Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 14
14 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. Frjálst.óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON, Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF, - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Píramíðaþjóðin Ef byggð væri í Dritvík á Snæfellsnesi á okkar tím- um, væri mikið lagt í sölurnar til að hindra brottflutn- ing og búseturöskun. Ríkishöfn hefði verið gerð þar fyrir ærið-fé og frystihúsið væri inni á gafli hjá atvinnu- tryggingarsjóði hinnar nýju Stefaníu landsins. En Dritvík lagðist í eyði fyrir okkar tíma eins og Aðalvík og margar aðrar verstöðvar, sem þekktar eru í þjóðarsögunni. Það er tiltölulega nýtt fyrirbæri, aðeins fárra áratuga gamalt, að almannavilji reyni að frysta búsetu og atvinnu og hamla gegn hvers konar röskun. Efnahagslegar framfarir byggjast á röskun. Menn kasta fyrir róða gamalli búsetu, gömlum fyrirtækjum 9g gamalli hefð. Forsenda hagþróunar þessarar aldar á íslandi var, að þjóðin flúði úr sveit út á mölina og eink- um til Reykjavíkur. Ríkidæmið dafnaði í þéttbýlinu. Xerox heitir frægt fyrirtæki í útlöndum. Upp úr engu reisti það 50.000 milljarða veltu á sjöunda áratug þessar- ar aldar. Það hafði forystu í framleiðslu ljósritunarvéla og náði 95% af heimsmarkaðinum. Erlendis varð nafn fyrirtækisins víða samnefnari allra ljósritunarvéla. Hluta af hagnaðinum notaði Xerox til að hanna borð- tölvur, sem þá voru ekki til. Þegar aðeins var eftir að leggja hálfan milljarð í dæmið til að ljúka því og hefja borðtölvubyltingu, fengu ráðamenn fyrirtækisins hland fyrir hjartað. Þeir óttuðust óvissu, forðuðust röskun. Afleiðingin var, að fyrirtæki á borð við IBM og Apple tóku upp merkið og eignuðust markað, sem var hundr- að sinnum stærri en markaðurinn fyrir ljósritunarvélar hafði verið. Þannig missti Xerox af lestinni á níunda áratugnum eftir gífurlega velgengni á hinum sjöunda. Þetta útlenda dæmi sýnir, að heimur velgengninnar stendur ekki í stað. Lestirnar eru stöðugt að renna hjá brautarstöðinni. Ef menn hoppa ekki upp í þær, þegar andartakið er komið, missa menn af þeim og sitja eftir með sárt ennið, hver í sinni Dritvík eða Aðalvík. Xerox réði sjálft örlögum sínum, því að það er rekið í opnu þjóðfélagi. Við erum ekki svo heppnir hér í hálf- lokuðu íslandi. Árum saman þorðu menn til dæmis ekki að hella sér út í fiskirækt af ótta við ofsóknir af hálfu hins opinbera embættis veiðimálastjóra. Saga Skúla í Laxalóni er mörgum kunn af blaðafrétt- um fyrri áratuga, en er nú komin út í bókarformi. Hún er öðrum þræði þungur áfellisdómur yfir þjóð, er reisir yfir sig lokað miðstýringarkerfi, sem berst með oddi og egg gegn sumum þeim, er leita á mið óvissunnar. Nú er fiskirækt loksins orðin viðurkennd atvinnu- grein. En þá erum við líka orðin að minnsta kosti ára- tug á eftir Norðmönnum. Þeir hafa byggt upp sína fiski- rækt á tímum hagstæðs verðlags og greitt niður stöðvar- nar að hluta. Okkar ævintýri er hins vegar allt í skuld. Við látum ríkisvaldið sóa fjármunum okkar í vaxandi mæh í að vernda fortíðina gegn framtíðinni. Við viljum, að fólkið búi, þar sem það er. Við viljum, að fyrirtækin séu hin sömu og áður, þótt dauðvona séu, og höldum í þeim lífi. Við viljum, að togarar séu ekki fluttir. Þjóð, sem er orðin svona upptekin af frystingu núver- andi ástands, getur ekki mætt breytingum framtíðarinn- ar. Hún staðnar og verður sífeht fátækari, af því að umheimurinn stendur ekki í stað. Hún leggur á sig sí- feht þyngri byrðar við að tryggja eilífð fortíðarinnar. Hér er píramíðaþjóð nútímans. Við stritumst við að hlaða undir kýr