Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989. Stjómmál Slegist um þingmenn Borgaraflokksins Nánast var samkomulag milli Júlíusar Sólnes og Steingríms Hermannssonar eftir áramótin. Nú má aftur fara aö ræöa um hugs- anlega stjórnarþátttöku Borgara- flokksins. Albert Guömundsson er á fórum til Parísar. Benedikt Bogason hefur tekið viö því þingsæti. Við þaö aukast mjög líkurnar á aö Borgara- flokkurinn. eða meirihluti þing- flokks hans. gangi til samstarfs viö núverandi stjórnarliða. En flokkar bera víur í þingmenn Borgaraflokks- ins. Sjálfstæðismenn reyna að ná til sín þeim þingmönnum flokksins, sem þeir geta. A-flokkarnir mundu vafalaust helst kjósa, aö einhverjir þingmenn Borgaraflokksins kæmu til stuðnings viö stjórnina án þess að um formlega stjórarþátttöku yrði aö ræöa. Þau Aðalheiður Bjarnfreös- dóttir og Óli Þ. Guðbjartsson hafa jú hjálpaö stjórninni viö að koma fram ýmsum málum. Fyrir þau þyrfti skrefiö því ekki aö veröa stórt. En íleiri þingmenn Borgaraflokksins vilja formlegar viðræður við stjórn- arliða. Þeir þingmenn eru ekki reiðu- búnir að leysa Borgaraflokkinn upp. Klofningur Borgaraflokksins Borgaraflokkurinn er klofinn. Þing: mennimir Ingi Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson hafa ekki sótt þingflokksfundi um nokkurt skeið. Þessir þingmenn standa næst Sjálf- stæðisflokknum. Albert segir og nú, að hann kunni næst aö styðja Sjálf- stæðisflokkinn. En formaður flokks- ins, Júlíus Sólnes, mun vilja formleg- ar viðræður við núverandi stjórnar- lið. Júlíus hefur meirihluta þing- flokks síns með sér í því. Borgara- flokksmenn í meirihlutanum vilja, að þá yrði mynduð ný ríkisstjóm. Borgaraflokksmenn kæmu ekki að- eins inn sem hækja fyrir þá sem fyr- ir eru. Rætt hefur verið um, að Borg- araflokkurinn fengi tvo ráðherra. Þeir yrðu Júlíus Sólnes og Óli Þ. Guðbjartsson. Ráðherrum yrði ein- faldlega fjölgað sem því næmi. Borg- araflokkurinn mun vilja fá félags- málin. En þau em fóst í hendi Jó- hönnu Sigurðardóttur. Þá hefur ver- ið rætt, að Borgaraflokkurinn kynni að fá iðnaðarmálin frá Alþýðu- flokknum og til dæmis landbúnaðar- eða samgöngumál frá Alþýðubanda- laginu. Til greina hefur komið, að Borgaraflokkurinn fengi dómsmálin frá Framsókn. Þetta hefur allt verið rætt. Síðustu viðræður strönduðu mest á andstöðu Alberts Guðmunds- sonar. Að honum fjarstöddum, telja flestir liklegt, að viðræður hefjist að nýju á næstu vikum. En einhverjir þingmenn Borgara- flokksins kunna aö standa utan við slíkt samkrull, eins og sagt var. Nú- verandi stjómarliðar gera sér þó Sjónarhomið Haukur Helgason vonir um, aö Hreggviður Jónsson kynni aö fást til stjómarþátttöku, yrði honum lofað, að eignarskattar yrðu lækkaðir. Hitt telja sumir, að komi til greina, að Ingi Bjöm Al- bertsson yrði í framboði á Vestur- landi fyiir Sjálfstæðisflokkinn, en Friðjón Þórðarson hætti. Um eignarskatta er þaö aö segja, að um áramót var lagöur stóreignar- skattur á einstakling, sem á yfir 7 milljónir nettó, eða hjón, sem eiga 14 mflljónir. Þetta hefur mælst illa fyrir. Stundum hefur þessi skattlagn- ing verið kölluð