Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988.
Viðskipti__________________________________________________________________________dv
Ragnar Hall, skiptaráðandi í Reykjavik:
Gjaldþrotin orðin alls 320
en voru 73 fyrir sex árum
Ragnar Hall, skiptaráðandi í
Reykjavík, segir að alls 320 fyrirtæki
og einstaklingar hafi verið teknir tii
gjaldþrotaskipta það sem af er þessa
árs. Állt árið í fyrra voru gjaldþrotin
í Reykjavík 341 talsins.
Skiptingin á milli fyrirtækja og ein-
staklinga er 233 einstaklingar og 87
fyrirtæki. Allt árið í fyrra urðu 252
einstaklingar og 99 fyrirtæki gjald-
þrota.
„Gjaldþrotum hefur ljölgað jafnt
og þétt á hverju ári síðustu ár. Fyrir
sex árum, árið 1982, var heildarfjöldi
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst-
Innlán óverötryggð
Sparisjóösbækurób. 25-26
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 24-28 Sp.Ab,- Sb
6 mán. uppsögn 26-30 Sp.Ab,- Sb.Vb
12mán. uppsogn 26-33 Úb.Ab
18mán.uppsögn 39 Ib
Tékkareikningar, alm. 9-15 Ib.S- b,Ab
Sértékkareikningar 10-28 Vb.Ab
Innlán verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsogn 4 Allir
Innlánmeðsérkjörum 20-36 Lb.Bb,- Sp
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 7-7.25 Úb.Bb,- lb,V- b,S- b,Ab
Sterlingspund 9-9,75 Lb.Ab
Vestur-þýsk mörk 3.75-4,25 Vb.Sb,- Ab.Úb
Danskarkrónur 7,25-8,50 Vb.Ab,
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
A!mennirvíxlar(forv.) 38,5-39 Sp •
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 41 Allir
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaúpareikningar(yfirdr.) 41-42 Ib,
Bb.Sp
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 9,25-9,50 Ib.Vb
Utlán til framleiðslu
isl.krónur 36-41 Úb
SDR 8,50-9,25 Lb.Úb,-
Sp.Bb
Bandaríkjadalir 9,75-10,50 Úb.Sp
Sterlingspund 12-12,75 Úb.Sp,
Vestur-þýsk mork 5,25-7,25 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 56,4 4.7 á mán.
MEÐALVEXTIR
Óverótr. júlí 88 38,2
Verötr. júlí 88 9.5
VISITÖLUR
- Lánskjaravísitala ágúst 2217 stig
Byggingavísitalaágúst 396 stig
Byggingavísitalaágúst 123,9 stig
Húsaleiguvísitala Hækkaði 8% 1. júli.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóða
Ávöxtunarbréf 1,7433
Einingabréf 1 3,197
Einingabréf 2 1,837
Einingabréf 3 2,041
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,492
Kjarabréf 3,193
Lífeyrisbréf 1.608
Markbréf 1,673
Sjóðsbréf 1 1,555
Sjóðsbréf 2 1,379
Tekjubréf 1,533
Rekstrarbréf 1,2648
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar • 115 kr.
Eimskip 269 kr.
Flugleiðir 240 kr.
Hampiðjan 116 kr.
Iðnaðarbankinn 168 kr.
Skagstrendingur hf. 158 kr.
Verslunarbankinn 120 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 123 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgpngi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
gjaldþrota í Reykjavík alls 73. Aukn-
ingin er því mikil,“ segir Ragnar.
Gjaldþrot Nesco Manufacturing er
stærsta gjaldþrot þessa árs. Gjald-
þrot Miðfells er einnig mjög stórt.
Meira er nú um að bú séu tekin til
gjaldþrotaskipta sem eitthvað af flár:
munum er eftir í. „Það er að aukast
að menn láti gera sig upp fyrr en
áður tíðkaðist."
Sú flokkun sem hér er á milli fyrir-
tækja og einstaklinga segir ekki allt,
flöldi einstaklinga sem teknir eru til
gjaldþrotaskipta hafa verið með
rekstur fyrirtækis á sínu nafni. Upp-
lýsingar um skiptinguna þarna á
milli liggja ekki fyrir.
-JGH
Gjaldþrot Nesco Manufacturing er stærsta gjaldþrot ársins. Gengistap og fjármagnskostnaður fóru með það fyrir-
tæki.
