Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1989, Síða 45
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1989. 57 Afenæli Dóra Thoroddsen Dóra Thoroddsen, Austurbrún 2, Reykjavík, er sjötíu og flmm ára í dag. Dóra er fædd í Rvík og ólst upp í Rvík og Kaupmannahöfn. Hún lauk Kvennaskólaprófi 1932 og nam gullsmíði hjá Kjartani Ásmunds- syni ijögur sumur og var einn vetur í gullsmíðanámi í Iðnskólanum. Dóra var einn vetur við enskunám í Englandi 1932-1933 og vann sem meinatæknir á Rannsóknastofu Há- skólans 1933-1936. Dóra giftist 3. október 1936 Hákoni Braga Brynj- ólfssyni, f. 14. október 1909, d. 25. maí 1961, bóksala. Foreldrar Braga voru Brynjólfur Kristján Magnús- son bókbandsmeistari, stofnandi og forstjóri Nýja bókbandsins, og kona hans, Katrín Jónsdóttir. Börn Dóru og Braga eru Birgir, f. 25. apríl 1937, teiknari í Rvík, á eina dóttur; Berg- þóra Huld, stúdent, í Myndhsta- og handíðaskóla íslands; Regína Magdalena, f. 12. mars 1942, gjald- keri hjá Pósti og síma, fyrrum bók- sah í Rvík (Bókabúð Braga), gift Eiríki Magnússyni rafvirkjameist- ara, starfsmanni hjá SÍS, eiga tvö börn; Katrín Brynja, f. 5. október 1944, á fjögur börn; Guðmundur Skúh, f. 13. september 1946, for- stöðumaður Hafrannsóknastofnun- ar íslands, kvæntur Ingibjörgu Valdimarsdóttur, eiga þrjú börn, og Ragnhildur, f. 27. júh 1952, bóka- safns/upplýsingafulltrúi, forstöðu- maöur Bókasafns Menningarstofn- unar Bandaríkjanna. Dótturdóttir Dóru, sem hún ól upp, er Dóra Kjartansdóttir, f. 15. janúar 1967, skrifstofumaður hjá DV, gift Hinriki Þráinssyni nema. Systkini Dóru: Ásta, f. 6. janúar 1916, gift Eðvald Malmquist, jarðyrkjuráðunaut í Rvík, synir þeirra eru Guðmundur hdl., forstjóri Bygðastofununar, og Jóhann Pétur, dr., prófessor í tölvu- verkfræði í HÍ; Skúli, f. 3. nóvember 1918, d. 23. ágúst 1973, augnlæknir í Rvík, kvæntur Drífu Viðar, listmál- ara og rithöfundi, börn þeirra eru Einar, háls-, nef- og eyrnalæknir í Rvík, Theodóra, meinatæknir í Rvík, Guðmundur, hstmálari í Rvík, og Jón íslenskunemi; Unnur, f. 1. febrúar 1922, lyfjafræðingur í Rvík, var gift Karli Jóhannssyni eftirhts- manni, börn þeirra eru Ragna, byggingaverkfræðingur, og Guð- mundur, kerfisfræðingur; Hrafn- hildur Gríma, f. 27. febrúar 1923, meinatæknir, gift Viggó Tryggva- syni lögfræðingi, böm hennar eru Tryggvi, lögfræðingur, Guðmund- ur, augnlæknir, yfirlæknir Sjón- stöðvar; Regína Benedikta, f. 30. júní 1924, hjúkrunarkona í Kópavogi, gift Smára Karlssyni flugstjóra, eiga þaufiögur böm, ogKatrín, f. 3.júní 1926, d. s. á. Systkini Dóru, sam- feðra, eru Þrándur, f. 17. júní 