Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Síða 25
FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989.
41
Kaupmenn eru á einu máli um að
snjómokstursskófiur og sköfiur hafi
selst í mjög miklu magni að undan-
fórnu. Á sumum stöðima er afiitlu
að taka og úrval nánast ekkert því
mest allt hefur selst. Þómunu vör-
ur vera væntanlegar. Á nokkrum
stöðum voru til steypuskóflur og
segja menn aö slík verkfæri dugi
best þegar snjór er frosinn. DV
kannaði úrval og verð á snjómokst-
ursverkfærum í nokkrmn verslun-
um.
Hjá Byggt og búið í Kringlumii
var sagt að jafnskjótt og skóflur
kæmu í verslunina „hyrfu þær eins
og dögg fyrir sólu“. Þar var aðeins
hægt að fá eina tegund af snjó-
skóflu með kúptu blaði - hún er
ætluð fyrir harðan snjó og kostar
um 1.500 krónur. Ástandið var
svipað hjá Byko, þar sem aðeins
var til ein tegund af álskóflum,
svipuð steypuskótlum. og kostar
hún 1.488 krónur. Von var á vörum
af þessu tæi í þessar tvær verslan-
ir. Sömu sögu var aö segja hjá
versluninni Ziemsen.
í byggingavöruversluninni Gos
við Nethyl var mest til af snjóm-
okstursverkfærum af þeim stöðum
sem kannaðir voru. Þar er hægt
að fá fjórar tegundir af snjóskóflum
sem henta bæði fyrir bíla og heimil-
i. Til voru tvær tegundir af álskófl-
um með stuttu skafti og kosta þær
báðar 1.280 kr. Álskóflur með löngu
skafti kosta 1.400 og 1.485 krónur.
Steypuskóflur kosta 1.180 krónur
og ísskafa 1.300 kr. Einnig er hægt
að fá stóran snjó-strákúst fyrir 470
krónur.
Hjá Húsasraiðjunni voru til
í Húsasmiðjunni var aöeins til ein
tegund af snjóskóflum úr álí á
1.200 kr., sköfur á 1.200 og 1.400
krónur og snjókústur á 800 krónur.
tvenns konar sköfur. Önnur er
sterkleg og kostar 1.400 krónur, hin
er viöaminni og kostar 1.200 kr.
Aðeins var til ein tegund af snjó-
skóflum og kostar hún 1.200 krón-
ur. í versluninni voru uppseldar
hentugar álskóflur sem kostuðu
1.000 krónur og voru þær væntan-
legar.
I Ellingsen voru til sterkar snjó-
skóflur úr áli á 1.543 kr. Einnig
voru til bílskóflur með stuttu skafti
á 1.344 kr. Strákústar eru þarna á
útsölu og kosta þeir 398 kr. með
skafti.
Á flestum sölustöðum þessara
verkfæra var ráölagt að nota ekki
venjulegar álskóflur þar sem fros-
inn snjór er. í þannig tilfellum er
heppiiegra að nota steypuskóflu
eða íssköfu. -ÓTT
ar er lítiö ettlr af slíkum vörum. Þessl mynd ©r tekin f versluninni Gos.
Þar eru til stuttar álskóflur á um 1.200 krónur, stórar álskóflur á um
1,400 krónur, isskafa á 1.300 krónur, stór snjókústur ó 470 krónur og
steypuskófla (fyrir froslnn snjó) á 1.160 krónur. DV-myndir KAE
LífsstQl
< r\>, v‘V'.A y.V . Í"\.< 'y
HpH
„Hvar er bíllinn minn?“ Þeir sem finna ekki bilinn sinn geta athugað málið í Holtaporti við Miklagarð eða hringt
til lögreglunnar. DV-myndir KAE
Bíllinn er horíinn!
- var honiim stolið?
Að undanfömu hafa margir bif-
reiðaeigendur uppgötvað að bílar
þeirra hafa horfið af þeim stöðum
þar sem þeim var lagt. „Lagði ég
honum ekki örugglega þarna?“
spyrja menn. Mörgum dettur fyrst í
hug að bíl þeirra hafi verið stolið.
Eftir að hafa gengið úr skugga um
að bíllinn sé örugglega ekki á svæð-
inu er oftast hringt til lögreglunnar
- bjargvættar bíleigenda.
„Já, lögreglan, góðan dag.“
- Góðan dag, getur þú nokkuð sagt
mér hvort þið hafið einhveijar upp-
lýsingar um bílinn minn sem er horf-
inn, hann stóð við...
