Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988.
65
A&næli
Sæmundur Sæmundsson
Sæmundur Sæmundsson verslun-
armaður, Kleppsvegi 30, er áttræður
í dag. Hann er fæddur að Lækjar-
botnum í Landsveit og er yngstur
af átta syskinum. Hálfsárs gamall
missti hann fóður sinn og nokkru
seinna brá móðir hans búi og flyst
með hann til Reykjavíkur en hinum
syskinunum var komið í fóstur
austan íjalls. Á unglingsárunum
fylgdi Sæmundur móður sinni við
ýmis störf, m.a. á síld til Siglufjarðar
og viö umönnun sj úkra í spænsku
veikinni. Um tvítugt hóf hann versl-
unarstörf í Liverpool og Aðalbúð-
inni og síðar í Kiddabúð í Garða-
stræti þar sem hann starfaði í hálfan
annan áratug þangað til hann stofn-
aði verslunina Lögberg. Síðustu
tuttugu árin hefur Sæmundur starf-
að í Járnsteypunni hf. í Ánanaust-
um við skrifstofustörf og starfar þar
enníhlutastarfl.
Sæmundur kvæntist 9. nóvember
1930 Helgu Fjólu Pálsdóttur, f. 11.
nóvember 1909, og voru foreldrar
hennar þau Páll Friðriksson, verka-
maður í Reykjavík (Bergsætt), og
kona hans, Margrét Árnadóttir,
hreppstjóra á Meiðastöðum í Garði,
Þorvaldssonar. Börn Sæmundar og
Helgu Fjólu eru Sigríður Theódóra,
húsfreyja í Skarði á Landi, gift
Guðna Kristinssyni, hreppstjóra í
Skarði, og eiga þau tvö börn; Mar-
grét hjúkrunarforstjóri gift Jóni
Marvin Guðmundssyni, kennara í
Reykjavík, frá Karlsá við Dalvík og
eiga þau þrjá syni. Þeir eru: Sæ-
mundur, vélstjóri í Reykjavík,
kvæntur Elísabetu Kristjánsdóttur
frá Siglufiröi og eiga þau íjögur
börn. Barnabörnin eru orðin sjö.
Foreldrar Sæmundar voru Sæ-
mundur Sæmundsson, bóndi á
Lækjarbotnum á Landi, og kona
hans, Sigríður Theódóra Pálsdóttir.
Systir Sæmundar er Jóhanna Vig-
dís, móðir Guðrúnar Erlendsdóttur
hæstaréttardómara, móðir Ólafs
Arnarsonar blaðamanns. Systir
Sæmundar, b. á Lækjarbotnum, var
Katrín, húsfreyja í Austvaðsholti,
móðir Sæmundar, fulltrúa banka-
stjórnar Búnaðarbankans, föður
Signýjar ópersöngkonu. Önnur
systir Sæmundar var Guðrún, hús-
freyja í Króktúni á Landi, móöir
Guðlaugs, gestgjafa í Tryggvaskála,
íoður Guðnýjar hótelstýru, móður
Guðlaugs Tryggva Karlssonar hag-
fræðings. Þriðja systir Sæmundar
var Elín, húsfreyja á Fróðholtshól,
móðir Katrínar Pálsdóttur, borgar-
fulltrúa í Reykjavík, móður Kára,
rafveitustjóra í Keflavík, Þórðar-
sonar, fóður Elínar, ritstjóra Gest-
gjafans í Hafnarfirði. Fjórða systir
Sæmundar var Guðrún, húsfreyja í
Reykjavík, móðir Sæmundar Guðna
Runólfssonar, innheimtumanns í
Reykjavík, fóður Runólfs, forstjóra
í Blossa, fóður Halldórs Björns list-
fræðings. Bróðir Sæmundar var
Guðbrandur, b. í Ölversholti, faöir
Elínar, húsfreyju í Næfurholti á
Rangárvöllum, móöur Guðrúnar
Laufeyjar Ófeigsdóttur, húsfreyju í
Hólum á Rangárvöllum, móður
Sverris Haraldssonar, b. og lista-
manns í Selsundi á Rangárvöllum.
Önnur dóttir Guðbrands í Ölvers-
holti var Rósa, húsfreyja í Reykja-
vík, móðir Hauks Morthens söngv-
ara og móðir Kristins Morthens list-
málara föður Bubba Morthens
söngvara. Foreldrar Sæmundar, b.
