Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989. Utlönd Bjór er krabbameinsvaldandi Fólk, sera arekkur meira en fjóra lítra af bjór á viku, er í þrisvar siim- ura meiri hættu á að fá krabbamein í brisi en þeir sem ekki drekka, að því er segir í skýrslu sem birt var í Bretlandi í gær. Skýrslan, sem gerð var á vegum bresku krabbameinsstofnunai'innar, staðfesti einnig að það eru tengsl milli reykinga og krabbameins í brisi sem árlega verður meira en sex þúsund manns að fjörtjóni í Bretlandi. En þrátt fyrir að fyrri rannsóknir bendi til þess að kaffidrykkja valdi krabbameini í brisi segir í skýrslunni aö ekkert hafi komið fram við rann- sóknir nú sem bendli te- eða kaffidrykkju við briskrabbamein. Dr Jack Cuzick, sem er yfirmaður tölfræðideildar krabbameinsstofnun- arinnar, sagði: „Við ftmdum þrefalda hættu á briskrabbameini meðal þeirra sem drekka mikinn bjór.. .en engin tengsl milli krabbameins í brisi og drykkju á sterku áfengi eða léttu víni." í skýrslunni er giskað á að ákveðin efnasambönd, sem finnast bæði í bjór og sígarettureyk, geti verið ástæðan. „Vitað er að í bjór fyrirfmnst mikið magn af vissum amínósamböndum sem ekki fmnast í neinu öðru áfengi nema örlítið í maitviskíi," sagði Cuzick. Þriggja ára vann tólf milljónir Þriggja ára gamall grískur drengur vann tólf milljónir íslenskra króna í knattspymugetraunum í gær eftir að hafa spáð rétt fyrir um úrslit allra þrettán leikjanna sem voru á seölinum um síöustu helgi. Foreldrar hans, Nikos og Maria Argyridis, sögðu fréttamönnum að 11- ias, sonur þeirra, heíði sagt þeim hvernig þau áttu að tippa. „Ég spila sjaldan í getraununum og sendi spá sonar míns inn að gamni. Hann virtist vera mjög öruggur um spá sína þrátt fyrir að kynni hans af knattspymu séu enn sem komið er bundin við að sparka bolta inni á heimilinu," sagði faðir hans. Ilias litli brosti bara í fangi móður sinnar þegar hann var beöinn um aö tjá sig um heppni sína. Níu fórust í lestarslysi Björgunarmaður við flak lestarinnar sem lenti á húsum með miklu afli. Simamynd Reuter Níu manns biöu bana og sautján slösuðust þegar lest fór út af teinunum og lenti á Iestarstöð í San Severo á Suður-Ítalíu í fyrradag. Lestin lenti á byggingum sem hýsa miöasölu fyrir lestarfélagiö og veit- ingastað í smábænum San Severo í Pugliahéraði. Þetta er versta lestar- slys á Ítalíu í meira en tíu ár. „Lestin kom á sama hraöa og eldflaug. Ég trúöi ekki mínum eigin aug- um. Ég byrjaði að hlaupa og greip með mér tvö böm sem stóðu á lestar- pallinum og kom þeim undan,“ sagði eitt vitnið sem beið á stöðinni þeg- ar slysið varð síödegis á mánudag. Flestir hinna dánu og slösuðu voru starfsmenn jámbrautanna og fólk sem beiö eftir lestinni. Fólkið varð undir braki úr byggingum. Lestin átti aö koma inn á stöðina á um 30 km hraða en vitni segja að hún hafi veriö á um 100 km hraöa. Líklegast er talið að slysið hafi orðiö vegna þess að bremsur hafi brugö- isteða aðlestarstjórinn, sem beiöbana í slysinu, hafi veikstskyndilega. Renoir setur met La Promenade eftir Renoír slegiö hæstbjóðanda hjá Sothebys i London < gær. Símamynd Reuter La Promenade eftir Pierre-Auguste Renoir var selt á rúmlega átta hundr- uð miHjónir íslenskra króna hjá Sothebys í London í gær. Þetta er nærri tvöfalt verö á við þaö sem áður hefur fengist hæst fyrir Renoir. Reuter Lik fallinna skæruliða Swapohreyfingarinnar við iandamæri Namibíu og Angóla. Harðir bardagar geisuðu þar fjórða daginn í röð í gær milli skæruliða og namibískra lögreglumanna. Símamynd Reuter Botha með hótanir Pik Botha, utanríkisráðherra Suð- ur-Afríku, sagði í gær að vopnaðir hópar skæruliða Swapohreyfingar- innar væm á leið til Namibíu en leið- togi skæruliða vísaði þessari fullyrð- ingu á bug. Botha sagði í sjónvarpsviðtali, sem sýnt var í Bandaríkjunum, að skæru- liðarnir, sem staðsettir eru í Angóla, væru á leið suöur til Namibíu. Kvaö hann suður-afrísk yfirvöld ekki vera með neinar áætlanir á prjónunum um herflutninga til svæðisins. Botha sagði hins vegar að