Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1989, Page 30
4?
LAU GARDAGUR ,4.. MABS4989.
Skák
Stórmótið 1 linares:
Ivanchuk er efstur
fyrir lokaumferðina
- Balashov sigraði á Fjarkamótinu
Sovéski stórmeistarinn Júri Balashov sigraði á Fjarkamóti Skáksambands íslands. Myndin er tekin að Hótel
Loftleiðum þar sem Fjarkamótið fór fram.
Er Sovétmaðurinn Vassily Ivanc-
huk efni í heimsmeistara? Þessu
velta skákunnendur nú fyrir sér
eftir frábæra frammistöðu hans til
þessa á stórmótinu í Linares, sem
lýkur í dag. Ivanchuk er aðeins 19
ára gamall og sjötti stigahæsti stór-
meistari heims, með 2635 stig, á
eftir Kasparov, Karpov, Short, Spe-
elman og Beljavsky.
Er einni umferð var ólokið í Lin-
ares er Ivanchuk efstur og Karpov
næstur. Innbyrðis skák þeirra í 10.
umferð lauk með jafntefli eftir 30
leiki. Ivanchuk hefur 7 v. af 9
mögulegum, Karpov hefur 5,5 v. og
biðskák. Staðan var annars nokkuð
óljós vegna íjölda biðskáka, sem
teíla átti í gærkvöldi. Ljubojevic
hafði 4,5 v. og tvær biðskákir, Ju-
supov 4 v. og eina biðskák (hann
situr yfir í síðustu umferð), Tim-
man og Short 3,5 v. og tvær bið-
skákir, Gulko og Portisch 3,5 v. og
eina biðskák, Jóhann Hjartarson
og Beljavsky 3 v. og eina biðskák
hvor og Sokolov rak lestina með 3
v.
Jóhanni Hjartarsyni hefur ekki
vegnað sem skyldi en hann hefur
þó átt góða spretti. Hann gaf bið-
skák sína viö Ivanchuk úr 9. um-
ferð án þess að tefla hana áfram
og skák hans við Timman úr 10.
umferð fór í biö. Það er teflt með
„gömlu tímamörkunum“ í Linares,
sem skýrir hinn mikla fjölda bið-
skáka - hlé er gert á skákinni eftir
40 leiki eða fimm tíma setu, en nú
tíðkast að tefla í sex tíma, sextíu
leiki.
Vassily Ivanchuk komst fyrst í
sviðsljósið er hann varð Evrópu-
meistari unglinga 1987. Hann vann
mikið afrek í fyrra er hann varð
einn efstur á opna mótinu í New
York og nældi sér í tuttugu þúsund
dah fyrir vikið. Hann tefldi í sov-
ésku ólympíusveitinni í Þessalón-
iku. Við skákborðið er hann dáhtið
furðulegur í hátt; horfir oft á tíðum
út í loftið og snýr upp á yfirskegg-
ið, eins og hann sé annars hugar.
Sagt er að hann sé furðufugl mik-
ih. Ýmsir telja að það ætti ekki að
koma aö sök, því að dæmi um létt-
geggjaða heimsmeistara séu vissu-
lega fyrir hendi og kannski fleiri
heldur en hin.
Skoðum tvær skákir frá mótinu.
Fyrri skákin er athyghsverð vegna
þess að þar eigast við væntanlegir
mótherjar í heimsmeistarakeppn-
inni - Anatoly Karpov og Artur
Jusupov. Þeir munu heyja einvígi
síðar á árinu í London, ásamt Spe-
elman og Timman, en þessir fjórir
tefla nú um réttinn til að skora á
heimsmeistarann Kasparov. Er
skemmst frá að segja aö Karpov fer
heldur létt með landa sinn. Skákin
bendir til þess að Jusupov verði
Karpov ekki sérlega erfiður.
Við látum skák Ivanchuk við
Timman einnig fljóta með. Hún
sýnir beittan og markvissan
skákstíl Sovétmannsins. Ivanchuk
fær betri stöðu eftir byrjunina og
heldur Timman í greipum sér.
Hann teflir skemmtilega í lokin. í
stað þess að seilast eftir peði, held-
ur hann stöðuyfirburðunum og
þegar peðið svo loks er dæmt til
að faha gefst Timman upp.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Artur Jusupov
Hollensk vörn
1. c4 f5 2. d4 Rf6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7
5. Rc3 d6 6. Rf3 0-0 7. 0-0 c6
Byriunarleikimir einkennast
vafalítið af sálfræðilegum skæru-
hernaði. Hvorugur vill ljóstra upp
um leynivopn fyrir væntanlegt
áskorendaeinvígi. Þess vegna velur
Jusupov leik sem falhö hefur í
skugga vinsæla kostsins, 7. - De8
og Karpov er einnig snöggur að
vikja frá hefðbundnum leiðum.
Algengast er 8. d5, sem leitt getur
th mikiha sviptinga.
8. b3 Dc7
Kannski er svartur of fljótur að
velja drottningu sinni stað. Hvitur
getur nú ógnað henni úr fjarlægð
Skák
Jón L. Árnason
með hrók sínum. Til greina kemur
8. - a5 strax.
