Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 1. APRÍL' 1989. 39 p yfir fslandi man eftir sér. „Móðir mín hefur sagt mér að þegar ég var smápatti fékk ég lánaðan dúk til að hafa fyrir hempu og stóð svo uppi á borði og tónaði,“ segir Ólafur. „Auðvitað komu tímabil þegar ég efaðist um að prestsstörf ættu við mig en þegar kom að því að velja nám eftir stúd- entspróf þá var guðfræðin það eina sem höfðaði til mín.“ Ólafur tók stúdentspróf frá Versl- unarskólanum sem ekki er algeng undirbúningsmenntun fyrir verð- andi guðfræðinga. „Það var tilviljun sem réð því að ég fór í Verslunarskól- ann,“ segir Ólafur. „Eftir að ég ákvað að lesa undir inntökupróf í mennta- skóla leitaði ég til manns sem hafði nýlokið prófi frá Verslunarskólanum og bað hann að lesa með mér undir prófið. Hann spurði hvort mér væri ekki sama þótt við læsum saman undir inntökupróf í Verslunarskólann. Ég sagði að mér væri alveg sama enda var mér sama í hvaða skóla ég færi. Ég ætlaði mér bara í framhaldsnám og sé ekki eftir að hafa farið í Versl- unarskólann. Það hefur oft komið sér vel að þar náði ég ágætum tökum á vélritun og var þar í úrvalsflokki. Eina skiptið sem ég hef komið fram opinberlega sem tónlistarmaður var þegar við vorum fimm látin spila á ritvélar á skemmtun í gamla Sjálf- stæðishúsinu. Hvorki fyrr né síðar hefur tónlistargáfa mín fengið að njóta sín. Mér datt þó aldrei í hug að leggja fyrir mig verslunarstörf eða neitt slíkt. Ég ætlaði alltaf að verða prestur." Ákafurvið spilaborðið Á Verslunarskólaárunum mynd- aðist bridgehópur sem haldið hefur saman í fjörutíu ár. Ólafur er þar manna ákafastur við spilámennsk- una. „Meiningin er að spila saman einu sinni í viku yfir vetrarmánuð- ina en við náum því ekki alveg,“ seg- ir Ólafur. „Þetta er góður hópur þótt það komi fyrir að"Við rifumst yfir spilum eins og vera ber. Einn vinur minn hefur kallað okkur prestana „atvinnugóðmenni" en ég leyfi mér í spilum að kveða fast að. Ég hugsa að ég sé manna grimmastur í hópn- um. Ég spila líka badminton reglulega og þeir sem með mér eru segja að ég missi stundum út úr mér orð sem ekki sæmi presti. Ég vísa því alger- lega á bug en viðurkenni að stynja stundum með ákveðnum tilþrifum. Ég fæ mikla útrás í þessu og líka góða hvíld.“ Klumsa í miðasölunni Þessu til viðbótar er Ólafur tíður gestur í sundlaugunum í Laugardal. Hann kom þar snemma morguns daginn sem talið var í biskupskjör- inu enda spenntur vegna væntan- legra úrslita. „Mér var sagt að kon- umar í miðasölunni í laugunum hefðu sjaldan orðið meira hissa á ævinni en þegar ég birtist eld Séra Ólafur Skúlason og Ebba Sigurðardóttir í blómahafinu sem barsf inn á heimilið eftir að úrslit í biskupskjörinu lágu fyrir. „Ég hef aldrei séð annað eins,“ segir Ólafur. DV-myndir GVA snemma til að fara að synda,“ seg- ir Ólafúr. „Þær voru svo klumsa að þær heilsuðu mér ekki einu sinni. „Er maðurinn virkilega svona ör- uggur með sig að hann fer að synda eins og hann hafi ekki áhyggjur af nokkrum sköpuðum hlut,“ sagði vin- ur minn, séra Árni Pálsson, mér eft- ir þeim. Ég er fjarri því að vera góður sund- maður en mér finst mjög þægilegt að svamla um og gleyma öllu. Eg geng líka mjög mikið og setti mér það strax og ég kom hér í sóknina að ganga sem mest. Ég geng alltaf í kirkjuna þegar veður leyfir. Vinir mínir við Langagerðið sögðu mér eftir að úrslitin í kosningunni voru ljós að nú mundu þeir sakna þess að sjá mig ganga framhjá glugg- unum. Þeir báðu mig að koma hingað öðru hverju og ganga Langagerðið til að halda hefðinni. Ég er mjög ná- kvæmur á tíma - mikill mínútumað- ur - og það getur vel verið að þeir hafi stillt úrin sín eftir mér.“ Aðstoðarprestur og kirkjuvörður Ebba og Ólafur eiga þrjú börn. Dæturnar Guörún Ebba og Sigríður eru farnar að heiman er Skúli Sig- urður er enn í hreiörinu og les lög við háskólann. Þær fæddust í Da- kota. Fjölskyldan hefur búið á þriðja áratug í Gerðunum og á heimilinu voru mörg prestsverk unnin áður en Bústaðakirkja var vígð árið 1971. „Ebba var hér aðstoðarprestur og kirkjuvörður áður en kirkjan kom,“ segir Ólafur. „Hér í stofunni fóru margar athafnir fram. Ég gifti hér marga tugi hjóna og skírði fjölmörg börn. Ebba var bæði kórinn og org- anistinn og hún benti mér á að það væri betra að hún syngi bara ein því ég ruglaði sönginn. Hér stóð hún helgi eftir helgi, gætti barna, tók á móti fótum og söng.“ Hætti ekki að segjabrandara Ólafur vill fá orð hafa um breyt- ingar á embætti biskups eftir að hann tekur við. „Auðvitað er ég með ákveðnar hugmyndir um breytingar, annars hefði ég ekki gefið kost á mér,“ segir Ólafur. „En það er affara- sælast að láta framtíðina leiða þær í ljós smátt og smátt. Kirkjan er ekki stofnun sem tekur stökkbreytingum við mannaskipti. Hinu má þó ekki gleyma að sá er hollastur brautryðj- endunum sem lætur ekki hlekkja sig í fjötra fortíðarinnar. Það á að læra af fortíöinni en um leið verður að horfast í augu við hvert vandamál eins og það birtist. Það getur þurft að leysa þau nú eftir öðrum leiðum en áður dugði.“ En hvað sem líður öllum breyting- um á kirkjunni undir stjóm Ólafs eða á högum fjölskyldunnar þá verður eitt þó óbreytt. „Ég ætla seinast af öllu að hætta að segja brandara. Létt- lyndið má ekki gleymast þótt störfin séu alvarleg,“ sagði séra Ólafur Skúlason. -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.