Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1989, Side 36
48
Fordkeppnin:
LAUGARDAGUR 4. MARS 1989.
Tíu glæsilegar stúlkur í úrí
- sem kynnt verða í Vetrarbrautinni á miðvikudagskvöld
Tiu ungar og fallegar stúlkur hafa verið valdar til að keppa
til úrslita um titilinn Ford-stúlkan 1989. Nú er beðið eftir mið-
vikudagskvöldinu 8. mars en þá fara úrslit fram í hinum glæsi-
lega sal, Vetrarbrautinni, í Þórscafé. Stúlkurnar tíu eru kynnt-
arhérásíðunum.
Myndirnar eru teknar eftir að þær höfðu fengið til liðs við
sig frábært fagfólk Hárs og snyrtingar, Hverfisgötu 105, þeirra
Báru Kemp, Ara Jóhannssonar og Ólafar Ingólfsdóttur. Eins
og sjá má tókst snyrting og hárgreiðsla afburða vel, þannig að
allir voru ánægðir. Þá má geta þess að Ljósmyndastofa Reykja-
víkur, sem er á sömu hæð og Hár og snyrting, lánaði ljósmynd-
ara DV stúdíó. Allt hjálpaðist því að með að myndatökumar
tækjust sem best eins og lesendur sjá.
Stúlkurnar tíu munu hitta Bill Ford, son Eileen Ford, á mánu-
dag og þriðjudag en það er hann sem velur sigurvegara á mið-
vikudagskvöld. Úrslitakvöldið er eingöngu fyrir boðsgesti og
verður gestum boðið upp á kampavín, snittur og fleira góð-
gæti áður en úrslitastundin rennur upp. Það verður ekki létt
Margrét Knútsdóttir.
v<
Margrét Knútsdóttir
Margrét Knútsdóttir er Keflvíkingur, fædd 23. janúar 1973.
Hún er í níunda bekk grunnskólans í Keflavík. Áhugamálin
eru margvísleg, s.s. íþróttir og lestur góðra bóka. Margrét æfir
eróbikk fjónim sinnum í viku auk þess sem hún stundar hand-
bolta. Þá er hún mikið í félagsmálum í skólanum og hefur setið
í nemendaráði í þrjú ár. Hún ætlar sér að verða læknir í fram-
tíðinni. Foreldrar hennar em Elín Guðmundsdóttir og Knútur
Höiriis. Margrét er 1,75 sm á hæð.
Regina Jensdóttir.
Regína Jensdóttir
Regína Jensdóttir er Reykvíkingur, fædd 18. nóvember 1968.
Hún er á fyrsta ári í lögfræði í Háskóla íslands og stefnir að
því að starfa sem lögfræðingur í framtíðinni. Áhugamálin em
skíðaíþróttin og ferðalög. Regína segist hafa ferðast mikið en
hún bjó í Bandaríkjunum í þijú ár er faöir hennar var í fram-
haldsnámi í tannlækningum. Regína segist alltaf hafa haft
áhuga fyrir fyrirsætustörfum. Foreldrar hennar eru Kristín
Sigurgeirsdóttir og Jens Jensson. Regína er 175 sm.
Iillí Karen Wdowiak
Lillí Karen Wdowiak er Reykvíkingur. Hún er fædd 10. maí
1971. Lillí starfari bakaríinu Kökumeistarinn við Gnoðarvog.
Hún tók sér frí frá námi til að safna peningum en fyrirsætu-
störf heilla hana mikið. Lillí hefur kynnst fyrirsætustörfum í
gegnum frænku sína, Helgu Melsted. Lillí hefur starfað nokkuð
með Karon-samtökunum. Áhugamál hennar eru myndlist og
tónlist. Foreldrar hennar eru Valborg Bjarnadóttir og Ludvik
Duke Wdowiak. Lillí er 1,76 sm á hæð.
Harpa Iðunn Sigmundsdóttir.
Harpa Sigmundsdóttir
Harpa Iðunn Sigmundsdóttir er Reykvíkingur, fædd 15. maí
1973. Hún er í níunda bekk Laugalækjaskóla. Harpa er ekki
alveg ákveðin með framtíðina en hefur áhuga á að fara í Versl-
unarskólann á næsta ári. Áhugamálin eru tónlist og ferðalög.
Hún hefur ferðast talsvert um Evrópu. Harpa hefur mikin
áhuga á fyrirsætustörfum og hefur starfað með Karon-samtök-
unum. Foreldrar hennar eru Hrafnhildur Vilhjálmsdóttir og
Sigmundur Kristjánsson. Harpa Iðunn er 178 sm.
Sólveig Franklínsdóttir
Sólveig Frankb'nsdóttir er Reykvíkingur, fædd 4. nóvember
1968. Hún er við nám í Fjölbrautaskólanum í Breiöholti. Sól-
veig ætlar að ljúka stúdentsprófi og hyggur síðan á nám í lög-
fræði í Háskóla íslands. Áhugamál hennar eru tónlist en Sól-
veig hefur lært á píanó og fiðlu. Sólveig fór á módelskóla í
París. Síðan hefur hún starfað með Módelsamtökunum. For-
eldrar hennar eru Guðrún Austmar Sigurgeirsdóttir og Frankl-
ín Friðleifsson. Sólveig er 1,78 sm.
Margrét Grímsdóttir.
Maigrét Grímsdóttir
Margrét Grímsdóttir er Reykvíkingur, fædd 13. apríl 1971.
Hún er í Menntaskólanum við Sund og hefur ákveðið að ger-
ast annaðhvort sálfræðingur eða dýralæknir. Áhugamálin eru
öll dýr og skíði. Margrét segist hafa mikinn áhuga á fyrirsætu-
störfum og hefur t.d. starfað sem módel hjá hárgreiðslustofu.
Margrét bjó um fjögurra ára skeið í Skotlandi þar sem faðir
hennar nam örverufræði. Foreldrar hennar eru Kristín Jóns-
dóttir og Grímur Valdimarsson. Margrét er 178 sm á hæð.
6' s V <!