ef skæruliðarnir kæmu inn fyrir landamærin myndi Suður-Afríkustjórn þurfa að ræða um gagnaðgerðir við fulltrúa Sam- einuðu þjóðanna í Namibíu. Stjórnin í Suður-Afríku hótaði í gær í bréfi til Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóra Sameinuöu þjóðanna, að draga það á langinn að Namibía fengi sjálfstæði en friðargæslusveitir Sameinuðu þjóðanna eiga nú að fylgja ályktun þess efnis eftir. Afrit af bréfinu var sent til Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bret- lands, og Mikhail Gorbatsjov Sovét- leiðtoga sem kemur í heimsókn til Bretlands í dag. Yfir eitt hundrað og áttatíu skæru- liðar og nitján lögreglumenn hafa fallið í átökum í Namibíu síðan á laugardaginn, daginn sem Samein- uðu þjóðirnar hófu eftirlit með því að sjálfstæði Namibíu gangi smám saman í gildi. Suður-afrískur liðs- foringi er einnig sagður hafa fallið er sveit hans aðstoðaði lögregluna í Namibíu. Suður-afrísk yfirvöld halda því fram að bardagarnir hafi byrjað þeg- ar Swapo, hreyfing aðskilnaðar- sinna, sendi þúsund vopnaða skæru- hða inn í Namibíu frá Angóla. Rann- sókn á vegum Sameinuðu þjóðanna staðfestir þessa fullyrðingu. Skæruliðar segjast hins vegar hafa verið komnir inn fyrir landamærin og hafi þeir verið að leita að sveitum Sameinuðu þjóðanna til að gefa sig fram við þær þegar namibískir lög- reglumenn hafi ráöist á þá. Harðir bardagar geisuðu fiórða daginn í röö í gær í norðurhluta Namibíu þrátt fyrir mikið mannfall hjá skærulið- um. Kennari, sem varð vitni að upphafi átakanna, hefur tjáð fréttamönnum að skæruliðar Swapo hafi komiö í þorp hans á laugardaginn í þeirri von að hitta friðargæslusveitir Samein- uðu þjóðanna. Öryggissveitir undir stjórn Suður-Afríkumanna hafi hins vegar tekið á móti þeim með skotárás og fellt þrjátíu og þrjá skæruliða. Sveitir Sameinuðu þjóðanna sættu harðri gagnrýni í gær fyrir að hafa verið illa undirbúnar og fyrir að hafa látið átökin þróast í blóðuga bardaga. Angóla og Kúba voru, auk Suður- Afríku, aðilar að samkomulaginu um sjálfstæði Namibíu sem undirritað var í desember síðastliðnum. Skil- yrði fyrir því var að fimmtíu þúsund kúbskir hermenn færu frá Angóla. Swapohreyfingin samþykkti sam- komulagiö og skrifaði undir að hún myndi virða vopnahlé til að auövelda gildistöku þess. Reuter Atassut Vinstri flokkurinn Inuit Ataqat- igiit vann eins og búist var við bæjar- og sveitarstjórnarkosning- arnar á Grænlandi sem haldnar voru í gær. Atassutílokkurinn, sem er á hægri vængnum, beið mest aíhroö í kosningunum. Siumut- ílokkurinn, sem er flokkur sósíal- tapaði á Grænlandi demókrata, hélt nokkurn veginn stööu sinni og hiaut um 40 prósent af atkvæöunum. Inuit Ataqatigiit hlaut 14 prósent atkvæðanna í kosningunum og er það 7 prósent aukning frá því í kosningunum 1983. Atassutflokk- urinn hlaut 32 prósent atkvæöanna en 1983 hlaut fiokkurinn 44 pró- sent. Kosningaþátttakan var 61 pró- sent og hefur hún aldrei veriö lægri við sveitarsfiórnarkosningar. I þingkosningimum hefur þátttakan hins vegar verið undir 61 prósenti. Ritzau Víetnamar fara frá Kampútseu Yfirvöld í Víetnam tilkynntu í morgun að þau myndu kalla heim allt herlið sitt frá Kampútseu í sept- emberlok. Verður Indlandi, Póllandi og Kanada boðið að mynda eftirlits- nefnd sem fylgjast á með brottflutn- ingi herliðsins. I tilkynningu yfirvalda voru yfir- völd í Kína og öðrum löndum hvött til að láta af stuðningi við skæruliöa þegar brottflutningurinn hefst og var tekið fram að alþjóðleg nefnd ætti einnig að fylgjast með því. í desember síðastliðnum kváðust yfirvöld í Víetnam kalla allt herlið sitt heim í september með því skil- yrði að öllum stuðningi yrði hætt við stjórnarandstöðuna sem Sihanouk prins leiöir. Vestræn yfirvöld segja að rauðu khmeramir, sem nú eru virkasti að- ilinn 1 sfiómarandstöðunni, hafi myrt rúmlega eina milljón manna þegar þeir voru við völd 1975 til 1978. Reuter Vietnamar ætla að fara frá Kampútseu með allt herlið sitt i lok september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.