Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Blaðsíða 6
6
Útlönd
Prínsessan missir
endajaxlana
Díana, prinsessan af Waies, lét
taka úr sér alla fjóra endajaxlana
í gær. Aögerðin tók eina og hálfa
klukkustund og fór fram á
sjúkrahúsi. Búist er við aö prins-
essan verði í tvo daga á sjúkra-
húsinu til að jafna sig eftir að-
gerðina.
Talsmaður Buckinghamhallar
sagöi að aðgerðin, sem einka-
tannlæknir prinsessimnar fram-
kvæmdi, hefði heppnast vel og að
ekkert óvænt hefði komið upp.
Eiginmaöur Díönu, Karl Breta-
prins, fór í fyrrakvöld með syni
þeirra hjóna í frí í höll konungs-
fjölskyldunnar í Balmoral í Skot-
landi.
Gorbatsjov í
hádegismat
Elísabet Englandsdrottning
hefur boðið Gorbatsjov Sovétleið-
toga og Raisu, konu hans, í hádeg-
ismat þegar þau heimsækja Bret-
land í næstu viku.
Um þrjátíu manns hefur verið
boðið í hádegisverð næstkomandi
fóstudag í Windsorkastala í ná-
grenni London, að sögn tals-
manns drottningarinnar.
Opinber heimsókn Gorbatsjovs
til Bretlands hefst 5. apríl næst-
komandi, fjórum mánuðum eftir
að jarðskjálftamir í Armeníu
neyddu hann til að fresta ferö
sinni til Bretlands.
í breskum fjölmiðlum hefur
verið leitt aö þvi getum að Gor-
batsjov muni bjóða drottning-
unni að heimsækja Sovétríkin.
Skíði á reikningnum
Sænskir skattrannsóknarmenn
sögðust í gær vera að velta fyrir
sér hvers vegna fyrrum yfirmaö-
ur rannsóknariimar á morði
Olofs Palme hefði sett leigu á
skiðura og kort í skíðalyftu á
kostnaðarreikning sinn er hann
vann við að reyna aö fmna morö-
ingja Palmes.
„Við verðum aö finna þann sem
heimilaði þennan kostnað til að
spyrja hann hvort það sé ekki
nokkuð undarlegt að setja kostn-
að sem þennan á kostnaöarreikn-
ing,“ sagði Per-Erik Wall hjá
skattrannsóknarskrifstofunni
sænsku.
Skrifstofan og umboðsmaöur
borgaranna eru nú að yfirfara
kostnaðarreikninga Hans Holm-
ers, fyrrum iögreglusijóra, sem
hafði yfirumsjón með rannsókn-
inni á morði Palmes sem var
myrtur í lok febrúar 1986.
Kostnaður Holmers varð um
eitthundrað og fimmtíu milijónir
íslenskra króna. Að sögn Dagens
Nyheter fór sumt af peningunum
í íþróttaiðkun og kaup á bókum,
sem í fljótu bragöi er erfitt að sjá
að hafi gegnt hlutverki við rann-
sóknina.
Holmer var rekinn i janúar 1987
eftir aö í ljós kom aö kenning
hans um aö vinstri sinnaöir
Kúrdar stæöu á bak við morðið
stóðst ekki.
Fötín voru dép
Spánska lögreglan skýrði frá
því í gær að hún heföi handtekið
þrjár manneskjur, grunaðar um
aö hafa smyglaö kókaíni tíl Spán-
ar í klæðum sem voru mettuð af
eiturlyfjum.
Þremenningamir, spænsk hjón
og Bólivíumaöur, voru hand-
teknir á miðvikudag á heimili
hjónanna í Barcelona. Lögregian
lagði hald á jakkaföt, tvennar
buxur, þijú handklæöi og fieira
klæðakyns. Voru öll fótin mettuð
efni sem notað er til að búa til
kókafn.
„Svo viröist sem þau hafi verið
í fótunum þegar þau fóru í gegn-
um tollskoðun,“ sagði talsmaður
lögreglunnar.
Þremenningamir, sem höfðu
komið upp aðstöðu til vinnslu eit-
urlyfja í íbúöinni, heföu getað náð
finun kílóum af kókaíni út úr fót-
unum. Reuter
LAUGARDAGÚR 1. APRÍL 1989.
