Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Síða 43
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989.
pv Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Toyota 4Runner, árg. ’87, SRS EFI, til
sölu, ekinn 30 þús. km, 5 gíra. Get líka
útvegað nýjan, árg. ’89.
Á sama stað er Honda CRX, árg. ’85.
Uppl. í síma 91-77877.
Ford Bronco ’85. Til sölu Ford Bronco,
árg. ’85, 6 cyl., 4ra gíra, ath. skipti á
ódýrari. Uppl. í síma 95-1780 eftir kl.
20.
Willys Laredo '86 til sölu, rauður með
svörtu húsi, fallegur, ekinn 27 þús.
mílur, skipti á ódýrari möguleg. Uppl.
í síma 91-34557.
Fast númer MC 666. MC Benz 200 ’86,
ljósblár met., ekinn 58 þús. km, til
sölu. Rafsóllúga, álfelgur, útv./segulb.
o.íl. Toppeintak. Uppl. í síma 622834
á kvóldin.
Kaiser '68 til sölu, er með Dana 70
hásingu að aftan og Dana 60 að fram-
an, drifhlutföll 5,88:1, 4 gíra gírkassi,
með 1 gír sérstaklega lágum. Uppl.
hjá bílasölunni Blik í síma 686477.
Ford Club Wagon XLT til sölu, 12
manna, árg. 1987, vél 302. Bein inn-
spýting og overdrive, eyðsla 14 lítr. á
100 km. Rafmagnsrúður, rafmagnslæs-
ingar, veltistýri, cruisecontrol, tvílit-
ur, ekinn 34 þ. míl. Uppl. í síma 46599
eða 29904.
--------------------------1--------
öllu. Uppl. í síma 75599, 79713 og
21618.
laalunds Bv 206 '88. 16 17 farþega.
ppl. gefur Ólafur í síma 91-53104.
Original-dráttarbeisli. Eigum á lager
mikið úrval af beislum. Verð frá 5.960.
Kerrur og allir hlutir í kerrur. Víkur-
vagnar. Kerrusalurinn, Dalbrekku, s.
91-43911, 45270 og 72087.
Chrysler Laser, árg. ’86, til sölu, vín-
rauður, sjálfskiptur, vökva- og velti-
stýri, ekinn 31.000 mílur. Uppl. í síma
92-68385.
Bill i toppstandi. M. Benz 190D ’86
svartur, til sölu, ekinn 200 þús., mikið
af aukahlutum fylgir, sjálfskipting,
rafmagn í framhurðum, litað gler,
dráttarkúla o.fl. Skipti möguleg á
ódýrari, annars selst hann á góðu
verði. Uppl. í síma 91-673942.
Benz 300D '82 til sölu, hvítur, sjálf-
skiptur, hleðslujafnari, dráttarkúla
o.fl. Uppl. í síma 97-11377 og 985-22977.
Ford F 100 '78 dísil, Perkins, 6 cyl.,
ekinn 15.000, 4ra gíra, T98 kassi, 38"
Super Svamper, verð 600.000. Til
greina kæmu skipti á vélsleða og eða
góð greiðslukjör. Uppl. í síma 42481
e. kl. 19.
Bronco II ’84,
sjálfskiptur, vökvastýri,
ný dekk, ekinn 59 þús. mílur.
Uppl. í síma 91-72530.
Subaru 4x4 ’86. Til sölu er Subaru af-
mælistýpan, splittað drif, rafmagn í
rúðum, útvarp og kassettutæki, ekinn
60 þús. Uppl. í síma 91-44832.
M. Benz 814 ’85 til sölu, með lyftu,
ekinn 102 þús. km. Mjög góður bíll.
Uppl. í síma 985-23646.
T
■ Ýmislegt
Sólbaðstoía
Nóatúni 17
Sími 21116
Marstilboð. 10 tímar, 24 perubekkir,
aðeins kr. 1.950; 38 perubekkir, aðeins
kr. 2.350. Sólbaðsstofan Tahiti, Nóa-
túni 17, sími 21116.
