Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988.
13
Uppáhaldsmatur á sunnudegi
DV-mynd GVA
Rjómaskrúfur
- að hætti Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur
Þetta er ekki einhver
naglakássa eins og nafn-
iö gefur til kynna heldur
pastaréttur, sérlega
mjúkur undir tönn.
Matreiðslutími er um 20
mínútur sem getur
komið sér vel fyrir kon-
ur á hlaupum. Upp-
skriftin er miðuð við
fjóra í mat.
500 g spaghettískrúfur,
helst úrfersku
eggjapasta
300-400 g ferskir sveppir
1 bréf af skinku
1 peli rjómi
steinselja
pipar
salt
sykur
sérrí - meðalsætt, ef vill
smjör
ólífuolía
parmesanostur
Sveppirnir eru skornir í sneiðar og látnir krauma
í smjöri á pönnu við meðalhita. Svolitlum sykri
stráð út á og éf sérrí er til í eldhússkápnum er
gott að bæta eins og hálfum desílítra út í réttinn
áður en sveppirnir eru teknir af pönnunni. Pasta-
skrúfurnar eru soðnar í söltu vatni, vatnið sigtað
frá og skrúfurnar settar aftur í pottinn. Smjörklípu
og svo sem tveim matskeiðum af ólífuolíu hrært
saman við, einnig salti og pipar eftir smekk þótt
dágóður skammtur af pipar skemmi ekki.
Potturinn er síðan settur aftur á helluna, rjóman-
um bætt út í og soðið við vægan hita þar til rjóm-
inn þykknar. Gott er að hræra í annað slagið á
meðan. Þegar rjóminn hefur þykknað er sveppun-
um (ásamt vökvanum af pönnunni) og niðurskor-
inni skinkunni bætt út í, svo og steinseljunni - sem
auðvitað er best fersk en dugar vel þurrkuð - og
öllu hrært saman.
Þá er rétturinn tilbúinn og ekkert eftir nema
skella honum í skál og bera á borð ásamt rifnum
parmesan-osti sém útáláti. Brauð og smjör má
gjarna fylgja sem meðlæti en er þó engan veginn
nauðsynlegt. Til hátíðabrigða fer rauðvín einkar
vel með þessum mat og ef menn vilja vera léttir á
sér eftir máltíðina er gott að ljúka henni með fersk-
um ávöxtum.
Akureyri
Blaðburðarfólk
óskast í Innbæinn.
Uppl. á afgreiðslu DV í síma 96-25013.
n rri
EINSTAKUNGSRÚM
90-100-120 (1 '4 BREIDD)
Teg. 508. Litir hvítt - svart, br. 90-100-120.
Verð frá 17.400 stgr. m/dýnu.
Teg. 596. Litir hvítt - svart, br. 9D-120.
Verð frá 17.100 stgr. m/dýnu.
Teg. 674. Litir hvítt - svart - króm, br. 90-100-120.
Verð frá 17.000 stgr. m/dýnu.
Hagstæð greiðslukjör.
Einnig mikið úrval af hjónarúmum.
Opið laugardag til kl. 16.
Opið sunnudag kl. 14-16.
REYKJ AVÍKURVEGI66,220 H AFN ARFIRÐI, SÍMI54100.