1931, kvikmyndastjóri, kvæntur Sigrúnu Jónsdóttur, eiga þau fjögur börn, og Ásta Björt, f. 17. maí 1942, tannlækn- ir, gift Eyjólfi S. Gunnarssyni for- stjóra, á hún fjögur börn. Foreldrar Dóru voru Guðmundur Thoroddsen, prófessor og yfirlækn- ir, og kona hans, Regína Magdalena Benediktsdóttir. Föðursystkini Dóru em Unnur, móðir Skúla Hall- dórssonar tónskálds, Skúli, alþing- ismaður, Kristín, yfirhjúkrunar- kona, Katrín, alþingismaður, Ragn- hildur, kona Pálma Hannessonar rektors, María, móðir Jóns Thors Haraldssonar sagnfræðings, Bolh, borgarverkfræðingur, Sigurður, verkfræðingur og alþingismaður, og Sverrir, deildarstjóri í Útvegsbank- anum. Guðmundur var sonur Skúla Thoroddsens alþingismanns og rit- stjóra, Jónssonar Thoroddsens, sýslumanns og skálds á Leirá, föður Sigurðar landsverkfræðings, fóður Gunnars forsætisráðherra. Móðir Guðmundar var Theodóra skáld- kona, systir Ásthildar, móður Muggs. Theodóra var dóttir Guð- mundar prófasts og alþingismanns á Kvennabrekku, Einarssonar, bróður Þóru, móður Mattlúasar Jochumssonar skálds. Önnur systir Guðmundar var amma skáldanna Herdísar og Ólínu Andrésdætra. Móðursystkini Dóru voru Kristj- án, Baldur, Jón, læknir, Sveinbjörn, Þórður, forseti SÍBS, Karólína, Bjarni, faðir Gunnars ráðunautar, Hansína, amma Jónasar Kristjáns- sonar ritstjóra, Guðrún og Ingi- björg. Regína var dóttir Benedikts prófasts á Grenjaðarstað Kristjáns- sonar, bróður Kristjáns, föður Jón- asar læknis, afa Jónasar Kristjáns- sonar. Benedikt var sonur Kristjáns „ríka“, b. í Stóradal, bróður Péturs, afa Þórðar Sveinssonar, yfirlæknis á Kleppi, fóður Agnars rithöfundar og afa Hrafns Gunnlaugssonar. Dóra Thoroddsen. Kristján var sonur Jóns, b. á Snær- ingsstöðum í Svínadal, Jónssonar, b. á Balaskarði, Jónssonar „harða- bónda“, b. í Mörk í Laxárdal, Jóns- sonar, ættfóður Harðabóndaættar- innar. Móðir Regínu var Ásta Þórar- insdóttir, b. á Víkingavatni, bróður Ólafar, langömmu Bjarna Bene- diktssonar forsætisráðherra. Þórar- inn var sonur Björns, b. á Víkinga- vatni, Þórarinssonar, b. á Víkinga- vatni, Pálssonar, b. á Víkingavatni, Arngrímssonar, sýslumanns á Laugum, Hrólfssonar. Móðir Þórar- ins Björnssonar var Guðleif Þórar- insdóttir, b. á Lóni, Guðmundsson- ar, bróður Guðmundar, langafa Sveins, fóður Jóns Sveinssonar, Nonna. Til hamingju með afmælið 1. apríl Qft Ara Tjamarstlg 26, Seltjamaráesi. 3v dia Sigríður Jónsdóttir, Prestbakka, Hörglandshreppi. Guðný Pálsdóttir, Thorgerd Elísa Mortensen, Reynimel 92, Reykjavik. Vesturvangi 44, Hafnarúröi. Baldur Sigurður Kristensen, 85 ára Fögrubrekku 12, Kópavogi. U'í C,, ° Sierún Einarsdóttir. Þórdís Briem, 58, Reykjavík. Bogahlíð 20, Reykjavík. „ “ 0*?