Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988.
Utlönd
Fylgishrun
danskra
íhaldsmanna
%
EF EKKI.., ÞÁ GETURÐU MISST AF
SPORTBÍL OG SPÍTTBÁT
Gizur Helgason, DV, Reersnæs:
Skoöanakannanir í Danmörku
sýna' nú aö fylgi hrynur af íhalds-
mönnum, flokki Pouls Schluter for-
sætisráðherra. Menn taka þessum
fréttum svo alvarlega í Danmörku
aö þær ógna nú samsteypustjórn
Schluters.
Flokkurinn myndi tapa átta þing-
sætum væri gengið til kosninga í dag
en þaö er einn fjórði hluti af núver-
andi þingmannafjölda sem flokkur-
inn fékk í þingkosningunum fyrir
þremur mánuöum. Aöra sögu er aö
segja af Framfaraflokknum. Hann
myndi vinna stórkostlegan kosn-
ingasigur ef kosiö yrði í dag.
Danir eru í hæsta máta óánægðir
meö hinn svonefnda „kartöflukúr“,
skattpíningu og skort á aðgerðum til
úrbóta almennt. Skoðanakannanirn-
ar geta valdið auknum ágreiningi
innan ríkisstjórnarinnar. Sú hætta
er fyrir hendi hjá ráöherrum stjóm-
arinnar að allar langtímaákvaröanir
fari í vaskinn af ótta viö að styggja
kjósendur.
Radikale Venstre, sem aðild á að
ríkisstjóminni, segist ekki vilja fóma
öllu fyrir aðild sína að henni og vill
samvinnu á enn breiöari grundvelli.
Fáist hún ekki erum við tilbúnir til
að slíta stjórnarsamvinnunni, segir
formaður þingflokks Radikale, Mar-
ianne Jelved, eftir að stjórn flokksins
kom saman í fyrradag.
Þingflokkur Radikale óttast einnig
að áhrifa þeirra gæti of lítið í ríkis-
stjórn Schlúters og er ekkert hrifln
af samvinnu við Framfaraflokkinn
sem Schluter hefur annars boðað að
aukin verði.
Færu fram kosningar í dag fengi
Framfaraflokkurinn 27 þingmenn og
yrði þar með næststærsti þingflokk-
ur Dana ásamt íhaldsmönnum. Sós-
íaldemókratar væm í fyrsta sæti að
venju.
Enn harðnar
samkeppnin
Gizur Helgason, DV, Reersnæs:
---------------------------
Enn einn samkeppnisaðili Flug-
leiða bætist nú í hóp þeirra er fljúga
á flugleiöinni Bandaríkin/Kaup-
mannahöfn. Hér er um að ræða
öflugasta flugfélag Bandaríkjanna,
American Airlines, og mun það
væntanlega fljúga daglega frá
Chicago til Kaupmannahafnar.
American Airlines sótti um það til
bandarískra •flugyfirvalda hinn 22.
júlí sl. að fá að hefja flug til Kaup-
mannahafnar í apríl eða maí á næsta
ári. Seint í gær hafði danska sam-
göngumálaráðuneytinu ekki borist
umsókn en slík umsókn er í reynd
bara formsins vegna því gildandi
heimildir eru fyrir hendi.
American Airlines vilja fljúga á
leiðinni Chicago-Kaupmannahöfn-
Hamborg með Boeing 767. Auk Flug-
leiða fljúga í dag SAS, Northwest
Airhnes, Trans World Airhnes og
Tower Air frá Bandaríkjunum til
Norðurlanda. Reiknað er með því að
Canadian Airhnes hefji einnig flug
frá Kanada til Kaupmannahafnar
næsta vor. Það verður því bitist
harkalega um farþegana á flugleið-
inni yfir Atlantshafið og hætt við að
risarnir skyggi á peðin sem geta í dag
ekki einu sinni flaggað lágu verði
miðað við þau tilboö sem nú eru á
markaðnum á mhh Bandaríkjanna
og Evrópu en þau eru allt niður í
1.800 danskar krónur fram og til
baka.
X GÓÐ, ÞÆGILEG INNRÉTTING
k EKTA FERÐABfLL
k MARGREYND OG SPARNEYTIN VÉL
ÞRÆLÖFLUG AUKAMIÐSTÖÐ FYRIR
FARÞEGA í MIÐJUM BÍLNUM
X MARGVÍSLEGIR GREIÐSLUMÖGULEIKAR
SYNINGARBÍLL Á STAÐNUM
MUNIÐ BÍLASÝNINGARNAR
LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 14 17