Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1988, Page 50
66 LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1988. Andlát Hafsteinn Baldvinsson, hæstaréttar- lögmaður, Fjölnisvegi 16, Reykjavík, lést að kvöldi miðvikudagsins 23. nóvember. Þórarinn Hjartarson, Hjallaseli 41, andaðist í Landakotsspítala mið- vikudaginn 23. nóvember. Sörli Ágústsson frá Kjós andaðist á Hrafnistu fimmtudaginn 23. nóvemb- er. Sigríður María Kristjánsdóttir frá Mjóeyri, Eskifirði, andaðist í sjúkra- húsi Neskaupstaðar 24. nóvember. Sigurbjörg Jónsdóttir frá Hoffelli andaðist þann 23. nóvember sl. að Elli- og hjúkrunarheimilinu Skjól- vangi á Höfn. Baldvin Nordal, Bólstaðarhlíð 44, er látinn. Tilkyimingar Baháí’ar verða með kynningu að Háteigsvegi 7. gengið inn úr Einholti. öll mánudags- kvöld kl. 20.30. Kaffiveitingar og mvnda- sýningar. Féiag eidri borgara Opið hús í Tónabæ í dag frá kl. 13.30. Félagar frá Selfossi koma kl. 17.30. Skemmtiatriði og dans. Veitingar verða til sölu á staðnum. Ath: danskennslán fellur niður í dag. Opið hús á morgun í Goöheimum, Sigtúni 3. Kl. 24 frjálst spil og tafl. Kl. 20 dansað. Opið hús í Tónabæ á mánudag frá kl. 13.30. Kl. 14 félagsvist. Jass í Heita pottinum Jasshljómsveitin „Hitáveitan" lætur krauma í „Heita pottinum" (Duus-húsi) sunnudagskvöldið 27. nóv. kl. 22-1. Hljómsveitina skipa 7 hljóðfæraleikarar: Ásvaldur Traustason, Bjarni Svein- björnsson, Eiríkur Pálsson, Kristinn Svavarsson. Pétur Grétarsspn, Sigurður Long og Vilhjálmur Guöjónsson. A efnis- skránni er eingöngu frumsamin tónlist eftir „starfsmenn Hitaveitunnar". Stúdentafélag Reykjavíkur ^heldur árlegan fullveldisfagnað sinn laugardaginn 26. nóvember í Átthagasal Hótel Sögu. Að þessu sinni verður haldið upp á 70 ára afmæli fullveldisins og verð- ur sérstaklega vandað til dagskrár. Panta má miða og borð í síma 673355. Bókauppboð í Templarahöllinni Bókavarðan efnir nk. sunnudag 27. nóv. tU bókauppboðs í Templarahöllinni og hefst þaö kl. 15 stundvíslega. Boðnar verða upp margvíslegar bækur og safnrit úr flestum flokkum fræða og fagurfræða. Einna mesta athygli í uppboðsskránni vekur mikiU fjöldi af hinum fágætu bækl- ingum sem Jóhannes Kjarval gaf út og sendi vinum sínum. Auk þess verða seld mörg smárit um hin íjölbreyttustu efni: ádeilurit aUs kyns, atvinnumálefni, rit eftir íslenska presta, sagnfræði, stjórn- mál o.m.fl. Alls verða seld um 200 númer á bókauppboðinu og verða gripirnir til sýnis nk. laugardag í verslun Bókavörð- unnar að Vatnsstíg 4 frá kl. 14-18. Grensássókn tuttugu og fimm ára Um þessar mundir eru liðin 25 ár frá stofnun Grensássóknar. Þessara tíma- móta vill sóknin minnast nk. sunnudag, 27. nóv„ fyrsta sunnudag í aöventu, með ýmsum hætti. Afmælishátíðin hefst með barnasamkomu ki. 11 f.h. Þar mun barna- kór Hvassaleitisskóla syngja undir stjórn Ástu Valdimarsdóttur. Brúðan Binni kemur í heimsókn og að vanda verða afmælisbörn vikunnar heiðruö og mikið sungið. Kl. 14 hefst guðþjónusta með alt- arisgöngu. Þar mun Guðmundur Gísla- son syngja einsöng og kór kirkjunnar flytja kór/erk undir stjórn organistans, Árna Arinbjarnarsonar, en hann mun einnig leika á hið nýja orgel kirkjunnar í tuttugu mínútur áður en guösþjónusta hefst. Mun svo einnig verða fyrir kom- andi