Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988. Utlönd Lést af skotsárí Lazarus Salii, forsetí Kyrrahafs- ríkisins Palau, lést af völdum skotsárs á höfði síöastliöinn laug- ardag, aö því er talsmaöur ríkis- stjórnar landsins skýrði frá í gær. Eiginkona Salii, sem var fimmtiu og fjögurra ára gamall, fann hann látinn á heimili þeirra í Koror, höf- uöborg landsins. Sat forsetinn i hægindastóli og á gólfmu skammt frá líki hans var skammbyssa. Talsmaður ríkisstjórnar landsins sagði í gær að ekki væri vitaö hvort um morö eða sjálfsmorð heíöi veriö aö ræða. Varaforsetí landsins, Thomas Remengesau, sór embættiseið sem forseti þess þegar á laugardag. Palau er vemdarsvæði Samein- uðu þjóðanna, um átta hundruö kílómetra austur af Filippseyjum, og hafa Bandarflýamenn haft yfir- stjóm þar. Símamynd Reuter Friðarsamningur FuiHrúar Frakklands og beggja deiluaöila á Nýju Kaledóniu takast í hendur eftir undlrritun frióarsáttmólans. Simamynd Reuter Michel Rocard, forsætísráðherra Frakklands, vann um helgina fyrsta stóra stjórnmálasigur sinn, eftír að hann tók viö embættí, þegar undirrit- aöur var friðarsamningur í deilu aðskilnaöarsinna á Nýju Kaledóníu við Frakka og sambandssinna. Er samningur þessi talinn mikilvægur áfangi í aö koma á friði aö nýju á Kaledóníu eftir áralangan ófriö þar. Samkomulagið gerir ráö fyrir aö aðskilnaðarsinnar hafi takmarkaða sjálfsstjóm næstu níu árin og aö kosið verði um sjálfstæði Nýju Kaledó- níu árið 1998. Rúta breskra hermanna gjöreyðilagöist í sprengingu IRA aðfaranótt laugardags og létu átta hermenn lífið. • • Símamynd Reuter Oiyggismalin endurskoðuð Valgerdux Jóhannesdóttir, DV, Landon; Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, hefur fyrirskipað allsherjarendurskoðun öryggismála í norðurhluta írlands eftir að átta breskir hermenn létu líflð í sprengju- árás IRA, írska lýðveldishersins, að- faranótt laugardags. Árásin var sú mannskæöasta sem breski herinn hefur orðið fyrir í ára- raðir. Hermennirnir, þrjátíu og fimm taisins, voru á leið til herbúða sinna í Omagh á Norður-írlandi, að loknu leyfi, þegar öflug sprengja sprengdi í loft upp rútu þeirra. Sprengjan var svo kraftmikil að rútan tókst á loft og þeyttist meira en þrjátíu metra eftir veginum. Sjö hermannanna lét- ust samstundis en sá áttundi á sjúkrahúsi. Tuttugu og sjö slösuðust, margir mjög alvarlega, og eru sex taldir í lífshættu. í yfirlýsingu frá írska lýðveldis- hernum sagði að um heföi verið að ræöa níutíu kílóa sprengju, fram- leidda í Tékkóslóvakíu. Er taliö víst aö IRA hafi komist yfir sprengjuna fyrir milligöngu Líbýu og rennir á- rásin stoðum undir grunsemdir um aö hryðjuverkamennirnir séu betur vopnum búnir en nokkru sinni fyrr. Arásin um helgina var sú síðasta í nýrri hryðjuverkaherferð IRA sem kostað hefur tuttugu og einn breskan hermann lífið það sem af er þessu ári. Hryðjuverkin hafa einkum beinst gegn því sem IRA kallar mjúk skotmörk, þ.e. hermönnum sem ekki eru við skyldustörf, á leiö úr eða í frí og í flestum tilfellum óvopnaðir. IRA hefur ekki bundið aögerðir sínar við Norður-írland heldur einnig látið til skarar skríða á Englandi og á meg- inlandi Evrópu. Talið er að þessi nýjasta herferð IRA þjóni ekki hvaö síst þeim til- gangi að hressa upp á móralinn með- al eigin liðsmanna en samtökin hafa orðið fyrir mörgum alvarlegum áfoll- um á þessu ári. Það sem af er árinu hafa þau misst tólf menn, þ. á m. nokkra reyndustu menn sína, og töluvert magn vopna frá þeim hefur verið gert upptækt. IRA hafa einnig orðiðá mörg dýr „mistök" undanfar- ið, mistök sem kostað hafa a.m.k. sautján óbreytta borgara lífið og valdið því að stuðningur við samtök- in hefur dvínaö verulega. Margaret Thatcher hélt sérstakan neyðaifund á laugardag með Tom King írlandsmálaráðherra og yfir- mönnum hersins á Norður-írlandi til að ræða viöbrögð við árásinni. í gær var tilkynnt að öryggismálin á Norð- ur-írlandi yrðu tekin til allsherjar- endurskoðunar. Á m.a. að athuga hvernig tryggja megi meiri leynd yfir feröum hermanna en ljóst er að þeir sem stóöu fyrir sprengingunni um helgina vissu upp á hár hvenær her- mennimir voru væntanlegir. Engar sannanir Bush og Quayle