Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1988, Síða 38
50
MÁNUDAGUR 30. MAÍ 1988.
Jarðarfarir
Friðleifur Egill Guðmundsson, fyrr-
verandi skrifstofustjóri Rafveitu
Hafnaríjarðar, lést á Landspítalan-
um laugardaginn 21. maí 1988. Hann
verður jarösunginn frá Hafnarfjarð-
arkirkju þriðjudaginn 31. maí kl. 15.
Hann fæddist í Hafnarfirði 22. júlí
1920. Eftirlifandi eiginkona hans er
Guðrún Ingvarsdóttir. Börn þeirra
eru Egill Rúnar, Erla, Ingvar Birgir,
Guðmundur Ómar og Þóra Lovísa.
Hannes Guðmundsson lést í hjúkr-
unardeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur þriðjudaginn 17. maí.
Útforin hefur farið fram.
Kjartan Stefánsson lést í Elliheimil-
inu Grund þann 25. maí. Útfórin fer
fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 1. júni kl. 13.30.
Anna Jónsdóttir frá Borgarfirði
eystra, sem andaöist 16. þessa mán-
aðar, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 31. maí kl.
15.
Ebeneser Erlendsson, Jökulgrund 2,
Hrafnistu, veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. maí
kl. 13.30.
Sigríður Jónsdóttir frá Þingeyri við
Dýrafjörð verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju miðvikudaginn 1.
júní kl. 13.30.
Bálfór Guðmundar Guðjónssonar,
Garðastræti 13, verður gerð frá kap-
ellunni í Fossvogi þriðjudaginn 31.
maí nk. kl. 10.30.
Gróa Ásta Jafetsdóttir verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
miövikudaginn 1. júní kl. 15. Jarösett
verður í Fossvogskirkjugarði.
Guðlaug Verónika Franzdóttir, áður
húsfreyja á Skálá, Skagafirði, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni þriöju-
daginn 31. maí kl. 13.30.
Ólöf Sveinsdóttir verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 31.
þ.m. kl. 15
Ljósin í lagi
- lundin góð
Slík áhrif hafa
rétt stillt Ijós
í umferðinni.
Andlát
Margrét Björnsdóttir lést í sjúkra-
deild Hrafnistu 27. maí.
Anna Pjeturss, Kaplaskjólsvegi 41,
andaðist í Elli- og hjúkrunarheimil-
inu Grund aðfaranótt föstudagsins
27. maí.
Haukur Zophaníasson frá Eskifirði,
Geitlandi 29, Reykjavík, lést í Borgar-
spítalanum að morgni 27. maí.
Magnea Júlía Þórdís Ólafsdóttir,
Njálsgötu 72, lést aðfaranótt 28. maí.
Sigríður Guðmundsdóttir, áður til
heimilis að Bröttukinn 6, Hafnar-
firði, lést að Sólvangi 28. maí.
Ágúst Hokansson, varð bráðkvaddur
fóstudaginn 27. maí.
Helga Friðriksdóttir, Nóatúni 32,
Reykjavík, lést í Borgarspítalanum í
Reykjavík að kvöldi föstudagsins 27.
maí.
Tilkyriiiiiigar
Sumarstarf ÆSK er hafið
Fundir verða hálfsmánaðarlega. Fyrsti
fundurinn verður í Bústaðakirkju mánu-
daginn 30. maí kl. 20.30. Meðlimir æsku-
lýðssamtakanna eru hvattir til að mæta.
Perniaviiúr
Tvítug, frönsk stúlka
óskar eftir að eignast íslenska pennavini.
Hún hefur lært íslensku í tvo mánuði auk
þess sem hún kann þýsku, ensku og að
sjálfsögðu frönsku. Heimilisfangiö henn-
ar er: Sophie Reghem
55, rue du Gal de Gaulle
57140 Woippy
France
Tónleikar
Tónleikar í Norræna húsinu
Miðvikudaginn 1. júni kl. 20.30 verða tón-
leikar í Norræna húsinu. Þar munu Her-
dis Jónsdóttir lágfiöluleikari og Sólveig
Anna Jónsdóttir píanóleikari flytja verk
eftir J.S. Bach, Nardini, Schumann og
Bloch. Herdís stundaði flðlunám viö Tón-
listarskólann á Akureyri frá tiu ára aldri.
Hún lauk fiðlukennaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík vorið 1986.
Haustið eftir skipti hún um hljóðfæri og
hefur síðan einbeitt sér að lágfiðluleik
undir handleiðslu Helgu Þórarinsdóttur.
Meðfram námi hefur Herdis stundað
kennslu og spilað í Sinfóniuhljómsveit
íslands. Sólveig stundaði nám við Tón-
listarskólann á Akureyri til ársins 1979.
