Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1989, Side 6
6
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1989.
Fréttir
Lífeyrissjóðirnir fá ekki nema 5 prósent vexti í samningum við ríkið:
Sjóðirnir hafa ekki
I önnur hús að venda
segir Olafur Ragnar Grímsson ármálaráðherra
Meö yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
um aögeröir í vaxta- og peningamál-
um leggst meginþunginn af hugsan-
legum árangri stjórnarinnar í þess-
um málum á samninga ríkisins viö
lífeyrissjóöina um kaup á skulda-
bréfum Húsnæðisstjórnar sem heíj-
ast munu innan fárra vikna.
Ríkisstjórnin stefnir aö því aö
semja við sjóðina um 5 prósent vexti
á þá 9 milljaröa sem ætlunin er aö
taka aö láni hjá sjóðunum. Forsvars-
menn lífeyrissjóöanna telja það hins
vegar samningsatriöi aö sjóðirnir fái
greidda markaðsvexti sem eru mun
hærri í dag.
Býður allra bestu pappíra
„Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna
eru að mínu áliti skynsamir menn,"
sagöi Ólafur Ragnar Grímsson íjár-
málaráðherra sem semja mun við
sjóðina.
„Fyrir fáeinum árum fannst þeim
skynsamleg stefna aö semja um vexti
við ríkið sem voru einu prósentustigi
lægri en vextir á spariskírteinum
ríkissjóðs. Siík stefna er ekkert
óskynsamlegri í dag en hún var þá.
í ööru lagi sjá þeir þaö af sinni skyn-
semi að það eru ekki margir aörir
möguleikar til ávöxtunar en aö semja
viö ríkið.
í tengslum viö deilur um kaup á
skuldabréfum Atvinnutryggingar-
sjóös hafa forsvarsmenn lífeyrissjóö-
anna auk þess sagt aö þeim væri
ekki heimilt aö kaupa nema ríkis-
tryggð bréf eöa hina allra bestu papp-
íra. Það eru engir aörir sem selja
hina allra bestu pappíra en við héma
í fjármálaráðuneytinu. Ég treysti því
að þaö þurfi ekki mjög harða samn-
ingalotu til aö fá þessa niðurstööu."
Seðlabankinn knýi á
- Er ríkisstjórnin tilbúin til þess
aö láta reyna á þaö hvort lífeyrissjóð-
irnir geti ávaxtaö sitt fé annars staö-
ar en hjá ríkinu?
„Að sjálfsögðu. Viö munum gera
þetta í frjálsum samningum við líf-
eyrissjóöina."
- Munið þiö síöan treysta því aö
lánamarkaðurinn allur aölagi sig að
þessum samningi ríkisins viö lífeyr-
issjóöina?
„Eðlilega. í öllum hagkerfum, sem
eru lík okkar, mynda vextir á spari-
skírteinum og langtímasamningum
ríkisins hiö svokallaöa vaxtagólf sem
aðrar vaxtaákvarðanir taka mið af.
Þegar búiö er að færa þetta vaxta-
gólf niður í um þaö bil 5 prósent
raunvexti erum viö komin með þetta
viömiöunarstig raunvaxtanna í
sama horf og í öllum nágrannalönd-
um okkar. Þær breytingar, sem við
erum aö gera á seðlabankalögunum,
reglum um bindiskyldu og bankabréf
og lögum um verðbréfaviöskipti og
gráa markaöinn, fela það í sér aö
þessi hluti peningakerfisins mun
laga sig aö þessu vaxtastigi meö eðli-
legum hætti. Þaö er filskilið í seðla-
bankalögunum að hann eigi að knýja
á um að svo veröi," sagði Ólafúr
Ragnar.
-gse
Forsvarsmenn lífeyrissjóöanna:
Ráðherra skylt
að bjóða
markaðsvexti
- sjóðimir geta ávaxtað sitt pund annars staðar
„Það segir í lögunum um Hús-
næöisstofnun ríkisins aö vextir til
lífeyrissjóöanna skuli taka mið af
þeim kjörum sem ríkið býöur á al-
mennum lánamarkaöi. Þá er auðvit-
að fyrst og fremst miðað við spari-
skírteini ríkissjóös enda seljist þau.
Menn eru alveg sammála um aö það
sé fáránlegt aö miöa viö spariskír-
teini sem eru á svo lágum vöxtum
aö þau seljist ekki," sagöi Hrafn
Magnússon, framkvæmdastjóri
Sambands almennra lífeyrissjóða.