Svarið er oftast á þá leið að lögregl-
unni hafi borist beiðni frá SVR,
Reykjavíkurborg vegna snjóruðn-
ings eða eigendum bílastæða sem
finnst að sér hafi verið misboðið.
í tilfeflum sem þessum hefur lög-
regluembættið samband við einka-
aðila sem annast brottflutning bíl-
anna hveiju sinni. Þessiþjónustufyr-
irtæki færa bílana í eigin geymslu-
port og þangað er fólki bent á að vitja
þeirra. Þegar eigendur koma svo
dauðfegnir til að fá bílinn sinn aftur
eru þeir krafðir um greiðslu - fyrir
þjónustuna. Og þá hleypur sumum
kapp í kinn.
Fólk hefur gengið
berserksgang
Steinar Gunnsteinsson, verkstjóri
hjá Vöku, sagði í samtah við DV að
yfirleitt væri lítið um „stapp“ þegar
verið væri að leysa bíla út. „Þetta
getur þó verið nokkuð skrautlegt.
Það hefur gerst að menn hafi gengið
berserksgang og rutt um húsgögn-
um. En haíi lögregla ákveðið að mis-
tök hafi ekki átt sér stað verður að
borga,“ sagði Steinar.
„Mér finnst hafa verið meira um
brottflutning bíla að undanförnu en
verið hefur á síðustu árum. Þetta
hefur stafað af ófærðinni og vanda-
málum vegna snjóruðnings. Svo hafa
bílar verið að bila hér og þar vegna
slæms ástands - þá er bara lagt ein-
hvers staðar við vegkantinn. Þegar
færðin er svona slæm önnum við
ekki öðrum tilfellum - við náum ekki
að fjarlægja númerslausa bíla og
þess háttar.
„Allt vitlaust að gera“
Hjá Einari Finnssyni fengust þær
upplýsingar að á þeim bæ „hefði ver-
ið vitlaust að gera að undanförnu,
sérstaklega þegar mest snjóar“. Ein-
ar sagði að mikið hefði verið beðið
um aðstoð frá umferðardeild vegna
þess að bílar væru fyrir snjóruðn-
ingstækjum. „í þannig tilfellum fær-
um við bíla á nærliggjandi bílastæöi
og borgar þá lögreglustjóraembættiö
flutninginn. En séu bílar fyrir og
þeirra ekki vitjað þegar veðrið geng-
ur niður eru þeir færðir í Holtaport
við Miklagarð," sagði Einar.
„Að öðru leyti er mikið um tilfefli
þar sem eigendur bílastæða óska eft-
ir brottflutningi bíla af eign sinni.
Eru þá viðkomandi t.d. -búnir að
halda stæði sínu snjófríu og gremst
þegar einhver annar er kominn í
stæðið." Einar segir að þegar brott-
flutnings sé óskað verði viðkomandi
að fylla út beiðni sem staðfest er af
lögreglunni - þá fyrst má flytja bíl í
burtu.
„Við erum búin að starfa við þetta
í á sjötta ár. Langalgengustu tilfellin
eru þegar bílar eru færðir í burtu til
að opna leið fyrir snjóruðningstæk."
sagði Einar.
-ÓTT
Algengustu ástæður þess að beðið er um að bilar séu fjarlægðir eru vegna snjóruðnings, þeir eru fyrir strætó
eða þeir eru á einkalóð í óþökk eigenda.
Hvað þarf að borga mikið?
I Holtaport við Miklagarð eru
þflar fluttir vegna stöðubrota og
óska gatnamálayfirvalda og lög-
reglu þess efnis. Það minnsta sem
menn komast af með að borga er
2.300 krónur. í þeirri upphæð felst
1.500 króna flutningsgjald (að degi
til) og 800 króna afhendingargjald.
Sé bíllinn tekinn að nóttu til kostar
flutningsgjald 2.300 kr. Við þetta
getur svo bæst 500 króna sekt lög-
reglunnar. Þegar bíllinn hefur ver-
ið geymdur í meira en sólarhring
bætist við 400 króna geyinslukostn-
aður á dag. Svæðið við Holtaport
er vaktað. Þess má geta að uppboð
eru haldin vegna bifreiða sem bún-
ar eru að standa í meira en mánað-
artíma í portinu. Fer ágóði upp í
geymslukostnað. -OTT