Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Side 25
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988.
25
pv______________2___________Nýjar plötur
Bítlavinafélagið - 12 íslensk bítlalög:
Félagið býr til fomminjar
, Tvenns konar sjónarmið hef ég
heyrt vegna útgáfu Bítlavinafélags-
ins á tólf þekktum íslenskum „bítla-
lögum“. Annars vegar vanþóknun:
gömlu, góðu lögin á að láta í friði og
leyfa fólki að minnast þeirra eins og
þau voru. Hins vegar ánægju: nú eru
aftur farin að hljóma löngu gleymd
dægurlög og með nútímalegum
hljómi að auki. Ég hallast að síöar-
nefnda sjónarmiðinu.
Ég er líka sammála Bítlavinafélag-
inu í því að hafa leyft gömlu útsetn-
ingunum að halda sér að miklu leyti.
Það er svipaö með gömlu bítlalögin
og „fornminjamar" sem hafa verið
reistar víða um land á undanförnum
áram. Það er óþarfi að tjasla upp á
gamla burðarbita og þil ef byggingar-
lagið er látið halda sér eins og upp-
haflega.
Um lagavalið þarf ekki að hafa
mörg orð. Rúnar heitinn Gunnars-
son má heita í forgrunni. Gott eitt
er um það að segja. Eg sakna kannski
eins lags frá Ingimar Eydal, til dæm-
is Vors í Vaglaskógi. Mörg önnur
Hljómalög hefðu komið til greina.
Efniviðurinn er reyndar svo mikill
að Bítlavinafélagið gæti leikið sér að
því að taka saman eina til tvær plöt-
ur til viðbótar með góðu móti.
Og þá er það bara ókosturinn.
Söngurinn. Það verður að játast að
þótt Bítlavinirnir séu ágætis raddar-
ar er forsöngur ekki þeirra sterka
hlið, nema Eyjólfs Kristjánssonar að
sjálfsögðu. Hins vegar syngja þeir nú
allir að þessu sinni. Þrír þeirra hefðu
betur látiö það ógert. Jón Ólafsson
sleppur þokkalega frá sínu því að
hann reynir elýd við annað en það
sem hann veit að hæfir rödd hans.
Söngur Eyjólfs er þó ekkert til að
hrópa húrra fyrir að þessu sinni. Þó
stendur hann sig ágætlega í Vetrar-
nótt og Það er svo undarlegt með
unga menn.
Skýringin á því hvers vegna söng-
urinn er ekki nema í slöku meðallagi
og tæplega það á nýjustu Bítlavinafé-
lagsplötunni ku vera sú að hún hafi
átt að hljóma jafnhrá og dægurlaga-
plötur sjöunda áratugarins. Undir-
leikurinn er hins vegar prýðilegur
og ekkert hrátt við hann. Og í gamla
daga urðu lög tæpast vinsæl hér frek-
ar en nú ef þau voru viðvaningslega
sungin. Því held ég að Bítlavinirnir
hafi tekið alvarlega skakkan pól í
hæðina þegar þeir ákváðu að syngja
allir aðalrödd á plötunni því að plat-
an á eftir að verða til um ókomin ár
og ekki er víst að menn muni það
þegar fram líða stundir að þaö átti
bara að vera grín að bassaleikarinn,
trommarinn og gitarleikarinn sungu
sitt lagiö hver.
-ÁT-
Proclaimers - Sunshine on Leith:
Frábært skoskt sveitapopp
Á síðari árum hefur það orðið æ
algengara að ungir tónlistarmenn
sæki aftur til fortíðar í tónlistarsköp-
un sinni. Má þar nefna endurkomu
soul-poppsins í Bretlandi í upphafi
þessa áratugar og bandarísku ný-
bylgjuna á undanfornum árum sem
sækir áhrif sín mjög til bandarískrar
sveitatónlistar.
í gegnum tíðina hafa margir
breskir tónlistarmenn líka sótt áhrif
til sinnar fortíðar, breskrar þjóðlaga-
tónlistar, en minna hefur borið á
þessum mönnum síðustu ár en gerði
hér á árum áður.
Þessi stefna er þó fjarri því aö vera
útdauð eins og glögglega má heyra á
plötu þeirra skosku Reid tvíbura-
bræðra sem mynda dúettinn Proc-
laimers.
Þeim tekst á einkar skemmtilegan
og áheyrilegan hátt að blanda saman
nútímapopptónlist, án hljóðgervla
vel að merkja, og skoskri sveitatón-
hst. í sumum lögum má líka heyra
sterk áhrif frá hefðbundinni banda-
rískri sveitatónlist og undirstrika
þau hversu stutt er í raun og veru
milli breskrar og bandarískrar
sveitatónlistar. Skyldleikinn er auð-
vitaö mikill þar sem stór hluti banda-
rísku þjóðarinnar er uppranninn á
Bretlandseyjum.
Sem fyrr sagði hefur þeim bræðr-
um tekist einstaklega vel upp í þess-
ari blöndu sinni og hér má segja að
hvert lagið sé öðru betra. Margir
kannast eflaust við eitt af lögum plöt-
unnar, lagið I’m Gonna Be (500 Miles)
sem er vinsælasta lagið á íslandi í
dag. Þetta lag er langt frá því að vera
eitt sinnar tegundar á plötunni, mörg
eru betri fyrir minn smekk.
Það sem fyrst og fremst einkennir
tónlist þeirra bræðra er frábær söng-
ur þeirra og útsetningar. Textar era
líka bráðskemmtilegir og þótt þeir
fjalli nær eingöngu um jafnalgengt
textafyrirbæri og ástina er það gert
án allrar væmni og stutt í glottið á
bak við allt saman.
