Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Síða 24
24 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. Popp Jólaútgáfa Steina hf.: Fortíðarfíkn og framsýni Sykurmolarnir. Sykurmolar: Heimsyfirráð eða... Hljómplötuútgáfan Steinar er lík- lega sú afkastamesta á landinu og sem dæmi má nefna aö fyrir síðustu jól gaf fyrirtækið út hvorki fleiri né færri en 13 titla. Forráðamenn Steina tóku hins vegar þá ákvörðun í upp- hafi árs að fara hægar í sakimar fyr- ir þessi jól, vera með færri plötur og veita hverri þeirra meiri tíma og at- hygli. Að jólaútgáfunni hefur verið unnið mjög markvisst allt þetta ár og náin samvinna verið með fyrir- tækinu og tónlistarmönnunum að sögn Jónatans Garðarssonar. Út- gáfan nú samanstendur af 6 plötum sem tínast ein af annarri á markað þessa dagana, nostalgíuverk sem nýrækt. Bítlavinir Út er komin 12 laga plata Bítlavina- félagsins þar sem nokkur af þekkt- ustu lögum 7. áratugarins eru gædd nýju lífi. Hugmynd að plötunni kviknaði í kollum bítlavina fyrir fáum misserum og síöastliöið vor var gripurinn fullkomnaður. Til að halda plötunni að þeim tíöar- anda sem hún á að endurspegla, voru upphaflegar útsetningar látnar halda sér og platan að mestu leyti tekin upp „læf‘. Andagift augnabliksins höfð í heiðri og öllu nostri sleppt. Eyjólfur Kristjánsson Eyjólfur fer úr bítla-búningnum á plötunni Dagar sem inniheldur fjöl- breytta popptónlist. Dagar hafa verið í smíðum í ár undir öruggri verk- stjóm Eyjólfs og Eyþórs Gunnars- sonar sem var upptökustjóri. Eyjólfur samdi öll lögin nema eitt sem er erlent, en Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson sá um alla texta utan eins sem Sverrir Stormsker samdi. Helgairpopp Snorri Már Skúlason Valgeir Valgeir hinn kímileiti Guðjónsson kemur við sögu á tveimur plötum fyrir þessi jól. Önnur er fyrsta sóló- plata kappans, Góðir íslendingar, þar sem Björgvin Gíslason, Ásgeir Óskarsson og Mi^e Sheppard leggja gjörva hönd á plóg auk Valgeirs. Hin ber heitið Sannar sögur og hefur að geyma lög Valgeirs sem samin voru fyrir leikhúsverkið Síldin kemur sem var á fjölum Leikfélags Reykja- víkur sl. vetur. Sú plata var fullídár- uð í maí en lögin voru öll útsett upp á nýtt frá því sem þau hljómuðu í leikritinu. Valgeir syngur sjálfur fjögur lög en leikarar leikfélagsins sjá um söng í öðrum lögum plötunn- Frostlög Ungir tónlistarmenn, misjafnlega reyndir, fá tækifæri á safnplötunni Frostlög, sem inniheldur 12 lög 8 ólíkra hljómsveita. Centaur, Sú Ellen og Greifamir eru nöfn sem óþarft er að kynna. Það sama má segja um Sáhna hans Jóns míns nema hvað hún kemur fram í nýrri mynd á þess- ari plötu. Af upphaflegri liðskipan eru aðeins Stefán HUmarsson og Guðmundur Jónsson eftir en í hópinn hafa bæst Magnús Stefánsson, fyrrum trymbill Bjartmar Guðlaugsson. Utangarðsmanna, og Birgir Braga- son á bassa. Af nýUðunum skal fyrsta telja sig- ursveit síðustu músíktilrauna, hljómsveitina Jó Jó frá Skagaströnd, og Herramenn sem urðu í öðm sæti í sömu keppni. Ný Dönsk er hressUeg og leggur sitt af mörkum og það sama má segja um Todmobile, forvitnilega hljómsveit skipaða þremur fyrrver- andi meðhmum Pax Vobis auk Andreu Gylfadóttur sem sló í gegn með Grafík. Á frívaktinni Kallast plata sem gerð er í tilefni 50 ára afmælis Sjómannadagsráðs og það er afmælisbarnið sjálft sem átti hugmyndina og sá um nauðsynlegan undirbúning verksins. Gunnar Þórð- arson á veg og vanda af