Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Page 28
40
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989.
Handknattleikur unglinga
- Unglingasíðan ræðir við nokkra þjálfara um íslandsmótið og fleira
Nú þegar líða tekur að lokum Is-
landsmótsins er rétt að staldra við
og velta fyrir sér hvort við séum á
réttri leið og hvort eitthvað megi
betur fara.
Við hringdum í nokkra þjálfara og
báðum þá að segja áht sitt á núver-
andi fyrirkomulagi og hverju þyrfti
að breyta. Einnig voru þeir beönir
um að koma með hugsanlegar leiðir
til þess að auka áhuga kvenna á
íþróttinni og hver væri þeirra skoð-
un á fyrirkomulagi mótsins fyrir
yngstu aldursflokkana.
Eitt voru menn allir sammála um
en það er að breyta þarf úrslita-
keppninni. En svör þeirra og hug-
leiðingar um mótið koma hér á eftir:
-MagnúsTeitsson, þjálfari
2. flokks karla hjá Stjörnunni:
„Ég er alls ekki sáttur við hvemig
fyrirkomulagið er núna. Ég vil
breyta úrslitakeppninni á þann veg
að liöin séu öll í einum riðli og allir
spili við alla. Þetta gætu verið 8-10
lið. Einnig vil ég að úrslitin verði
leikin á tveimur helgum og það er
alls ekki nauðsynlegt að hafa þau
endilega á sama stað. Með þessu
móti fæst eðlilegt álag á leikmenn og
þetta verður ekki spurning um
heppni eða óheppni hvaða hð verður
íslandsmeistari eins og hefur skeð.
Eins og leikið er núna getur lið tekið
með sér þrjú stig í úrslitin þó það
hafi ekki gerst þetta árið og þá sjá
allir að það skiptir öllu máli að lenda
ekki með þessu liði í riðli í úrshta-
keppninni.
Það er líka spurning sem menn
verða að velta fyrir sér hvort ekki á
að breyta fyrirkomulaginu í 2. flokki
karla og kvenna, þannig að þessir
flokkar leiki í deildum eins og meist-
araflokkarnir. Það væri hægt að hafa
þrefalda umferð sem dreiföist yflr
aht árið. Það er töluverð óánægja hjá
þessum krökkum með núverandi
fyrirkomulag og orðið tímabært að
breyta því.
Það er mín skoðun að leggja eigi
niöur íslandsmót í yngstu flokkun-
um en hafa einhvers konar tamir í
staðinn. Þessi mót geta verið með
svipuðu móti og Tommamótið í
knattspymu og geta félögin sent
fleiri en eitt hð til keppni, til þess að
sem flestir verði virkir.
Að lokum vil ég kannski minnast
aðeins á kvennahandboltann. Það er
orðið mikið áhyggjuefni hversu fáar
stelpur stunda orðið handknattleik.
Menn verða að setjast niður og fara
að leita að leiðum th þess að rífa
hann upp og gera meira aðlaðandi."
-Lárus H. Lárusson, þjálfari
4. flokks kvenna hjá Fram
„Ég vh byrja á því að minnast á úrsli-
takeppnina. Það er skoðun mín og
fleiri þjálfara hjá Fram að breyta
úrslitunum þannig aö allir leiki við
aha. Eins og leikið er núna er það
ahtof mikil thviljun hvaða hð verður
íslandsmeistari. Eins og fyrirkomu-
lagið í úrshtakeppninni er núna er
þetta eins konar bikarkeppni. Liðin
geta þess vegna unnið alla leiki sína
yfir keppnistímabhið og komist í úr-
shtaleik og tapað honum á móti hði
sem hefur ef til vill tapað tíu leikjum.
Þetta nær engri átt. Þá vh ég að regl-
an um stigin haldi sér, en lið geti þó
aðeins tekið með sér tvö stig í úrshta-
keppnina.
I sambandi við yngstu flokkana vh
ég leggja íslandsmótið í núverandi
mynd niður. Ég er starfandi í milli-
þinganefnd á vegum HSÍ sem fjallar
um þessi mál og mun nefndin leggja
fram tillögur sem eru í þessa átt á
komandi ársþingi. Nefndin hefur
ekki lokið störfum þannig að ég vil
ekki úttala mig um þessi mál á þessu
stigi.
Varðandi kvennaboltann er það að
segja að hann er á mikilli niðurleið
og selpurnar sjálfar verða að gera
eitthvað í þessu máh. Það eru þær
einar sem geta rifið hann upp. En
það mætti hugsa sér að bæta við ein-
hvers konar úrvali í 4. flokki kvenna
og þetta úrval spilaði og æfði saman.
