Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988. 15 Af sport-rembu DV__________________________________________ íþróttapistil Fatlaðir í lífshættu í íþróttapistlum minum hof óg gjaman grannt með framvindu varpsstööinniumíjáronunfatlaöra oft tekiö fyrir eitt ákveöiö mál sem mála á sjónvarpsstöövunum tveim- iþróttamanna. Þar var rætt viö Sig „heitrhefurveriöáhverjumtíma. ur. Heldur þykir mér vera fariö aö nrgeir Þorgrimsson. formann Aö þessu sinni mun ég koma viöa halla á Sjónvarpiö i hinni miklu íþróttafélags fatlaöra i Reykjavik. viö. samkeppni stöövanna á iþrótta- á bökkum eins mesta jökulfljóts sviöinu. Og greinilegt er aö Bjami landsins. Fatlaöir íþróttamenn Körfuknattleikur Felixson ræöur ekki lengur ríkjum vom aö sigla niöur Hvitá á gúmmi 011 úrvalsdeildarliöin í körfuknatt- á íþróttadeild Sjónvarpsins. Þeir bátum og lögöu við þaö lif sitt i leik hafa nú ráöiö sér þjálfara fyrir em ótrúlega margir sem sakna haettu. Tilgangurinn með þcssu komandi keppnistímabil sem mun Bjama sem unniö hefur meira starf uppátæki var aö afla fjár til bygg heflast i lok næsta mánaöar meö tengt iþróttum innan stofnunar ingar iþróttahúss fyrir fatlaöa Reykjavikurmóti. Mönnum ber innar en nokkur annar. Þaö kom iþróttamenn. Þegar viðtaliö var „I þessari grein fellír Stefán þann salómonsdóm að fullsannað sé nú að konur eigi ekkert erindi inn á íþróttadeildir þeirra sjónvarpsstöðva sem reknar eru hér á landi,“ segir i greininni. Fyrir áttatíu árum íjallaöi Bríet Bjarnhéðinsdóttir í bæjarstjórn Reykjavíkur um misrétti sem hún taldi konur beittar hvað varðaði íþróttir. í ræðu sinni, sem jafn- framt var fyrsta ræða konu í bæjar- stjórn á íslandi, fórust Bríeti svo ' orð: „Eins og bæjarfulltrúum er kunnugt um, eru veittar 450 krónur til þess að kenna piltum sund í sundlauginni. Það er sanngirnis- mál, að stúlkur eigi einnig kost á að læra sund og því fer ég fram á, < að bæjarstjórn samþykki að veita 150 krónur úr bæjarsjóði til þessar- ar kennslu." Tillaga Bríetar fékk misjafnar undirtektir og einn and- mælenda hennar sagði m.a.: „Vel byijar það. Var svo sem við öðru að búast? Ég tel hyggilegast aö stemma á að ósi strax. Hér á ekki að líðast heimtufrekja. Ég er fyrir mína parta alveg mótfallinn bón konunnar og ég vænti þess, að svo séu allir.“ Fór þó svo að lokum að tillaga Bríetar um sundstyrk handa stúlkum líkt og piltum var sam- þykkt. Þegar ég las grein Stefáns Kristj- ánssonar um íþróttir í Dagblað- inu-Vísi fyrir nokkrum dögum þá rifjaðist þessi barátta Bríetar upp fyrir mér. í þessari grein felhr Stef- án þann salómonsdóm að fullsann- að sé nú að konur eigi ekkert er- indi inn á íþróttadeildir þeirra sjónvarpsstöðva sem reknar eru hér á landi. Hann gerir grein fyrir því í skrifum sínum að tvær konur hafl reynt að hasla sér völl á íþróttafréttadeildum sjónvarps- Kjallarinn Sigrún Stefánsdóttir íþróttakennari og doktor i fjölmiölafræði stöðvanna. Frammistaða þeirra hafi verið slík að mál sé að linni. í augum Stefáns eru íþróttafrétt- ir, og væntanlega þá um leið íþrótt- irnar sjálfar, greinilega heimur karla og þangað eiga konur ekki erindi. Ef til vill er Stefáni vor- kunn, því hvað á aumingja maður- inn að halda eftir að hafa drukkið í sig fréttir af íþróttaviðburðum þessa lands af síðum dagblaðanna árum saman. Af þeim mætti ætla aö flestar ef ekki allar konur þessa lands ættu við einhvers konar lík- amlega fötlun að stríöa sem kæmi í veg fyrir aö þær gætu látið að sér kveða á íþróttamótum og að mál- helti einhvers konar kæmi í veg fyrir að þær segðu nokkuö um íþróttir. Fréttaflutningur, hvort sem um er að ræða í sjónvarpi, útvarpi eöa prentmiðli, krefst þjálfunar. Það gildir bæði um karla og konur. Ég hef fylgst með fjölmiðlafólki í mörg ár og fæst af því he? ég séð spretta fullskapað út úr höfði Seifs. íþróttafréttamenn .fylgja sama lögmáli. Mér þótti dómur Stefáns yfir þeim hugdjörfu konum sem leggja inn á þetta „einkasvið okkar strákanna" þvi bæði harður og ósanngjarn. Eina huggunin er sú að Stefán virðist telja að konur í íþróttafréttum séu svo langt á und- an íþróttafréttamönnum af karl- kyni að þær hljóti að fæðast með fullþróaða sjónvarpsframkonu og alhliða reynslu. Óneitanlega væri það tilhlökkunarefni að geta átt von á að sjá Stefán geysa fram á sjónvarpsvöllinn og bjarga þannig íþróttadeild RÚV frá þeim bráða bana sem hann spáir henni á næst- unni með sjónvarpsframkomuna eina að vopni. Flosi Ólafsson skrifaði nýverið um rembu, og þá sérstaklega Osló- rembu. Hann segir orörétt: „Sjald- an hefur íslenska þjóðin verið jafn- undirlögð af rembu. eins og uppá síðkastið. Það hálfa væri nóg.