Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988.
Sandkom
Krónísk skekkja
í manntalinu
Núkann
loksinsaðvera
fundinskýring
áþvíhversu
mikilcinka-
neyslaeráfs-
landiásama
tímaogallur
almenningur
telursighafa
þaðskítt.Sam-
kvæmt opinberum tölum éta íslend-
ingar meiri sykur, aka fleiri bílum
og tala meira í farsíma en þjóðir sem
eru jafhvel helmingx til þrisvar sinn-
um fjölmennari. Þessi sérstaða ís-
lendinga keyrði þó algerlega um
þverbak í nýloknu góðæri. Þá slógu
Islendingar öll f>Tri heimsmet sín um
mörg hundruð prósent. Nú hefur
komið fram skýring á þessum furð-
um sem er mim líklegri en sú að ís-
lendingar séu einstakir og öðruvdsi
en annað fólk. Hún er sú aö á Hag-
stofú íslands sé krónlsk skekkja í
manntölum. islendingar séu í raun
alla vega helmingi fleiri en hingað til
hafi verið álitið. Raunar renndi skatt-
s vikaskýrslan stoðum undir þessa
kenningu þótt menn hafi ekki á þeim
tíma áttað sig á samhenginu.
Efnahagsaðgerðin:
Dauðar kanínur
ÞegarÞor-
steinnskipaði
forstjóranefnd-
ina tilaðfátil-
lögúr uméih-
hveijaral-
mennilegarað-
gerðiríefna-
hagsmálumvar
engulíkaraen
þjóöinhafitek-
ið það sem almennt herútkali. Það
er varla til svo aumur forstjóri eða
opinber skrifíinur að hann sé ekki
aö beija saman töfralausnir á efna-
hagsvandanum. Þetta hefitr orðið til
þess að orðaforöi almennings er orð-
inn úttroöinn af bæði splúnkunýjum
og endurlífguðum hagfræðihugtök-
um. Það nýjasta er „Efhahagsaðgerð-
in: Dauðar kanínur". Þetta hugtak
er samheiti yflr þær töfralausnir scm
hafa svipuð áhrif ogþegar töframaö-
ur dregur dauða kanínu upp úr hatti
sinum.
Sexy en ekki hægt
að búa með henni
Fráþvíífyrri
vikuhefurhver
stjórnmála-
maðurinná
fætur tiðrum
stigiðframog
lýstþvíhversu
brilljantniður-
færsluleiðin sé.
Húnermiklu
sniðugrifyrir
fiskvinnsluna, réttlátari fyrir laun-
þega og skemmtilegri í alla staði en
gamla gengisfellingarleiðin. Þegar
stj órnmálamennimir hafa lýst kost-
unum koma þeir að göllunum. Hún
er vandmeðfarin, dyntótt og hætt viö
að hún renni út i sandinn ef menn
umgangast hana ekki með varúð.
Niðurstaðan úr þessum bollalegging-
um verður sjálfsagt sú að þótt stjórn-
málamönnunum fumist niðurfærsl-
an sexy þá trey sta þeir sér ekki til
þess að búa með henni. Þeir munu
því velja góða göralu gengisfellingar-
leiðinasembregstekkiþótthúnsé ■
orðin þreytt og hálfleiðinleg.
Tefltviðpáfann
Skákþingis-
landserháð
umþessar
mundir.Blaðer
geflðútfyrir
hverja umferð.
Þareruskákir
skýrðarog
fleira. í blaðinu
erulíkaspak-
mæli.Hérer
lítiðsýnishom.
Þeir sem tefla við páfann þola ekki
aðgerajafntefli.
Auð vitað eiga konur að tefla með
körluin. Einhver verður jú að tapa!
Kona án karls er eins og fiskur án
reiöhjóls!
Umsjón: Sigurjón Egilsson
Fréttir___________________________________________________________________dv
Bankar og sparisjóðir lækka vexti:
Raunvextir 15 prósent
umfram verðbólguhraða
Dráttarvextir jafngilda 62 prósent ársávöxtun
Þrátt fyrir að bankar og sparisjóðir
hafi lækkað vexti um helgina eru
raunvextir á almennum skuldabréf-
um nú um 14 prósent að meðaltali
sé miðaö við verðbólguhraðann sam-
kvæmt nýútgefinni lánskjaravísi-
tölu. Samkvæmt lánskjaravísi-
tölunni er verðbólguhraðinn nú um
22 prósent.
Hæstu vextir á þessum bréfum eru
nú 41 prósent sem jafngildir um 15,5
prósent raunvöxtum miðaö viö verð-
bólguhraðann í dag. Lægstu vextir
eru 34 prósent sem jafngildir 9,8 pró-
sent raunvöxtum.
Bankar og sparisjóöir hafa tilkynnt
frekari lækkun vaxta á almennum
skuldabréfum þann 1. september. Þá
er búist við aö þeir lækki í 35,6 pró-
sent aö meðaltali. Miðað viö hraöa
verðbólgunnar í dag ætti þaö að gefa
bönkunum um 10 prósent raunvexti.
Þá er búist viö að raunvextir á verð-
tryggðum útlánum verði um 9 pró-
sent.
Af gildandi vöxtum í dag bera ávís-
anareikningar minnstu vextina.
Raunvextir á þeim eru neikvæðir um
10 prósent aö meðaltali. Á almennum
sparisjóðsbókum eru nú raunvextir
um 0,4 prósent aö meðaltali. Það má
búast við að vextir þeirra lækki frek-
ar þann 1. september og fari niður
fyrir verðbólguhraðann. Skiptikjara-
réikningar bera nú 8,7 til 11,7 prósent
raunvexti miðaö við hraða verðbólg-
unnar.