Og það má segja um plötuna í heild
að það er augljóst að þessir drengir
hafa virkilega gaman af því sem þeir
eru að gera og engin spurning að
þeim tekst að koma gleðskapnum til
skila til þeirra sem hlýða á þessa
plötu.
-SþS-
Herdís Hallvarðsdóttir - Gullfískar
Rós
Gullfiskar er fyrsta plata Herdísar
Hallvarðsdóttur sem kemur út undir
hennar nafni. Herdís er samt enginn
nýgræðingur á tónlistarsviðinu. Hún
var í Grýlunum á sínum tíma og
þaðan lá leiðin í Hálft í hvoru og er
Gullfiskar í raun beint framhald af
veru hennar þar tónlistarlega séð.
Hún hefur einnig verið í nánu sam-
starfi við eiginmann sinn Gísla
Helgason á undanfornum árum og
er hann hennar helsti aðstoðarmað-
ur ásamt Sigurði Rúnari Jónssyni á
Gullfiskum.
Lögin á Gullfiskum eru tólf talsins
og öll eftir Herdísi. Hún er ágætur
lagahöfundur. Lög hennar eru gríp-
andi og auðlærð. Það vantar að vísu
einhvem brodd í þau til að gera þau
spennandi og líður platan dálítið fyr-
ir það.
Textarnir skipta Herdísi greinilega
miklu máli og eru hennar textar per-
sónulegir. Skýringar með tilurð laga
er að finna á plötuumslagi og einnig
á textum hennar. Iðunn Steinsdóttir
á þrjú ljóð við lög Herdísar og Inga
Rún Pálmadóttir eitt og eru þeir text-
ar í anda ritsmíöa Herdísar.
Góðir textar og falleg lög ásamt
smekklegum útsetningum skapa því
heild sem virkilega ljúft er að hlusta
á og er Gullfiskar plata sem er vel
heppnuð og kemst boðskapur hennar
vel til skila í einfóldum lögunum.
Herdís er prýðileg söngkona og
rödd hennar hentar lögum hennar
vel. Rödd hennar er samt misjafnlega
í hnappagat
góð. Tvö laganna, Ég heyrði í dag og
Dagrenning, eru sungin af Eyjólfi
Kristjánssyni og fer hann vel með
þau eins og hans er von og vísa.
Ekkert eitt lag sker sig úr, heldur
myndar platan heild sem allir er
unna ljúfri tónlist ættu að hafa gam-
an af og er Gullfiskar rós í hnappa-
gat Herdísar.
-HK
Herdís Hallvarðsdóttir.
lAiviqAR þiq í bíl ?
VÍlTUSEljA bíl?
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Tollstjórans I Reykjavík, skiptaréttar Reykjavíkur, Gjaldheimtunnar
í Reykjavík, Eimskipafélags Islands hf., ýmissa lögmanna, banka og stofn-
ana for fram opinbert uppboð í uppboðssal Tollstjóra í Tollhúsinu við
Tryggvagötu (hafnarmegin), laugardaginn 3. desember 1988 og hefst það
kl. 13.30.
Seldar verða ýmsar ótollaðar og upptækar vörur og bifreiðar, fjárnumdir
og lögteknir munir, ýmsir munir úr dánar- og þrotabúum.
Eftir kröfu Tollstjóra:
VW árg. 1972, Alfa Romeo 1987, M. Benz 1972, Ford Tempo 1984,
Volvo 1967, M. Benz 1985, Opel Rekord 1985, varahlutir i traktora og
bifreiðar, húsgögn, verkfæri, alls konar rafmagnsvörur, varahlutir, matvara,
vefnaðarvara, fatnaður, lampar, postulín, skófatnaður, gólfdúkur, hreinlætis-
tæki, element, plastpokar, varahlutir í flugvélar, leikföng, leirmunir, raf-
magnsorgel, plötuspilarar, hátalarar, magnarar, hreinlætisvörur, myndavélar,
sjónaukar, filmur, myndbönd og margt fleira, ennfremur upptækar vörur
svo sem: myndbönd, geislaspilarar, hljómflutningstæki, útvarpstæki og
margt fleira.
Eftir kröfu skiptaréttar:
Munir úr dánar- og þrotabúum svo sem alls konar skrifstofubúnaður, alls-
konar heimilisbúnaður og áhöld, hjólbarðar á vinnuvélar, simstöð og tæki,
Ijósritunarvél, spennar, sagarblöð, rennibekkir, hjólsagir, þykktarhefill, band-
sagir, fræsari, alls konar hillur og rekkar, bókhaldsvél, alls konar ritföng,
gjafakort, skólatöskur, jólavörur, saumavél, rafkn. blásari, alls konar mat-
vara, ca 300 bindi bækur og tímarit, alls konar leirtau og eidhúsáhöid,
ýmsir smámunir, sjónvörp, málverk, veggmyndir, isskápur, verkfæri, huta-
bréf í Þórshöll hf. að nafnverði kr. 166,66 og bækur, Heill í Höfn, 930 stk.,
og Töfrastafurinn, 1350 stk., og margt fleira.
Eftir kröfu Eimskips hf.:
Fiskikassar, skófatnaður, prófilar, varahlutir, spónaplötur, styttur.
Lögteknir og fjárnumdir munir og áhöld svo sem sjónvarpstæki, mynd-
bönd, hljómflutningstæki, isskápar, frystikistur, saumavélar, alls konar hús-
búnaður, fatnaður, þvottavélar, Ijósritunarvél, frímerki, alls konar húsgögn,
sólarlampar og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðs-
haldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Uppboðshaldarinn í Reykjavík
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKAÐSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur kaupum og sölum.
Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV,
hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gaetu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Þú hringir...27022
Við birtum...
Það ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
o ER SMÁAUGLÝSINGABLADD