Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1988, Síða 21
MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 1988. 37 pv___________________________________________Fréttir Vikublað á Dalvík: „Fólk hefur tekið blaðinu mjög vel“ - segir Guðmundur Ingi Jónatansson útgefandi Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Rekstur blaðsins hefur gengið mjög vel og fólk hefur tekið blaðinu mjög vel,“ segir Guðmundur Ingi Jónatansson á Dalvík en hann gefur út vikublaðið Bæjarpóstinn þar í bæ og hefur gert síðan áriö 1985. „Mér fannst einfaldlega vera þörf á blaði eins og þessu hér. Hér er að vísu gefið út blaðið Norðurslóð, sem kemur út einu sinni í mánuði, en það var ekki hægt að vita með vissu um útgáfudaga þess og því nýttist það auglýsendum illa,“ sagði Guðmund- ur Ingi um tilurð blaðsins. „Viö erum með efni í blaðinu bæði héðan frá Dalvík og eins úr ná- grannabyggðarlögunum og það er einn maður sem sér um efnisöflun og er ritstjóri, Geir Guðsteinsson. Það eru engin vandræði með efni í blaðið sem er 8 síður að stærð hverju sinni, frekar að plássið sé of lítið, en ég neita því ekki að auglýsingamark- aðurinn er þröngur hér.“ Guðmundur Ingi sagði að upplag blaðsins væri á bilinu 600-800 eintök, áskrifendur eru 550 og hlýtur það að teljast gott í ekki stærri bæ en íbúð- arhús eru 350 talsins á Dalvík. Guðmundur Ingi rekur einnig prentsmiðjuna Fjölrita og hefur gert Guðmundur Ingi Jónatansson síðan 1985. „Égreyni að sjá fyrirtækj- um hér í bænum fyrir þeirri prent- þjónustu sem þau þurfa á að halda. Ég get ekki merkt annað en að þetta sé vel metið og mönnum þykir hag- ræði í því að hafa þessa þjónustu hér á staðnum,“ sagði Guðmundur Ingi Jónatansson. Bolungarvlk: Löggæsla stór- efld í bænum Siguijón J. Sigurðsson, DV, Vestfjördum: Á fundi umferðarnefndar Bolung- arvíkur í lok júní í sumar var lagt fram bréf frá 57 íbúum við Völu- steinsstræti þar í bæ varðandi lög- gæslu innan marka bæjarins. Bréf- inu var vísað til bæjarráös og nokkru síðar var svofelld bókun gerð: „Bæjarráð Bolungarvíkur tekur undir þau sjónarmið að stórefla þurfi löggæslu innan marka bæjarins. Koma þarf í veg fyrir gáleysislegan akstur fárra einstaklinga með virk- um aðgeröum, svo sem hraðamæl- ingum og yfirheyrslum." Umtalaðasti megrunarkúrinn Fæst í apótekum og heilsubúðum Heiðar Jónsson snyrtir: Þetta er sá alsniðugasti og áhrifaríkasti megrunarkúr sem ég hef kynnst. Máttui Grape Fruit ávaxtarins í megrunarkúrum. Megrunareiginleikar U.S. Grape Slim taílnanna eru fyrst og fremst vegna tilverknaðar trefja grape ávaxtarins, sem gefur vellíðan og flýtir þar fyrir utan fyrir melting- unni. Það er styttir þann tíma sem maturinn dvelur í þörmunum, áður en líkaminn skilar honum frá sér. Virkni eykst samtímis vegna inni- halds taflnanna af kelp (Kyrrahafs- þara), lecitini, eplavínsediki og þeirra vítamína sem eru í töflunum. Hvað er kelp? Það kelp sem notað er hér er hinn stóri brúni hafþörungur (phaeop- hyta), sem er ræktaður í Kyrrahafinu úti fyrir strönd Kalifomíu. Kelp inni- heldur ógrynni af steinefnum og snefilefnum. Asíu-megin Kyrrahafs- ins er kelp í dag nauðsynleg fæðu- uppbót fyrir Japani og Kóreubúa eftir að þeir fóru í miklum mæli að borða hýðislaus hrísgrjón. Kelp vegur upp á móti næringartapi því sem hefst af brottnámi hýðisins. Hinn heimsþekkti svissneski náttúru- læknir og næringarsérfræðingur, Dr. A. Vogel, segir í bók sinni, „Der