmur og síöan haldið að
Logalandi til kafíidrykkju í boöi
sóknarinnar.
Fjölmenn samkoma
Aö Logalandi, þar sem samankomnir
vom um 200 manns, fluttu ræður
Alexander Stefánsson, fyrir hönd
þingmanna kjördæmisins sem allir
mættu utan einn, og Jónas Kristjáns-
son, forstöðumaöur Áma-safns, sem
rakti þátt Norðmanna og hve hjart-
næm saga Reykholts væri þeim.
Fleiri tóku til máls og hvöttu til fram-
kvæmda og lýstu yfir ánægju með
þann áfanga, sem formlega er nú
hafinn.
Á næstu dögum munu menn frá
Jöfra hf. á Hvanneyri byrja aö grafa
fyrir byggingunni. Stefán Ólafsson á
Litlubrekku hefur tekið að sér að
stýra byggingarþættinum. Leitast
verður við að verkið verði sem mest
unniö af heimamönnum. Stefnt aö
því að kjallari og plata verði komin
upp fyrir 15. ágúst í sumar svo hægt
verði að ganga frá nánasta umhverfi
sem best.
í sumar þarf að safna rúmlega
einni milljón króna til viðbótar við
það sem þegar hefur veriö dregið
saman. Myndarleg framlög hafa þeg-
ar borist og munar þar mest um
framlag Sementsverksmiðjunnar á
Akranesi, sem lofað hefúr öllu sem-
enti til verksins. Norska ríkisstjórn-
in hefur heitið einni milljón króna
norskra til Snorrastofu. Einnig er
vitað um safnanir í gangi í Noregi.
Formaður byggingamefndar er
Bjami Guðráðsson bóndi í Nesi og
organisti við kirkjima. Auk hans em
í byggingarnefnd þeir Ami Theó-
dórsson á Brennistöðum og Þórir
Jónsson í Reykholti.
Likan af Snorrastofu.
Samráðshópur vinni að bættu
heilbrigðisástandi þjóðarinnar
Heilbrigðisráðherra hefur skipað
samráðshóp til þess að vinna að
mótun opinberrar manneldis- og
neyslustefnu. Markmið hópsins er
aö ýta undir heilsusamlegar matar-
venjur og heilbrigða lífshætti og
bæta þannig heilbrigðisástand
þjóðarinnar.
Meðal verkefna hópsins verður
aö tryggja að íslensk matvælafram-
leiðsla verði í samráði við neyslu-
þarfir þjóðarinnar, að manneldis-
markmið manneldisráðs um holl-
ustu fæðunnar verði lögö til grund-
vallar við stefnumótunina, að leið-
beina og fræða fólk um hollt matar-
æöi, meöferð matvæla og mat-
reiðslu og aö gangast fyrir neyslu-
könnun til að fá yfirsýn yfir neyslu-
venjur þjóðarinnar.
Stefnumörkun þessi kemur inn á
mörg sviö stjómsýslunnar og því
er samráðshópurinn skipaður full-
trúum frá landbúnaðarráðuneyti,
viðskiptaráðuneyti, sjávarútvegs-
ráðuneyti, iðnaðarráðuneyti og
heilbrigðisráðuneyti. Formaöur
samráðshópsins er Páll Sigurðs-
son, ráöuneytisstjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu.
Dagleg framkvæmd verkefnisins
verður í höndum þriggja manna
framkvæmdahóps undir for-
mennsku Páls Sigurðssonar.
Verkefnisstjóri hefur verið ráðin
Unnur Stefánsdóttir fóstra.