ekknaskattur, sem yrði ef til dæmis kona missti maka sinn en þau hefðu átt 14 milljónir nettó. Því vilja margir fleiri en Hreggviður hætta þessu eða draga úr því. Um slíkt gæti hugsanlega orð- ið eitthvert samkomulag sfjómarliða og Borgaraflokksins. Hræðslubandalag? Meirihlutinn í þingflokki Borgara- flokksins gerir sér grein fyrir, hvem- ig flokkurinn stendur. Þessi meiri- hluti er þó enn sem fyrrr tilbúinn að gera kröfur til núverandi stjóm- arliðs. Stjómina munar um þá þing- menn, sem hún gæti fengið þannig. Borgaraflokksmenn munu þó vafa- laust slá af flestum sínum kröfum. Þeir telja, að ríkisstjómin hafi brugð- is í efnahagsmálum. Verðbólgan hafi farið af stað aö nýju. Stjórnin hafi misnotað svigrúmið, sem hún fékk, þegar efnahagsmálin voru í gjör- gæslu. Borgaraflokksmenn segja, að hagur atvinnuveganna hafi ekki ver- ið tryggður. Þer vilja því frekari gengisfellingu. Borgaraflokksmenn hafa staðið fast á lækkun matarskatts eða að minnsta kosti einhverri lækkun mat- væla. Þetta mál hefur sumum stjórn- arliðum reynst erfitt. En þó virðast margir stjórnarliðar vera reiðubúnir til að lækka matarskatt. En þeir vilja nota það boð sem skiptimynt í kjara- viðræðum við launþega. Því kann að koma upp sú staða, að spuming verði, hvort unnt verði að sameina samninga við launþega um þetta og samninga við borgaraflokksmenn um hið sama. Svipuðu máli gegnir um hugsanlega samninga um hækk- un skattleysismarka. Hvað sem þessu líður, vitum við, að Borgaraflokkurinn hefur ekki styrk til að koma neinum manni á þing - síst þegar Albert er farinn. Skoðanakönnun DV sýndi einnig, að núverandi ríkisstjóm er hin óvin- sælasta hin síðari ár. Þá má spyija: Ætla þeir bara ekki að þrauka - bæði ríkisstjómin og Borgaraflokkurinn, eða meirihluti hans? Hvorugur aðili þorir í kosning- ar. Ríkisstjómin gæti náð traustum þingmeirihluta, þótt hún sé rúin fylgi meðal landsmanna. Borgaraflokksmenn gætu komist í sviðsljósið þrátt fyrir algert fylgis- leysi meðal þjóðarinnar. . Síöan gætu báöir vonast til, að stað- anlagaöisteitthvað. -HH í dag mælir Dagfari_____________ Svanasöngur Alberts Albert Guðmundsson kvaddi al- þingi í gær. Og alþingi kvaddi hann. Allir voru með kökk í hálsin- um eins og vera ber á kveðjustund- um og forseti alþingis lagði lykkju á leið sína til að segja frá því hvað góögimi Alberts væri einstök. Venjulega er mælt fyrir minni lát- inna alþingismanna, en Albert er engum líkur og fær sitt minni flutt meðan hann er enn í fullu fjöri. Enda var hann sjálfur með kökk í hálsinum eins og hinir og lét mörg góð orð fafla um alþingismenn og kjósendur og raunar alla nema Borgaraflokkinn sem hann stofn- aði. Merkilegast af því sem haft var eftir Albert í gær var sú yfirlýsing hans aö hann væri meiri sjálfstæð- isflokksmaður en borgaraflokks- maður. Nú er það vitað aö Borgara- flokkurinn hefði aldrei veriö stofn- aður nema vegna Alberts, eftir að Albert var búinn að segja landslýð frá því hvað Sjálfstæðisflokkurinn væri vondur við hann og hefði rek- ið hann í burtu. Albert gerði upp- reisn gegn Sjálfstæðisflokknum, taldi þann flokk vera