Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Page 10
10
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988.
Utlönd
Verkföllin breiðast
enn út í Póllandi
Verkamenn í Lenin-skipasmíða-
stöðinni í Gdansk í Póllandi lýstu
yfir verkfalli í morgun. Verkamenn-
irnir lögðu niður vinnu fyrir dögun
til þess að krefjasi þess að hið bann-
aða verkalýðsfelag Samstaða verði
leyft og til að sýna samstöðu með
tugum þúsunda verkamanna í kola-
námum víðs vegar um landið sem
verið hafa í verkfalli í sex. daga.
Lýst var yfir verkfalli þegar stjórn-
völd svöruðu ekki kröfu Lech Wa-
lesa, formanns Samstöðu, um við-
ræður fulltrúa ríkisstjórnarinnar og
verkfallsmanna.
Verkamennirnir hrópuðu að það
væri ekkert frelsi án Samstöðu og
kröfðust þess aö stjórnvöld afléttu
banninu á verkalýðsfélaginu. Þeir
hrópuðu einnig hvatningarorð til
stuðnmgs verkföllum kolanámu-
manna í suðurhluta landsins sem
verið hafa í verkfalli síðan á þriðju-
dag.
Verkföllin í Póllandi hófust í kola-
námu í Jastrzbie í suðurhluta lands-
ins að morgni þriðjudags. Þau hafa
nú breiðst út þrátt fyrir boð og bönn
stjórnvalda og segja talsmenn verk-
fallsmanna að um sextán þúsund
verkamenn hafi nú lagt niður vinnu.
Verkamennirnir kreíjast bættra
kjara og hærri launa auk þess sem
þeir fara fram á að verkalýðsfélagið
Samstaða verði leyft. Samstaða var
stofnað í Lenin-skipasmíðastöðinni
árið 1980 en var bannað þegar stjórn-
völd í Póllandi settu herlög í landinu
í desember árið 1981.
í Lenin-skipasmíðastöðinni vinna
um tólf þúsund verkamenn en ekki
er ljóst hversu víðtæk þátttakan í
verkfallinu er.
■
nVnniii'niM»i««.iiii
Verkföllin í Póllandi hafa nú breiðst út þrátt fyrir bann stjórnvalda. Verka-
menn í kolanámu í Jastrzebie, sem hér sjást, hafa nú fengið samúð verka-
manna í Lenin- skipasmíðastöðinni í Gdansk. Símamynd Reuter
Hermenn í íraska hernum hafa þaö náðugt þessa dagana á landamærum
deiluaðila t- Persaflóastríðinu. Símamynd Reuter
Rólegt á víg-
stöðvunum
Yfirmaður friðargæslusveita Sam-
einuðu þjóðanna á landamærum ír-
ans og Iraks, Slavko Jovic hershöfð-
ingi, segir að báðir aðilar hafi haldið
skilmála vopnahlésins sem gekk í
gildi aðfaranótt laugardags.
Bæði ríkin hafa ásakað hvort ann-
að um að hafa rofið vopnahléð en
ekki kom til átaka í gær. Starfsmenn
friðargæslusveitanna rannsaka nú
ásakanir íraka um að írönsk leyni-
skytta hafi skotið til bana íraskan
hermann á landamærum ríkjanna
þremur klukkustundum eftir að
vopnahléð tók gildi. írakar hafa einn-
ig sakað íranska hermenn um að
hafa veist að íröskum skipum sem
siglt hafa um Persaflóa í því skyni
að reyna á vilja írana til að halda
vopnahléð.
Stjórnvöld í íran hafa neitað þess-
um ásökunum og sakað nágranna
sína um að hafa gripið til vopna á
landamærunum. Iranska fréttastof-
an Irna sagði að gámar skips íraka
á Persaflóa hefðu verití rannsakaðir
en skipinu hefði verið leyft að halda
sína leið að því loknu.
Utanríkisráðherrar deiluaðila í
Persaflóastríðinu munu hittast í
Genf á fimmtudag til friðarviðræðna.
Báðir búast við erfiðum viðræðum.
íran hefur krafist þess að sökin á
upphafi stríðsins lægi hjá írökum og
að þeir verði viðurkenndir sem upp-
hafsmenn deilnanna. írakar hafa
lagt fram svipaða kröfu.
Forseti írans, Ali Khameini, ítrek-
aði hvatningar sínar um að hermenn
væru á varðbergi á meðan á viðræð-
um stæði.
jVíini
l'Vlfft
'eh/io-
s
iiiú
úr sfl'
ðai «nnal
/o8‘ð jp
x'ro,
„llltj11111'
kviknlynrf
gramm