Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1989, Page 29
LAUGARDAGUR 4. MARS 1989.
41
LífsstOl
Hvað kostar flug og bíll?
Úrval Samv./Lands. Útsýn Arnarflug
Verðið er uppgefið af ferðaskrif-
stofunum og miðað'við eftirfarandi
forsendur:
- Fariðverðieftir l.júní 1989ogferð-
in taki 3 vikur.
- Miðað er við fjóra í bíl þar af tvö
börn á aldrinum 2-12 ára.
- Bíll í verðflokki A, það er ódýrasta
tegund.
- Bílnum sé skilaö aftur á sama stað
og hann var leigður á.
- Verðin sem gefin eru uþp fyrir
Hamborg og Amsterdam koma til
með að hækka þann 1. apríl þar sem
Arnarflug hefur enn ekki geflð út
sumarverðskrá.
Innifalið í verði allra er flug og bíll,
ótakmarkaður akstur, söluskattur og
kaskótrygging.
Flugvallargjald og slysatrygging eru
hins vegar ekki innifalin í verðinu.
Flug og bíll:
Svipað verð hjá
ferðaskrifstofuniim
Ferðamátinn flug og bíll nýtur sí-
vaxandi vinsælda meðal íslendinga.
Nær allar ferðaskrifstofur hér á
landi bjóða upp á þennan ferðamögu-
leika svo og flugfélögin. Þegar DV
kannaði verð á þessum ferðum í hð-
inni viku kom í ljós að verðlagningin
virðist í flestum tilvikum vera mjög
svipuð eins og sést á meðfylgjandi
súluritum.
Skýringin á því er að hluta til sú
að flugfélögin bjóða upp á stöðluð
flugfargjöld. Bílaleigurnar eru að
vísu mismunandi en í flestum tilvik-
um er boðið upp á nýja eða mjög
nýlega bíla og þjónusta þeirra er í
mörgum tilvikum með sama sniði.
Sú aðstoð, sem flestar ferðaskrif-
stofurnar og flugfélögin bjóða, er
einnig í flestum tilvikum lík. Ef ósk-
að er, er fólk aðstoðað við val á ferða-
leiðum og bókanir á gistingu og það
getur einnig í sumum tilvikum fengið
bæklinga yfir skemmtilega áningar-
staði sem á leið þeirra verða þó ekki
sé það algilt.
Sessur, burðarrúm
ogbílstólar
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) hefur og reynst fólki mjög
hjálplegt varðandi ferðamátann flug
og bíl. FÍB hefur meðal annars staðið
fyrir námskeiðum í samvinnu við
Umferðarráð og fleiri aðila fyrir þá
sem hyggja á akstur um Evrópu.
Einnig veita þessir aðilar upplýsing-
ar um tryggingar, hvers konar öku-
skírteini þurfa að vera með í fartesk-
inu ásamt ýmsum öðrum hagnýtum
upplýsingum.
Fyrir þá sem ferðast með börn er
hægt að fá leigðar sessur, bílstóla og
buröarrúm í bíhnn en í flestum til-
vikum þarf að hafa einhvern fyrir-
vara á því og vera búin að panta það
fyrirfram og fyrir þessa hluti þarf að
greiða aukagjald.
Ótakmarkaðir
Hvað er skemmtilegra en geta stansað hvar sem hugurinn girnist og til
dæmis ef maður rekst óvænt á skemmtilegan útimarkað.
ferðamöguleikar
Ferðamátinn flug og bíll býður
upp á nær ótakmarkaða möguleika
í vali á leiðum og skoðunarferðum.
Hægt er að skipuleggja ferðina út
í æsar fyrirfram, velja ökuleiðir,
áætla hversu lengi á að dvelja á
hverjum stað og láta ferðaskrifstofur
eða flugfélög bóka fyrir sig hótel og
sumarhús á leiðinni. Svo er hins veg-
ar hægt að fljúga út í bláinn, kaupa
sér kort og keyra þangað sem hver
hefur löngun til.
Hins vegar ætti fólk að hafa í huga
æth það í óskipulagða ferð að vanda-
mál með gistingu gætu skotið upp
kolhnum, sérstaklega um hásumar-
ið. Þá má hafa þann möguleika í
huga að taka með sér tjald og gista
á tjaldstæðum sem mörg hver eru
afskaplega vel búin víða um Evrópu
eða gista á litlum sveitagististöðum.
Þó að fólk vilji ekki gera stíf plön
varðandi ferðalagið skal þó á það
bent að með því að vera búin að lesa
sér til um helstu áningarstaði og gera
lausleg plön er hægt að fá mun meira
út úr ferðinni en eha.
Takið tillit
til barnanna
Svo ætti fólk að hafa í huga að
ætla sér ekki um of, 150-200 kíló-
metra dagleiðir eru hámark, sérstak-
lega ef börnin eru með.
Þegar htil börn eru með í bílnum
þarf einnig að skipuleggja ferðina
miklum mun betur. Þegar hótel eða
sumarhús eru valin er gott að vera
búin að kynna sér upp á hvers konar
aðstöðu þau bjóða fyrir börn. Til
dæmis að ganga úr skugga um hvort
sundlaug er á staðnum eða hvort ein-
hver leikaðstaða er fyrir hendi. Oft
á tíðum er einnig hægt að fá upplýs-
ingar um hvort hótehn eru vinsam-
leg í garð barna með því að skoða
hótelskrár því í þeim er oft að flnna
klausur þar að lútandi.
Það er einnig sniðugt að velja akst-
ursleiðir þar sem sundlaugar, dýra-
garðar eða einhver leiksvæði fyrir
böm eru á leiðinni því það er gott
fyrir krakkana að fá að hreyfa sig
sem oftast.
Svo er sjálfsagt að hafa nægt les-
efni í bílnum fyrir böm, til dæmis
um þau héruð og lönd sem ekið er
um, leikfóng, til dæmis púsluspil,
láta þau færa dagbók yfir ferðina og
svo framvegis. Einnig er mjög þægi-
legt að hafa segulband og nokkrar
skemmtilegar barnasögur á hljóð-
snældum, það dreifir huganum og
róar börnin í bílnum. -J.Mar
Ferðamátinn flug og bíll nýtur sifellt meiri vinsælda.