Þannig myndu stelpurnar kynnast
betur innbyrðis og væru tilbúnar að
leggja meira á sig. Þetta lið gæti orð-
ið grunnur að 16 ára landsliði síðar
meir.“
- Þorsteinn Jóhannesson,
þjálfari hjá Víkingi
„Það er engin spurning meö það að
við verðum að breyta úrslitunum.
Ég vil að átta lið leiki til úrslita og
þá verði leikið frá fimmtudegi til
sunnudags, alhr við alla. Eins og fyr-
irkomulagið er núna vinnur besta
höið ekki endhega. Það eina sem þú
sérð með núverandi fyrirkomulagi
er hvaða fjögur th fimm lið eru best.
Það er eitt atriði sem ég vh breyta
hjá 2. flokki karla og kvenna. Til
þess að minnka álag á þessum flokk-
um tel ég að rétt sé að stytta leiktím-
ann. En ég vil endilega halda áfram
að leika í törnum eins og nú er gert.
Menn hafa verið að tala um að leika
í deildakeppni og dreifa leikjum yfir
aht keppnistímabihð, að minu mati
--------------------------------
• Þessi lið Stjarnan og Þór Ak ætla sér vafalaust stóra hluti um næstu helgi og verður fróðlegt að fylgjast með
framvindu mála úti I Vestmannaeyjum.
Urslitin halda
áfram um helgina
Um þessa helgi fara fram úrshtin
í 5. flokki karla og kvenna. Ef að lík-
um lætur verður aht lagt í sölumar
th þess að ná í íslandsmeistaratith-
inn eftirsótta. Unglingasíðan vhl
hvetja foreldra og aðra aðstandendur
th þess að fjölmenna og fyljast með
þessari keppni sem verður örugglega
hin fjörugasta og eflaust verður mik-
ið um óvænt úrslit.
úrshtin fara fram sem hér segir.
5. flokkur karla A-úrslit verða leik-
in í Vestmannaeyjum.
5. flokkur karla B-úrsht verða leik-
in á Akranesi.
5. flokkur kvenna A-úrsht verða
leikin í Seljaskóla.
■ Ekki eru leikin B-úrslit í 5. flokki
kvenna.
væri það skref afturábak og lið
myndu fara að segja sig úr keppni
eins og hefur verið að gerast í 3.
deildinni.
Varðandi kvennahandboltann held
ég að næsta skref verði að koma frá
félögunum sjálfum. Það eru mörg
félög sem kasta th hendinni við val
á þjálfurum hjá kvenfólkinu enda
sýnir það sig fljótlega í árangri og
starfi þessara félaga. Maður veit þess
dæmi að félögin byrji á því að velja
karlaþjálfara og síðan eru einhverjir
sem ekkert vit hafa á þjálfun fengnir
th að þjálfa kvenfólkið. Þessu verða
félögin að breyta strax ef árangur á
að nást.“
Eyjólfur Bragason, þjálfari hjá
ÍR
„Ef ég byrja á því að minnast á fyrir-
komulag íslandsmótsins eru nokkur
atriði sem ég vil breyta. í fyrsta lagi
vil ég endurvekja forkeppnina vegna
þess að ég tel ekki sanngjarnt að lið
þurfi að byrja í neðstu dehdunum
vegna þess að næsti árgangur á und-
an stóð sig ekki sem skyldi. Þá vil
ég fella niður stigagjöfina. Með því
móti fær þjálfarinn meiri frið th þess
að þjálfa hðið markvisst. Einnig
fengju fleiri leikmenn tækifæri á að
spreyta sig. Eins og þetta er núna eru
það yfirleitt sjö til átta leikmenn sem
spila bróðurpartinn af öllum leikjum
og hinir sitja meira og minna á
bekknum allan veturinn.
Varðandi yngstu flokkana vil ég að
félögin fái að senda fleiri en eitt lið
th keppni og reynt verði að skapa
þeim fleiri verkefni, t.d. með því að
halda ýmis konar smámót og þetta
geta félögin gert sjálf því nú er
íþróttahúsum að fjölga og gefur það
ýmsa möguleika.
Ég hef ekki starfað mikið að
kvennahandbolta en það er greini-
lega eitthvaö mikið að. Ef það á nást
upp sterkur kvennahandbolti á ís-
landi verðum við að byrja á allra
yngstu flokkunum og byggja handa-
boltann markvisst upp frá þeim,
öðruvísi næst ekki árangur.
Mig langar að lokum til þess að
minnast aðeins á dómaramálin sem
ég tel í hinum mesta ólestri. Ég hef
þá skoðun að félögin eigi að senda
eitt dómarapar með hverjum flokki.
