Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989.
43
Afmæli
Sigurður Skarphéðinsson
Sigurður Skarphéðinsson vélvirki,
Sigtúni, Mosfellssveit, er fimmtugur
í dag. Sigurður fæddist að Minna-
Mosfelli í Mosfellssveit. Hann starf-
aði á unglingsárunum á búi foður
síns á Minna-Mosfelli en rúmlega
tvítugur hóf hann störf á Reykja-
lundi og var þar verkstjóri í plast-
röradeild. Árið 1965 hóf hann störf
hjá Dráttarvélum hf. og starfaöi þar
tú 1979 en stofnaði þá ásamt öðrum
vélaverkstæðiö ístraktor sf. sem
hann starfaöi við í nokkur ár. Sig-
urður rekur nú vélaverkstæöi í
Mosfellssveit.
Sigurður hefur starfað mikiö að
félagsmálum. Hann sat í stjórn Ung-
mennafélagsins Aftureldingar frá
1961-64, þar af formaður frá 1962-64.
Þá sat hann í stjórn Ungmennasam-
bands Kjalamesþings frá 1962-73 og
var formaður þar frá 1971-73. Sig-
urður átti um skeið sæti í skipulags-
nefnd Mosfellshrepps og er núna
formaður foreldrafélags Gagn-
fræðaskólans í Mosfellsbæ.
Kona Sigurðar er Guðrún Vilborg,
húsmóðiroglandpóstur, f. 5.5.1945,
dóttir Karls Guniúaugssonar, b. á
Birnustöðum í Ögurhreppi, og konu
hans, Guðrúnar Jónsdóttur hús-
móður.
Börn Sigurðar og Guðrúnar Vil-
borgar eru Skarphéðinn, f. 6.9.1965,
rafvirki; Karl, f. 12.10.1966, bifvéla-
virki og er sambýliskona hans
Kristín Magnúsdóttir, f. 29.4.1964,
en þau búa í Noregi og eiga einn
son, Róbert, f. 13.9.1987; Sigríður,
f. 4.9.1972, kvennaskólanemi; Guð-
mundur, f. 29.8.1973; Óskar, f. 29.8.
1973.
Systkini Sigurðar: Guðmundur,
b. á Minna-Mosfelli; Skúli, bifvéla-
virki, kvæntur Þuríði Hjaltadóttur
frá Æsustöðum í Mosfellssveit, þau
eigaþrjúbörn.
Foreldrar Sigurðar: Skarphéðinn
Sigurðsson, b. á Minna-Mosfelli, og
kona hans, Katrín Guðmundsdóttir.
Meðal hálfbræöra Skarphéðins
má nefna Gest, föður Svavars dag-
skrárgerðarmanns, ogHörð, fóður
Vilborgar, móður Marðar Árnason-
ar, ritstjóra Þjóöviljans. Skarphéð-
inn var sonur Siguröar, b. á Kára-
stöðum á Mýmm, Sigurðssonar, og
Margrétar, dóttur Sæmundar, b. í
Laxholti á Mýrum, Sæmundssonar
og Guðrúnar Ólafsdóttur.
Meðal móðursystkina Sigurðar
voru Jónína, móðir Guðmundar
Björnssonar, prófessors og augn-
læknis, Jórunn, móðir Ragnars Júl-
íussonar skólastjóra, og Guðmund-
ur, faðir Alfreðs, forstöðumanns
Kjarvalsstaða. Katrín var dóttir
Guðmundar, b. í Urriðakoti í Garða-
hreppi, Jónssonar, b. í Urriðakoti,
bróður Sólveigar, langömmu Sig-
urðar Ingimundarsonar alþingis-
manns, föður Jóhönnu félagsmála-
ráðherra.
Jón var sonur Þorvarðar, b. á
Völlum í Ölfusi, Jónssonar, silfur-
smiðs á Bíldsfelli, Sigurðssonar,
ættföður Bíldsfellsættarinnar, föður
Önnu, langömmu Þórarins Þórar-
inssonar, skólastjóra á Eiðum, föður
Ragnheiðar Helgu'borgarminja-
varðar. Móðir Guðmundar var Jór-
unn, systir Magnúsar, langafa Ell-
erts Schram. Jórunn var dóttir
Magnúsar, b. á Hrauni í Ölfusi,
bróður Guðrúnar, langömmu Stef-
aníu, móður Svövu Fells. Magnús
var sonur Magnúsar, b. í Þorláks-
höfn, Beinteinssonar, lögréttu-
manns á Breiðabólstað í Ölfusi, Ingi-
mundarsonar, b. í Hólum, Bergsson-
ar, b. íBrattsholti, Sturlaugssonar,
ættföður Bergsættarinnar.
