Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Page 8
8
LAUGARDAGUR 1. APRlL 1989,
Daníel Ágúst Haraldsson, sigurvegari í söngvakeppninni:
Þroskaður söngvari
með mikla hæfileika
Það er von að Daníel Ágúst setji hönd undir kinn. Að sögn félaga hans varð sigurinn að vissu leyti áfall fyrir hann. „Hann er ákveðinn og veit hvað hann vill.“
- segja þeir sem þekkja hann
Sigrinum fylgja lika ýmsar breytingar. Allt i einu er enginn friður fyrir faðmlögum.
Daníel Ágúst Haraldsson, nítján
ára nemandi í Menntaskólanum í
Reykjavík, bar sigur úr býtum ásamt
lagahöfundinum Valgeiri Guðjóns-
syni í söngvakeppni Sjónvarpsins.
Daníel Ágúst er nær óþekktur
söngvari sem skýst nú upp á stjörnu-
himininn eins og Halla Margrét
Ámadóttir gerði fyrir tveimur árum,
þá einnig með Valgeiri Guðjónssyni.
Daníel hefur þó fengist við söng á
opinberum vettvangi undanfarin tvö
ár með hljómsveitinni Nýdönsk.
En hver er þessi hárlausi ungi
maður sem virðist svo grafalvarleg-
ur á svip. Helgarblaðið ræddi við
nokkra aðila sem þekkja strákinn og
fékk þá til að segja lesendum nánar
frá honum. Sjálfur var Daníel ófús í
viðtal, að minnsta kosti meðan hann
er að jafna sig á úrshtum, enda mik-
ið að gera þar sem hann stendur í
flutningum og næstu vikur enn ó-
ráðnar.
Faðirinn söngvari
„Eg tók fyrst eftir Daníel sem
söngvara í hljómsveitinni Nýdönsk.
Steinar gaf út tvö lög með henni á
plötunni Frostlög fyrir síðustu jól og
það urðu mín fyrstu kynni af hon-
um,“ sagði Pétur Kristjánsson tón-
hstarmaður sem nú vinnur hjá
hijómplötuútgáfunni Skífunni.
„Ég varö strax mjög hrifmn af þess-