Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1988, Page 30
30
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1988.
Lífestm
Grasagarðurinn í Laugardal:
Perla í miðri höfuðborginni
Þúsundir Reykvíkinga koma í
Grasagarðinn og skrúðgarðinn í
Laugardal á sumri hverju. Einkum
fjölmenna borgarbúar í Laugardal-
inn þegar sólin skín til að leggjast
í grasiö og „sleikja sólina“. Þeir
sem koma reglulega í garðana eru
á einu máli um að þeir séu sann-
kallaðar perlur í miðri höfuðborg-
inni.
Þó er engu líkara en að margir
viti hreinlega ekki af þessum sælu-
reit. Allir vita að þarna eru „ein-
hver tré og kannski nokkur blóm“
en nenna ekki aö leggja lykkju á
leiö sína til að skoða dýrðina.
Kjörinn staður til útivistar
og leikja
Það eru margir sem vita ekki að
í skrúðgarðinum er mikil skóg-
rækt, stór, vaxtarleg og falleg tré
sem skýla rúmgóöum og vel hirtum
grasflötum og bölum. Kjörnir stað-
ir til útivistar og leikja.
Dægradvöl
Þeir vita ekki að í Grasagarðinum
eru á milli 4 og 5 þúsund plöntuteg-
undir, þar af um 330 íslenskar teg-
undir. Til samanburðar má geta
þess að talið er að alls lifi um 465
tegundir úti í hinni íslensku nátt-
úru. Þama má því finna á tæplega
einum og hálfum hektara lands
stærstan hluta íslensku flómnnar.
Starfsmenn Grasagarðsins segja
þó að aðsókn í garðinn hafi aukist
Þessir krakkar eru á leikjanámskeiði hjá Bústöðum og komu við í skrúðgarðinum í Laugardal um daginn til að geta notið sólarinnar sem best.
Leiðbeinendurnir Gunnar Valdimarsson og Sigrún Jónsdóttir stjórna snú snú-inu en Katrín Þorbjörg Víglundsdóttir, 6 ára, er hér að hoppa í 53. skiptið.
DV-mynd BG
jafnt og þétt undanfarin ár. Nú er
einnig orðið algengt að stórir hópar
komi til að skoða, bæði hópar utan
af landi og útlendingar.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88
Merkilegar
ræktunartilraunir
Miklar og merkilegar ræktunart-
Oraunir fara fram í Grasagarðin-
um. Starfsmenn safna fræjum af
plöntum garðsins og standa síðan
í fræskiptum við grasgarða úti um
allan heim. Einkum er þó lögð
áhersla á að gera tilraunir með
plöntur frá norrænum svæðum svo
og plöntur sem lifa hátt uppi, til
dæmis í Ölpunum.
Þá gefur Grasagarðurinn út fræ-
lista sem sendur er til um þrjú
hundruö aðila í fjörutíu löndum.
Það eru því mikil fræskipti í gangi
og töluverð vinna í kringum þau.
Þeir sem koma í Skrúðgarðinn í
fyrsta skipti verða flestir undrandi.
Garðurinn er það stór og trén há.
Að ganga þar um stígana minnir
helst á gönguferðir um erlenda
skóga. Svo er skyndilega komið inn
á opin svæði sem eru sérlega vel
hirt og freistast því margir til að
leggjast í grasið þegar vel viðrar.
-ATA
„Frisbi“ eða þeytidiskar voru vinsælir í Laugardalnum í blíðviórinu .
Yfirleitt stunduðu börn og fullorðnir ýmsar iþróttir á grasbölunum, þeir
sem á annað borð nenntu að hreyfa sig í hitanum. DV-mynd BG
Skop..................................... 2
Gervihnettir, gersemar geimaldar...............3
Hringrás eilífra endurtekninga..................10
Hve lengi endist Gorbasjov?.......................17
Planta andskotans................................ 23
Ráðabrugg í Níkaragúa................................33
F öst í jökulsprungu................................. 42
Hugsun í orðum......................................... 43
Oft hef ég fundið almættishönd drottins....................50
Með skrímsli í skrokknum.....................................61
Viðvörun: Reykingar geta skaðað kynlífiö.................... 85