Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989. Stjómmál Grundvallarágreiningur er enn í vaxtamálunum Steingrimur Hermannsson og Jón Sigurðsson - Sínum augum litur hver á silfrið. Mikill ágreiningur er enn sem fyrr í ríkisstjórninni um vaxtamálin. En fyrst og fremst skulum viö skoöa, hvort moðsuða ríkisstjórnarinnar í vaxtamálunum hefur þau áhrif, sem að var stefnt. Þessi málamiðlun í stjóminni náði fram að ganga eftir mikiar þrengingar. Ríkisstjórnin lýsti markmiðum sínum í vaxtamál- um. En líklegast er, að þau gangi ekki fram. Ríkisstjórnin ætlar að keyra niður nafnvexti. Hún ætlar að koma raun- vöxtum niður, það er vöxtum um- fram verðbólgustig. En þrátt fyrir ætlun ríkisstjórinnar stefnir í, að bankarnir muni hafa vexti vel yfir verðbólgustigi. Sem sé, raunvextir verði áfram jákvæðir. Til þess að þetta breyttist þyrfti eftirspurn eftir íjármagni að breytast í landinu. Genginu er haldið vitlausu, of háu. Útflutningur og samkeppnisiðnaður berjast því i bökkum. Þessar greinar skortir tilfinnanlega lánsfé. Vissu- lega gæti ríkisstjómin nú látið Seðla- bankann setja óraunhæft þak á vexti. En bankarnir hafa ýmiss konar að- ferðir til að halda raunvöxtum uppi, þeim vöxtum sem fyrirtækin greiða í reynd. Bankarnir geta fært meira af lánum en áður yfir í skammtíma- lán og því í raun fengiö hærri vexti en ella. Bankarnir geta dregið úr heimildum til yfirdráttar og því feng- ið hærri vexti. Stefna ríkisstjórnar- innar í þessum efnum stendur veik- um grunni. Bankarnir hafa ýmsar tekjuleiðir. Þeir geta fært víxla í 30 daga víxla og tekið meira en ella. Raunvextir þurfa ekki að lækka, hvað sem rikisstjórnin segir. Þeir munu í reynd fara eftir verðbólgu- stiginu. Þegar verðbólga eykst, fara vextirnir upp í kjölfar verðbólgunn- ar. Þá er ekki séð, að lífeyrissjóðirnir gleypi við stefnu stjórnarinnar um lækkun vaxta. Með lækkun vaxta á ríkisskuldabréfum kunna þau ein- faldlega að veröa óseljanleg. Ríkis- stjómin færist mikið í fang að ætla að keyra niður vexti. En um það at- riöi er ekki samkomulag í ríkis- stjóminni. Aðeins var komist niður á fmmvörp, sem einn hagfræðingur sagði viö DV í gær, að væru hvorki fugl né fiskur. Hagfræðingurinn kvaðst ekki sjá fram á, að raunvextir lækkuðu. Það yrði ekki, fyrr en stoð- ir yrðu settar undir atvinnuvegina með réttri gengisskráningu. Þótt nú- verandi stjórn hafi tilburði til að taka upp austantjaldsstefnu með því að Sjónarhomið Haukur Helgason keyra vexti niður með handafli er hvorki samstaða um það í stjóm- inni, né eru frumvörp stjórnarinnar nógu afgerandi, til þess að svo verði. Deiltum kenningar Stjórnmálamenn deila ákaft um, hvaða kenningar eigi við hérlendis um vaxtamál. Hví skyldu viður- kenndar kenningar ekki eiga við hér? Alþýðubandalagsmenn segja, að í fjármálum ríki hér fákeppnismark- aður, það er að fáir séu sölumenn fjármagns. Það þýði, að vextir hækki hratt, þegar verðbólga gengur yfir. En vextir fari seint niður. Það sé goðsögn, að frelsi geti verið á íjármagnsmarkaðinum hérlendis. Því þurfi ríkið að koma til og koma vöxtunum niður. Þessa kenningu alþýðubandalags- manna hafa framsóknarmenn marg- ir hverjir samþykkt, einkum Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra. Steingrímur hefur jafvel talað um, að raunvextir gætu orðiö neikvæðir. Alþýðuflokksmenn hafa aðeins samþykkt þetta að hluta. Þeir hafa fallist á, að markaðurinn sé tak- markaður. En þeir hafa einungis tek- ið þátt í síðustu moðsuðu ríkisstjóm- arinnar með semingi. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra sagði í blaðagrein í gær, að þótt ríkis- stórnin telji nauðsynlegt að skerpa nú heimildir til íhlutunar í vaxta- ákvarðanir sé alls ekki þar með sagt, að stjómvöld muni binda vaxtaá- kvarðanir takmörkunum, þar til fjármagnsmarkaðurinn hafi verið opnaður. Jón Sigurðsson ræðir þar meðal annars um, að erlent fjármagn komi mun meira inn hérlendis. Þar stendur hnifurinn í kúnni. Munur stjómarliða er sá, að til dæmis al- þýðubandalagsmenn telja handafls- aðferðina um vextina gefmn hlut - búið og gert. En alþýðuflokksmenn telja, að viðskiptaráðherra sinn hafi fengið heimild, sem hann muni fara með að vild. Þetta getur orðið mikið ágreiningsefni í stjórninni. Þótt sumir haldi fram, að hérlendis eigi ekki við almennar kenningar um vexti, em jafmargir, sem segja, að þessar kenningar eigi við. Við verðum að fallast á, að framboð og eftirspurn eftir fjármagni eigi að ráða vöxtunum. Með þeim hætti leitar fjármagniö helst til hinna arðbærari hluta, sem gagnast þjóðarbúinu. Skilyrði þess er, að gæðingadýrkun ríkisbanka ráði ekki ferðinni. Bank- ar verði að standa eða falla með ákvörðunum sínum. Verði svo, munu hin arðbærari verkefni fá það fé, sem þau þarfnast. Þessi kenning ætti að gilda á ís- landi sem annars staðar. -Haukur Helgason. Ferðakostnaður hjá ríkinu Spá minni viðskiptahalla í nýrri þjóðhagsspá fyrir áriö en áður eða um 5,8 prósent. 1989 spáir Þjóðhagsstofnun aö við- Þjóöhagsstofnun spáir nú að skiptahallinn á árinu verði 9,6 þjóöartekjur muni dragast saman milljarðar. í bráöabirgöaspá í byrj- um 2,5 prósent og landsframleiðsl- unjanúargeröistofnuninhinsveg- an verði um 1,7 prósent minni en ar ráö fyrir um 14 miHjarða halla í fyrra. á viðskiptum við útiönd. Samkvæmt spá þjóöahagsstofn- Ástæðan fyrir þessum umskipt- unar mun kaupmáttur rýrna um 6 um er að nú spáir Þjóðhagsstofnun til 7 prósent frá fyrra ári. Kaup- örlítið minni samdrætti í útflutn- máttur ráðstöfunartekna rýrnar ingstekjum eða um 1 prósent og að síðan ívið meira vegna hækkunar innflutningur dragist meira saman á beinum sköttum. -gse Ríkið og ríkisstofhanir: Einn milljarður í risnu og ferðir Risnu- og ferðakostnaður ríkisins á árinu 1987 var um 750 milljónir króna eöa um 1 milljarður á verð- gildi dagsins í dag. Þetta er því svipuð upphæð og áætlað er að verja í söfn, hstir og aðra menningarstarfsemi samkvæmt fjárlögum þessa árs. Aðalskrifstofa utanríkisráðuneyt- isins hafði mestan risnukostnað allra stofnana ríkisins eða um 15 milljónir á núvirði. Á eftir fylgdu aðalskrif- stofa menntamálaráðuneytisins, að- alskrifstofa fjármálaráðuneytsins, Háskóli íslands, Alþingi og síðan aðalskrifstofur forsætis-, sjávarút- vegs og heilbrigðisráöuneytanna. Aðalskrifstofa utanríkisráðuneyt- insins greiddi hka mest í feröakostn- að erlendis en sendiráðin eru talin með henni varöandi ferðakostnað- inn. Starfsmenn Ríkisspítala fengu greiddan svipaðan ferðakostnað og utanríkisþjónustan eða um 45 mihj- ónir á núvirði. Þær stofnanir, sem höfðu mestan ferðakostnað á eftir þessum, voru Háskóhnn, Alþingi, Flugmálastjórn, aðalskrifstofa menntamálaráðuneytsins, Orku- stofnun, Vegagerð ríkisins, Iðn- brigðisráðuneytisins. tæknistofnun og aðalskrifstofa heil- -gSe DV JRJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.