Jeppaklúbbur Reykjavíkur
mennan félagsfund í húsi Kvartmílu-
klúbbsins að Dalshrauni 1, Hafnar-
firði, þriðjudaginn 4. apríl kl. 20. Nýir
félagar velkomnir. Stjórnin.
■ Þjónusta
NÝJŒ
^BERCMK
Bergvík, Eddufelli 4, Reykjavík, kvnnir
nýjung í markaðstækni með aukinni
notkun myndbanda. Hér á íslandi sem
og annars staðar færist það í vöxt að
fyrirtæki notfæri sér myndbandið til
kynningar á vörum og þjónustu ýmiss
konar. Við hjá Bergvík höfum full-
komnustu tæki sem völ er á til fjölföld-
unar og framleiðslu myndbanda á Is-
landi. Við hvetjum ykkur, lesendur
góðir, til að hafa samband við okkur
og við munum kappkosta að veita
ykkur allar upplýsingar varðandi fjöl-
földun og gerð slíkra myndbanda.
Við hjá Bergvík höfum bæði reynslu
og þekkingu á þessu sviði og okkar
markmið er að veita sem fjölþættasta
þjónustu á sviði myndbanda. Bergvík,
Edaufelli 4,111 Revkjavík, s. 91-79966.
Ef I MO
i^9et
Lux Viking bílaleigan i Luxembourg
kynnir nýjan ferðabíl, Ford Fiesta ’89,
ásamt úrvali annarra Ford-bíla, öllum
útbúnum með aukahlutum og hægind-
um. Pantið sem fyrst hjá öllum helstu
ferðaskrifstofum, söluskrifstofu Flug-
leiða eða Lux Viking umboðinu í
Framtíð við Skeifuna. Lux Viking
Budget Rent A Car Luxembourg Find-
el, simar: Rvík, 91-83333, Lux, 433412
og 348048.
Gröfuþjónusta, sími 985-25007.
Til leigu í öll verk Cat. 428 traktors-
grafa. Höfum einnig vörubíl. Leitið
tilboða. Kvöldsími 91-670260 og
641557.
55
Fréttir
Leysingamar:
Kindur
drukknuðu á
Indriðastöðum
Tíu kindur drukknuðu er mikið
vatn komst í útihús aö bænum Ind-
riðastöðum í Skorradal í Borgarfirði.
Þá stóðu kýr í fjósi bæjarins í vatni
er heimilisfólk kom í útihúsin. Ekki
er enn vitað hvaða afleiðingar vos-
búðin mun hafa á þær skepnur sem
lifðu af.
Víða hafa verið vandræði sökum
vatnagangs og snjóskriða. Vitað er
að tvær snjóskriöur féllu í Patreks-
firði. Önnur féll skammt utan við
bæinn. Enginn var nærri er hún féll.
Hin féll innan viö bæinn og skall hún
á stórri hjólaskóflu. Hjólaskóflan er
tæpir fjórir metrar á hæð og fór hún
að mestu á kaf i skriðuna. Einn mað-
ur var í skóflunni og slapp hann án
meiðsla en ljóst er aö litlu mátti
muna að illa færi. Skóflan hentist til
um breidd sína. Ekki er hátt fall af
veginum þar sem óhappið varð. Veg-
inum hefur verið lokað og eins hefur
flugi verið aflýst. Nú stefnir í mjólk-
urskort á Patreksfirði og eins er
hætta á, ef ekki úr rætist, aö aðra
nauðsynjavöru komi einnig til með
að skorta.
Tvö lítil snjóflóð féllu ofan við
Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Engin
hætta skapaðist þegar flóðin féllu. í
þéttbýlistöðunum á Snæfellsnesi hef-
ur veriö mikið að gera við að veita
vatni rétta leið. Mokað hefur verið
frá göturæsum og eins frá ræsum á
þjóðvegum.