Hún lauk píanókennaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í ReyKjavik 1983 og einleik-
araprófi ári síðar. Hún stundaði fram-
haldsnám við háskólann í Houston í
Bandaríkjunum árin 1984-87. Sólveig
Anna býr nú í Reykjavík og starfar við
kennslu og píanóleik.
Stórsveit Tónlistarskólans
á Akureyri
heldur árlega djasstónleika sína í sam-
komuhúsinu á Ákureyri (leikhúsi bæjar-
ins) miðvikudaginn 1. júní kl. 20.30.
Hljómsveitin hefur starfað í 6 ár. Stjóm-
andi var lengst af Edward Frederíksen
en undanfarin tvö ár hafa stjómað hljóm-
sveitinni þeir Einar Eydal og Norman
H. Dennis, sem stjómar henni nú. Efnis-
skráin á tónleikunum verður mjög fiöl-
breytt. Aðaisólóistar verða Finnur Ey-
dal, Jón Elvar Hafsteinsson og Eiríkur
Rósberg. Aðgöngumiðar verða við inn-
ganginn.
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Fjölskyldudeild
Fósturheimili óskast fyrir ellefu ára dreng til að a.m.k.
tveggja ára. Æskilegt er að heimilið sé í Reykjavík
eða nágrenni. Nánari upplýsingargefurÁslaug Ólafs-
dóttir félagsráðgjafi í síma 685911 alla virka daga.
Menning
Bach í Hallgrímskirkju
Listvinafélag Hallgrímskirkju
efndi til fernra kynningartónleika
á norður-þýskri barokkmúsík í vet-
ur og vor. Þar voru flutt orgelverk
eftir meistrana Buxtehude, Böhm
Lubeck, Bruhn og á fjórðu tónleik-
unum, sem voru í gær í Hallgríms-
kirkju, lék Orthulf Prunner verk
eftir Johann Sebastian Bach.
Orthulf Prunner fylgdi verkun-
um, sem spönnuðu næstum allan
tónskáldsferil meistarans, úr hlaði
með nokkrum vel völdum orðum.
Var það bæöi skemmtilegt og fróð-
legt. Orgelleikur Prunners var þá
ekki síður ánægjulegur, öruggur
Tónlist
Leifur Þórarinsson
og fallegur og algjörlega án tilgerð-
ar og belgings. Sum orgelverkanna
voru samin undir sterkum áhrifum
frá eldri samtíðarmönnum, t.d.
Buxtehude og Böhm, sem voru
meðal mestu orgelsnillinga sinnar
tíðar, en stóru verkin, tokkata
adagio og fúga í C-dúr og prelúdía
og fúga eru í það minnsta meðal
glæsilegustu orgelverka allra tíma
og þau lék Prunner bæði af lát-
lausri snilld. En það þarf enginn
að skammast sín fyrir fantasíuna
„Christ lag in Todesbanden" eða
partituna um sálmalagið „O Gott,
du frommer Gott“ eða yfirleitt
nokkuö sem Bach festi á blað, sext-
án ára eða sextugur. Það er allt á
einhvern hátt yndislegt og sálar-
göfgandi enda var maður býsna
upplyftur og brattur í vorúðanum
að þessu loknu og prísaði hina hall-
grímsku hstvini ákaft í huganum
fyrir þetta ljómandi uppátæki.
LÞ
Deprofundus
Bassastrengir í Bústaðakirkju
í gærkvöldi voru dálítið sérstakir
tónleikar í Bústaðakirkju. Músík-
hópur, sem kallar sig Deprofundus
og samanstendur af sellóleikurun-
um Arnþóri Jónssyni, Bryndísi
Björgvinsdóttur og Richard
Tónlist
Leifur Þórarinsson
Deprofundus i Bústaðakirkju.
að engin hætta var á einhæfni eða
tilbreytingarleysi. Sónata fyrir
þrjú selló og kontrabassa eftir Wag-
enseil (1715-77) var kannski ekki
alveg nógu hreint leikin, það var
eins og hljóðfærin væru misheit og
samspilið ekki nógu klárt fyrir
bragðið. En þá léku nafnamir
Talkowsky og Korn dúett fyrir selló
og bassa eftir Rossini af mikilh inn-
lifun og bravúr. Eftir hlé kom svo
ljóðrænt lag, Requiem fyrir þrjú
sehó og píanó eftir Popper, sehó-
meistara frá 19du öld. Það hljómaði
yndislega, sprottið beint upp úr
Brahms og Schumann og samið af
mikilli leikni.
Lokaverkið var svo útsetning J.