Móöir Jóns í Urriðakoti var Guð-
björg Eyjólfsdóttir, b. á Kröggólfs-
stöðum í Ölfusi, Jónssonar, ætt-
föður Kröggólfsstaðaættarinnar.
Móðir Katrínar var Sigurbjörg,
systir Sigríðar, langömmu Harðar
Sigurgestssonar, forstjóra Eim-
skips. Sigurbjörg vár dóttir Jóns, b.
á Setbergi við Hafnarfjörð, Guð-
mundssonar, b. í Miðdal í Mosfells-
sveit, Eiríkssonar, bróður Einars,
langafa Sigríðar, móður Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Sigurbjarg-
ar var Sigríður Þórðardóttir, b. á
Reykjum í Biskupstungum, Jóns-
sonar, b. á Rafnkelsstöðum, Jóns-
Sigurður Skarphéðinsson.
sonar, lögréttumanns á Stóra-Núpi,
Magnússonar, b. í Bræðratungu,
Sigurðssonar. Móðir Jóns á Stóra-
Núpi var Þórdís Jónsdóttir biskups,
Vigfússonar (Snæfríður íslandssól).
Móðir Jóns á Setbergi var Guðbjörg
Jónsdóttir, b. í Hörgsholti, Magnús-
sonar, ættföður Hörgsholtsættar-
innar.
Sigurður tekur á móti gestum á
heimili sínu síðdegis laugardaginn
18. febrúar.
Jónatan Ólafsson
Jónatan Ólafsson, píanóleikari og
tónskáld, Skólavörðustíg24,
Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í
dag.
Jónatan fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann hóf orgelnám níu
ára hjá Árna Eiríkssyni og sótti
kvöldskóla KFUM. Seinna stundaöi
hann hljómfræðinám hjá Karli Run-
ólfssyni.
Jónatan stundaði verkamanna-
störf og síðan verslunarstörf í
Reykjavík. Hann byrjaði ungur að
leika á píanó við ýmis tækifæri og
sá hann gjarnan um undirleik hjá
bróður sínum, Erling Ólafssyni, en
með honum fór hann í hljómleikaför
til ísafjarðar og Siglufjarðar 1933.
Jónatan ílengdist á Siglufirði í sjö
ár en þar stjórnaði hann kór og
stundaði kennslu og píanóleik.
Hann flutti síðan aftur til Reykja-
víkur 1941 og spilaði þá á hinum
ýmsu skemmtistöðum bæjarins
enda var hljóðfæraleikur hans aðal-
starf í tæp þrjátíu ár.
Jónatan hóf störf hjá Reykjavík-
urborg 1952 og starfaði þar í þijátíu
og þrjú ár. Hann var fyrst í áhalda-
húsinu, sá síðan um vélabókhald,
starfaði í gjaldheimtunni og var full-
trúi í innheimtudeild þar til hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir.
Jónatan er löngu landsþekktur
fyrir sönglög sín og danslög enda
vann hann tvisvar fyrstu verðlaun
í danslagakeppni SKT og einu sinni
í samkeppni Félags íslenskra dæg-
urlagahöfunda. Meðal sígildra dæg-
urlaga hans má nefna Landlegu-
valsinn, í landhelginni og Óskir
rætast.
Á Kvöldvökunni í Ríkisútvarpinu
í kvöld mun Siguveig Hjaltested
syngja lög eftir Jónatan.
Kona Jónatans var María Fanney,
f. 15.8.1920, d. 3.1.1985, matreiðslU-
meistari, dóttir Jens Jónssonar, b.
og smiðs í Smiðjuvík á Hornströnd-
um, og Jóhönnu Jónsdóttur.
Dóttir Jónatans og Maríu er
Gýgja, húsmóðir í Garðabæ, f. 28.3.
