Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1988, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1988. Andlát Lilja Steingrímsdóttir frá Hörgs- landskoti, Bugöulæk 11, andaöist í Landakotsspítala 21. ágúst. Páll Vídalín Magnússon bifreiða- stjóri, Skúlagötu 66, andaðist á heim- ili sínu 22. ágúst. Helga Pálsdóttir Geirdal, Laugar- braut 21, Akranesi, andaöist í sjúkra- húsi Akraness þann 22. ágúst. Jarðarfarir Útfor Rúnu Guðmundsdóttur, Fjöln- isvegi 8, Reykjavík, verður gerð frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25. ágúst kl. 13.30. Vilhjálmur Ingvarsson fram- kvæmdastjóri, Sæbraut 11, Seltjarn- arnesi, verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni fóstudaginn 26. ágúst kl. 13.30. Hafliði Jóhannsson húsasmiðameist- ari lést 16. ágúst. Hann fæddist í Reykjavík 29. desember 1906, sonur hjónanna Guöbjargar Gísladóttur og Jóhanns Haíliðasonar. Hafliði fór ungur að starfa með fóður sínum, lærði þjá honum smíðar og útskrif- aðist úr Iðnskólanum í Reykjavík. Hann varð meö árunum virtur verk- taki. Eftirlifandi eiginkona hans er Svana Ingibergsdóttir. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Útfór Haf- liöa verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Námskeið Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands heldur námskeið í skyndihjálp sem hefst miðvikudaginn 24. ágúst og stendur í 5 kvöld sem dreifast á 10 daga. Námskeiðið verður haldið að Öldugötu 4. Öllum 14 ára og eldri er heimil þátttaka. Þeir sem hafa áhuga á að komast á námskeiðið geta skráð sig í síma 28222. Fjöldi þátttak- enda er takmarkaður við 15. Notað verð- ur nýtt námsefni sem RKÍ tók nýlega í notkun og hefur gefið góða raun. Nokkuð er um nýjungar. Lögð verður áhersla á fyrirbyggjandi leiðbeiningar og ráð tU almennings við slys og önnur óhöpp. Á námskeiðinu verður kennt hjartalmoð, fyrsta hjálp við bruna, kah og eitrunum. Einnig verður kennd meðferð helstu beinbrota og stöðvun blæðinga. Enn- fremur verður fjallað um ýmsar ráðstaf- anir til varnar slysum í heimahúsum og margt íleira. Sýndar verða myndir um helstu slys. Talið er æskilegt að taka námskeiðið allt á 2 ára fresti og rifja upp einu sinni á ári. Námskeiðinu lýkur með prófi sem hægt er að fá metið í flestum framhaldsskólum. Fyrirlestrar Fyrirlestur um tungumálakennslu Hér á landi er staddur Dave Allan, for- stöðumaður Beli School of Languages í Norwich á Englandi í boði Félags ensku- kemtara, endurmenntunar HÍ og KHÍ. Hér heldur hann námskeið fýrir ensku- kennara og mun hann einnig halda al- mennan fyrirlestur í Kennaraháskóla ís- lands við Stakkahlið miðvikudaginn 24. ágúst kl. 20.30. Fyrirlesturinn mun m.a. fjalla um eðli tungumálakennslu al- mennt, hlutverk. tungumálsins, stöðu málfræði í kennslunni og hvemig mála- kunnátta er metin og sýnd verða dæmi til skýringar. Dave Allan hefur að baki langa reynslu í menntun tungumála- kennara og hefur starfað viða um lönd. Fyrirlesturinn á erindi við alla tungu- málakennara, burtséð frá þvi hvaöa mál þeir kenna. Nánari upplýsingar gefúr Auður Torfadóttir, lektor við Kennara- háskóla fslands. Fundir