Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988. Fréttir Neyslan meiri en framleiðslan stendur undir: Engar raunhæfar aðgerðir til án kjaraskerðingar sagði Þorsteinn Pálsson við komuna til landsins „Eg held aö þaö væri ábyrgðar- leysi aö segja annaö en aö raun- hæfar aðgerðir, sem ekki fela í sér kjaraskeröingu, eru ekki til,“ sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráö- herra viö komuna til Keflavíkur- flugvallar klukkan hálfátta í morg- un. „Þaö liggur ljóst fyrir að útflutn- ingsframleiðsla og samkeppnisiðn- aöur búa nú við þau skilyrði að ekki verður við unað. Neyslan í þjóðfélaginu er verulega umfram það sem framleiðslan stendur und- ir. Það þarf að laga neyslustigið og draga úr neyslunni í samræmi viö verðmætasköpun. Það er stóra verkefnið sem við blasir.“ Þorsteinn Pálsson hitti Einar Odd Kristjánsson, formann ráðgjafa- nefndar ríkisstjómarinnar, klukk- an hálfníu í morgun. í dag mun hann einnig hitta þá Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrím Her- mannsson. „Það er búið að undirbúa þetta . mjög vel. Ég hef farið yfir vinnu- plögg nefndarinnar um helgina og rætt við formann hennar á hveij- um degi. Núna verður unnið að því innan ríkisstjórnarinnar að taka þær ákvarðanir sem þarf,“ sagði Þorsteinn. - Steingrímur hefur sagt að tími sé til að taka ákvarðanir um að- gerðir fyrir 1. september. Telur þú þaö of nauman tíina? „Við höfum ekki sett okkur nein- ar dagsetningar. Hins vegar hefur alltaf legið fyrir af minni hálfu að ég hef viljað hraða undirbúningi og ákvörðunum í þessu efni. Þann- ig hefur verið unnið að málinu og þannig verður áfram unnið. Ég held að það sé öllum ljóst aö hér þarf að grípa fljótt tU aðgerða." - Sjálfstæðismenn hafa alltaf lagt á það áherslu í þessari ríkisstjórn að efnahagsmál séu stöðugt til meðferöar og hafa viljað takmarka aðgerðir í efnahagsmálum við allra nauðsynlegustu aðgerðir. Sjálf- stæðismenn kölluðu tillögur Fram- sóknar og Alþýðuflokks í maí beiðni um viðræður um nýjan stjómarsáttmála. Kalla aðstæður nú á víðtækari aðgerðir en í febrú- ar og maí? „Þær eru annars eðhs. En það er rétt að efnahagsmál eru stööugt til meðferðar. En ég veit ekki hvort þaö er rétt að vera með einhvem samanburð á þessum aðgeröum.“ - Steingrimur Hermannsson sagði, þegar hann frétti af því aö þú ráðgerðir frí á eftir opinbem heimsókninni, að hann heföi ekki tíma til að fara í frí á þessum tíma þegar þyrfti að taka margar og stór- ar ákvarðanir. „Ég ætla ekki að taka þátt í um- ræðum á þessu plani,“ sagði Þor- steinn. -gse Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra kom til landsins i morgun. Með honum á myndinni er Ruwe, sendiherra Bandarikjanna á íslandi. DV-mynd Vaxtalækkunin er hneyksli - segir Ólafur Ragnar Grímsson „Það er hneyksli að framkvæma vaxtalækkun með þessum hætti. Lækkun vaxta á tékkareikningum og almennum sparisjóösbókum færir bönkunum 513 milljónir svo búast má við aö þeir snuði eigendur þess- ara reikninga um 2,4 milljarða á þessu ári,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins. Ólafur gagnrýnir harðlega vaxta- lækkun bankanna sem tók gfldi um helgina. Samkvæmt útreikningum hans hafa bankarnir haft um 868 milljónir af eigendum tékkareikn- inga á