Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989.
11
Hætta við kaup
á norskum laxi
Björg Eva Eriendsdóttir, DV, Ostó:
Samningur milll Norömanna og
Svía um sölu á norsknm laxi hefur
runnið út í sandinn. Viðbrögö Svía
eru mótmæli gegn norskum sel-
veiöum og norska fyrirtækið tapar
14 til 15 milljónum norskra króna.
í>etta er íyrsta beina tapið í pening-
um sem Norðmenn verða fyrir
vegna selamálsins en varla þaö síð-
asta.
í Tromsö héldu selveiðimenn,
Ahugi Karis Gustafs Svíakonungs
á veiðum og útiveru er vei þekkt-
ur. Ummæli hans nú um seiveiðar
Norðmanna hafa vakið gífuriega
hneykslan í Noregi.
gagnrýninnar og töldu sannleiks-
gildi myndar Odds Lindbergs held-
ur lítiLð. Ráöuneytisstjóri norska
sjávarútvegsins telur ekki ráðlegt
að hefla upplýsingaherferö um sel-
veiðarnar. „Slíkt myndi trulega
hafa Öfug áhrif og aðeins gefa sel-
og hvalfriðunarsamtökum aukinn
byr undir báða vængi og meiripén-
inga í kassann,“ segir ráðuneytis-
stjórinn. „Viöbrögðin gegn selveið-
um byggjast á tilfinningasemi og
firringu stórborgarfólks sem ekki
þekkir náttúruna. Skynsamleg rök
eiga ekki upp á pallborðið," segir
hann. Hingað til hafa norsk yfir-
völd heldur ekki viljað tala af sér
í selamálinu. Ráðherrar og stór-
þingsmenn þegja þunnu hljóði og
bíða eftir því að storminn lægi.
En Svíarnir þegja ekki. í gær-
kvöldi mótmælti einnig landbún-
aðarráðherra Svíþjóðar seladráp-
inu og stöðug mótmæli berast ffá
Sviþjóð. Síðustu daga hefur þó
sænski kóngurinn verið aðalper-
sónan. Hann þegir ekki én hefði að
flestra dómi átt að þegja í þetta
sinn.
Norskir stjómmálaflokkar frá
vinstri til hægri sameinast í þög-
uili hneykslan á hegðun Karls
Gústafs Svíakóngs sem þykir með
þessu móti hafa brotið hlutleysi
og blandað sér í pólitík ná-
grannaþjóðar með ósæmilegum
hætti. Svíar sjálfir eru heldur ekki
af ummælum kóngsins.
Sumum finnst nú of langt gengið
og eitt helsta dagblað Svia varar
köldu stríöi milli Svíþjóðar og
Noregs.
En kóngurinn, sem sjálfur er á-
kafur jveiðimaöur, stendur fast á
sínu. í fyrrasumar lenti sá hinn
sami kóngur í leiðindamáli og var
ákæröur vegna þess að hann sigldi
lystisnekkju sinni á miklum hraöa
gegnum selavöðu í skerjagarðinum
fyrir utan Stokkhólm. Þessi saga
var auövitað riijuð upp núna og
norsku blöðin voru yfirfull af skop-
myndum og skítkasti gegn sænska
kónginum. .
Heilög reiði á
Vesturlöndum
Vestræn ríki fordæmdu í gær íran
vegna áskorunar Khomeinis erki-
klerks um að breski rithöfundurinn
Salman Rushdie verði drepinn.
Útvarpið í Teheran skýrði hins
vegar frá því í gær að verðlaun fyrir
útlending, sem drepur höfimd
Söngva Satans, hefðu verið hækkuð
upp í tvö hundruð milljónir íslenskra
króna og að bankareikningur hefði
verið stofnaður til að gefa fólki kost
á að gefa frjáls framlög til að stækka
verðlaunapottinn. írani, sem nær að
drepa Rushdie, fær þrjú hundruð
milljónir.
í Vatíkaninu sagði Salman Ghaff-
ari, sendiherra írans, að hann væri
tilbúinn til að framkvæma verknað-
inn.
„Ég er múhameðstrúarmaður og
sem slíkir eru allir múhameðstrúar-
menn skyldugir til að framfylgja
dóminum," sagði hann í viðtali við
trúarlegt tímarit á Ítalíu.
Khomeini hefur skipað múhameðs-
trúarmönnum að drepa Rushdie á
þeim forsendum að bók hans sé guð-
last gegn múhameðstrú.
Talsmenn Bandaríkjanna sögðu í
gær að þau væru hneyksluð á hótun-
um írana og vöruðu við því að þær
gætu einungis skaðað líkurnar á
bættu samkomulagi Bandaríkjanna
og írans.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í Hollandi í
gær að Bandaríkin væru andvíg
hryðjuverkum í öllum myndum,
sérstaklega hryðjuverkum sem ein-
stök ríki stæðu á bak við.