Alþjóðahyggja á tímum Leníns og í dag Stuðningsmenn Pathfinder- forlagsins á íslandi efna til fundar í dag, 24. ágúst, kl. 20.30 í MÍR-salnum, Vatnsstíg 10 (gengið inn úr portinu). Kanadamaður- inn John Riddell talar um alþjóðahyggju á tímum Leníns og í dag. John Riddell ritstýrir útgáfu á skjölum og fundargerð*' um tengdum Alþjóðasambandi kommún- ista á tímum Leníns. Þrjár bækur í ritröð- inni eru komnar út. Forlagið Pathfinder gefur bækurnar út. Þær veröa til sölu á fundinum ásamt ýmsum öðrum bókum. Fundurinn er öllum opinn. Þaö sem fram fer verður þýtt. Veitingar verða á boðstól- um. Ráðstefruir Ráðstefna um áhrif erfða og umhverfis á heilsu Dagana 23.-27. ágúst verður haldiö í Odda 7. þing Nord EMS sem er norræn deild í alþjóðlegu félagi, „The Environmental Mutagen Society". Heiti ráöstefnunnar á ensku er „Genotoxic Exposure and Hum- an Health" eða áhrif erfða og umhverfis á heilsu. Ráðstefnan er haldin í samvinnu Kæru vinir, sendi ykkur hér með alúðar þakkir fyrir vinarhug og hamingjuóskir í tilefni af 70 ára afmæli mínu þann 17. ágúst sl. Guð veri með ykkur öllum. Stefán Þ. Gunnlaugsson, Vesturþergi 6, 108 Reykjavík. MðURAimsnlUNN BRU0H0U1 FRÁ FJÖLBRAUTASKÓLANUM í BREIÐHOLTI Laust er starf ritara á skrifstofu Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Upplýsingar veittar á skrifstofu skólans í síma 75600. Skrifstofustjóri. FRÁ FJÖLBRAUTASKÓLANUM í BREIÐHOLTI FJðttŒum Stundakennara vantar strax við Fjölbrautaskólann í Breiðholti í íslensku, líffræði og handmenntum (handavinnukennari eða fatahönnuður). Upplýsingar á skrifstofu skólaps í síma 75600. Skólameistari. Fréttir Útvarpsstjóri um viöbrögðin gagnvart gervihnattasjónvarpi: Aukin áhersla á eigin dagskrárgerð - telur ekki líklegt að íslendingar aðhyllist einangrun „Við höfum fylgst með því sem er að gerast á þessu sviði. Við vitum hvernig aðrar sjónvarpsstöövar, sem hafa veriö í svipaðri aðstöðu og við, hafa brugðist við sókn gervi- hnattasjónvarps. Þessar stöðvar hafa aUar lagt áherslu á aö auka eigin dagskrárgerð. Ég get engan veginn séð að íslendingar eigi að vera utan þess svæðis þar sem að- gangur að sjónvarpi um gervihnött er óhindraður eða á hvern hátt ætti að reisa einhverja verndar- múra í því tiliiti," sagði Markús Öm Antonsson útvarpsstjóri við DV þegar hann var inntur eftir áliti sínu um sókn gervihnattasjón- varps hér á landi og viðbrögð ís- lenska sjónvarpsins við henni. Sagði Markús að í Vestur-Evrópu væri verið að fjalla um leiðir til þess að veita mönnum sem allra greiðastan aðgang að sjónvarpsefni nágrannalanda um gervihnött. Gæti hann ekki séð hvemig við gætum skorist úr leik miðað við nútíma tækni og frétta- og upplýs- ingastreymi í frjálsu þjóðfélagí. Hvað varðar samkeppni sagði Markús að íslendingar veldu fyrst og fremst að fylgjast með hérlendri dagskrárgerð, fréttum og fleira efni á íslensku máli. Aðstæður leyfðu reyndar ekki jafngróskumikla framleiðslu á innlendu efni og í fjöl- mennari nágrannalöndunum þar sem hún væri dýr hérlendis og ekki væri hægt að hækka afnota- gjöld endalaust. „Við sýnum mikið af erlendu efni af sama tagi og sýnt er í