og kindur og vernda jafnvægi í byggð landsins. Við skattleggjum ófædd börn okkar í því skyni. Jónas Kristjánsson Ósigur fyrir dómi knýr Thatcher til að setja MI5 lög Fyrir mánuöi beiö Margaret Thatcher sárasta ósigurinn á stjómmálaferli sínum. Lagalávarö- irnir, æösti dómstóll Bretlands, ónýttu viöleitni hennar til að hindra birtingu uppljóstrana gam- als njósnara úr bresku leyniþjón- ustunni MI5. í þessu skyni hafði járnfrúin látið reka mál i þrem löndum með þriggja milljóna sterl- ingspunda kostnaöi og fengið lög- bönn lögö á þrjú virtustu blöð Bret- lands, Guardian, Observer og Sunday Times. Allt kom fyrir ekki. Lagalávarð- arnir úrskurðuöu að málfrelsi og prentfrelsi fyrirmunuðu ríkis- stjórninni aö reyna að sjá svo um að Bretar einir jarðarbúa fengju enga vitneskju um það sem Peter Wright hefur til mála aö leggja í endurminningabók sinni Spycatc- her (Njósnaveiðari). En þar er flett ofan af MI5 og atferli leyniþjón- ustumanna svo um munar. Ófarirnar fyrir dómstólunum eru vafalaust tilefnið til þess eina atrið- is sem kom á óvart í hásætisræð- unni sem Thatcher lagði Ehsabetu drottningu í munn við þingsetn- ingu í London í þessari viku. Þar skýrði frá því að ríkisstjómin myndi bera fram frumvarp um aö koma starfsemi MI5 á lagagrund- völl. Mörgum mun finnast að tími sé til kominn. Leyniþjónustan sú arna hefur þegar starfað í þrjá aldar- fjórðunga en aðeins á grundvelli leynilegra úrskurða og tilskipana. við setningu breska þingsins á þriðjudag. Peter Wright. Fyrst í stað átti sjálf tilvera hennar að vera ríkisleyndarmál og til skamms tíma hefur verið bannað að skýra frá því í Bretlandi hver er settur yfir MI5 á hveijum tíma. Árin fyrir heimsstyijöldina fyrri ríkti meðal valdhafa í Bretlandi mikill ótti við erlendar njósnir í landinu og jafnvel undirróður af völdum íjandsamlegra velda. Það varð til þess að MI5 var komið á stofn til að gæta innra öryggis, hafa hendur í hári erlendra njósnara og innlendra undirróðursmanna sem gerðust handbendi erlendra hags- muna. Jafnframt var sett á laggir önnur hhðstæð stofnun, M16, til að reka njósnir og undirróður erlend- is í þágu breskra hagsmuna. Leyniþjónusturnar bresku urðu frægar að endemum um og eftir 1950 þegar uppvíst varð að innan þeirra höfðu lengi starfað og kom- ist til metorða menn sem í raun og veru gengu erinda leyniþjónustu Sovétríkjanna. Frægastur þeirra er Kim Philby sem andaðist í ár í Moskvu og var jarðsettur þar með Erlendtídindi Magnús Torfi Ólafsson hernaöarlegri viðhöfn. Hann var um skeið settur yfir gagnnjósnir Breta gegn njósnastarfsemi Sovét- manna. Bók Peters Wright er öðru frem- ur vitnisburður um það hvernig stjórnleysi og fálm gripu um sig innan MI5 í kjölfar njósnahneyksl- anna. Menn voru valdir til starfa eftir pólitískum mæhkvarða frekar en hæfileikum svo MI5 fyhtist brátt af hægri öfgamönnum. Þeir sáu njósnara og svikara í hverju skoti og tortryggðu hver annan. Peter Wright var upphaflega tæknimaður, ráðinn til MI5 frá flotastjórninni, en áður en lauk haíði hann komið því til leiöar að margendurtekin rannsókn fór fram á því hvort hans eigin yfir- maður, sir Roger Hollis, væri ekki í raun og veru sovéskur útsendari. Rannsóknir að sir Rogers lífs og liönum úrskurðuöu grunsemdir Wrights tilhæfulausar en sjálfur trúir hann þeim enn statt og stöð- ugt. Wright viðrar sinn málstað í að- förinni að þessum látna yfirmanni MI5 í Njósnaveiðara en þar að auki ritar hann bókina til að ná sér niðri á stofnuninni sjálfri. Við lausn frá störfum voru Wright úrskurðuð lægstu eftirlaun sem til greina komu, til að mynda var starfsaldur hans hjá flotamálaráðuneytinu einskis