Pétur Blöndal, formaður Lands-
sambands lífeyrissjóða, tók í sama
streng í samtali við DV. Fjármálaráð-
herra gæti ekki samið um lægri kjör
á lánum lífeyrissjóðanna til Hús-
næöisstofnunar en boöin væru á
spariskírteinum án þess aö breyta
lögunum um Húsnæöisstofnun.
„Ég kannast auk þess ekki viö aö
þaö hafi verið stefna hjá forsvars-
mönnum lífeyrissjóðanna fyrir fá-
einum árum aö semja um lægri vexti
en voru á ríkisskuldabréfum. Þetta
hlýtur að vera misminni hjá ráð-
herra," sagði Hrafn.
Betri ávöxtun annars staðar
- Fjármálaráðherra fullyrðir að líf-
eyrissjóðirnir hafi ekki í önnur hús
að venda meö ávöxtun fjármuna
sinna en til ríkisins. Er mögulegt að
ríkiö geti þvingað sjóöina til þess aö
samþykkja 5 prósent vexti í ljósi
þessa?
„Þaö hefur nú verið þannig fram
að þessu að lífeyrissjóðirnir hafa get-
að ávaxtað sitt pund með betra móti
en kaupum á bréfum Húsnæðisstofn-
unar. í fréttabréfi Landsbankans
kemur fram að verðbréfasala þar var
um 3,4 milljarðar í fyrra og hafði
tvöfaldast frá árinu áður. Það virðist
því vera nægur markaður. Ég get
ekki séð annað en það séu ýmsir
möguleikar í stööunni. Það hefur
þurft að reka á eftir lífeyrissjóðunum
til að standa við sínar skuldbinding-
ar við Húsnæðisstjórn vegna þess að
þeir hafa fengið betri ávöxtun annars
staðar," sagði Hrafn.
-gse
Starfsmenn frystihússins festu lausar piötur en nokkrum hafði vindurinn
þeytt af þakinu. DV-mynd Ægir
Fáskrúðsfjörður:
Þakplötur fuku af
gamla frystihúsinu
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirói:
í hvassviðri, sem gekk yfir Aust-
firði sl. fimmtudag, fuku nokkrar
þakplötur af gamla frystihúsinu og
lentu sumar þeirra utan í þremur
bifreiðum starfsfólks Hraðfrystihúss
Fáskrúðsfjaröar sem stóðu á bíla-
stæðinu við frystihúsið. Ekki var
tjón á bifreiðunum mikið sem betur
fer, rispur hér og þar og brotin ljós-
ker.
Skotið á strætó í Breiðholti
Skotið var á strætisvagn í Breið-
holti um klukkan 19.20 í fyrrakvöld.
Skotinu var hleypt úr loftbyssu. Sá
sem skaut hefur ekki fundist. Enginn
var í hættu vegna skotsins og eins
urðu litlar skemmdir á vagninum.
Vagninn var á mótum Skógarsels og
Jaðarsels þegar skotið var á hann.
þjófar náðust í Reykjavík í fyrri-
nótt eftir að þeir reyndu að brjótast
inn í verslun við Bergstaðastræti.
Þjófarnir reyndu að hlaupa undan
lögreglunni - en komust ekki langt.
-sme
Flugið hef ur ekki gengið
svona illa í mörg ár
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta hefur ekki gengið svona illa
í mörg ár, a.m.k. í fimm ár,‘‘ sagði
Gunnar Oddur Sigurðsson, umdæm-
isstjóri Flugleiða á Norðurlandi
eystra, sem staösettur er á Akureyri,
þegar D17 ræddi við hann um áhrif
umhleypinga á-flug frá áramótum-.
Þeir eru orönir margir dagarnir
sem flug hefur alveg fallið niður t.d.
frá Reykjavík til Akureyrar frá ára-
mótum. Þannig var t.d. ekkert flogið
sl. laugardag og sunnudag, og þeir
eru fáir dagarnir sem flug hefur get-
að farið fram meö eðlilegum hætti.
