Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 34
50 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988. Kennarar Tvo kennara vantar við Grunnskólann á Flateyri. Upplýsingar í síma 94-7645. Skólastjóri. Um bjórmálið og önnur vandamál Eyrarbakki DV óskar að ráða umboðsmann á Eyrarbakka sem fyrst. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 98-31377 og á afgreiðsiu í síma 91 -27022. AKUREYRI Blaðbera vantar á Ytri-Brekkuna. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 96-25013. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR FULLTRUI I ÖLDRUNARÞJÓNUSTU Laust er 50% starf fulltrúa hjá ellimáladeild Félags- málastofnunar. Starfið felst í almennri ráðgjöf og upplýsingastarfi við Reykvíkinga, 67 ára og eldri, ásamt ýmiss konar meðferðar- og fjárhagsmálum og þátttöku í upp- byggingu öldrunarþjónustu í Reykjavík. Félagsráðgjafa- eða önnur sambærileg menntun nauðsynleg. Laun skv. kjarasamningum starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Staðan er laus nú þegar. Umsóknarfrestur er til 9. september. Umsóknir sendist til Starfsmannahalds Reykjavíkur- borgar, Pósthússtræti 9, á eyðublöðum sem þar fást. Nánari upplýsingar veita Þórir S. Guðbergsson og Sigríður Hjörleifsdóttir í síma 25500. o^Húsnæðisstofnun ríkisins TÆKNIDEILD Simi 696900 Útboð Stjórn verkamannabústaða Neshrepps utan Ennis óskar eftir tilboðum í byggingu tveggja íbúða í einn- ar hæðar parhúsi byggðu úr steinsteypu. Verk nr. U. 05.01 úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðis- stofnunar ríkisins. Brúttóflatarmál húss 195 m2. Brúttórúmmál húss 673 m3. Húsið verður byggt við götuna Háarif nr. 73 á Rifi í Neshreppi utan Ennis og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn. Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Neshrepps og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá þriðjudeginum 23. ágúst 1988 gegn kr. 10.000 skila- tryggingu. Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðju- daginn 6. september 1988 kl. 11.00 og verða þau opnuð að viðstöddum bjóðendum. F.h. stjórnar verkamannabústaða Neshrepps utan Ennis, tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins. o^Húsnæðisstofnun ríkisins Hinn 9. maí sl. gerðist sá atburður á háttv. Alþingi að flutt var frumvarp til laga um innflutningsleyfi á áfeng- um bjór til landsins. Þetta mikla þjóðarmál var samþykkt með naum- um meirihluta atkvæða. Þ. 19. maí voru bjórlögin samþykkt og undirrit- uð. Þeir alþingismenn sem studdu frumvarpið tóku á sig mikla ábyrgð. Margir telja að þessi samþykkt veröi þjóðfélaginu til tjóns því ætla má að áfengisneysla aukist. Okkar litla þjóðfélag má engan mann missa, hvorki af slysfórum, ofdrykkju né annarri ógæfu. Sennilega er meiri- hluti þjóöarinnar mótfallinn þessari ráðstöfun, ekki síst vegna þess hættulega ástands sem nú ríkir í landinu. Bjórinn er lúmskur vímu- gjafi, misjafn að styrkleika. Menn gæta ekki að sér og eru orðnir ofur- ölvi áður en þeir vita af. Sé þjórað daglega geta menn gerst ofdrykkju- menn, þá kemur heilsuleysi og leiði á lífinu. Við freistingum gæt þín. Nýjar fréttir herma að undanfarið hafi finnskir þingmenn drukkið svo mikið af bjór að einum starfsbróður þeirra, sem er prestur og ritstjóri, hafi fundist ástæða til að benda á að rétt sé að bj órmæhtæki verði sett upp við dyr hvers fundarsalar i þing- húsinu