í?8°n’ ,.' „ ÁgúTjasonarson, Hamrahlíð 17, Reylqavik. Vitastig 9, Bolungarvík. Þórhallur Jónasson, -n , Stóra-Hamri I, Öngulsstaðahreppi. OU aid Kinnarstöðum, Reykltólahreppi. Guðmundur Ólafsson, QQ Margrét Pétursdóttir, ÖU ara Hofsvöllum, Lýtingsstaðahreppi Reynihvammi 13, Kópavogi. gfQ 75 ára HelgaEinarsdóttir, Jón Tímótheusson, Björn J. Guðmundssun, Þórufelii 14, Reykjavík. Strandgötu 10, Hvammstangahreppi. Bjarni Þórðarson, Ingólfur Magnússon, Reykjum, Skeiðahreppi. Breiðvangi 8, Hafnarfirði. Aðalheiður Ingólfsdóttir. » Bjarmastíg 15, Akureyri. íU ara Steingrímur Benediktsson, Rósa Árnadóttir, Ásbjörn Jóhannesson, Norðurbyggð 29, Akureyri. Heiðarási 10, Reykjavík. aa j- Bakkaflöt, LýtingsstaðahreppL OU ara Eva Maria Gunnarsdóttir, SaiVaigtiiöUiU 18, Selljat iliti tiUsi. Hilmar Þór Björnsson, María Karlsdóttir, Lindarhvammi 14, Haj&iarfirði. Heiðarbæ 12, Reykjavik. Páll Pálsson Páh Pálsson skipstjóri, Espigerði 4, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Páll er fæddur í Hnífsdal og ólst þar upp. Hann var í námi á Laugarvatni 1930-1932 og lauk skip- stjóraprófi frá Stýrimannaskólan- um í Rvík 1940. Páll hóf sjósókn með foður sínum ellefu ára á súðbyrð- ingnum Helgu, fimm tonna. Hann var á togurum með Snæbirni Ólafs- syni 1932-1941, á Ver GK og Tryggva gamla RE, og var fyrsti stýrimaður á Júpiter GK1941-1948 með Bjama Ingimundarsyni. Páll var skipstjóri á Sólborgu ÍS1951-1963 og hefur síð- an unnið við innflutning á veiðar- færum. Hann er stofnfélagi Lions- klúbbs ísafiarðar. Páll kvæntist Ól- öfu Karvelsdóttur, f. 15. nóvember 1916. Foreldrar Ólafar voru Karvel Jónsson og kona hans, Ólafía Guð- fmna Sigurðardóttir. Böm Páls og Ólafar era Kristján, f. 1. desember 1944, bæjarstjóri í Ólafsvík, kvænt- ur Sóleyju Höllu Þórhahsdóttur kennara, eiga þau fiögur böm; Ólaf- ur, f. 29. janúar 1946, fiskifræðingur, kvæntur Svandísi Bjamadóttur skrifstofumanni, eiga tvö börn; Guðrún, f. 5. ágúst 1949, á eitt bam; Ólafía, f. 24. júní 1951, hjúkrunar- fræöingur, gift Amari Guðjónssyni bifvélavirkja, eiga þrjú börn, og Guðlaug, f. 2. febrúar 1955, d. 9. fe- brúar 1986, sjúkraþjálfari. Systkini Páls era Jóakim, f. 20. júní 1915, útgerðarmaður í Hnífsdal; Helga, f. 19. september 1917, húsfreyja í Hnífsdal; Leifur Guðmundur, f. 28. nóvember 1918, sjómaður í Hnífs- dal; Kristján, f. 25. maí 1920, d. 1. desember 1941, og Halldór Gunnar, f. 5. nóvember 1921, fiskmatsmaður íRvík. Foreldrar Páls voru Páll Pálsson, útvegsbóndi í Heimabæ í Hnífsdal, og kona hans, Guðrún Guðleifs- dóttir. Páll var sonur Páls, b. á Heimabæ í Hnífsdal, Halldórssonar, b. í Hnífsdal, Pálssonar. Móðir Hall- dórs var Margrét Guðmundsdóttir, b. í Amardal, Bárðarsonar, b. í Arn- ardal, Illugasonar, ættfóður Amar- dalsættarinnar. Móðir Páls Hah- dórssonar var Margrét Ólafsdóttir, b. á Sléttu, Svartssonar Jónssonar Ólafssonar Jónsonar Indíafara Ól- afssonar. Móðir Páls Pálssonar var Helga Jóakimsdóttir, b. í Árbót í. Aðaldal, bróður Jóns á Þverá, föður Benedikts á Auðnum og Sigurðar, langafa Ólafs Jóhannessonar for- sætisráðherra. Þriðji bróðir Jóa- kims var Hálfdán, faðir Jakobs, Páll Pálsson. stofnanda Kaupfélags Þingeyinga, afa Jakobs Gíslasonar orkumála- stjóra. Jóakim var sonur Jóakims, b. á Mýlaugsstöðum, Ketilssonar, bróður Sigurðar, afa Aðalbjargar Sigurðardóttur, móður Jónasar Haralz. Sigurður var einnig afi Kristins, föður Hahgríms og Sigurð- ar Kristinssona, forstjóra SIS. Móðir Helgu var Guðný Magnúsdóttir, af Buchsætt. Guðrún var dóttir Guðleifs, b. á Sæbóh í Aðalvík, ísleifssonar, b. í Hlöðuvík, ísleifssonar, langafa Jak- obínu Sigurðardóttur og Þorleifs Bjamasonar námstjóra. Móðir Guð- rúnar var Guðbjörg Jónsdóttir, b. á Kirkjubóli í Korpudal, Andrésson- ar. Páll verður að heiman í dag. Guðlaugur Ágústsson Guðlaugur Ágústsson vélgæslu- maður, Garðavegi 3, Keflavík, verð- ur sjötugur á morgun. Guðlaugur fæddist að Brekkuborg í Breiðdal í Suður-Múlasýslu. Hann ólst upp hjá foreldram sínum á Eskifirði til 1926, en fór þá í fóstur að Steinaborg á Berufiarðarströnd. Guðlaugur kvæntist og stofnaði sitt heimili á Fáskrúðsfirði 1945. Hann og fiöldskylda hans fluttu til Vestmannaeyja 1959 og bjuggu í Eyjum til 1986 en fluttu þá til Kefla- víkur þar sem þau búa enn. Kona Guðlaugs er Svanhild Jens- sen Ágústsson húsmóðir, f. 22.6. 1926, dóttir Gunnars Jenssen, sjó- manns frá Sandi í Færeyjum og Petrínu Jenssen húsmóður. Guðlaugur og Svanhild eiga þrjú böm. Þau eru Sigurlaug Ágústa Guðlaugsdóttir, f. 22.9.1945, hús- móðir í Keflavík, gift Aðalsteini Aðalsteinssyni og eiga þau þrjá syni; Ingeborg Guðlaugsdóttir, f. 4.8.1947, húsmóðir í Keflavík, og á hún tvö böm og Bjartmar Anton Guðlaugss- son, f. 13.6.1952, húsamálari og dæg- urlagahöfundur, en hann á þrjár dætur og er kona hans María Helena Haraldsdóttir. Guðlaugur átti ehefu systkini og eru níu þeirra nú á lífi. Foreldrar Guðlaugs voru Ágúst Pálsson sjómaður, f. 11.8.1886, d. 5.4.1954, og Sigurlaug Einarsdóttir húsmóðir, f. 24.9.1896, d. 24.12.1970. Friðfinna Hrólfsdóttir Eva Sigurjónsdóttir Eva Siguijónsdóttir húsmóðir, Laufbrekku 11, Kópavogi, varð sex- tugígær. Eva fæddist í Flatey á Skjálfanda ogólstþarupp. Maður Evu er Jón Ármann