Bretar vöruðu írana í gær við því
að eðlileg samskipti milh ríkjanna
væru óhugsandi á meðan íranska
ríkisstjórnin virti ekki alþjóðlegar
hegðunarreglur.
Evrópuþingið í Strasburg fór fram
á harðar refsiaögerðir gagnvart írön-
um og valdbeitingu til að draga menn
til ábyrgðar ef Rushdie eða útgefend-
um hans verður sýnt banatilræði.
Hans van der Broek, utanríkisráð-
herra Hollands, aflýsti fyrirhugaðri
heimsókn sinni til írans síðar á þessu
ári og sagði að það væri vegna ger-
samlega óþolandi hvatninga um al-
þjóðleg hryðjuverk.
Útgefendur, sem hafa tryggt sér
útgáfurétt á verki Rushdie, eru
beggja blands í sambandi við áætlan-
ir sínar um útgáfu bókarinnar.
Finnskir og ítalskir útgefendur segj-
ast munu halda áfram eins og ekkert
hafi ískorist. Franskir, spánskir og
vestur-þýskir útgefendur ætla að
bíða og sjá til.
Stjórnmálafræðingar segja að hóf-
'söm öfl í íran, sem hafa vUjað vinna
að betra sambandi við Vesturlönd,
hafi orðið fyrir áfalli. Þá er einnig
talið að íranir hafi ekki fyrirfram
gert sér grein fyrir því hve gífurlega
athygli og reiði drápstal þeirra
myndi vekja.
Ríki múhameðstrúarmanna hafa
ekki tekið undir með íran um að
Rushdie sé réttdræpur. Kuwait-
menn, sem eru í forsæti í ráðstefnu-
samtökum múhameðstrúarríkja,
hafa visað frá kröfu írans um að
haldinn verði neyðarfundur um
Rushdie-málið.
Lögreglan í Bombay á Indlandi
lýsti í morgun yfir neyðarástandi eft-
ir að hótun barst um að breskar flug-
vélar og indverskir góðborgarar
yrðu fyrir sprengjutilræðum þar til
Rushdie kæmi úr felum. Reuter
Sher Azam, varaformaður Þjóðarráðs múhameðstrúarmanna í Bretlandi
og írlandi, sagði eftir ákall Khomeinis erkiklerks um drápið á Rushdie að
öll mótmæli gegn Söngvum Satans yrðu að vera í samræmi við landslög.
Símamynd Reuter
Mótmæla
vegna komu
Georges Bush
Helstu samtök andófsmanna í Suð-
ur-Kóreu tilkynntu í morgun að þau
myndu efna til mótmæla gegn
Bandaríkjunum í Seoul og öðrum
borgum fyrir heimsókn Bush Banda-
ríkjaforseta til landsins þann 27.
febrúar næstkomandi. Andófsmenn
mótmæla heimsókninni á þeim for-
sendum að hún styrki stöðu Roh
Tae-Woo, forseta Suður-Kóreu.
Mótmælin eiga að hefjast með
íjöldagöngu á morgun í Seoul. Mót-
mælendur ráðgera einnig að standa
við bandaríska sendiráðið á meðan
heimsóknBushvarir. Reuter
Stöðugur vörður er við menningar-
miðstöð Bandarikjanna í Kwangju í
Suður-Kóreu. Simamynd Reuter
Urval
Tímarit fyrir alla
Quentovic er fundinn
- en hvað var Quentovic? Á árunum upp úr 700 var hún helsta
verslunarborg þess markaðsbandalags sem þá var í Evrópu.
Listin að gefa
Þetta er aðeins sýnishom af því sem er að lesa í Urvali núna. Askriftarsíminn er
Náðu þér í hefti strax á næsta blaðsölustað. pam
uzz
- því fleiri hugmyndir sem maður gefur öðrum, því meira skiljum
við eftir okkur, þegar öllu er á botninn hvolft.
Kókaínkóngurinn
- SAGA AF ILLMENNI.
- Þetta er saga af harðsvíruðum glæpamanni sem' hafði Hitler að
fyrirmynd og stefndi að því að koma vestrænni menningu á kné
með því að eitra fyrir henni - í bókstaflegri merkingu.
Hve lengi tekur sjórinn við
- Strendumar eru að fara á kaf - í sorpi og úrgangi. Við verðum
að gera eitthvað í málinu.
Rithöndin afhjúpar okkur
- rithöndin okkar er lykillinn að persónuleikanum. Skilningur á
henni getur létt okkur lífið, bæði sem einstaklingum og í samfélagi
við aðra.