„Þetta hefur orðið til þess aö flutn-
ingar okkar hafa verið langt undir
því sem eðlilegt mætti teljast," segir
Gunnar Oddur. „Á þessum árstíma
er t.d. mjög vinsælt að fara í helg-
arferðir, bæði til Reykjavíkur og eins
t.d. til Akureyrar frá Reykjavík, en
ef fólk kemst ekki í þessar ferðir á
réttum tíma þá hættir það einfald-
lega við. Þá hefur verið nokkuð um
það að fólk hefur hreinlega hætt við
fyrirfram vegna ótryggs veðurútlits,
hefur þá afpantaö flug þótt svo hafi
verið hægt að fljúga á þeim tíma sem
áformað var. Ég hef ekki enn undir
höndum tölur í þessu sambandi frá
áramótum, en veðrið hefur haft mik-
il áhrif á starfsemina hjá okkur,“
sagði Gunnar Oddur.
Juj i íj ís i;.j s i Tiilj i ii.i
Sandkom i>v
Lokum ef ekki
verður borgað
Þegarmestallt
landiðvarraf-
magnslaustá
sunnudaginn
gtttu fjölmiðla-
sjúklíngarlftið
geftanriaðen
aöhlustaá
gömlugóðu
gufúnaMeðal
dagskráratriða
vartilkynn-
ingalestur.Þar
varmeöalann-
ars auglýsing sem ætluð var íbúum
Arnessýslu. I auglýsingunni voru
þeir mlnntir á að greiða rafmagns-
reikningana- og ef þeir iétu sér ekki
segjast yrði gripið til þess neyðarráðs
að loka fyrir rafmagnið. Þetta þótti
mörgum furðuleg kveðj a rétt á með-
an ekkert fékkst rafmagnið - sama
hvort viðskiptavinimir voru skila-
menneðaekki.
Góðar fréttir
og slæmar
Fyrirekki
löngu var
bandarískur
glæpamaður,
semmig
minniraðhafi ;
heitiðBundy,
tekinn afliii.
Vegnaófara
Boeingflugvóla
varötilgaman-
sagtt. Húnorá
þáleiðaðdag-
innsemBundy
var liflátinn hafi honum borist bæði
góðar fféttir og slæmar. Slæma frétt-
in var sú að aftökudagurinn væri
ranrtinn upp. Góða fréttin var sú að
Bundy var tilkynnt að sérfræðingar
frá Boeingverksmiöjunum hefðu ver-
ið fengnir til að tengja stólinn. Því
miður fyrir Bundy var aðeins önnur
fréttin rétt
Tværámóti einni
Meiraafhrak-
furum iloeing.
fslenskum
blaðamönnum
varboðiðað
iskoðáBoeing-
: verksmiðjúrn-
arísíöustu
viku. Þar
reyndufram-
leiðendurnir
eðlilegaaö
verjasrimmál-
stað. Þessari
sögu fylgir hins yegar ekki hvernig
þeim tókst upp. I heimsókninni sáu
íslensku blaðamennirnir að Boeing
framleiðir tvær þotur á h veijum
þremur dögum. Rétt á meðan íslend-
ingarnir dvöldu í Seattle hrapaði ein
Boeingþota. Þá þrjá daga, sem dvalið
var, voru því framleiddar tvær þotur
- og á sama tíma hrapaði ein. Boeing-
þotum í heiminum fj ölgaði því aðeins
umeinaþessadaga.
Saumgur undir
úlfagæru
í Sandkomi í
gærvarsýnis-
hornúrþáttun-
umumBibbu
ogHalldórá
Brávallagöt-
unni. Sandkorn
hefurverið
beöiðumað
birta meira.
Hérkemurþað:
„Þaðrenna upp
á ttiatm fvatr
grímur. Mcð
íllgresi innvortis. Detta mér allar
rauðar lýs úr höfði. Reyndu nú að
hemla hatrið. Róa þvt háðum eyrura.
Reyndu að taka í hemilinn á þér.
Undlr eina bókina lært. Ríður nu
skorturinn á ósómanum ekki við ein-
hleyping. Snúin hendi í roð. Gerir
ekki fugli mein. Vertu ekki svona
fjólugrænn. Piskur undir fólsku
flaggi. Sauragur undir úliagæra. Líf-
eyrisbólgur um allan skrokk. Bíta í
það súra enni. Byrgja börnin áður en
brunnurinn dettur ofan á þau.
Draugur í my sunni Ránheiðarlegur.
Vindreisnarvon. Maður veit aldrei
hvenær þú lýgur eöa segir ósatt“
Umsjón: Sigurjón Egllsson