Víða á landinu er mikið vatn á veg-
um og er fólki bent á að fara varlega
- sérstaklega mun það eiga við á
Norðausturlandi.
Á Blönduósi þótti ástæða til að
rýma eitt hús þar sem snjóskriða féll
að því. Einn maður býr í húsinu og
veröur hann ekki á heimili sínu fyrr
en hætta er liöin hjá.
í Reykjavík og nágrenni var tals-
vert að gera hjá slökkviliði við að
dæla úr kjöllurum húsa.
Á Vestfjörðum eru björgunarsveit-
ir og lögregla á vakt ef eitthvað ber
út af.
-sme
Bifreiðaskoðun fslands:
Framkvæmdastjórinn
rak fjármálastjórann
Karl Ragnars, framkvæmda-
stjóri Bifreiðaskoðunar íslands,
hefur sagt fjármálastjóra fyrirtæk-
isins upp störfum. Karl tók þessá
ákvörðun eftir að hafa látiö stjóm-
armonn vita að þetta stæði til. Karl
Ragnars vildi htið um máhð segja
er DV ræddi viö hann. Karl sagði
þetta persónulegt mál og það ætti
ekki erindi í fjölmiðla.
Þorsteinn Geirsson, stjómarfor-
maður Bifreiðaskoöunar, sagðist
ekki vita af hvaða ástæðum fjár-
málastjórinn hafi látiö af störfum.
Hann sagði að það mál hafi ekki
verið rætt á stjórnarfundi sem
haldinn var fyrr í vikunni.
-sme
Bilun í Flugleiðaþotu:
Snúið við skömmu
eftir flugtak
Viðvörunarljós um að eldur væri
laus í miðhreyfli í Flugleiðaþotu
kviknaði skömmu eftir flugtak í Lon-
don í gærdag. Þotunni var þegar snú-
ið við og lent aftur. í ljós kom að
ekkert var að hreyflinum en bilun
var í viðvörunarkerfi þotunnar.
Þar sem bíða þurfti eftir varahlut-
um verður ekki hægt aö fljúga þot-
unni heim fyrr en í dag. Farþegar
Flugleiða frá London koma því til
Keflavíkur um sólarhring síðar en
til stóð.
-sme
Hrossin á Múlanesi:
Aðgerðir ákveðnar
allra næstu daga
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
fengin til að fljúga yfir Mávanes,
Skálmadal og næsta nágrenni á
mánudag. Með þyrlunni fóru dýra-
læknir og lögreglumaður. Ferðin var
farin til að aðgæta með hross sem
gengið hafa laus á þessu svæði í allan
vetur. í ljós kom að hrossin virtust
vera betur á sig komin en menn
þorðu að vona.
Óttast var að hrossin væru í
Skálmadal en svo var ekki. Starfs-
menn Rafmagnsveitunnar sáu til
hrossanna í Skálmadal um miðjan
febrúar. Hrossin sáust hins vegar
flest eða jafnvel öll á Mávanesi. Mun
snjóléttara er á Mávanesi en í
Skálmadal.
Lausaganga hrossa er bönnuð í
Reykhólahreppi og eins hafa landeig-
endur í Mávanesi gert athugasemdir
við veru hrossanna á Mávanesi. I
Reykhólahreppi ber eigendum
hrossa að hafa þau í húsi þegar girð-
ingar eru óhæfar vegna snjóa eins
og nú er.
„Ég á eftir að lesa skýrslu frá lög-
reglunni. Eftir að ég hef gert það
ákveð ég til hvaða aðgerða verður
gripið. Þetta mál er ekki búið. Það
er ólöglegt og óhæft að hafa skepn-
urnar þarna,“ sagði Stefán Skarp-
héðinsson, sýslumaður í Baröa-
strandarsýslu.
-sme