1957, gift Guðmundi Jónssyni, skrif-
stofustjóra Sjóla hf. í Hafnarfirði,
en þau eiga tvö börn. Dóttir Jónat-
ans frá fyrra hjónabandi er Erla,
húsmóðir í Hafnarfirði, f. 16.10.1934,
gift Garðari Sigurössyni fram-
kvæmdastjóra, þau eiga sjö börn.
Albræður Jónatans: Erling söngv-
ari, f. 1910, d. 1934, og Sigurður
söngvari, f. 1916, kvæntur Valborgu
Einarsdóttur, sjúkraliða frá Miðdal.
Hálfsystkini Jónatans eru öll látin
en þau voru Sigurmundur Halldórs-
son, arkitekt og byggingafulltrúi
Reykjavíkurborgar; Guðmundur
Halldórsson, forstjóri hjá Bygginga-
félaginu Brú; Sigurborg Halldórs-
dóttir, húsmóðir í Reykjavík, og Jó-
hanna Halldórsdóttir, húsfreyja í
Eiðhúsum í Miklaholtshreppi.
Foreldrar Jónatans voru Olafur
Jónatansson, verkamaður í Reykja-
vík, f. 8.5.1880, d. 1963, og Þuríður
Jónsdóttir húsmóðir, f. 6.1.1873, d.
1941.
Bróðir Þuríöar var Halldór, faðir
Þórðar frá Dagverðará. Annar bróð-
ir Þuríðar var Vigfús, faðir Erlings
söngvara. Systir Þuríðar var Stef-
anía, móðir Jóhanns Sæmundsson-
ar, tryggingayfirlæknis og ráðherra.
Bróðir Jóhanns var Guðmundur,
faðir Hjalta dómkirkjuprests. Systir
Jóhanns er Oddfríður skáldkona,
móöir Guðmundar Ingólfssonar
píanóleikara. Önnur systir Jóhanns
var Aðalheiður, kona Símonar Jó-
hanns Ágústssonar, heimspekings
ogprófessors.
Faðir Ólafs var Jónatan, b. á Kol-
beinsstöðum, bróðir Páls, langafa
Megasar. Annar bróðir Jónatans
var Jón, langafi Jóns, föður Bjarna
Braga, aðstoðarbankastjóra Seðla-
bankans, Einvarðar, fóður Hall-
varðar ríkissaksóknara og Jóhanns
alþingsmanns, og Jónatans hæsta-
réttardómara, fóður Halldórs, for-
Jónatan Olafsson.
stjóra Landsvirkjunar. Systir Jónat-
ans var Oddný, langamma Ingvars,
föður Júlíusar Vífils óperusöngv-
ara. Jónatan var sonur Jóns „dýrö-
arsöngs", b. í Haukatungu í Kol-
beinsstaðahreppi, Pálssonar, og
fyrri konu hans, Ingibjargar Böðv-
arsdóttur.
Jónatan tekur á móti gestum í
Oddfellowhúsinu við Vonarstræti á
fóstudaginn milli klukkan 16 og
18.00.
Gunnþór Guðjónsson
Gunnþór Guðjónsson, Skólavegi 76
A, Fáskrúðsfirði, er sextíu og fimm
ára í dag. Gunnþór er fæddur á
Gvendamesi í Stöðvarfirði og ólst
þar upp. Hann var sjómaður á Fá-
skrúðsfirði frá því hann var fjórtán
ára þar til 1970 er hann stofnaði sína
eign útgerð og rak hana til 1976.
Gunnþór hefur séð um viðgerð á
netum fyrir báta og unniö hjá Pólar-
síld hf. á Fáskrúðsfirði frá 1976.
Gunnþór kvæntist 1. desember 1946,
Sigurbjörgu Guðmundsdóttur, f. 28.
nóvember 1923, fiskvinnslukonu.
Foreldrar hennar vo. a Guðmund-
ur, skipstjóri á Sætúni í Fáskrúðs-
firði, Jónsson frá Gestsstöðum í
Fáskrúðsfirði og kona hans Kristín
Indriðadóttir frá Vattarnesi. Börn
Gunnþórs og Sigurbjargar eru
Hilmar, f. 16. október 1943, sjómaður
á Fáskrúðsfirði, kvæntur Þóranni
Ólafsdóttur bankastarfsmanni og
eiga þau fjögur böm, Kristín Am-
leif, f. 6. ágúst 1946, gift Sigurgeiri
Sigurgeirssyni matsveini í Grinda-
vík og eiga þau tvö börn, Guðmund-
ur Þór, f. 22. september 1949, skip-
stjóri á Fáskrúðsfirði, Guðjón, f. 21.