kveðjast að lokinni flokksráðstefnu repúblikana. Simamynd Reuter Gekk berserksgang með haglabyssu Björg Eva ErJaidsdóttir, DV, Osló: Ungur Norðmaöur skaut niöur sex manns með haglabyssu á laug- ardagskvöldiö. Fjórir mannanna létust en tveir þeirra voru svo lítið særðir að þeir komust undan og gátu hringt á sjúkrabíl og lögreglu. Moröin áttu sér staö á skotæf- ingaveili í Farsund í V-Noregi þar sem fjórar skyttur voru á æfingu. Skyttumar höföu lagt frá sér byss-, umar og voru að huga aö því hvemig þær hefðu hæft í mark þegar skothríðin dundi á þeim frá kjarrinu fyrir utan skotvöllinn. Tvær skyttanna létust strax en tvær koraust undan. Manndrápar- inn lá áfram í leyni í kjarrinu og þegar sjúkrabilhnn kom að skaut maðurinn tvo úr hjálparliöinu sem létust trúlega samstundis. Lögreglan kora ekki á staöinn fyrr en sjö tímura seinna. Þá var byssumaðurinn kominn heim til sín og sat þar í rólegheitum. Hann veitti enga mótspymu viö hand- tökuna. Maöurinn, sem er aðeins tuttugu og þriggja ára gamall, hefur verið talinn sérvitur og fer ofl einföram. Allir í hinu litla samfélagi í Far- sund þekktu manninn og hann átti mikiö safn af skotvopnum og hann fékk að nota skotvöllinn þó aö hann væri ekki meðlimur í skotfélaginu. Lögreglanhafði fengið ábendingu fyrr um daginn um að maðurinn hefði sést ganga um þéttbýli í Far- sund meö haglabyssu en lögreglan sá þá ekki ástæðu til að rannsaka það mál. Maðurinn var yfirheyrður alla helgina en neitar ennþá aö hafa nokkuö með málið að gera. Náðu ekki samkomulagi George Bush, forsetaframbjóöandi repúbiikana í Bandaríkjunum, sagði í viðtali í gær að engar sannanir lægju fyrir um aö varaforsetaefni hans, Dan Quayle, hefði gert neitt af sér. Forsetaefnið bætti þó viö aö hann myndi íhuga allar frekari vísbendingar af athygli. Quayle hefur veriö sakaöur um að hafa komiö sér hjá herþjónustu í Víetnam fyrir um tuttugu ámm. Bush sagöi í viötalinu í gær að þaö skipti mestu máli að Quayle væri fyllilega hæfur til að gegna embætti varaforseta. Sagðist hann vera ánægö- ur með varaforsetaefhi sitt og aö til þessa hefðu ásakanir á hendur honum ekki breytt neinu þar um. KreQast frelsis Um tíu þúsund Tékkar efndu í gær til kröfugöngu um Prag og kröfðust þar frelsis. Kölluðu þeir meðal annars nafn fyrrum leiðtoga landsins, Alexander Dubcek, sem var settur af í kjölfar innrásar Sóvétmanna í Tékkóslóvakíu fýrir tveim áratugum. Lögreglan dreifði mannfjöldanum eftir liðlega tveggja klukkustunda mótmæli og urðu nokkrir fýrir líkamsmeiðslum en ekki er vitað til þess að neinn hafi veriö handtekinn. Fulltrúar Norður- og Suður-Kóreu, sem funda nú um bættari samskipti ríkjanna, náðu ekki samkomulagi um framhald viðræöna. Viðræðum- ar, sem eru nú á þriðja degi, sigldu í strand í morgun og er óljóst hvort framhald verður á þeim. Fulltrúar Norður-Kóreu höíðu í morgun ekki gefið svar sitt við tillög- um Suður-Kóreu um að formenn nefnda beggja ríkja settust einir á rökstóla til aö freista þess að ná sam- komulagi. Norður-kóresku fulltrú- amir höfðu fyrr neitað tilboöi Suð- ur-Kóreumanna um aö ræða þá kröfu norðanmanna að fá að halda hluta ólympíuleikanna, sem hefjast í Seoul, höfuöborg Suður-Kóreu, eftir tæpan mánuð. Formaöur nefndar Suöur-Kóreu, Park Jun-Kyu, hafði krafist þess að deila ríkjanna um ólympíuleikana yrði útkljáð áður en viöræður um bætt samskipti ríkjanna héldi áfram. Hann lagði til aö deiluaðilar ræddust við þann 29. þ.m. í Pyongyang, höfuð- borg Norður-Kóreu. Hvorugur aöila hefur gefið nokkuö eftir í viðræðunum um fund til að ræða framtíð ríkjanna og er talið að þær hafi siglt í strand. Norður-Kór- esku fulltrúarnir krefiast þess að þing beggja ríkja taki þátt í viðræð- um um bættari samskipti ríkjanna auk um eitt hundrað annarra fuli- trúa. Suður-Kóreu vill hafa viðræð- urnar smærri í sniðum. Suöur-Kórea hefur neitaö því að á fundinum verði rædd tillaga Norð- ur-Kóreu um að bæði ríki skrifi und- ir samning um friðsamlega sambúð ríkjanna og segir að löggjafarþing beggja skuli fyrst ræða málin. -------;---------------------------------------- Umsjón: Halldór Valdimarsson og Steinunn Böðvarsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.