Reagan þarf ekki
að bera vitni
Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, er nú kominn til Kaliforníu eftir átta ár
i Hvíta Húsinu. í gær úrskurðaði dómari í Washington að hann þyrfti ekki
að koma til Washington til að bera vitni i máli Olivers North.
Simamynd Reuter
Ronald Reagan, fyrrnm forseti
Bandaríkjanna, mun ekki verða
neyddur tíl að bera vitni í íran-
kontra réttarhöldunum yfir Oliver
North, samkvæmt úrskuröi dómara
í gær.
Gerhard Gesell, dómari í málinu
yfir North, hafnaði rökum verjanda
Norths um að vitnisburður Reagans
væri nauðsynlegur til að réttarhöld-
in yrðu sanngjöm gagnvart skjól-
stæðingi hans.
„Þrátt fyrir að það sé að sjálfsögðu
almennur áhugi á því að fá að vita
hvað forsetinn kann að hafa vitað
aða gert er eðli réttarhaldanna yfir
North slíkt að ekki er nauðsynlegt
að fá fram vitnisburð forsetans,"
sagði Gesell í úrskurði sínum.
Gesell sagði að verjendum Norths
hefði mistekist að sýna fram á að
vitnisburður Reagans væri nauðsyn-
legur.
„Rétturinn úrskurðar að hvorki
North né málflutningsmaður hans
hafi fært fram nein þau gögn sem
réttlæti það aö Reagan forseta verði
stefnt fyrir rétt,“ segir í úrskurðin-
um.
Lögfræðingar Norths fóru fram á
að Reagan yrði stefnt fyrir rétt með
þeim rökum að hann hefði gefið leyfi
árin 1985 og 1986 fyrir þvi að vopn
yrðu seld til íran og ágóðinn af þeirri
sölu látinn renna til kontraskærulið-
anna í Nicaragua þrátt fyrir að þá
hafi verið í gildi bann frá þinginu við
framlögum til skæruliðanna.
Lögfræðingar Reagans og dóms-
málaráðuneytið héldu því fram að
framburður forsetans fyrrverandi
gæti stofnaö þjóðaröryggi í hættu ef
hann missti út úr sér leynilegar upp-
lýsingar í „hita leiksins".
Gesell hefur margoft haldið því
fram að hann heföi fullt vald til að
skylda Reagan til að bera vitni við
réttarhöldin yfir North þrátt fyrir að
enginn bandarískur forsetí eða fyrr-
verandi forseti hefði nokkurn tíma
verið skyldaður til að bera vitni í
máli sem þessu.
í niðurstööum sínum segir Gesell:
„Það hefur ekkert komið fram sem
sýnir fram á að vitnisburður Reag-
ans sé nauðsynlegur til að tryggja
North ofursta réttlát réttarhöld.
Reuter
Gorbatsjov Sovétleiðtogi sagði við
Ali Akbar Velayati, utanríkisráð-
herra írans, í gær að sovésk stjóm-
völd Utu svo á að íran væri „eftír-
sóknarvert bandalagsríki" og að
bætt samband ríkjanna gætí haft
áhrif á gang heimsmála.
„Við lítum á íran sem eftirsóknar-
vert bandalagsríki,“ sagði Gor-
batsjov, að sögn Tass fréttastofunn-
ar. „Bætt samskipti Sovétríkjanna
og írans geta einnig haft mikil áhrif
á alþjóðavettvangi."
Samband ríkjanna hefur batnað
stórlega eftír að Sovétríkin hófu að
flytja eitt hundrað þúsund manna
her sinn frá Afganistan. Brottflutn-
ingnum lauk 15. febrúar.
Báðir aðilar hafa fagnað hinu nýja
tímabili samvinnu ríkjanna eftir
heimsókn Sévardnadses, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, til Teheran
í síðasta mánuði. Þar hittí hann með-
al annars Khomeini erkiklerk, trúar-
leiötoga írana.
Tass skýrði frá því að í viðræöum
sovéskra ráðamanna við Velayati
hefði náðst samkomulag um að Rafs-
anjani, forsetí íranska þingsins,
heimsæki Moskvu í sumar.
Gorbatsjov skýrði Velayati einnig
frá afstöðu Sovétríkjanna í málefn-
um Afganistan, Mið-Austurlanda og
Persaflóa, að sögn fréttastofunnar.
Tass sagði að báðir aðilar hefðu
orðið sammála um að samband ríkj-
anna væri komið á nýtt og betra stig.