á Lækjarbotnum voru Sæmundur,
hreppstjóri á Lækjarbotnum, Guð-
brandsson og kona hans, Katrín
Brynjólfsdóttir ljósmóðir - Lækjar-
botnaætt. Bróðir Sæmundar hrepp-
stjóra var Guöbrandur, langafi Guð-
mundar Daníelssonar rithöfúndar.
Sigríður Theódóra er dóttir Páls,
hreppstjóra á Selalæk á Rangárvöll-
um, Guðmundssonar, hreppstjóra á
Keldum, Brynjólfssonar sem
Keldnaættin er kennd við. Guð-
mundur var sonur Brynjólfs, b. á
Sæmundur Sæmundsson
Vestari-Kirkjubæ, Stefánssonar, b.
á Árbæ, Bjarnasonar, b. á Víkings-
læk, Halldórssonar, ættfóður Vík-
ingslækjarættarinnar. Kona Páls á
Selalæk var Þuríður Þorgilsdóttir,
b. á Rauðnefsstöðum, Jónssonar,
bróður Guörúnar, ömmu Eyjólfs
Guðmundssonar, „landshöfðingja"
í Hvammi á Landi, afa Eyjólfs
Ágústssonar, b. í Hvammi. Sæ-
mundur tekur á móti gestum að
Síðumúla 35, félagsheimili tann-
lækna, milli kl. 5 og 8 í dag.
Emelía Sigfúsdóttir
Emelía Sigfúsdóttir, Kirkjuvegi 41
Vestmannaeyjum, er níræð í dag.
Emelía fæddist á Uppsölum,
Fremri-Torfustaðahreppi, V-Húna-
vatnssýslu, og ólst þar upp. Hún
flutti að Gafli í Víðidal 1928-1943 og
var ráðskona á Skinnastööum og
Gauksmýri 1943-1952. Emelía bjó á
Sauðárkróki 1952-1957 og flutti þá
til Vestmannaeyja og hefur búið þar
síðan. Hún giftist Sigurði Magnús-
syni, f. 13. júní 1888, d. 1962, b. á
Gafli. Foreldrar hans voru Magnús
Sigurðsson, b. á Kjartansstöðum í
Skagafirði, og kona hans, Ingibjörg
Bjarnadóttir. Böm Emelíu og Sig-
urðar eru Ingvar, f. 31. desember
1924, verslunarmaöur á Selfossi,
kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur,
börn þeirra eru fimm, Sverrir, f. 22.
janúar 1926, múrari á Dalvík,
kvæntur Ernu Hallgrímsdóttur,
börn þeirra eru þrettán, Magnús, f.
25. mars 1928, bifreiðarstjóri í Þor-
lákshöfn, kvæntur Önnu Jóhanns-
dóttur, börn þeirra eru fjögur, Elísa-
bet, f. 13. maí 1933, gift Ásmundi.
Pálssyni, verkstjóri í Vestmanna-
eyjum, Karl Bergdal, f. 12. mars
1935, verktaki í Rvík, kvæntur Elínu
Þorbjörnsdóttur, og Lovísa, f. 2. nóv-
ember 1942, gift Guðgeiri Matthias-
syni. Systkini Emelíu voru Jenný,
Jón, b. í Litla-Hvammi í Fremri-
Torfustaðahreppi, Margrét, Lóa,
Ásta og Karl sem lést tólf ára.
Foreldrar Emelíu voru Sigfús
Bergmann Guðmundsson, b. á Upp-
sölum í Fremri-Torfustaðahreppi,
og kona hans, Ingibjörg Jónsdóttir
frá Hildisvík. Sigfús var sonur Guð-
mundar, b. í Gafli í Víðidal, Jóns-
sonar, og konu hans, Guðrúnar
Guðmundsdóttur, b. og smiðs á
Síðu, Guðmundssonar. Móðir Guð-
rúnar var Guðrún Sigfúsdóttir,
Bergmann, Sigfússonar, b. á Þor-
kelshóli í Víöidal, ættfóður Berg-
mannættarinnar frá Þorkelshóli.
Emelía er heima í dag.