fyrstu sex mánuðum þessa árs með því að bjóða upp á neikvæða raunvexti. Eigendur almennra spari- sjóðsbóka töpuðu á sama tíma 289 milljónum. í báðum tilfellunum er miðað við að þessar innstæður væru verðtryggðar. Ekki er miðað við aö þessar mnstæður bæru neina vexti. Með vaxtalækkun á þessum reikn- ingum segir Ólafur að eigendur þeirra tapi 513 milljónum meira en ef vöxtum þeirra heíði verið haldið óbreyttum. „Það er nánast ósvifni þegar Brypj- ólfur Helgason, aðstoðarbankastjóri Landsbankans, kemur fram í sjón- varpi og segir þessa vaxtalækkun vera til hagsbóta fyrir almenning. Landsbankinn er nefnilega enn verri í þessu snuði en almenna bankakerf- iö,“ sagði Ólafur Ragnar. -gse Breitt var yfir hinn nýja hreyfil meðan þotan frá McDonnel Douglas verksmiðjunum stóð á Keflavíkurilugvelli. Var leiðindaveður og þar sem mikið af mælitækjum var við hreyfilinn var ekki hætt á neitt. Fjöldi flugfróðra manna, sem voru komnir til að skoða, fengu að sjá myndbönd af hinum nýja hreyfli í notkun. DV-mynd KAE Ný gerð þotuhreyfla: Betri eldsneytisnýting og meiri stöðugleiki Þota frá McDonnell Douglas flug- vélaverksmiðjunum lenti á Keflavík- urflugvelli á leið sinni á flugsýning- una Famborough ’88 í Bretlandi. Þetta væri ekki í frásögur færandi nema þar sem annar hreyfla þotunn- ar er af nýrri gerð sem McDonnell Douglas verksmiðjumar hafa verið að þróa síðustu misseri. Hreyflllinn er eins konar millistig af venjulegum skrúfuhreyfli og þotu- hreyfli. Eru tvær raðir af hreyfllblöð- um sem snúast hvor gegn annarri. Á hreyfill þessi að geta sparað elds- neyti þotna um allt að 40 prósent og aukið stöðugleika þeirra á flugi um- talsvert. Einnig mun hávaðamengun minnka nokkuð, bæði inni í þotunni og utan hennar. -hlh Höfðabakki-Vesturlandsvegur: Beygjuljós verða sett við gatnamótin Á fundi fljá Umferðarráði var ákveðið að sefla upp beygjuljós fyrir umferð vestur Vesturlandsveg og suður Höfðabakka. Áætlað er að beygjuljósin veröi komin upp eftir mánuð. Þessi breyting mun gera þessi hættulegu gatnamót mun ör- uggari. Umferðarráð vill einnig aö há- markshraði á kaflanum frá Smá- löndum og að Lambhagabrú verði lækkaður úr 90 í 70. -sme Skákþing Islands: Hannes efstur - alþjóðlegur titiU innan seilingar Hannes Hlífar Stefánsson hefur og biðskák. teflt af miklum krafti á Skákþingi íslands og haldið forystunni lengst af. Eftir að 7 umferðum er lokið er Hannes efstur með 6 vinninga og vantar nú aðeins einn vinning úr fjórum síðustu umferðunum til að tryggja sér alþjóðlegan meistaratit- U en hann vantar síðasta áfangann. í öðru til þriðja sæti eru þeir Jón L. Ámason og Karl Þorsteinsson meö 5 ‘A vinning og Margeir Pét- ursson er í 4. sæti með 5 vinninga I 7. umferð, sem tefld var í gær- kvöldi, sigraöi Ágúst Þráin, Davíð tapaði fyrir Benedikt, Þröstur og Margeir gerðu jafntefli, Jón L. lagði bróöur sinn, Ásgeir Þór, Karl vann Jóhannes og Hannes lagði Róbert. í kvöld er frí en 8. umferð verður annað kvöld og mætast þá meðal annars þeir Hannes og Margeir. Aöeins átta skákum hefur lokið meö jafntefli sem sýnir hve hart er barist. -SMJ Hannes Hlífar sigraói Róbert Harðarson snaggaralega i gær og er nú efstur á Skákþinginu. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.