kleine Doktor", að kelp jafni líkams- þyngdina. Hvað er lecitín? Lecitin verður tii í sojabaunum svo og í lifur mannsins. Lecitin finnst í miklum mæli hjá mönnum, m.a. í taugavefjum, og 40% af heilanum samanstanda af lecitini. Hið „góða kólesteról", HDL-kólesterólið, er lecitin. Það vinnur á móti kransæða- stiflu. Lecitin er fosfatið sem virkar sem venjulegt byggingare&ú í frumuhimnum og hvatberum. Þetta síðasttalda telur hinn þekkti finnski fjör- og steinefhavisindamaður, Matti Tolonen dósent, vera „miniat- ur karftaverk" í frumunum. Þau breyta næringarefnum í vatn, kol- sýru og orku. Lecitin er hluti af vam- arkerfi líkamans, þar sem það hem- ur eitraðar sýrur sem safnast saman í líkamanum og geta brotið niður frumumar. Lecitin örvar niðurbrot fitunnar í líkamanum og losar á þann hátt líkamann við ónauðsynlega fitu. Þessa sömu virkni haía E-vitamin og B-6 vítamin. Hvað gerir eplaedikið hér? Það er vatnslosandi, en einnig er það nauðsynlegur efnaskiptahvati. Hvernig vinna öll þessi efni sam- an í U.S. Grape Slim? öll þessi efni í U.S. Grape Slim vinna saman með tilliti til þess að jafna lík- amsþyngd sem næst kjörþyngd og gefa meiri vellíðan sem hlýst óhjá- kvæmilega af eðlilegra ástandi meltingarfæranna og líkamans. Hver er árangurinn? Notkun U.S. Grape Slim eins út af fyrir sig getur losað um 1,5 til 2 kg á viku hjá fólki með þyngdarvanda- mál, þó breytilegt eftir einstakling- um. Með notkun leiðbeinandi mat- seðilsins, sem fylgir hverri dós af U.S. Grape Slim, eða uppskriftum úr Scarsdale-kúmum eða álíka er möguleiki á að auka þyngdartapið um helming eða jafnvel rúmlega það, 3-5 kg fyrstu vikuna. Til eru viðskiptavinir okkar sem hafa grennst um eða yfir 10 kg fyrstu 2 vikumar, án þess að hafa farið í svelti eða fundið fyrir tilfinnanlegum óþægindum. Þess ber þó að geta að þessar manneskjur þurftu á þessu þyngdartapi að halda sér að skaðlausu. Hver er eftirleikurinn? Þegar kjörþyngd er náð þá borgar sig ekki að halda hátíð og útbúa veisluborð með öllu því forboðna sem áður mátti ekki neyta. Kjör- þyngdin er nú orðin viðkvæmt fjör- egg, sem þarf að venja líkamann við, og venja sjálfan sig á næringar- og fjöre&taríkt fæðuval og minnka U.S. Grape Slim frá 2 töflum fyrir hverja máltíð niður í 1 töflu fyrir hverja máltíð, þar til að skammtur- inn er orðinn 1 tafla aðeins fyrir kvöldmat eða morgunmat og hætta svo. Nú ert þú ein(n) um framhaldið. Ef út af ber og þú byrjar að aftur að þyngjast, skalt þú ekki örvænta, því þú getur byrjað aftur að auka U.S. Grape Slim skammtinn þér að skaðlausu, þvi U.S. Grape Slim er ekki lyf, heldur fæða og fjörefiú og alls ekki vanabindandi. Notkunarreglur. Nákvæmar leiðbeiningar fylgja hverri dós, ásamt leiðbeinandi mat- aruppskriftum. Munið að matarupp- skriftimar eru aðeins leiðbeinandi, og ef breytt er út af, skal reynt að hafa það sem í staðinn kemur eins líkt og hægt er. Þessi kúr er engan veginn heilagur og hægt er að nota hann mjög auðveldlega, hver á sinn hátt, með heilbrigðri skynsemi. 2 töflur (3 fyrir magastóra) tyggist vel áður en þeim er kyngt, um 30 minút- um fyrir máltíð. Vatn eða hreinan ávaxtasafa má að skaðlausu drekka á eftir. t * ÁTILBOÐS XR 600R Honda CBR 1000, kostar nú kr. 545.000 Honda XR 600R, kostar nú kr. 318.000- Örfá hjól til afgreiðslu strax - (kostaði áður kr. 585.000-) (kostaði áður kr. 345.000-) HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.