svo hægt verði að mæla vín- magnið í blóði hvers og eins sem á þar erindi. Mælist það meira en magn það sem leyfilegt.er til að aka bíl aftri þingveröir þingsetu í það skiptið. Ekki fylgir það sögunni hvort þingmenn þyrftu einnig að blása í blööru. íslensk veitingahús, sem hafa vínveitingaleyfi, ættu að nota sér þessa hugmynd prestsins og setja svona mæli á sínar dyr. Forðist slysin. Þ. 18. maí sl. ritar Þórarinn Reyk- dal grein í DV. Þessi höfundur er ákveðinn talsmaður áfenga bjórsins og annarra áfengra drykkja. Hann óskar eftir að svona vinsælar vörur dreifist sem víðast um landið. Svona áróður fyrir hættulegri vöru þola ekki allir. Ég tók mér þess vegna penna í hönd. Yfirskrift greinar hans er: „Jafn- réttismál til lykta leitt'‘. Þar er sagt að Alþingi hafi tekið skarið af í miklu jafnréttismáli er það samþykkti bjór- málið, því landsmönnum hafi verið mismunað um kaup á bjór um langt árabil, þar stendur einnig: „ Alþingis- maðurinn Guðrún Helgadóttir á miklar þakkir skildar fyrir skynsam- lega afstöðu til bjórmálsins á Alþingi og einarðleg skrif um þessi mál í fjöl- miðlum." Flestallar stallsystur Guð- rúnar töluðu gegn bjórfrumvarpinu á Alþingi, þar á meðal Guðrún Agn- arsdóttir læknir. Hún benti á margs. konar hættu sem af bjórnum stafar og varaði eindregið við mikilli notk- un hans. Margar þjóðir hafa reynslu af bjórdrykkju. Hún er það slæm að menn vilja hefta útbreiðslu hennar og jafnvel banna þennan fitandi mjöð sem hefur svo marga ókosti. Hið ágæta Egilsöl sem er búið til úr ís- lensku hreinu vatni og er innlend Kjallariim Anna Þórhallsdóttir söngkona framleiðsla, ætti að duga. Það er heil- næmt öl sem inniheldur fá prósent af vínanda. Bjórvambir og bjórkrár Þeir sem hafa ferðast um heiminn eru margs vísari. í bjórlöndum eru vandamálin mörg. Karlmenn verða sérstaklega illa leiknir eftir óhóflega neyslu bjórs. Þeir missa líkamsfeg- urð sína eftir mikið bjórþamb. Fram- an á þá myndast fitukeppur ■ sem nefnist ístra eða bjórvömb. Hún þjáir bjórdrykkjumenn og erfitt er aö losna við hana. Hér á landi eru engar bjórkrár. Þær eru án efa væntanlegar. Þar sem bjór er spretta þær upp eins og gorkúlur. Þessir veitingastaðir hafa á boðstól- um eingöngu bjór og leyfðar eru tó- baksreykingar. Krárnar eru misjafn- lega vistlegar. Þær slæmu hafa neik- vætt gildi í skemmtanalífmu. Þar viðgengst drykkjuskapur, lauslæti og sóðaskapur. í slíkum vistarverum skapast margt sem er viðsjált. Hryll- ingur mannkynsins er eiturlyfin. Þarna hlýtur að vera ákjósanlegt að selja þessa bannvöru, undir borðum. Hið frjálsa líf i kránum gefur körlum og konum tækifæri til skyndikynna, í sambandi við slík stefnumót nefni ég enn eitt hræðilegt vandamál, það er hinn mannskæði sjúkdómur al- næmi eða eyðni. Hún breiðist hratt út, þótt allt sé gert til að stemma stigu við þessum vágesti. Þessir ógæfu- sömu menn fá þau viðvörunarorð að drekka ekki áfengi, neyta eigi ann- arra vímuefna og sýna fyllstu var- færni í kynferðismálum. Ef bjórinn og krárnar verða þess valdandi að auka áfengisneyslu, fiölga eyðni- sjúklingum og eiturlyfianeytendum þá er víst að gerst hefur mikið slys á háttv. Alþingi, þegar bjórfrum- varpið var samþykkt á 110. löggjafar- þingi þess, þ. 9. maí 1988. Að margra dómi var ákvörðunin mistök. Nýr vímugjafi er á leiðinni til að hrella landsbúa. Nú ættu allir sem eru mótfallnir vínneyslu að hvetja til hófdrykkju. í „Melódíu" sem er frægt gamalt handrit, frá árinu 1650, er kvæði um bjórinn er nefnist „Drykkjuspil", Níunda erindi er svo- hljóðandi: „Maður góði minnzt ávallt, mátinn bestur er, með gætni þigg þú guðs lán allt, og gá að þjer, því gegndarlausum er hjólið valt.