Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988. 17 it Lesendur Oframbærilegir Ijósvíkingar Jónas skrifar: Grein Jóhönnu Sigþórsdóttur, í DV síðastliðinn laugardag, var sannar- lega orð í tíma töluð og á hún þakkir skildar. Ég hef lengi verið þeirrar. skoðunar að ástæðulaust væri að ríkið einokaði útsendingar hljóð- varps og sjónvarps. Ekki er þar með sagt að í lagi sé að hvaða rugli, vit- leysu og ambögum sé útvarpað og sjónvarpað yfir þjóðina. Allt of mörg dæmi eru um aö hinir nýju ljósvíkingar séu óframbærileg- ir. Orðaforði er takmarkaður, er- lendar slettur mýmargar og beyging- ar oft kolvitlausar, fariö er vitlaust með málshætti, orðatiltæki og annað slíkt. Dæmi: Kveðja er frá Eygló Jóns- dóttir til Hrönn Sigurðardóttir, sam- töl byggjast mikið upp á hæi, bæi og ókeii. Nú teíla allir á tæpasta vað. Það er sem ég sjái menn við skák- borð niðri við á eða úti í á að tefla. Hið rétt er að teflt er á tvær hættur. Látinn stjórnmálamaður var frægur fyrir að brengla orðatiltækjum en slíkt er ekki til eftirbreytni. Margir þeirra sem koma fram í fjöl- miðlum hafa góða þekkingu á ís- lensku máh en ástæðulaust er aö láta málsóðana vaða yfir þjóðina á skít- ugum skónum. Ekki veitir af að setja þá í andlegt bað. Stjórar og stýrur nýju útvarpsstöðvanna ættu aö leggja metnað sinn í vönduð vinnu- brögð. Reynið svo að muna að í íslensku eru fjögur fóll og að þágufall sker sig yfirleitt frá þolfalli. Ég fæ gæsahúð þegar auglýstar eru ferðir aö Gull- foss og Geysi. „Ég fæ gæsahúð þegar auglýstar eru ferðir að Gullfoss og Geysi,“ segir i bréfinu. Neikvæð áhrif Helga skrifar: í tveimur kvikmyndahúsum í borg- inni er nú sýnd kvikmyndin Rambo III. Mynd með fasískum boðskap sem lofsyngur stríð og ofbeldi. Nú á tím- um þíðu á milli stórveldanna og auk- innar friðarbaráttu finnst mér harla óviðeigandi að sýna þessa mynd. Það er talið að mynd eins og þessi hafi valdiö því að maöur í Bretlandi, íklæddur sömu múnderingu og aðal- leikari myndarinnar hafi gengið ber- serksgang og drepið fjölda saklausra vegfarenda. Svo það sýnir að myndir eins og þessi hafa neikvæð áhrif á horfandann og hvetja til ofbeldis og fordóma. Ætti allt skynsamt fólk að forðast slíka mynd og ekki misbjóða dómgreind sinni með því að horfa á slíkan ófögnuð. Vonandi að betri myndir verði sýndar i kvikmyndahúsunum tveim 1 framtíðinni. Jafnvel itvöndustu kettir finna alltaf eitthvað við sitt hæfi M E N l' Kjúklingur Nautakjöt Túnfiskur Lifur Lambakjöt matseðli Whiskas finna allir kettir eitthvað við sitt hæfi. Whiskas býður upp á nautakjöt, túnfisk, lifur, kjúkling og lambakjöt. Whiskas kattamatur er bragðgóður og næringarríkur og hann inniheldur öll þau efni, sem kisan þín þarfnast. Gefðu kisunni þinni Whiskas kattamat. © VORUMHJSIDÐ Innflutningur og dreifing á góðum matvörum t I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.