Breiðfirðingur
stjóri í Brauðbæ
Friðrik Eysteinsson. 29 ára
rekstrarliagfræöingur, fæddur og
uppalinn á Breiðbólsstað á Skógar-
strönd við Breiðaíjörð, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri fyrir-
tækja Bjarna Árnasonar en þau
eru Brauðbær, Óðinsvé og veit-
ingareksturinn í Viðcy. Friðrik er
svili Bjama.
„Ég er ekki alveg ókunnugur
rekstrinum héma, ég hef unnið hjá
Bjama á hverju sumri frá árinu
1984,“ segir Friðrik.
Friðrik er stúdent frá Verslunar-
skólanum. Hann er með próf i hag-
fræði og rekstrarhagfræði frá há-
skólanum í Minnesota með mark-
aðsmál sem sérgrein.
fYrirtækið Óðinsvé annast hótel-
og veitingarekstur. Brauðbær er
matvælafyrirtæki. Þá hefur Bjarni
Árnason tekið að sér veitingarekst-
urinn í Viðey í tvö og hálft ár.
-JGH
Nýtt stórskip til SÍS
Hvassafell verður nafnið á nýju
þýsku 4.200 tonna flutningaskipi sem
skipadeild Sambandsins hefur samið
um þurrleigu á. Skipið verður afhent
í byrjun september. Þá standa yfir
viðræður sambandsmanna við er-
lenda aðila um þurrleigu og eða kaup
á um 3 þúsund tonna skipi.
í samræmi við samning, gerðan á
síðastliðnu ári, hefur skipið Bern-
hard S, nú Helgafell, verið keypt frá
Þýskalandi. Það getur flutt 426 gáma.
Þá hefur Arnarfell, sem keypt var
til landsins 1978, verið selt til Noregs
og verður það afhent nýjum eigend-
um í byrjun september.
-JGH
Þetta skip fær nafnið Hvassafell. Þetta er nýtt stórskip sem Sambandið
hefur tekið á leigu í Þýskalandi.
Lýsi hf. hætt að selja
lýsi til Suður-Afriku
Lýsi hf. ákvað nýlega að hætta að
selja lýsi til Suður-Afríku vegna ótta
við að fá fólk upp á móti sér. Salan
þangað hefur ekki verið mikil eða
nokkur tonn á ári, að sögn Egils
Snorrasonar, framkvæmdastjóra
Lýsis hf.
„Við seljum lýsi til-yfir 50 landa
víðs vegar í heiminum. Viðskiptavin-
ir okkar erlendis eru margir. Við
viljum ekki taka neina áhættu með
sölu á lýsi til Suður-Afríku. Þess
vegna erum við hættir að selja lýsi
þangað,“ segir Egill.
Að sögn Egils selur fyrirtækið mest
af lýsi til Sri Lanka og landa í Súður-
Ameríku.
íslenska þorskalýsið er sagt hollt og gott. Nú fer það ekki lengur til Suður-
Afríku.
Sýnlng:
Tölvur á tækniári
Sýning á tölvum og tölvukerfum
verður haldin í Laugardalshöllinni
dagna 21. til 25. september. Það eru
tölvunarfræðinemar við Háskóla ís-
lands sem standa að sýningunni.
Á meðal þess sem kynnt verður á
sýningunni má nefna skrifstofu
framtíðarinnar, vélmenni, ættfræði-
forrit, upplýsingabanka Reykjavík-
urborgar og upplýsingakerfið Út-
gerðarráðgjafann.
-JGH
Alttfra fastít sið og oliinum
Afgreiðsla tollskjala hefur veriö frekar tafsöm aö undanförnu aö sögn nokkurra innflytjenda sem haft hafa samband við DV. Segja innflytjendur aö starfsfólk tollsins beri því við aö tölvukerfið sé suma dagana alit eða hluti af þvi frosiö og fast. „Það er ekkert skrítiö að maöur verði fúll. Maður lofar viðskipta* VHIIfl ■ wi ■ ■ ■ vinum sínum að vera meö vörurn- ar á ákveönum degi þar sem tollur- inn ætlar að afgreiöa þær fyrir þann tima. En svo bregst það trekk í trekk að tollurinn standi við sitt vegna vandræða í tölvumálunum,“ sagði einn eldheitur innilytjandi á fóstudaginn. -JGH