aðventumessur. Sóknarpresturinn, sr. Halldór S. Gröndal, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt safnaðarpresti, sr. Gylfa Jónssyni. Að messu lokinni verður kirkjugestum boðið að þiggja veitingar og sjá þær endurbætur sem gerðar hafa verið á starfsaðstöðu í kirkjunni í tilefni þessara tímamóta. Þá mun barnakór Hvassaleitisskóla gleðja kirkjugesti með söng sínum. Á sunnudagskvöldiö verður aðventusamkoma í kirkjunni kl. 20.30. Leikbrúðuland Næstsíðasta sýning á Mjallhvíti á sunnu- dag kl. 15 að Fríkirkjuvegi 11. Borgfirðingafélagið Spiluð verður félagsvist sunnudaginn 27. nóvember í Sóknarsalnum, SkiphQlti 50a. Bytjað verður að spila kl. 14. Basarar Kökubasar Framkvenna verður haldinn sunnudaginn 27. nóvemb- er kl. 14.00 í Framheimilinu við Safamýri. Stjórnin Kökubasar Samtök dagmæðra í Kópavogi lialda kökubasar sunnudaginn 27. nóvember kl. 15 í félagsheimili Kópavogs. 2. hæð. til stvrktar leikfangasafni dagmæðra sem opnað verður bráðlega. Jólabasar í Gerðubergi Sunnudaginn 27. nóvember verða eldri borgarar í Gerðubergi með sölu á handa- vinnu kl. 13.30-17, t.d. er þar mikið af fallegum jóladúkum, prjónuðum dúkum, lúffum. vettlingum, soitkum, jólasvunt- um o.fl. Einnig verður sýnikennsla á að- ventuskreytinpm og efni selt til skreyt- inga. Kafflterían verður opin. Strætis- vagnar nr. 12 og 13 stansa fvrir framan húsið. Samtök gegn astma og ofnæmi halda kökubasar í Blómavali við Sigtún sunnudaginn 27. nóvember kl. 13.30. Kök- um verður veitt móttaka laugardaginn 26. nóvember í Suðurgötu 10 milli kl. 13 og 17. Upplýsingar eru veittar í síma 72495. Ágóða sl. ára af kökubasarnum hefur verið varið tll tækjakaupa á Barna- spítala Hringsins og lungnadeild Vífils- staðaspítala. Verður ágóöanum af köku- basarnum varið til kaupa á tækjum. KR-ingar og velunnarar Kökubasar verður i félagsheimilinu við Frostaskjól sunnudaginn 27. nóvember kl. 14. Kvikmyndir Anna Pavlova í MÍR Nk. sunnudag, 27. nóvember kl. 16, verð- ur sovéska kvíkmyndin „Anna Pavlova" sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Þetta er fárra ára gömul mynd og fj.allar, eins og nafnið bendir til, um ævi og starf hinnar heimsfrægu rússnesku dansmeyjar. Myndin er með skýringum á ensku. Aö- gangur er ókeypis og öllum heimill. fþróttir Bikarmót Fimleika- sambands íslands verður haldið sunnudaginn 27. nóvember nk. í Laugardalshöllinni og hefst kl. 12 á hádegi. Keppt verður í öðru, þriðja og fjórða stigi íslenska flmleikastigans sem er B, C og D keppni og í A-stigi í ftjálsum æflngum. Mótshaldari verður fimleika- deild Stjörnunnar. Fyrirlestrar Nýjarrannsóknirá erfðafræði mannsins Næstkomandi mánudagskvöld heldur dr. Jórunn Erla Eyfjörð erföafræöingur fyr- irlestur um nýjar aðferðir og rannsóknir í mannerfðafræði en Jórunn starfar á nýrri rannsóknastofu Krabbameinsfé- lags íslands í sameinda- og frumlíffræði. Fyrirlesturinn verður 28. nóv. í stofu 101 í Odda og hefst kl. 20.30. Fundir Ættfræðifélagið Fundur verður haldin í ættfræðifélaginu nk. miðvikudag, 30. nóv., kl. 20.30 að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Á dagskrá verður erindi dr. Alfreös Árnasonar um ættir og sjúkdóma. Að loknu kafflhléi verður opin dagskrá. Fræðslufundur í Breiðholtsskóla Að hafa stjórn á börnum með