gervi- hnattásjónvarpi. Ef við erum að tala um samkeppni við erlenda framhaldsþætti og ýmislegt erlent léttmeti gæti verið um samkeppni að ræða. Hins vegar má þenda á að það sem eftirsóknarverðast þyk- ir við gervihnattastöðvarnar þegar til framtíðarinnar er litið er að þær bjóða upp á ýmislegt sérefni þar sem eru sérrásir með íþróttaefni og listaefni og fleira. Við þurfum ekki að vera óvirkir áhorfendur að þessari þróun held- ur getum við verið þátttakendur pg komið á framfæri efni héðan frá íslandi sem ekki er lítils virði fyrir okkur. Þannig komum við til með að eiga aðild að íþróttarásinni Eu- rosport sem yrði rekin í samein- ingu af Sky Channel og sjónvarps- stöðvum í Evrópusambandi sjón- varpsstöðva. Einnig hefur verið rætt meðal EBU stöðvanna að koma upp Evrópusjónvarpsfréttar- ás svipaðri og bandarísku stöðinni CNN. Þá legðu aðildarstöðvar EBU til efni í sameiginlegt foröabúr sem gengið yrði í.“ -hlh Kvikmyiidir_____________________ Regnboginn: í skugga páfúglsins Shadows of the Peacock Lelkstjóri: Phillip Noyce Aóalhlutverk: John Lone, Wendy Hughs, Gilllan Jones og Steven Jacobs Hástéttarkona á miöjum aldri í Sydney missir fóöur sinn. Um svip- að leyti kemst hún að raun um að eiginmaður hennar heldur fram- hjá. Hún fyllist örvinglan og fer með vinkonu sinni í frí til Thai- lands. Þar tekur við allsherjar naflaskoðun. Hún hefur eytt öllu sínu lííl í að ala upp krakkana og elda ofan í karlinn. Að hann skuli launa henni með framhjáhaldi fyll- ir hana biturleika og efasemdum um eigið ágæti. Henni flnnst hún hafa brugðist. 1 litið þorp við ströndina hafa ýmsir flúiö hinn grámóskulega hversdagsleik tilverunnar og skap- aö sér gerviveröld. Hún gengur beint inn í þennan heim og heill- ast. Hún -neitar að snúa aftur til eiginmanns og barna og veröur ástfangin af balískum dansara. Smám saman rennur upp fyrir henni að þetta er gerviveröld, að undir niðri ólgar örvinglan og ring- ulreið. Hún slítur samvistum við dansarann og snýr aftur til síns heima. Ævintýrið var aðeins hiið- arspor í sumarleyfi en á eftir að næra drauma hennar um aldur og ævi. Falleg myndataka og ipjög sterk- ur leikur í aðalhlutverkum lyftir þessari mynd langt upp fyrir með- allag. Hún er hæglát og gerö af natni. Handrit er einnig nokkuð gott en þó er eins og eitthvað fari úrskeiðis í lokin. Ákvörðun konunnar ber fullbrátt að og er heimkoman í hæsta máta einkennileg. John Lone leikur dansarann. Hann er hreint frábær í þessu hlut- verki og er víst að þessi leikari á eftir að sjást í mörgum kvikmynd- um í framtíðinni. í hlutverki hinnar vonsviknu eig- inkonu er. ástralska leikkonan Wendy Hughes. Persónan er full doða og því daufleg. Wendy fer vel með hlutverkiö en þó er eins og neistann vanti á köflum. -PLP við Krabbameinsfélag íslands og Háskól- ann. Þátttakendur verða um 70, þar af 50 erlendir, frá Norðurlöndunum, Bret- landi og Bandaríkjunum. Fræðsluráðstefna norrænna bankamanna í Reykjavík Fimmta fræðsluráðstefna norræna bankamanna verður haldin á Hótel Sögu í Reykjavík dagana 24.-26. ágúst. Norr- æna bankamannasambandið, NBU, skipuleggur ráðstefnuna ásamt Sam- bandi íslenskra bankamanna. 