“ Innflutningur á áfengum bjór var leyfður til landsins samkvæmt reglu- gerð í fiármálaráðuneytinu, undir- skrifaðri af þáverandi fiármálaráð- herra. Hún gaf farmönnum (sjó- mönnum) leyfi til að flytja inn ákveð- inn skammt af bjór. Hver einstakl- ingur fékk hann til eigin neyslu og fiölskyldu. Þetta gerðist 20. jan. 1966. Næsta reglugerð var til flugliða, 28. nóv. 1968, og loks til ferðamanna 30. jan. 1980. Síðasta reglugerðin var undirrituð af öðrum ráðherra. Tveir síðari hóparnir hafa sömu skilmála, en minna magn af bjór. Drykkinn koma þeir með heim erlendis frá í hverjum túr ef þeir hafa löngun til. Sé komið til Keflavíkur geta leyfis- hafar keypt hann í Fríhöfninni. í báðum tilfellum er bjórinn tollfrjáls. í fiórtán ár hafa bjórreglur gilt hér á landi. Þær hafa orsakað ótrúlega mörg vandræði sem ekki voru séð fyrir. Tollfrjálsi bjórinn hefir valdið svartamarkaðsbraski að sögn. Allir vita um þá slæmu áráttu, að smygla inn í landið bjór og öðru áfengi. Ekki er ótrúlegt að tollfrjálsi bjórinn hafi hjálpað til við þá iðju. í staðinn fyrir að gefa bjórinn alveg frjálsan hér á landi svo að jafnrétti kæmist á, þá átti að géra leyfishöfunum, hópunum þremur, þann greiða að svipta þá þessum gömlu hættulegu innflutn- ingsleyfum, þau hafa orsakað drykkjuskap, eyðslusemi og önnur leiðindi. Ef sú leið hefði verið farin væri óttinn við aukna áfengisneyslu ekki fyrir hendi. Áfengisbölið á ís- landi er nóg fyrir. Þ. 1. mars 1989 verður byrjað að dreifa bjórnum. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sér um sölu og dreifingu undir umsjá forstjórans Höskuldar Jónssonar, fyrrv. ráðúneytisstj. í fiármálaráðu- neytinu: Enginn þarf að efast um að dreifingin verður sem mest í hans höndum. Menn hafa heyrt um stór- felldar dreifingaráætlanir. Fyrir bjórinn duga engar litlar búðarholur, það þarf að fá vöruskemmur. Inn- réttingar þeirra verða ekki af lakara taginu ef að líkum lætur. Bjórflöskur frá gólfi til lofts verða sýningarefni á útsölustöðum og í skemmum. Ætla má að bjórmenn hlakki til marsmán- aðar á næsta ári. Áfengisútsölum fiölgar um landið allt. Brot á jafn- rétti má ekki koma fyrir, segja jafn- réttismenn á Alþingi og jábræður þeirra. Á landi voru verður ekki dansað á rósum í marsmánuði held- ur á flöskum sem lagðar verða flatar til samræmis við dansarana sem leggjast við þeirra hlið. Á hátíðis- dögum má oft sjá þvílíka sýn, utan- húss drykkja á þjóðhátíðardegi er óskemmtileg og til skammar fyrir þjóðina alla. Hér er áskorun til allra hinna mörgu siðmenntuðu manna á íslandi að reyna eftir getu aö leysa menn frá áfengisbölinu og hætta að láta áfengi vera í tísku. Þökk fyrir birtinguna. Anna Þórhallsdóttir „Hið ágæta Egilsöl sem er búið til úr hreinu íslensku vatni og er innlend framleiðsia ætti að geta dugað," segir greinarhöfundur m.a. - frá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. „Karlmenn verða sérstaklega illa leiknir eftir óhóflega neyslu bjórs. Þeir missa lík- amsfegurð sína eftir mikið bjórþamb.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.