Með því móti fáum við hlutlausa
dómgæslu en ekki þessa rosalegu
heimadómgæslu sem er að tröllríða
unglingahandboltanum. Einnig vil
ég að leikmenn í 2. flokki verði látnir
taka dómarpróf þannig að ekki verði
skortur á dómurum. Með því móti
læra þeir reglurnar almennilega og
hætta þá kannski að röfla í dómur-
um.“
- Jóannes Bjarnason, þjálfari
hjá KA
„Frá okkar sjónarhóh hér fyrir norð-
an verður einhver breyting að verða
á mótinu. Með núverandi fyrirkomu-
lagi lendum við í miklum og kostnað-
arsömum ferðalögum sem eru okkur
hreinlega ofviða. Að meðaltah þarf
hver flokkur að fara þrjár ferðir suð-
ur th þess að spila og það lætur nærri
að. hver ferð kosti okkur um 70 þús-
und krónur. En á hinn bóginn viljum
við spha sem flesta leiki við hðin fyr-
ir sunnan vegna þess að reynslan
sem krakkarnir fá með þessum leikj-
um er mjög mikil og dýrmæt fyrir
framtíðina. Eins og staðan er í dag
hafa hðin fyrir sunnan forskot á okk-
ur á þessu sviöi. Ef núverandi fyrir-
komulag verður áfram þarf helst að
sleppa því að spila í desember og jan-
úar vegna veðurs. Þá er mikið skiln-
ingsleysi hjá HSÍ vegna þessara
mála. Við höfum margsinnis beðið
um að fá að leika seint á föstudögum
og helst ekki fyrr en á laugardögum
en þessari bón hefur ekki verið sinnt.
Varðandi úrshtakeppnina vh ég
hafa núverandi fyrirkomulag eins og
það er. Ég vil hafa sem flest lið í A-
úrslitum og það má alls ekki fækka
þeim. Því það er mikil upplifun fyrir
krakkana að fá að spila þar. Og með
þessu móti held ég að besta hðið verði
alltaf sigurvegari.
Varðandi kvennaboltann er það að
segja, að við erum bara með tvo
kvennaflokka í KA. Ástæðan fyrir
því hversu fáar stelpur eru í hand-
bolta í dag er einfaldlega sú að hand-
bolti er ekki í tísku hjá kvenþjóð-
inni. Þær hafa mikið af öðru sporti
sem þær stunda, t.d. jassballet og
ahs konar leikfimi. Ég á von á því
að við sendum sameiginlegt lið hér
að norðan í elstu kvennaflokkunum
á næsta keppnistímabili.
Varðandi álag á leikmönnum í
elstu flokkunum tel ég að það sé allt
of mikið. Annaðhvort verður að
stytta leiktímann hjá þeim eða spila
í fleiri deildum og hafa færri lið í
hverri deild.
Við erum ekki með neinn 6. flokk
karla og ekki heldur 5. flokk kvenna.
En ég væri hlynntur því að leggja
íslandsmótið niöur í núverandi
mynd hjá þessum flokkum. Það
myndi auðvelda okkur mikið að
byija með þessa flokka ef það yrði
skipulagt á svipaðan hátt og Tomma-
mótið í fótboltanum."
4. flokkur
kvenna
- ÍBK íslandsmeistarar
A-úrslitaleikurinn í 4. flokki
kvenna fór fram í Keflavík. Það voru
heimamenn sem sigruðu í úrslita-
leiknum á móti UBK og tryggðu sér
þar með íslandsmeistaratitilinn.
Leikinn þurfti að framlengja og að
lokum sigraði ÍBK, 8-7.
Fram sigraði KR 1 leik um þriðja
sætiö með 8 mörkum gegn 5. KR lenti
því í fjórða sæti.
Selfoss tryggði sér fimmta sætið
með öruggum sigri á Haukum, 9-3.
Eftir að staðan í hálfleik haföi verið
5-1, Selfossi í vh.
FH og ÍBV léku um 7.-8. sætið. FH
sigraði í leiknum, 5-4. Staðan í hálf-
leik var, 3-1, ÍBV í vil.
Víkingar sigrði ÍR, 11-7, í leiknum
um níunda sætið og urðu ÍR-ingar
að gera sér tíunda sætið að góðu.
í B-úrslitum léku UMFG og HK til
úrslita um 1.-2. sætið. Ekki er ungl-
ingasíðunni kunnugt um hvernig sá
leikur fór.
Grótta lenti hins vegar í þriðja
sæti og Stjarnan í fjórða. Huginn
sigraði í A í keppninni um 5.-6. sætið,
7-2. Skallagrímur lenti í 7. sæti og
UMFA í því 8. UMFN mætti ekki til
leiks og var það miöur.
Umsjón
Heimir
Ríkarðsson
og
Brynjar
Stefánsson