maí 1951, vélstjóri á Landspítalan-
um, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur
og eiga þau fjögur börn, Eygló, f. 3.
júní 1952, framkvæmdastjóri á Eg-
ilsstöðum og á hún fjögur börn,
Rakel, f. 19. október 1958, kennari í
. Þorlákshöfn, gift Ævari Agnarssyni
fiskvinnslumanni og eiga þau tvö
börn, Rut, f. 19. október 1958, gift
Eiði Sveinssyni, skipstjóra á Fá-
skrúðsfirði, og eiga þau tvö böm,
Þorgils Garðar, f. 17. október 1964,
trésmiður á Fáskrúðsfirði og Re-
bekka, f. 31. júlí 1966, fiskvinnslu-
kona, og á hún eitt barn. Bræður
Gunnþórs voru þrír: Guðlaugur,
sjómaður á Sandbrekku í Fáskrúðs-
firði, kvæntur Aðalheiði Valdimars-
dóttur, Sigursteinn, verkamaður í
Straumsvík, kvæntur Sigurbjörgu
Marteinsdóttur, og Gestur, vakt-
maður í Straumsvík, kvæntur Þór-
unni Benjamínsdóttur.
Foreldrar Gunnþórs vom Guðjón
Ólafsson, útvegsbóndi á Gvendar-
nesi, og kona hans Arnleif Stefáns-
dóttir. Guðjón var sonur Ólafs, b. á
Gvendarnesi, Erlendssonar, b. á
Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði, Þórðar-
sonar. Móðir Erlendar var Sigríður
Erlendsdóttir, b. á Ásunnarstööum,
Bjarnasonar, ættföður Ásunnar-
staðaættarinnar. Móðir Ólafs var
Helga Þorsteinsdóttir, b. á Ásunnar-
stöðum, Erlendssonar, bróður Sig-
ríðar.
Arnleif var dóttir Stefáns, b. á
Grund í Stöðvarfirði, Björnssonar,
b. i Bakkagerði, Jónssonar, b. á
Þverhvamri í Breiðdal, Bjarnason-
ar, b. á Þverhamri, Stefánssonar,
b. á Þverhamri, Magnússonar,
prests á Hallormsstað, Guðmunds-
Gunnþór Guðjónsson.
sonar. Móðir Stefáns Magnússonar
var Kristín Pálsdóttir, prófasts á
Valþjófsstað, Högnasonar og konu
hans Þóru Stefánsdóttur, prófasts
og skálds á Vallanesi, Ólafssonar,
prófasts og skálds á Kirkjubæ í
Tungu, Einarssonar, prófasts og
skálds í Heydölum, Sigurðssonar.
Móðir Stefáns Bjömssonar var
Lukka Stefánsdóttir, b. á Snæ-
hvammi, Þórðarsonar, b. á Ósi í
Breiðdal, Gíslasonar prests í Hey-
dölum, Sigurðssonar. Móðir Stefáns
Þórðarsonar var Þóra Stefánsdóttir,
systir Bjarna á Þverhvammi.
Tll hamingju
með daginn
90ára 40 ára
Kristin Sigurðardóttir. Sviöholti, Bessastaðahreppi. Kristín tekur á móti gestum laugar- daginn 18. febrúar á heimili dóttur sinnar, Lyngbrekku 9 í Kópavogi. Halldór Guðlaugsson, Aðalstræti 28, Akureyri. Jónina Ásgeirsdóttir, Hafiiartúni 16, Siglufirði. Gísli Jónmundsson, Gullteigi 12, Reykjavík.
60 ára
Sigriður Guðjónsdóttir, Miötúni 19, Isafirði. örn Amarson, Hlíöartúni 18, Höfn í Homafirði.
50 ára Ragnar Þorvaldsson, Hraunbæ 62, Reykjavik.
Aðalheiður Karlsdóttir, Laufvangi 7, Hafnarfirði. Guðrún Guðmundsdóttir, Lyngholti 1, ísafiröi.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur aímælisböm og aðstandendur þeirra
til að senda því myndir og upplýsingar um frænd-
garð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi
þremur dögum fyrir afinæbð.
Munið að senda okkur myndir.