Jóns- son, vélstjóri og skrifstofumaður í Heklu hfi, f. 23.10.1925, sonur Jóns Aðalgeirs Jónssonar, sem lengi var vélstjóri við Sláturhús Kaupfélags Þingeyinga á Húsavík, og Guðrúnar Eggertsdóttur frá Skógargerði á Húsavík. Börn Evu og Jóns Armanns era Eggert Jónsson, f. 30.7.1950, doktor í bæklunarskurðlækningum, kvæntur Petrínu Hahdórsdóttur, en þau era búsett í Kópavogi og eiga tvö börn; Jakob Jónsson, f. 9.6.1953, tannlæknir á Patreksfirði, kvæntur Marin Jónsdóttur, en þau búa á Patreksfirði og eiga þijár dætur; Aðalgeir Jónsson, f. 9.2.1956, húsa- smíðameistari á Patreksfirði, kvæntur Drífu Leifsdóttur, en þau eru búsett á Patreksfirði og eiga tværdætur. Systkini Evu eru Jónas Sigurjóns- son, f. 27.12.1918, d. 29.1.1987; Sva- var Sigurjónsson, f. 3.5.1920; Sigur- björg Sigurjónsdóttir, f. 24.11.1921; Guðmundur Siguijónsson, f. 14.5. 1923; Haukur Siguijónsson, f. 4.7. 1924; Páh Sigurjónsson, f. 25.1.1926; Emilía Sigurjónsdóttir, f. 2.8.1927, og Agnar Sigurjónsson, f. 19.5.1934. Foreldrar Evu voru Siguijón Jón- asson, f. 15.4.1895, d. 17.1.1984, versl unarmaður og útvegsbóndi í Flatey og síöar á Húsavík, og kona hans Jakobína Pálsdóttir, f. 17.7.1896, d. 17.4.1983, húsmóðir. Friðfinna Hrólfsdóttir húsmóðir, Laugalæk 58, Reykjavík, verður átt- ræð á morgun. Hún fæddist að Ábæ í Austurdal í Skagafirði og ólst upp þar og að Brekku í Akrahreppi. Friðfinna var lengst af húsmóðir á Akureyri en þau hjónin fluttu til Reykjavíkur 1971. Maður Friðfinnu var Viktor Aðal- steinnKristjánsson, f. 19.7.1898, d. 5.12.1973, rafvirkjameistari á Akur- eyri, sonur Kristjáns Jósefssonar, kennara og b. að Vatnsenda í Eyja- firði og síðar að Hólum í Eyjcifirði, og konu hans, Sigrúnar Páhnu Páls- dóttur. Börn Friðfinnu og Viktors eru Sigrún P. Viktorsdóttir, f. 20.8.1930, verslunarmaður í Reykjavík; Vikt- oría B. Viktorsdóttir, f. 20.3.1934, fótasérfræðingur í Reykjavík, og Haukur A. Viktorsson, f. 21.5.1935, arkitekt í Reykjavík. Foreldrar Friöfinnu vora Hrólfur Þorsteinsson, f. 21.5.1886, d. 14.10. 1966, b. á Ábæ í Austurdal og síðar að Stekkjarflötum, og kona hans, Valgerður Kristjánsdóttir, f. 25.5. Friðfinna Hrólfsdóttir. 1888, d. 8.1.1960. Hrólfur var sonur Þorsteins Lár- usar, b. á Skatastöðum og víðar, Sigurðssonar, b. í Ghshagaseli, Sig- urðssonar. Móðir Hrólfs var Ingi- björg Guðríður Guðmundsdóttir, b. á Hömrum, Hannessonar, og konu hans, Maríu Hannesdóttur. Móðir Þorsteins var Oddný Sigurðardóttir, b. á Lýtingsstööum, Sigurðssonar. Friðfinna tekur á móti gestum í dag, laugardag, eftir klukkan 16, aö Laugalæk 58.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.