Hsu á gömbusónötunni í g-moh eft-
ir Bach, fyrir tvær víólur, þrjú
sehó, violone og sembal og nefndist
fyrirtækið konsert í d-moll. Þetta
hljómaði stórskemmtilega og kall-
aði fram minningar um sjötta
Brandenborgarkonsertinn, sem er
ekki amalegt á björtu vorkvöldi. í
heild var þetta hin þekkilegasta
samkoma, mátulega óhátíðleg en
með fagmannlegu yfirbragði.
í anddyri kirkjunnar var stillt út
hljóðfærum sem fiðlusmiðurinn
Hans Jóhannsson hefur smíðað
handa íslenskum tónhstarmönn-
um og gat maður skoðað gripina á
undan tónleikunum og í hléi. Þama
voru nokkrar hstilega gerðar fiðl-
ur, tvö falleg selló og ein víóla sem
er ótrúlega tónfögur, í það minnsta
í höndum eigandans, Guðnýjar
Guðmundsdóttur. Hans býr, eins
og kunnugt er, í Lúxemborg og
harma það margir íslenskir
strengjaleikarar mjög. En við skul-
um vona að hann rjúfi ekki tengsl-
in við „gamla landið“ í náinni
framtíð, hann var í það minnsta
þama staddur og lýsti vinnubrögð-
um sínum fyrir gestum og gang-
andi. Ekki dró það úr stemning-
unni. LÞ
Talkowsky, víóluleikurunum El-
isabeth Dean og Martin Frewer,
píanóleikaranum Catherine Will-
iams, semballeikaranum Önnu M.
Magnúsdóttur og Richard Korn,
~sem leikur á kontrabassa og Viol-
one, bassafiðlu, lék verk eftir Wag-
enseh, Rossini, Popper og Bach.
Þetta voru sem sagt allt djúpir
strengir, alt, tenór og bassa-
strengjahljóðfæri, en innbyrðis era
þessi hljóðfæri svo ólík í karakter
Hans Jóhannsson.
Kvikmyndir_____________________________________
Bíóhöllin: Veldi sólarinnar
Spielberg eins og hann gerist bestur
Leikstjóri: Stephen Spielberg.
Handrit: Tom Stoppard.
Tónlist: John Williams.
Kvikmyndataka: Allen Daviau.
Aóalhlutverk: Cristian Bale, John
Malkovich, Nigel Havers, Miranda Ric-
hardson
Um þessar mundir er veriö aö
sýna nýjustu afurð Spielberg í Bíó-
hölhnni. Kvikmyndin heitir Veldi
sólarinnar og fjallar um dreng af
enskum aöalsættum sem veröur
innlyksa í Sjanghai í upphafi síðari
heimsstyijaldar. Líkt og svo marg-
ir drengir á þessum aldri fyrr og
síðar er hann heihaður af flugvél-
um og nánast tilbiður japönsku
orrustuflugvéhna Mitsubishi Zero.
Er Japanir ráðast inn í borgina eru
enskir íbúar hennar settir í fanga-
búöir. Strákurinn fagnar Japön-
um, hann fær að sjá flugvélarnar.
Hann elst upp í fangabúðum við
illan kost. Þar kemst hann í kynni
við dauða og hungur en lærir fljótt
að komast af.
Stephen Spielberg hefur lengi
verið nokkurs konar undrabam í
heimi kvikmyndanna. Hann hefur
verið öðrum iðnari við að færa
ævintýri í búning kvikmyndanna.
Nú er undrabarnið hins vegar
komiö til nokkurs þroska.
Eins og viö er að búast er öll
tæknileg umgjörð eins og hún ger-
ist best. Greinilegt er í hópatriðum
að Spielberg hefur lært mikið af
hinum aldna meistara Akiro Ku-
rosawa.
Það sem kemur hins vegar á
óvart er leikur hins 13 ára Cristian
Bale. Hann sýnir magnaðan leik
og hreint ótrúlega þroskaða hæfi-
leika sem leikari. Það er mál
manna aö aldrei hafi annað eins
undrabam sést á hvíta tjaldinu.
Spielberg valdi hann enda úr hópi
4 þúsund barna og tók valið níu
mánuði.
Veldi sólarinnar hefur alla meg-
inkosti ævintýrsins en einnig
miklu meira. Til gmndvallar er
lögö samnefnd endurminningabók
J.G. Ballard en hann upplifði svip-
aða atburði og lýst er í myndinni.
Stórkostlegt handrit Stoppard lyft-
ir henni upp á annað svið og færir
hana á vit ljóðsins.
Myndmál Spielberg er nú loks
fullmótað. Eftir að hafa spreytt sig
á myndmáli teiknimyndasería um
árabil hefur Spielberg þróað mynd-
mál sem allir, hvar í heimi sem
þeir eru, ættu að geta skihö. Og
galdurinn er sá að hann talar beint
við hjartað. Veldi sólarinnar er
mynd sem allir ættu að sjá. Það er
vonandi að hún verði sýnd sem
lengst. -PLP