Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988. Iþróttir Nafn: Alfrcð Gislason. Fa;ðingardagur/ár: 07.09. 1959. Hæö: 1,90 m. Þyngd: 97 kg. Félag: KR. Vantar meiri DY kynnir íslensku ÓL-farana stöðugleíka íliðið „Það er ekki hægt að segja ann- að en að mér lítist vel á leikana í Seoul. Keppnin kemur til með að verða gífurlega erfið og það veröur ekki auðvelt að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til okkar. Við höfum sett okkur það markmið að ná 6. sætinu á ólympíuleikunum en allt fyrir ofan það yrði stórkost- legur árangur. Við höfum átt erfitt uppdráttar á þessu Flug- ieiðamóti og ekki náð að sýna okkar besta. Það er viss titring- ur í mönnum eins og kom fram í leiknum gegn Spáni. Það vant- ar augljóslega meiri stööug- leika í liðið. Við leikum vel ann- an daginn og illa hinn næsta. Þetta verðum við að reyna aö laga. Það er kannski gott að fá smáskelli fyrifram og þá verða menn kannski ekki eins hátt uppi í Seoul,“ sagði Alfreð Gíslason, stórskytta íslenska landsliðsins í handknattleik, í samtali við DV í gærkvöldi. Alfreð hefur verið í fremstu röð handboltamanna í Evrópu og á að baki frægðarferil með v-þýska stórliðinu Essen þar sem hann hefur unnið meist- aratitil. Alfreð hefur verið í sviðsljósinu með landsliðinu í 9 ár og leikið samtals 146 lands- leiki og skorað ófá mörkin. Það má segja að Alfreð sé nú loks kominn heim því næsta vetur mun hann leika með KR- liðinu í 1. deildinni og ætiar sér líklega stóra hluti þar ásamt félaga sínum Páli Ólafssyni. „Það verður gaman að koma í íslensku 1. deildina og ég hlakka mikið til að leika með KR aftur. Þetta kemur senni- lega til með að verða spennandi og skemmtileg deild og það er víst að viö KR-ingar ætlum okk- ur stóra hluti. Það verður samt ekki auðvelt því það eru mjög sterk liðíl. deildiiini og breidd- in mikil. Eftir að hafa leikið í 5 ár í atvinnumennsku í Þýska- landi er sannarlega gott aö vera kominn heim,“ sagði Alfreð. -RR OL 88 * I . / i I \\ i \\ ' ; !! jjj! ! I ' I M i il i i Bjarki Sigurðsson átti ágæta spretti með íslenska liðinu í gær en gerði vond mistök á sama hátt og flestir aðrir í íslenska punktalínu og í þann veginn að láta ríða af en boltinn þandi netmöskvana örskömmu síðar. Enn eiirn skellur gegn Spánverjum: Afhroð í Höll - martröð í fjörutíu mínútur er íslendingar lágu fyx Það var lítill heildarsvipur á leik ís- lenska landshðsins í gærkvöldi enda fékk það skell gegn Spánverjum, 21-23. Úrslitin réðust raunar á upphafsmín- útum leiksins en þá gekk hvorki né rak hjá íslenska liöinu. Það var sem hópur einstaklinga færi marklaust um gólfið þar sem hver reyndi sitt. Spánveijar stóðu nánast í öllum aðgerðum íslenska liðsins og léku á tánum á sama tíma og okkar menn hengdu haus. Spánverjar refsuðu fyrir allar yfirsjónir íslenska hðsins í vörn og sókn, keyrðu grimmt á hraðaupphlaupum og lögöu þannig drögin aö sigrinum. Bilið sem varð til á upphafsmínútum leiksins reyndist ein- faldlega of mikið til þess að íslendingar næðu að vinna það upp. Barátta þeirra í síðari hálfleiknum kom of seint og Spánveijar voru menn til að halda fengnum hlut. Spánverjar eru mjög frískir Spánverjar eru mjög frískir þessa dag- ana og er annað að sjá til þeirra nú en á Spánarmótinu á dögunum. Þeir leika litskrúðugan handknattleik þar sem einstaklingamir njóta sín þótt hðsheild- inni sé skipað í öndvegi. Spánveijar eru eldfljótir og hug- myndaríkir í sókninni og að baki hreyf- anlegri vöm þeirra stendur frábær markvörður. í gærkvöldi las hann nán- ast aht sem íslensku skytturnar ætiuð- ust fyrir og varði á annan tug skota á sama tíma og markverðir okkar fengu fremur litlu áorkað. Þegar hugarfarið vantar... íslenska liðið verður að vinna saman æth það sér einhverja hluti á ólympiu- leikum. Sú spuming gerist sífellt áleitn- ari hvað valdi þessum hörmungum nú, fyrst gríðarlegt áfall gegn Svisslending- um og nú 40 mínútna martröð gegn Spánverjum. Eitthvað veldur því að liðið leikur sem safn einstaklinga þar sem hver og einn pukrar með sitt, bæði í sókn og vörn. Af einstökum leikmönnum átti Sig- urður Sveinsson einna bestan dag en náði ekki að snúa leiknum þrátt fyrir ágæt tilþrif. Hann hefði að ósekju mátt Tékkum skellt á Flugleiðamótinu: Léttur sigur Rússa CSrffi v™dv Akuxevri: leikinn alltaf í hendi sér og léku bara á varði frábærlega í fyrri hálfleik í ga ----------!---------- hálfum hraða og varla það. m.a. fimm vítaskot. Markahæstir Sov Rússnesku handboltastjömurnar, sem Þeir virtust ahtaf geta bætt við er á manna voru Atawin með 4, Chewtzov hafa ekki tapað leik á árinu, þurftu ekki þurfti aö halda og þeir leyfðu sér þann og Tuchkin 3. að hafa mikið fyrir því að sigra Tékka á ' munað að hvíla lykilmenn 1 gærkvöldi Markahæstir Tékka voru hins veg Akureyri í gærkvöldi. Að vísu uröu loka- fyrir leikinn gegn íslendingum í kvöld. Jindrichovsky og Sovadina með 4 mö tölur ekki nema 20-16 en Rússamir höfðu Sovéski markvörðurinn, Doroschenko, hvor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.