Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Side 29
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989.
41
dv Handknattleikur unglinga
• Stjarnan og Valur léku um 5.-6. sætið. Valur sigraði í leiknum, 9-6.
6. flokkur karla:
FH íslandsmeistarar
Eins og áður hefur komið fram í
DV tryggðu FH-ingar sér íslands-
meistaratitilinn eftirsótta í 6. flokki
karla. Þeir léku til úrslita á móti HK
og sigruðu í þeim leik, 4-3, eftir að
staðan í leikhléi hafði verið, 1-0, FH
í vil. Leikmenn FH fógnuðu gríðar-
lega að leikslokum en HK varð að
láta sér annað sætið að góðu verða.
í úrsltaleik um 3.^1. sætið léku KR
og Fylkir. Fylkismenn léku á als oddi
í leiknum og áttu KR-ingar ekkert
svar við stórleik piltanna úr Árbæn-
um. Leikurinn endaði með yfir-
burðasigri Fýlkis, 10-4.
Stjarnan og Valur léku um 5.-6.
sætið. Valsmenn voru betra liðið í
• Leikmenn Stjörnunnar léku á als oddi í upphafi leiksins og hér skora
þeir eitt marka sinna.
• Hér er eitt marka Stjörnunar í uppsiglingu í leiknum á móti Val.
leiknum og sigruðu með 9 mörkum
gegn 6.
UMFG bar sigurorð af Frömurum
í leik um 7.-8. sætið. Leikurinn var
mjög jafn og spennandi allan tímann
og tryggðu Grindvíkingar sér sigur-
inn með marki á síðustu mínútunni.
Leikurinn endaði því 5-4 UMFG i vil.
UBK tryggði sér svo sigur í leik um
9.-10. sætið. Þeir sigruðu Víkinga
með 10 mörkum gegn 9 í jöfnum og
spennandi leik.
Ekki tókst að fá upplýsingar um
lokastöðu í B-úrslitum en Þór Ve og
Haukar léku þar til úrslita. Þá vakti
það furðu margra að ÍR mætti ekki
til leiks fyrr en á sunnudeginum og
UFHÖ mætti alls ekki neitt.
Keppni lokið í 4. flokki karla
- KR-ingar íslandsmeistarar
Það voru KR-ingar sem tryggðu sér
íslandsmeistaratitilinn í 4. flokki
karla, eins og áður hefur komið fram.
Framarar, sem sigruðu þá í úrshta-
leik í Reykjavíkurmótinu fyrr í vet-
ur, urðu því að láta sér annað sætið
lynda.
Haukar tryggðu sér þriðja sætið á
mótinu með sigri á FH sem aðeins
var hársbreidd frá því að komast í
úrslitaleikinn. Kom Uð þeirra mjög á
óvart í úrslitunum.
• Guömundur Benediktsson, fyrirliði Þórs Ak, reynir hér markskot en þrjá
FH-inga þurfti til að stöðva hann í þetta sinn.
• Hér skora Þórsarar eitt marka sinna á móti FH. FH kom nokkuð á óvart
í úrslitunum og var aðeins hársbreidd frá því að spila um 1.-2. sætið.
Þór frá Akureyri lenti í fimmta
sæti og áttu fáir von á að liðið lenti
svo neðarlega. Það sigraði Stjörnuna
nokkuð örugglega sem lenti því í
sjötta sæti.
Týr og UBK léku um 7.-8. sæti og
sigruðu Týrarar í þeirri viðureign.
IR tryggði sér svo 9. sætið eftir tví-
framlengdan leik við Val sem lenti í
tíunda sæti.
Ekki var unnt aö fá að vita hvemig
B-úrshtin voru. HSÍ hafði ekki fengið
nein gögn frá umsjónaraðila. En
samkvæmt heimildum DV sigraði
KA í þeim.
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
KRR
Sunnudag
kl. 20.30
ÍR-FRAM
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
ISLANDI
HÁALEITISBRAUT 58-60 (MIÐBÆR)
Átt þú trú?
Hefur þú kynnst htnni lifandi trú?
Gestamessa á sunnudag kl. 11.00. Kaffiveitingar,
Guðsþjónustur alia sunnudaga kt. 11.00
og fimmtudaga kl. 20.00.
Veríd velkomin
Hafnarfjörður sumarstörf
Æskulýðs- og tómstundaráð Hafnarfjarðar óskar eft-
ir að ráða starfsfólk í eftirtalin störf:
1. Flokkstjóra við Vinnuskólann.
2. Leiðbeinendurí skólagarða.
3. Leiðbeinendur á íþrótta- og leikjanámskeið.
Lágmarksaldur umsækjenda í ofangreind störf er 20
ár.
Garðyrkjustjóri óskar jafnframt eftir að ráða starfs-
fólk, ekki yngra en 16 ára, til garðyrkjustarfa í eftir-
talda flokka:
1. Sláttuflokk.
2. Gróðursetningar og viðhaldsflokk.
3. Nýbyggingaflokk við uppbyggingu á skólalóð-
um og nýjum opnum svæðum.
Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 14. apríl.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu æsku-
lýðsfulltrúa að Strandgötu 8 (inngangur frá Linnet-
stíg). Upplýsingar eru veittar í síma 53444 hjá æsku-
lýðs- og tómstundafulltrúa og garðyrkjustjóra.
Æskulýðs- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðar.
Garðyrkjustjórinn í Hafnarfirði.
Ný og breytt
bílasala
BMW M-3, árg. ’87, einn sá glæsi-
legasti, svartur, ekinn 27.000, til-
boð.
Ford Escort RS turbo, árg. '88,
rauður, ekinn 16.000. Verð
1.070.000, skipti ath.
Volvo 245 GL, árg. ’88, hvítur, ekinn
16.000. Verð 1.200.000, skipti ath.
Nissan Patrol 4x4, árg. ’87, stuttur,
hvftur, ekinn 49.000. Verð 1.490.000,
skipti ath.
^LASAUi
alla rúts
Hyrjarhöfða 2
sími 681666
Opið mánud-laugard. kl. 10-19