“ Hann talar um karl-rembur og kven-rembur (það eru víst konurn- ar sem fóru til Oslóar). Eftir að hafa lesið grein Stefáns legg ég til að sport-rembum verði bætt á þennan rembings-lista Flosa og að Stefán verði heiðraður sem yfir- sport-remba. „Vel byrjar það. Var svo sem við öðru að búast? Ég tel hyggilegast að stemma á að ósi strax." Þetta voru orð andstæðings Bríetar Bjarnhéðinsdóttur fyrir rúmum áttatíu árum eins og áður segir. Nú þykir það jafnsjálfsagt að stúlk- ur láeri að synda og drengir. Ég vona sannarlega að ekki þurfi átta- tíu ár til þess að sannfæra þessa þjóð, bæöi karla og konur, um að kvenfólk sé jafnhæft til að annast íþróttafréttaflutning og karlar, en óneitanlega setur að manni ugg þegar greinar eins og sú sem Stefán Kristjánsson íþróttafréttamaður skrifaði sjást á prenti. Sigrún Stefánsdóttir. „I augum Stefáns eru íþróttafréttir, og væntanlega þá um leið íþróttirnar sjálf- ar, greinilega heimur karla og þangað eiga konur ekki erindi.“ Orlofshús, hvert og eitt, eru til þess að gera lítil aukning á mann- vist miðað við fasta búsetu tuga starfsfólks Kísiliðju og Kröflu, að frátalinni hinni aldagömlu bænda- byggð. Sömuleiðis eru hótel lítil viðbót hvert og eitt. Sumarbústaðir við Mývatn eru hins vegar gersam- lega óþörf viðbót Við þegar allt of mikla mannvist, og við skulum minnast þess aö margt smátt gerir eitt stórt. Tímamót í ferðamennsku íslendingar eru staddir á tíma- mótum hvað varðar ferðamennsku . í landinu. Mér skilst að flytja þurfi gistingu út úr friðlandi aö Fjalla- baki (Landmannalaugum) og Þing- vallaþjóðgarði. Mér skilst jafnvel að einhverjar áætlanir séu til hvað það varðar. En hvað um Mývatns- sveit? Gildir ekki nákvæmlega hiö sama? Fámenn og raunar minnkandi bændabyggð gæti samræmst markmiðum friðlýsingar en umsvif Kísiliðju og átroðningur ferða- manna, þ.e. meiri mannvist, stofna lifríkinu og markmiðum friðlýsing- ar í umtalsverða hættu. Sumarbústaöir Raflðnaðarsam- bandsins eru aðeins áminning til sveitarstjórnar Skútustaðahrepps og Náttúruverndarráðs að þessir aðilar mega ekki sofa á verðinum og að heildarstefnu vantar! Ingólfur Á. Jóhannesson „Sumarbústaðir við Mývatn eru hins vegar gersamlega óþörf viðbót við þeg- ar allt of mikla mannvist,... “ Sumarbústaðir bakdyramegin Heildarstefnan Vitaskuld eru sumarbústaðir að- eins örlítill angi af stóru máli, þ.e. hvert skal stefnt um framkvæmd friðlýsingarlaga þeirra frá 1974 er taka til Mývatns/Laxársvæðisins. Hið sama má segja um öll mál sem koma upp hér. Þau eru angi af heildarstefnu sem vantar tilfinnan- lega. Sumarbústaðir kalla á aukná mannvist, á slíku er varla vafi. Sumarbústöðum, sem staðsettir eru í sveitinni, fylgir meiri úrgang- ur og meiri umsvif á friðlýstu svæðinu heldur en ef þeir væru staðsettir í nágrannasveitum sem liggja utan hins friðlýsta svæðis. „Sumarbústaðir kalla á aukná mannvist, á slíku er varla vafi,“ segir greinarhöfundur m.a. Eru sumarbústaðir ekki bannaöir í Mývatnssveit? Þarf ekki leyfi til að byggja sumarbústaði og orlofs- hús hvar sem er á landinu? Löngu er kunn sú „bakdyraleið“ að bóndi byggi fyrir skyldulið sitt og er sú leið oft þýðingarmikil af tilfinningaástæðum. Svo virðist sem nú hafl snjallir menn fundið aðra bakdyraleið. Sú leið er að kaupa íbúðir sem til sölu eru af ýmsum ástæðum. Mikið er um slíkt á Akureyri og þegar Landsvirkj- un/Kröfluvirkjun byggði starfs- mannaíbúðir í Mývatnssveit fyrir u.þ.b. tíu árum voru byggðar fleiri íbúðir en þörf reyndist fyrir. Nýlega keypti Raflðnaðarsam- bandið íbúðarhús við Helluhraun, götu í Reykjahlíðarþorpi, og breytti í tvær orlofsíbúðir. Einstaklingar gátu ekki keppt viö stéttarfélág og keypt húsið. Ekkert ólöglegt, allt slétt og fellt, geri ég ráð fyrir, bara ekki í anda þess að hver sem er geti keypt lóð og byggt sumarbú- stað á friðlýstu svæði. Kjallarmn Ingólfur A. Jóhannesson landvörður i Mývatnssvelt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.