9. Ba3 a5 10. Hcl Ra6 11. Dd2! Bd7
12. Hfel Rb4 13. Bb2 e5?
Karpov hefur komið mönnum
sínum haganlega fyrir, þannig að
hann eigi hægt með að mæta þess-
ari framrás. Jusupov gætir sín ekki
á þessu.
14. a3 Ra6 15. dxe5 dxe5
16. Rb5! cxb5 17. cxb5 Rc5
Svartur á ekki annað. Ef drottn-
ingin víkur sér undan fellur á a6
og síðan á e5 og svarta staðan hryn-
ur.
18. Bxe5 Db6 19. Bxf6 Bxf6 20. Dd5 +
Re6 21. Dxd7 Had8
Jusupov hefur áreiðanlega séð 16.
leik Karpovs fyrir en tahð hann
ekki ganga vegna þessa svars.
Drottning Karpovs á sér ekki und-
ankomu auðið en næsti leikur
breytir myndinni. 22. Hc6! Hxd7
Eftir 22. - bxc6 23. Dxe6 + Kg7 24.
bxc6 hefur hvítur þrjú peð gegn
skiptamun og fahega stöðu. Svart-
ur verður því að sætta sig við upp-
skipti á drottningum en jafntefhs-
hkumar í endatafhnu eru hverf-
andi.
Bridge
Hörkubarátta um meistara-
titil Bridgefélags Reykjavíkur
Bridgefélag Reykjavíkur
Nú er lokiö 5 umferðum af 7 í aðal-
sveitakeppni félagsins sem spiluð er
með Monradsniði. Sveit Pólaris er
sem fyrr með forystu en sveit Braga
Haukssonar er ekki langt undan.
Sveit Pólaris er skipuð þeim Erni
Arnþórssyni, Guðlaugi R. Jóhanns-
syni, Guðmundi Páli Arnarsyni, Þor-
láki Jónssyni, Karli Sigurhjartarsyni
og Sævari Þorbjarnarsyni. Staða
efstu sveita er þannig:
Það er tvísýn barátta um meistaratitil
Bridgefélags Reykjavíkur því þegar ein
umferð er eftir eiga sjö sveitir möguleika
á að vinna titilinn.
Röð og stig efstu sveitanna fyrir úrslita-
umferðina er þessi:
1. Samvinnuferðir-Landsýn 110
2. Delta 110
3. Pólaris 109
4. Bragi Hauksson 108
5. Flugleiðir 105
6. Eiríkur Hjaltason 104
7. Modem Iceland • 103
8. Sigfús Ámason 96
Ekki verður spilað næsta miðvikudag
vegna undankeppni íslandsmótsins.
Sveitir Pólaris og Delta áttust við í síð-
ustu umferð og vann sú síðamefnda góð-
an sigur. Spilið í dag átti stóran þátt í þvi.
V/Allir.
♦ G65
V Á954
♦ -
+ DG8752
♦ D102
V G106
♦ ÁKD106
+ 94
* Á983
V K872
♦ G972
+ Á
* K74
V D3
♦ 8543
4» K1063
í lokaöa salnum sátu n-s Hörður Am-
þórsson og Gylfi Baldursson en a-v Guö-
laugur R. Jóhannsson og Öm Amþórs-
son.
Bridge
ísak Sigurðsson
Þar gengur sagnir á þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
1T pass 1H pass
1G pass 3G pass
pass pass
Þessi samningur var dauðadæmdur
með laufi út og n-s fengu 200.
í opna salnum sátu n-s Guðmundur
Páll Amarson og Karl Sigurhjartarson
en a-v undirritaður og Símon Símonar-
son.
Sagnir tóku aðra stefnu:
Vestur Norður Austur Suöur
1T pass 1H pass
1G pass 3T pass
3H pass 3S pass
4T pass 5T pass
pass pass
Guðmundur Páll valdi gott útspil sem
var hjartafimma.
Hann var hins vegar óheppinn með
sagnhafa því Símon kannaðist eitthvað
við handbragðið og stakk upp kóngnum.
Þá kom lítið tromp á ásinn og síðan
spaðadrottning. Lítið frá norðri, litiö úr
bhndum og suður átti slaginn á kónginn.
Hann spilaði nú hjartadrottningu og
Guðmundur gætti ekki að sér og gaf. Það
var allt sem Símon þurfti. Hann tromp-
aði lauf í blindum, tók trompin og svín-
aði spaða. Ellefu slagir og 600 í viðbót til
Delta sem græddi 13 impa á spilinu.
1. Pólaris 101
2. Bragi Hauksson 93
3.4. Modern Iceland 88
3.4. Delta 88
5. Hótel Höfn 86
6. Samvinnuferðir/Landsýn 85
Bridgefélag Breiðfirðinga
Fimmta kvöldið af átta í hinni vin-
sælu barómeterkeppni félagsins var
spiluð.
Nú er lokið 35 umferðum af 55 í
hinni vinsælu barómeterkeppni fé-
lagsins og hafa Hahgrímur Hall-
grímsson (Sigmundur Stefánsson) -
Sveinn Sigurgeirsson endurheimt
fyrsta sætið í keppninni og náð nokk-
urri forystu. Þeir skoruðu heil 216
stig síðasta spilakvöld.