útsetningum en þau 9 sígUdu sjómannalög sem á plötunni eru, eru flutt af nokkmm þekktustu poppurum landsins. Steinar sér um útgáfu verksins. Auk þessa sjá Steinar um dreifingu á plötum Bjartmars Guölaugssonar, Sverris Stormskers, Magnúsar Ól- afssonar og um dreifíngu á tvöfóldu tónleikaalbúmi Harðar Torfasonar. Umsjón: Snorri Már Skúlason Hinn 13. nóvember sl. hófst síðasta hljómleikalota Sykurmolanna á þessu ári og spannar hún 4 vikur, 7 Evrópulönd og 20 borgir. Þegar töm- inni lýkur með tónleikum í London 14. desember, hafa Molarnir túrað í alls 182 daga á árinu eða nákvæmlega í hálft ár. Sykurmolarnir leggja sitt af mörk- um í að útbreiða fagnaðarerindi ís- lenskra rokksveita því á tónleikum þeirra í Þýskalandi sá djöflabandið HAM um að koma áheyrendum í uppnám fyrir átökin við Molana. Langi Seli og Skuggarnir áttu að hafa sama starfa í Frakklandi og á Spáni en þeir forfolluðust af óviðráðanleg- um orsökum. í Hollandi mætir efni- legasta hljómsveit landsins, Risaeðl- an, svo Sykurmolunum og fylgir þeim til loka ferðarinnar. Nýtt ár - ný plata Molarnir ná rétt að pústa yfir há- tíðamar, en strax eftir áramót hefj- ast upptökur nýrrar LP plötu sem líklega kemur á markað að vori eða hausti komanda. Hljómsveitin verð- ur þó að gera hlé á upptökum um miðjan janúar, því samningar hafa tekist um að Molarnir ljúki 20 daga friðar-festivali i Austur-Berlín þar sem mýgrútur austur-evrópskra hljómsveita stígur á svið en aðeins ein úr vestri, Sykurmolarnir. Á faraldsfæti í febrúar halda Sykurmolamir í sína þriðju ferð vestur um haf og í þetta skipti verður heijað á 13 stór- borgir Bandaríkjanna. Marsmánuði eyðir hljómsveitin að öllum líkind- um í A-Evrópu, en svo gæti þó farið að Molamir þyrftu að fara enn aust- ar eða alla leið til Japans, Nýja Sjá- lands og Ástralíu, en mikill áhugi er að kvikna á hljómsveitinni í þessum löndum. Life is too good var til .að mynda gefín út í Ástralíu í síðasta mánuði og hefur þegar selst í 15 þús- und eintökum sem þykir feykigott. Smekkleysa Á skrifstofu Smekkleysu, útgáfu- fyrirtækis Sykurmolanna, ríkir stó- isk ró þó jólavertíðin sé á næstu grös- um. Óvíst er að nokkur hljómplata komi út undir merki fyrirtækisins fyrir jól, en útgáfan verður þeim mun líflegri í upphafi nýs árs. Aðeins ein plötuútgáfa er þó ákveð- in, 6 laga plata með Langa Sela og Skuggunum, þar sem sungið verður á engilsaxnesku enda stólað á útlend- an markað. Bókaútgáfa Smekkleysu er merkileg en hún samanstendur af þremur verkum. Kráarljóðin er ljóðabók þar sem 9 kraftmikil skáld leggja í púkk, árangurinn er ... Einar Melax er höfundur bókar sem inni- heldur ljóð og smásögur, hún verður bundin inn í bhkk og myndskreyt- ingar eru tréristur. Þriðja og stærsta verkið er skáldsagan Byggingin eftir Jóhamar. Þar er á ferð vísindaskáld- saga, ástarsaga, þjáningarsaga, ham- ingjusaga, minningabók, dagbók, klámsaga og prósaljóð. Skáldsaga með söguþræði, bæði eðlilegum og skrykkjóttum, en yfírhöfuð rökrétt- um. Þetta er pönk-nýsúrrealismi og blákalt raunsæi, eins og þeir Smekk- leysumenn lýsa verkinu. ar. Eyjólfur Krístjánsson. Frá ryksugurokki að sunnudagsrúnti Peir eru léttir á laugardögum, skemmtilegir á sunnudögum og þykir fátt eftirsóknaruerðara en að skemmta öðrum. Ykkar menn á Stjörnunni um helgar eru Jón Axel og Gulli Helga. Tónlist, skoþ og fréttir hafa tekið völdin á Stjörnunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.