afvegaleiddan og bjó til nýjan flokk sem hann taldi vera meiri Sjálfstæðisflokk heldur en Sjálfstæðisflokkinn. Á þessu var hamrað í kosningabarát- tunni, allar götur eftir að nýtt þing kom saman og raunar var aldrei annað að heyra á Albert Guð- mundssyni fram aö því að honum var boðin sendiherrastaðan í París heldur en að Borgaraflokkurinn væri hinn eini og sanni Sjálfstæöis- flokkur. Nú segist Albert hins vegar vera meiri sjálfstæðisflokksmaður held- ur en borgaraflokksmaður. Ekki fylgir sögunni hvaða partur af Al- bert er í Borgaraflokknum og hvaða partur í Sjálfstæðisflokkn- um. Ekki heldur eru neinar skýr- ingar á því hvers vegna Sjálfstæðis- flokkurinn er núna orðinn meiri Sjálfstæðisflokkur heldur en Borg- araflokkurinn. Eða þá hvaö valdi því aö Sjálfstæðisflokkurinn er allt í einu orðinn svona góður flokkur. Kannske hefur Sjálfstæðisflokkur- inn batnað við það að Albert fór úr honum. Eða þá að Borgaraflokk- urinn hafi versnað eftir aö Albert stofnaöi flokkinn. Allavega virðist Albert líða best í þeim flokki, sem hann er ekki í, eða verst í þeim flokki sem hann er í. Nú er það mála sannast að enginn bað Albert um að stofna Borgara- flokkinn nema þá hann sjálfur. Hann fékk þúsundir manna til aö kjósa nýja flokkinn sinn og sex þingmenn fylgdu Albert inn á þing í nafni Borgaraflokksins, vegna þess að allir stóðu þeir í þeirri meiningu að Borgaraflokkurinn væri betri Sjálfstæðisflokkur held- ur en Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur. Nú hefur stofnandinn allt í einu uppgötvað eftir að hann varð sendi- herra að þetta sé allt saman mis- skilningur. Hann hefur uppgötvað Sjálfstæðisflokkinn í sjálfum sér og vill ékki lengur við þaö kannast að Borgaraflokkurinn sé neitt sem honum komi við. Hann afneitar sínu eigin afkvæmi. Albert segir að Borgaraflokkur- inn fylgi ekki lengur þeirri stefnu sem hann sjálfur fylgir. Einkum mun þetta hafa gerst eftir að Borg- araflokkurinn ljáði máls á stjórn- arþátttöku. Ekki man Dagfari bet- ur en að Albert hefði sjálfur sótt það fast að komast í ríkisstjóm, hvort heldur til vinstri eða hægri, og skrifaði jafnvel bréf um þá ósk sína til Steingríms. Stefnubreyting- in, sem Albert amast við, sýnist vera fólgin í því að hinir mega ekki gera það sem hann mátti gera. Allt er þetta heldur skrítið og tor- skilið. Albert var svo mikill sjálf- stæðismaður að hann treysti sér ekki lengur til að vera í Sjálfstæðis- flokknum og stofnaði nýjan Sjálf- stæðisflokk sem hét Borgaraflokk- ur. Nú er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn meiri Sjálfstæðisflokkur heldur en Borgaraflokkurinn, án þess að Sjálfstæðisflokkurinn hafi breyst að öðru leyti en þvi að Al- bert er meiri sjálfstæðismaður en borgaraflokksmaður eftir að hann varð sendiherra. Geta flokkar breyst við það að einn maður verði sendiherra? Líta íslenskir stjórn- málaflokkar öðmvísi út frá París heldur en Reykjavík? Vonandi er að Albert hafi það gott í París og geri það upp við sig hvort hann er í flokknum sem hann er í eöa flokknum sem hann er genginn úr. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.