metinn. Wright settist að á Tasmaníu, eyju sunnan við Ástrahu, hóf hrossabúskap og tók að semja bók til að rétta hag sinn. Frú Thatcher sá fyrir aö þaö hefur tekist betur en nokkurn gat órað fyrir. Athyglin sem málastapp breska forsætisráð- herrans vakti hefur gert Njósna- veiðara að metsölubók og Peter Wright aö milljónamæringi. Það efni bókarinnar sem mesta athygli vakti í Bretlandi, og Thatc- her barðist á þriöja ár við að hindra bresk blöð í að birta, er frásögn Wrights af því hvernig hópur manna innan bresku leyniþjón- ustunnar tók sig saman um að grafa undan forsætisráðherranum Harold Wilson og stjórn hans. Áriö 1963 lést foringi Verka- mannaflokksins, Hugh Gaitskell, af sjaldgæfum hitabeltissjúkdómi. Me'ð hjálp James Jesus Angleton, sem þá var yfir gagnnjósnadeild bandarísku leyniþjónustunnar CIA, sannfærði Wright sig um aö sovéska leyniþjónustan hefði ráðið GaitskeU bana til að koma til for- ustu í Verkamannaflokknum og i forsæti í bresku stjórninni erind- reka sínum, Harold Wilson. Herferö hóps Wrights innan MI5 gegn Wilson náði hámarki tímabil- ið um miöjan áttunda tug aldarinn- ar þegar hann var í forsæti fyrir minnihlutastjórn. Uppljóstrunum, einatt lagfærðum eða tilbúnum, var lekið í samvinnufúsa blaða- menn. Nánum samstarfsmönnum forsætisráðherrans var veitt eftir- för dag og nótt. í annarri heimild, bókinni The Second Oldest Profession (Næst- elsta atvinnugreinin) eftir Phihp Knightly, segir af því að Wilson hafði veður af því sem á gekk og sendi sameiginlegan vin beggja með bréf til bandaríska öldunga- ■deUdarmannsins Hubert Hump- hrey með beiðni um að hann grennslaðist eftir hvort CLA væri að njósna um sig. George Bush, þá yflrmaður CIA, svaraði neitandi, og var á leið til London tfl að ræða málið augliti til auglitis þegar Wil- son baðst lausnar fyrir stjórn sína. Wright grobbar í sinni bók af því hve hann og samstarfsmenn hans í MI5 fóru létt með að troða lögin undir fótum í starfi sínu. „í fimm ár brutumst við inn og hleruðum um London þvera og endilanga í ríkisins nafni meðan yfirlætislegu embættismennirnir í Whitehall með harðkúluhattana þóttust líta undan,“ segir hann. Í hverri póstmiðstöð var leyni- þjónustumaður aö opna og hnýsast í allan póst til ákveðinna einstakl- inga. Símar voru hleraðir og hler- unartækjum komið fyrir, brotist inn í íbúðir og skrifstofur og skjöl hirt. Af Bretum urðu einkum fyrir njósnum frammámenn í stjórn- málahópum til vinstri og trúnaðar- menn verkalýðsfélaga. Sérstaklega var njósnamættinum beint gegn verkalýðsfélögunum þegar verkföll voru á döfinni eða stóðu yfir. Wright segir sína menn hafa komið fyrir hlerunartækjum í sendiráðum Frakklands, Egypta- lands, Indónesíu og Tékkóslóvakíu í London og sovésku ræðismanns- skrifstofunni. Sérstaklega umfangsmiklu hler- unarkerfi var komið fyrir í Lan- caster House þar sem fram fóru allar helstu viðræöur um sjálf- stæðistöku breskra nýlendna. Bresku samningamennirnir fylgd- ust þannig jafnóðum með hvað við- semjendur þeirra ráðslöguðu í sinn hóp. Eftir þessar uppljóstranir er von aö Thatcher og Douglas Hurd, inn- anríkisráöherra hennar, telji þörf á að veita MI5 loksins lagagrund- völl og skapa farveg fyrir kvartanir einstaklinga yfir afskiptum leyni- þjónustunnar. En jafnframt er haldið áfram að reyna að bæla niður vitneskju. Á miðvikudag var að ósk bresku rík- isstjórnarinnar lagt lögbann við dreifingu á nýjasta hefti banda- ríska tímaritsins Harpers og birt- ingu í breskum ritum á grein í því eftir breskan leyniþjónustumann um starfsemi hans í löndum Aust- ur-Evrópu upp úr miðri öldinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.