aga hefur orðið að feimnismáli nú á dögum, líklega vegna þess að foreldrar og kennarar eiga þar viö vandamál að stríða. Foreldrafélag Breiðholtsskóla vill stuöla að fræðslu og umræðu um þetta mikilvæga málefni fjTir foreldra, kennara og aðra uppalend- ur og boðar þess vegna til fræðslufundar sem nefnist: Agi og ábyrgð: Hvernig geta foreldrar agað börn sín? Fyrirles- ari verður Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræð- ingur sem starfar hjá Bama- og unglinga- deild Landspítalans. Fræðslufundurinn er öllum opin og verður í Breiðholts- skóla, mánudagskvöldið 28. nóv. kl. 20.30. Eftir 45-60 mínútna framsögu verður kaffihlé og síðan fyrirspurnir og almenn- ar umræður. Fræðslufundur Blóðgjafafélags íslands Mánudaginn 28. nóvember kl. 21 verður haldin fræðslufundur í húsakynnum Rauða kross islands, Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Dagskrá: 1. Blóðbankinn 35 ára, þrjú stutt yfirlitserindi um erfða- rannsóknir: dr. Ólafur Jensson: Blóð- flokkar og erfðasjúkdómar, dr. Alfreö Árnason: vefjaflokkar og sjúkdómar, dr. Ástríður Pálsdóttir: Sameindaerfðafræði og sjúkdómsgreining. 2. kafflveitingar. 3. Hólmfríður Gísladóttir segir frá ráð- stefnu um blóögjafir sem haldin var í Búdapest i sept. sl. 4. Önnur mál. Fundur- inn er öllum opinn. Hjallaprestakall Aðventusamkoma í messuheimili Hjalla- sóknar sunnudaginn 27. nóv. kl. 17. Hilm- ar Björgvinsson, formaður sóknarnefnd- ar, flytur ávarp. Sólveig Einarsdóttir leikur á orgel, Félagar úr skólahljóm- sveit Kópavogs leika. Sönghópur Digra- nesskóla flytur ..Konungur lagður í jötu". Einnig verður almennur söngur og Halla Margrét Árnadóttir syngur einsöng. Kaffisala Kvenfélags Bústaðasóknar verður nk. sunnudag aö lokinni messu. Guðni Þ. Guðmundsson organisti kemur með gesti öllum til ánægju. Tekiö á móti kökum eftir kl. 10 á sunnudagsmorgun i safnaðarheimilinu. Aðventukvöld Kópavogskirkju Digranessöfnuður efnir til aðventusam- komu í Kópavogskirkju sunnudags- kvöldið 27. nóvember kl. 20.30. Vandað er til dagskrár. Fyrsta aöventuljósið verður tendrað og Sören Jónsson, for- maður sóknarnefndar, flytur ávarp. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Kjart- ans Sigurjónssonar. Kristján Guðmunds- son bæjarstjóri flytur ræðu, Guðný Guð- mundsdóttir konsertmeistari og Gunnar Kvaran sellóleikari leika saman á fiölu og selló og Matthías Johannessen skáld flytur eigin Ijóö. Kristinn Sigmundsson óperusöngvari syngur einsöng við undir- leik Jónasar Ingimundarsonar píanóleik- ara. Endað verður á helgistund meö al- mennum söng. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkur- prófastsdæmi sunnudag 27. nóvember1988. Árbæjarkirkja. Barnasamkoma í Folda- skóla í Grafarvogshverfi laugardag kl.11 árdegis. Sunnudagur: Kirkjudagur Ár- bæjarsafnaðar í Arbæjarkirkju. Barna- samkoma kl. 10.30 árdegis. Foreldrar boðnir velkomnir meö börnum sínum. Guðsþjónusta fyrir alla fjölskylduna kl. 14. Organleikari Jón Mýrdal. Biskupinn yfir íslandi, hr. Pétur Sigurgeirsson, pré- dikar. Viktor Guðlaugsson, skólastjóri Árbæjarskóla, syngur einsöng við undir- leik Áslaugar Bergsteinsdóttur. Vænst1 þátttöku væntanlegra fermingarbarna og foreldra þeirra. Kaffisala kvenfélags safnaðarins og skyndihappdrætti í safn- aðarheimili kirkjunnar eftir messu. Æskulýðsfélagsfundur kl. 20.30. Þriðju- dagur: Fyrirbænastund í Árbæjarkirkju kl. 18. Miövikudagur: Samvera eldra fólks í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13.30. Aðalfundur bræðrafélags Árbæjar- safnaðar í Árbæjarkirkju miövikudags- kvöld kl. 20.30. Sr. Guðmundur Þorsteins- son. Áskirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Aðventukvöld kl. 20.30. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup flytur ræðu. Kristinn Sigmundsson syng- ur einsöng. Blásarasveit Tónlistarskól- ans í Reykjavík leikur. Almennur söng- ur. Sr. Árni Bergur Sigurbjömsson. Breiðhol t skirkj a. Barnaguösþj ónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Sig- ríður Jónsdóttir. Þriðjudagur: Bæna- guðsþjónusta kl. 18.15. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja. Kirkjudagur Bústaða- kirkju. Barnasamkoma kl. 11. Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Hátíðarþjónusta kl. 14. Tvísöngur: Ingveldur Ólafsdóttir og Ein- ar Örn Einarsson. Organisti Guöni Þ. Guðmundsson. Hátíðarkaffi kvenfélags- ins eftir messu. Aðventusamkoma kl. 20.30. Ávarp flytur Árni Kristjánsson. Ræðumaður: Sr. Eric H. Sigmar. Ein- söngvarar og kór flytja flölbreytta tón- list. Miðvikudagur: Félagsstarf aldraöra kl. 13-17. Æskulýðsstarf miðvikudags- kvöld. Sr. Ólafur Skúlason. Digranesprestakall. Bamasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Aðventusamkoma kl. 20.30. Sr. Þorberg- ur Kristjánsson. Dómkirkjan. Laugardagur: Barnasam- koma í kirkjunni kl. 10.30. Öll börn vel- komin. Egill og Ólafía. Messa kl. 11. Dóm- kórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. Lárus Halldórsson. Aðventukvöld kl. 20.30. Fjölbreytt efnis- skrá, allir velkomnir. KKD. Landakotsspitali. Messa kl. 13. Organ- leikari Birgir Ás Guömundsson. Sr. Hjalti Guömundsson. Elliheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Árelíus Níelsson. Fella- og Hólakirkja. Barnasamkoma kl. 11. Umsjón Ragnheiður Sverrisdóttir. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Guöný Margrét Magnúsdóttir. Prestur Hreinn Hjartarson. Aðventusamkoma kl. 20.30. Hugvekja: Dr. Hjalti Hugason. Einsöng- ur: Ragnheiður Guðmundsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Flautuleikarar: Guð- rún Birgisdóttir og Martiel Nardeau. Helgileikur. Umsjón: Ragnheiður Sverr- isdóttir. Börn og unglingar úr Fella- og Hólabrekkusóknum, kirkjukórar Breiö- holtskirkju og Fella- og Hólakirkju. Org- anistar: Sigríður Jónsdóttir og Guðný M. Magnúsdóttir. Mánudagur: Fundur í æskulýðsfélaginu kl. 20.30. Þriðjudagur: Samvera fyrir 12 ára börn kl. 17. Miðviku- dagur: Guðsþjónusta og altarisganga kl. 20. Sóknarprestur. Fríkirkjan í Reykjavík. Barnaguösþjón- usta kl. 11.00. Fyrsta aðventuljósiö kveikt, söguhorn, kaffi fyrir fullorðna. Almenn guösþjónusta kl. 2.00. Leikið verður á orgel kirkjunnar frá kl. 13.45. Orgelleikari Pavel Smid. Sr. Cecil Har- aldsson. Grensáskirkja. Laugardagur: Biblíulest- ur kl. 10. Sr. Halldór S. Gröndal. Sunnu- dagur: 25 ára afmælishátið Grensássókn- ar. Barnasamkoma kl. 11. Barnakór Hvassaleitisskóla syngur undir stjórn Ástu Valdimarsdóttur. Brúöan Binni kemur í heimsókn og afmælisbörn vik- unnar verða heiðruö. Mikill