Tass sagði að Sovétmenn hefðu tek-
ið fram að þótt íran hefði ekki form-
lega átt aðild að samkomulaginu á
síðasta ári um brottflutning sovéska
hersins frá Afganistan þá ynnu íran-
ir nú að því að koma í veg fyrir blóð-
bað í landinu.
íranir vilja að Afganir myndi óháða
ríkisstjóm múhameðstrúarmanna.
Sovétmenn krefjast þess að háttsettir
menn úr leppstjóm Najibullahs eigi
sæti í nýrri ríkisstjóm Afganistans.
Reuter
Ali Akbar Velayati, utanríkisráðherra írans, ásamt Eduard Sévardnadse,
utanrfklsráöherra Sovétrikjanna, I Moskvu I gær. Simamynd Reuter
íranir eftirsóknarverðir bandamenn
Minnast aldar-
afmælis Hitíers
Bæjarbúar í austurríska bæn-
um Braunau, þar sem Adolf Hitl-
er fæddist fyrir eitt hundrað
árum, ætla að minnast tilefnisins
með því að setja upp minnisvaröa
gegn fasisma fyrir utan húsið þar
sem nasistaleiðtoginn illræmdi
eitt sinn bjó.
Talsmaöur bæjarráðs Braunau
sagði í gær að eins metra hár
steinn úr graníti, sem tekinn er
úr Mauthausen útrýmingarbúð-
unum, sem vom í Austurríki,
muni verða settur upp fyrir fram-
an húsið þar sem Hitler fæddist
fyrir hundrað árum. Á steininum
mun standa: „Pyrir frið, frelsi og
lýðræði - Aldrei aftur fasisma -
Milljónir fómarlamba era okkar
áminning."
Hitler fæddist í bænum þann
20. apríl 1889 og bjó þar fyrstu
æviár sín.
Upphaflega hafði veriö fyrir-
hugað að setja skilti á húsið en
eigandi þess fékk því afstýrt með
dómi á þeim forsendum að slíkt
skilti gætí orðið til þess að ráöist
yrði á húsið.
Nýnasistar hafa farið í píla-
grímsferðir til hússins, sem upp-
haflega var gistíheimili. Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 13-15 Vb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 11-17 Vb
6mán. uppsögn 11-19 Vb
12 mán. uppsögn 11-14,5 Ab
18mán. uppsögn 26 Ib
Tékkareikningar, alm. 2-8 Vb
Sértékkareikningar 3-17 Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb
Innlánmeðsérkjörum 24 Bb.Vb,- Ab
Innlángengistryggð
Ðandarikjadalir 8.5-9 Ib.Vb
Sterlingspund 11.5-12 Sb.Ab
Vestur-þýsk mörk 4,75-5,5 Sb.Ab
Danskarkrónur 6,75-7,25 Bb.Sp,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 23-27 Úb
Viöskiptavíxlar(fonr.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 18-29,5 Úb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 27-31 Úb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,75-9,25 Lb.Bb
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 20-29,5 Úb
SDR 10 Allir
Bandarikjadalir 11,75 Allir
Sterlingspund 14,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 7.75-8 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 24
MEÐALVEXTIR
óverötr. mars 89 16.1
Verðtr. mars 89 8,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala apríl 2394 stig
Byggingavísítala mars 424 stig
Byggingavísitala mars 132,5 stig
Húsaleiguvisitala Hækkar iaprl
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
Einingabréf 1 3,656
Einingabréf 2 2,046
Einingabréf 3 2,389
Skammtimabréf 1,264
Lifeyrisbréf 1,838
Gengisbréf 1,667
Kjarabréf 3,660
Markbréf 1,937
Tekjubréf 1,657
Skyndibréf 1,117
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóösbréf 1 1,755
Sjóðsbréf 2 1.437
Sjóösbréf 3 1,244
Sjóðsbréf 4 1,032
Vaxtasjóðsbréf 1.2484
HLUTABRÉF
Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 138 kr.
Eimskip 400 kr.
Flugleiðir 292 kr.
Hampiðjan 157 kr.
Hlutabréfasjóður 153 kr.
Iðnaðarbankinn 179 kr.
Skagstrendingur hf. 226 kr.
Útvegsbankinn hf. 137 kr.
Verslunarbankinn 152 kr.
Tollvörugeymslan hf. 132 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað viö sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viöskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nojtkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýöubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.