120 manns frá ölium Norðurlöndunum sækja ráð- stefnuna: fulltrúar starfsmanna, banka- stjórna og fræðslustofnanna í bankakerf- inu. Þróun bankaþjónustu, sem verður sífellt sérhæfðari, krefst aukinnar menntunnar bankastarfsmanna. Meg- ináhersla verður lögð á þetta umræðu- efni á ráðstefnunni. Einnig verður fjallað um Norðurlönd og Evrópu og flytur Ank- er Jörgensen, fyrrverandi forsætisráö- herra Danmerkur, erindi um efnið. NBU eru heildarsamtök bankamanna á Norð- urlöndum. Félagsmenn eru samtals rúm- lega 166 þúsund. Tórúeikar HörðurTorfa á tónleikaferð Hörður Torfason trúbador er á tónleika- ferð um Austfirði og Noröausturland. Tónleikar verða á eftirtöldum stöðum: 23. ágúst á Breiðdalsvík, 24. ágúst á Borg- arfirði eystri, 25. ágúst á Vopnafirði, 26. ágúst á Bakkafiröi, 27. ágúst á Þórshöfn, 28. ágúst á Raufarhöfn og 29. ágúst á Kópaskeri. Tónleikamir heflast allir kl. 21. Hörður verður með sinn árlega kon- sert í Reykjavík 4. september í Lækjar- tungli og verður sá konsert væntanlega tekinn upp og gefinn út á plötu. Tapað fundið Lyklaveski fannst Brúnt lyklaveski fannst á föstudaginn á homi Sunnuvegar og Holtavegar. Upp- lýsingar í síma 36356. Læða tapaðist Svört læða tapaðist frá Garösenda 7 á laugardaginn. Ef einhver hefur orðið var við hana eða veit hvar hún er niðurkom- in þá vinsamlegast hringið í síma 36582. Tilkynningar Hallgrímskirkja - starf aldraðra Nk. fimmtudag, 25. ágúst, er fyrirhuguð ferð í Galtalækjarskóg. Á heimleið verð- ur komiö við í Skarði í Landsveit og kirHj- an skoðuð. Einnig verða skoöaðir hellar á Hellum. Lagt verður af stað frá kirkj- unni kl. 10 f.h. og komið heim um kl. 19. Nánari upplýsingar gefur Dómhildur Jónsdóttir í síma 39965. Kársnesprestakall Fyrirhuguð er dagsferð á vegum Kárs- nessóknar sunnudaginn 4. september nk. kl. 9.30. Farið verður um Borgarflörð og Suður-Mýrar. Þátttaka tilkynnist í þess- ari viku milli kl. 17 og 20 þjá Stefaníu, s. 22131, Margréti, s. 41949, eða í viðtals- tíma sóknarprests. Vinningar í Fjarkanum Fjarkinn, hinn nýi skafhappdrættismiði Marks & máts, hefur hlotið skínandi góö- ar viðtökur landsmanna frá því aö hann kom á markaðinn fyrr í sumar. Nýlega hófst sala á þriðja flokki og voru í því . tilefni afhentir tveir síðustu bílarnir af flórum úr þeim fyrsta. Ford Escort bíl- arnir eru stærstu vinningarnir í Fjarkan- um og eru þeir flórir í hverjum flokki miða, en Fjarkinn býður upp á mestar vinningslíkúr allra skafhappdrættismiða eöa hlutfallið 1:4. Með því að safna saman nöfnum sex mismunandi stórmeistara í skák eða sjö mismunandi nöfnum lands- liösmanna í handknattleik eiga kaupend- ur í skafmiðahappdrætti Fjarkans von á óvæntum glaðningi. Þorgils Óttar Mat- hiesen, fyrirhði landsliðsins í hanáknatt- leik, Jóhann Hjartarson stórmeistari og Sigurður Skagflörð, nýskipaður sölu- stjóri Flugleiða, afhentu bónus-vinninga, Saga class flugmiða til og frá einhverjum áfangastað Flugleiða að eigin vali. Alls hafa sex Saga class miðar verið afhentir en það er fyrst núna sem nöfn hinna „erf- iðu“ eru gerð opinber.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.