söngur. Há- tíöarguðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Guðmundur Gíslason syngur einsöng og kirkjukórinn flytur kórverk undir stjórn organistans, Áma Arinbjarnarsonar. Orgelleikur í 20 min. fyrir messu. Sr. Halldór S. Gröndal prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Gylfa Jónssyni. Aö messu lokinni er kirkjugestum boðið að þiggja veitingar og sjá þær endurbætur sem gerðar hafa verið á starfsaðstöðu í kirkjunni. Aðventusamkoma kl. 20.30. Sr. Jónas Gíslason, prófessor og fyrrum sóknarprestur Grensássafnaðar, flytur hátíðarræðu og æskulýðshópur kirkj- unnar sýnir helgileik. Pálína Árnadóttir leikur á fiðlu við undirleik fóður síns. Kirkjukórinn syngur og leikin verða org- elverk. Aö lokum verður helgistund. Föstudagur: Æskulýðshópur Grensás- kirkju kl. 17. Laugardagur: Biblíulestur kl. 10. Prestarnir. Hallgrímskirkja. Sunnudagur: Barna- samkoma og messa kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Stjórnandi og organisti Hörður Askelsson. Þriðjudagur: Fyrirbænaguös- þjónusta kl. 10.30. Beöið fyrir sjúkum. Miðvikudagur: Náttsöngur kl. 21.00. Skólakór Garðabæjar syngur. Stjórnandi Guðfinna Dóra Ólafsdóttir. Laugardagur: Samvera fermingarbarna kl. 10. Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Háteigskirkja. Morgunméssa kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl.-14. Sr. Arngrímur Jónsson. Aðventutónleikar kl. 21. Orthulf Pmnner leikur á orgel kirkjunnar tónlist eftir J.S. Bach, Mozart o.fl. Kvöldbænir og fyrir- bænir em í kirkjunni á miövikudögum kl. 18. Sóknarprestar. Hjallaprestakall í Kópavogi. Barnasam- koma kl. 11 í messuheimili Hjallasóknar, Digranesskóla. Aðventusamkoma kl. 5 (17) í messuheimilinu. Ávarp flytur Hilm- ar Björgvinsson. Ræðumaður: Sr. Eric H. Sigmar. Sönghópur Digranesskóla flytur nýtt tónverk eftir Friðrik Kristins- son. Halla Margrét Árnadóttir syngur einsöng. Félagar úr Skólahljómsveit Kópavogs annast hljóðfæraleik. Organ- isti Solveig Einarsdóttir. Almennur söng- ur. Allir velkomnir. Sóknarprestur. Kársnesprestakall. Bamasamkoma í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Um- sjón María B. Daðadóttir og Vilborg Ól- afsdóttir. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja. Kirkja Guðbrands biskups. Óskastund barnanna kl. 11. Söngur - sögur - myndir. Þórhallur Heimisson, cand. theol. og Jón Stefáns- son sjá um stundina. Hátíðarguösþjón- usta kl. 14. Prestur Sig. Haukur Guðjóns- son. Organisti Jón Stefánsson. Aðventu- hátíð kl. 20.30. Ávarp formanns safnaðar- ins, Ingimars Einarssonar. Ahnennur söngur. Ræðumaöur: Halldór Ásgríms- son kirkjumálaráöherra. Börn flytja Lús- íuleik undir stjórn Þórhalls Heimissonar. Kór Langholtskirkju syngur undir stjórn organistans, Jóns Stefánssonar. Helgi- stund. Að henni lokinni hefst fláröflunar- kaffi kvenfélagsins. Sóknarnefndin. Laugarneskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Barnastarfið verður samtímis. Ferming- arböm aðstoða í guðsþjónustunni. Kveikt verður á aðventukransinum. Mánudag- ur: Æskulýðsstarf kl. 18 í safnaðarheim- ili kirkjunnar. Fimmtudagur 1. des.: Há- degisstund i kirkjunni kl. 12.10. Altaris- ganga, fyrirbænir. Léttur málsveröur í safnaðarheimilinu. Neskirkja. Laugardagur: Samvemstund aldraöra kl. 15. Lesið úr jólabókum. Börn og unglingar úr Tónlistarskóla Seltjarn- amess flytja tónlist. Sunnudagur: Barna- guðsþjónusta kl. 11. Munið kirkjubílinn. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14 með þátt- töku bama og unglinga. Orgel- og kór- stjóm Reynir Jónasson. Sr. Guðm. Óskar Ólafsson. Aðventusamkoma kl. 17. Sig- mundur Magnússon læknir ílytur hug- leiðingu. Kór Melaskólans syngur undir stjóm Helgu Guðmundsdóttur. Heimir Wium syngur einsöng og Lin Wei og Gary Mc Bretney leika samleik á fiðlu og selló. Mánudagur: Æskulýðsfundur fyrir 12 ára börn kl. 18. Æskulýðsfundur fyrir 10-11 ára kl. 17.30. Miövikudagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Guðm. Óskar Ólafsson. Þriðjudagur og fimmtu- dagur: Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Seljakirkja. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Altarisganga. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, nývígður að- stoðarprestur í Seljasókn, prédikar. Org- anisti Kjartan Sigurjónsson. Kaffisopi að lokinni guðsþjónustu í safnaðarsalnum. Mánudagur: Æskulýðsfundur kl. 20. Sr. Valgeir Astráðsson. Seltjarnarneskirkja. Kirkjudagur Sel- tjarnarneskirkju. Barnasamkoma kl. 11. ■ Almenn messa kl. 14. Gunnar Sigutjóns- son syngur stólvers. Organisti Sighvatur Jónasson. Prestur sr. Guðmundur Örn Ragnarsson. Samkoma kl. 20.30. Ræðu- menn: Jón Sigurðsson ráðhema og Adda Steina Björnsdóttir stud. theol. Anna Júlíana Sveinsdóttir syngur einsöng við undirleik Jakobs Hallgrímssonar. Kaffi- sala til fláröflunar fyrir kirkjubygging- una frá kl. 15.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga 13 ára og eldri mánudag kl. 20.30. Þriðjudagur: Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17-19. Sóknarnefndin. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Bama- og flöl- skyldusamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Orgel- og kórstjórn Smári Ólafsson. Einar Eyjólfsson. Kirkja Oháða safnaðarins. Aöventu- samkoma kl. 20.30. Ræðumaður Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir. Svala Nielsen söngkona syngur einsöng. Fiðluleikur: Jónas Dagbjartsson fiðluleikari. Organ- isti Jónas Þórir. Þórsteinn Ragnarsson safnaðarprestur. Eyrarbakkakirkja. Barnamessa kl. 10.30. Sóknarprestur. Gaulverjabæjarkirkja. Messa kl. 14. Sóknarprestur Keflavíkurkirkja. Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Fjölskylduguð- þjónusta kl. 14. Fermingarbörn aöstoða, flytja leikþátt og smásögur. Vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Sóknarprestur. Þingvallakirkja. Guðsþjónusta á sunnu- dag kl. 14. Þórhallur Heimisson guð- fræðingur prédikar.. Organleikari Einar Sigurðsson. Aðalsafnaðarfundur verður að lokinni messu. Sóknarprestur. Frikirkjufólk. Tvær guðsþjónustur verða í Háskólakapellu á vegum Safnað- arfélags Fríkirkjunnar i Reykjavík á sunnudag. KI. 11.00: Barnaguðsþjónusta. Guðspjallið í myndum. Barnasálmar og smábarnasöngvar. Afmælisbörn boðin sérstaklega velkomin. Matthías Krist- iansen leikur undir sönginn á gítar. Kl. 14.00: Almenn guðsþjónusta. Sr. Gunnar Björnsson prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Organisti: Jakob Hallgrímsson. Kaffi- sopi eftir messu. Safnaðarfélag Fríkirkj- unnar í Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.