Ingibjörg Asthildur Michelsen
Ingibjörg Ásthildur Michelsen,
Túngötu 15, Tálknafiröi, verður
fimmtug á morgun. Ásthildur er
fædd í Rvík og ólst þar upp. Hún
fluttist til Tálknafjarðar ásamt
manni sínum, Lúðvík Thorberg
Helgasyni. Þau hjón stofnsettu
snemma á þessu ári verslun í
Tálknafirði og gáfu henni nafnið
Tían og sér Ásthildur að mestu leyti
ein um rekstur hennar. Böm Ást-
hildar og Lúðvíks eru Guðný Berg-
dís, f. 9. september 1956, Birgir
Freyr, f. 19. júlí 1957, Björn Fjalar,
f. 6. mars 1965, og Frank Snær, f. 10.
júní 1966. Foreldrar Ingibjargar eru
Frank Michelsen, úrsmíðameistari
í Rvík, og kona hans, Guðný Jóns-
dóttir. Frank er sonur Jörgens
Franks Michelsens, úrsmiðameist-
ara og kaupmanns á Sauðárkróki,
Jenssonar Michelsens, múrara-
meistara í Horsens í Danmörku.
Móðir Franks var Guðrún Pálsdótt-
ur, b. á Draflastöðum í Eyjafirði,
Ólafssonar og konu hans, Kristínar
Gunnlaugsdóttur, b. á Þormóðsstöð-
um í Eyjafirði, Sigurðssonar.
Ingibjörg Ásthildur Michelsen.
Til hamingju með morgundaginn
85 ára
Steinunn Jónsdóttir,
Dalabraut 4, Hafnarhreppi, Aust-
ur-Skaftafellssýslu.
80 ára
Pétur G. Jónasson,
Drápuhlíð 23, Reykjavík.
Magnús Jónsson,
Reykjavíkurvegi 4B, Hafnarfirði.
Ingólfur Björnsson,
Vatnsdalsgerði, Vopnafjaröar-
hreppi, Norður-Múlasýslu.
75 ára
Kjartan Jóhannesson,
Sandholti 19.
70 ára
Magnús Jónsson,
Tunguvegi 84, Reykjavík.
Sigurður Guðjónsson,
Melhaga 10, Reykjavík.
Ásta Þórðardóttir,
Brimhólabraut 15, Vestmannaeyj-
um.
60 ára
Christhild Friðriksdóttir,
Æsufelli 4, Reykjavík.
Stefán Hallgrímsson,
Háabergi 10, Reykjavík. Hann tek-
ur á móti gestum á heimili sinu
milli kl. 17 og 19.
Sigurjón Jónsson,
Vatnsendabletti 18, Kópavogi.
50 ára
Gunnar Svavarsson,
Heiðargerði 27, Keflavík.
Edda Júlía Þrálnsdóttir,
Flatahrauni 16 B, Hafnarfirði.
Ásta Þórey Hannesdóttir,
Aðalgötu 15, Árskógsstrandar-
hreppi, Eyjafjarðarsýslu.
Helga Enoksdóttir,
Heiðarhrauni 20, Grindavik.
Margrét Ólafía Óskarsdóttir,
Lyngheiði 8, Selfossi.
Jóhanna Steinþórsdóttir,
Heiði, Gnúpverjahreppi.
Baldvin Erlendsson,
Leirubakka 30, Reykjavík.
Ingi Hilmar Ingimundarson,
Bakkaflöt 11, Garðabæ.
40 ára__________________________
Júlíus Jónsson,
Jöklaseli 3, Reykjavík.
Sævar Örn Kristjánsson,
Helluhrauni 11, Skútustaðahreppi,
Suður-Þingeyjarsýslu.
Þóra Haraldsdóttir,
Faxaskjóli 10, Reykjavík.
Árni Magnússon,
Jörvabyggð 9, Akureyri.
Jóhanna G. Kjartansdóttir
Álfaskeiði 100, Hafnarfirði.
Nancy Barry,
Flókagötu 16, Reykjavík.
Alexander Vilmarsson,
Heiðargarði 2, Keflavík.
Kristjana Sigmundsdóttir,
Ártúni 13, Selfossi.
Guðlaugur Þórðarson,
Reynigrund 20, Akranesi.
Besta tónlistin
er á Stjömunni
Bjarni Haukur, Gyða, Gulli Helga, Þorgeir,
Siggi Hlöðvers, Jón Axel og Helgi Rúnar leika
skemmtilegustu, þœgilegustu, líflegustu,
Ijúfustu, viðkunnanlegustu . . . já, bestu tónlistina
sem heyrist í útvarpinu.
Tónlist, skop og fréttir
hafa tekið völdin á Stjörnunni.
IO
o
FIVI 102,2 A104
. ennþá betri