Af útlánum eru hæstu vextir á al-
mennum skuldabréfum. Þar á eftir
koma yfirdráttarlán og afurðalán
sem bera 10,1 til 12,3 prósent raun-
vexti sé miðað við verðbólguhraða
samkvæmt lánskjaravísitölu.
Seðlabankinn lækkaði einnig
dráttarvexti um helgina. Þeir eru nú
4,1 prósent á mánuði. Það jafngildir
62 prósent ársávöxtun. Sú ávöxtun
gefur um 33 prósent vexti umfram
hraða verðbólgunar í dag.
-gse
Lánskjaravísitalan:
22 prósent verðbólga
Veröbólguhraðinn er nú 22 pró-
sent sé miöað við lánskjaravísitölu.
Verðbólga samkvæmt framfærslu-
visitölu er um 29 prósent en 8 pró-
sent sé miðað við byggingavísitölu.
Þar sem lánskjaravísitalan er sam-
ansett úr framfærsluvisitölu að
tveimur þriðju og byggingavísitölu
að einum þriðja mæbst hraði verð-
bólgunnar 22 prósent samkvæmt
lánskjaravísitölu.
Verðlag hækkaði um 1,67 prósent
frá júb til ágúst, samkvæmt láns-
kjaravísitölu. Sú hækkun jafngildir
22 prósent árshækkun. Síðustu tólf
mánuði hefur verðlag hins vegar
hækkað um 26,8 prósent.
Lánskjaravísitalan er í dag 2254
stig. Byggingavísitalan er 124,3 stig
ogframfærsluvísitalan er 109,3 stig.
-gse
„Ég á alveg nóg til af lögum"
- segir Geirmundur Valtýsson um Eurovision-söngvakeppnina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég lét víst hafa það eftir mér í
fyrra að ef ég kæmist í úrsbt í þess-
ari keppni í þriðja sMpti myndi ég
hætta þessu. Það getur hins vegar
vel verið að ég éti þetta ofan í mig
og slái til næst, enda á ég nóg til af
lögum,“ segir Geirmundur Valtýs-
son, hljómhstarmaður á Sauðár-
króki.
Geirmundur er orðinn landsþekkt-
ur fyrir Eurovision-lög sín sem hafa
komist í úrsbtakeppni sjónvarpsins
undanfarin þrjú ár án þess þó að
komast alla leið á toppinn. En hann
gerir fleira og situr m.a. á daginn bak
viö skrifborð hjá Kaupfélagi Skag-
firöinga þar sem hann er fjármála-
fulltrúi, en hjá kaupfélaginu hefur
hann starfað í 12 ár.
En þá er ekki allt upp tahð og síðan
árið 1979 hefur hljómsveit með nafni
Geirmundar verið starfándi og spilað
á dansleikjum víða um landið.
„Það má segja að við spilum a.m.k.
tvö kvöld allar helgar allan ársins
hring,“ sagði Geirmundur og bætti
við að hljómsveitin spilaði um allt
land og oft væri mikið um löng og
þreytandi ferðalög til og frá dans-
leikjum. „Ef við keyrum heim eftir
bölhn erum við oft ekki komnir heim
fyrr en á morgnana svo þetta er mjög
þreytandi. Allt er þetta næturvinna,
bæði æfingar og spilamennskan sjálf,
og þetta er ansi tímafrekt."
- Er ekki erfitt fyrir fjölskyldu-
mann að standa í þessum „bransa“?
„Konan mín gerði sér þetta ljóst
alveg í byrjun því það lá fyrir að
svona myndi þetta verða en ég skal
viðurkenna að þetta er ekkert
skemmtilíf fyrir hana. Ég myndi hins
vegar eiga mjög erfitt meö að hætta
þessu, þetta er „baktería" og það er
erfitt að slíta sig frá þessu þegar vel
gengur,“ sagði Geirmundur.
Geirmundur Valtýsson við skrifborð sitt á skrifstofu Kaupfélags Skagfirðinga.
DV-mynd gk
Alexander situr í fangi langafa síns.
DV-mynd S
Hundrað ára
aldursmunur
Magnús Ólafsson, fyrrum bifreið-
arstjóri í Reykjavík, varð 100 ára á
laugardaginn. Vegleg afmælisveisla
var haldin á Hótel Sögu og komu
rúmlega hundrað ættingjar og vinir
tíl að samfagna afmæhsbarninu. Hér
heldur Magnús á yngsta afkomanda
sínum, langafabaminu Alexander
Steinarssyni. Alexander er fæddur í
apríl á þessu ári og er því hundrað
árum yngri en langafi. Faðir hans,
Steinar Ragnarsson, er dóttursonur
Magnúsar. -JJ.
íslandsmótíð á kjölbátum:
Hart barist á íslandsmóti kjölbáta. Mótið stóð yfir í þrjá daga. Sigurvegari varð áhöfnin á Skýjaborg.
DV-mynd S
Skýjaborg
sigraði
íslandsmótið á kjölbátum, Ericson
hot line-open, fór fram á ytri höfn-
inni í Reykjavík um helgina. Mótið
hófst á föstudag og lauk á sunnudag.
Keppendur voru sextíu á sextán bát-
um. Vindur var góður alla keppnis-
dagana.
Sigurvegari varö áhöfnin á Skýja-
borg. Skipstjóri er Óttar Hrafnkels-
son. í öðru sæti varö áhöfnin á Sigur-
borg, skipstjóri Rúnar Steinsen. í
þriðja sæti varö áhöfnin á Stjömu,
skipstjóri Erling Ásgeirsson. -sme