Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1989, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1989. 9 UtLönd Viðræður í Damaskus Harðar stórskotaliðsárásir voru gerðar í Beirút í gær á meðan nefnd á vegum Arababandalagsins reyndi í Damaskus í Sýrlandi að finna lausnir til að binda enda á bardaga kristinna og múhameðstrúarmanna sem geisað hafa í fjórar vikur. Tveir eru sagðir hafa látið lífið og fjórir særst í skotbardögunum í gær. Heilu íbúðarhverfin í Beirút hafa verið lögð í rúst og tugir þúsunda Beirútbúa hafa flúið borgina. Vegna olíuskorts í raforkuverum er orðið rafmagnslaust í Beirút og skortur er á bensíni. Dögum saman hafa skelf- ingu lostnir íbúarnir hafst við í loft- vamabyrgjum og binda þeir nú helst vonir við að árangur náist af viðræð- unum í Damaskus. Heimildarmenn segja að nefnd Arababandalagsins ráðgeri að biðja Aoun, leiðtoga kristinná, um að binda enda á hafnarbannið sem kom af stað átökunum. Einnig er talið að múhameðstrúarmenn, sem studdir eru af Sýrlendingum, verði beðnir að hætta umsátri sínu um svæði kristinna. Reuter WúiM-W'í,::, Gífurlegar skemmdir hafa orðið í Beirút í Líbanon í skotbardögunum sem þar hafa verið háðir undanfarnar vikur. Símamynd Reuter Kohl og Mitterrand vilja ákvarðanir Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskcdands, og Francois Mitterrand, forseti Frakklands, sögðu í gær að þeir vildu að Evrópubandalagið tæki ákvarðanir um stefnu í peningamál- um og félagsmálum áður en innri markaður EB verður að veruleika 1992. Leiðtogarnir tveir skýrðu frá þessu eftir óformlegan fund sem þeir áttu í bænum Gúnzburg í Bæjaralandi. Þeir sögðu að þeir vildu að bandalag- ið gerði áætlanir um sameiningu bandalagsríkjanna í peningamálum og félagsmálastefnu á þessu ári. Kohl sagöi að þeir vonuðust til þess að á fundi EB í Madrid í júní myndu þessi mál verða rædd þannig að hægt yrði að taka ákvörðun um þau á leið- togafundi EB í desember næstkom- andi. Kohl sagði á fréttamannafundi að bæði hann og Mitterrand væru full- vissir um að nauðsynlegt væri fyrir EB að koma sér upp sameiginlegri stefnu í félagsmálum. Bretar hafa lýst andstöðu sinni við hugmyndir um að færa miðstjórn bandalagsins enn frekari völd í pen- inga- og félagsmálum. Reuter Forsætisráðherra ísraels, Yitzhak Shamir, er hann gekk á fund gyðinga í New York við komuna til Bandaríkj- anna í gær. Símamynd Reuter Shamir fagnað í New York Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra ísraels, fékk siðferðislegan stuðning frá bandarískum gyðing- um við komuna til New York í Bandaríkjunum í gær. Hann mun i dag hefja viðræður við James Baker, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, um ástandið á herteknu svæðunum. Áður en Shamir hóf ferð sína fékk hann ofanígjöf frá Bush Bandaríkjaforseta sem sagði aö ísraelar ættu að hætta hernámi sínu á landi araba. Bush hvatti einnig til alþjóðlegrar ráðstefnu um frið í Miðausturlöndum. Nokkur hundruð mótmælenda söfnuðust saman fyrir utan fundar- stað Shamirs og gyðinga í New York og hrópuðu þeir slagorð. Báru mótmælendurnir borða með nöfn- um Palestínumanna sem myrtir hafa verið af ísraelskum hermönn- um, landnemum og óbreyttum borgurum frá því að uppreisnin á herteknu svæðunum hófst fyrir sextán mánuðum. Að minnsta kosti fiögur hundruð tuttugu og einn Palestínumaður hefur látið lífið í uppreisninni. Flestir þeirra sem hafa látið lífið hafa verið skotnir tii bana fyrir aö hafa kastað grjóti. Sautján ísraelar hafa beðið bana í uppreisninni. Uppreisnin hefur valdið djúpum klofningi meðal hinna fimm millj- óna gyðinga í Bandaríkjunum. Ný- leg skoðanakönnun leiddi í ljós að meirihluti gyðinga er mótfallinn aðferðum ísraela við að binda enda á uppreisnina. ísraelar virtust í gær reiðubúnir til að láta lausa hundruð arabískra fanga í dag en Palestínumenn segja að það verði ekki til þess að þeir hætti uppreisninni. Alls hafa fimm þúsund Palestínumenn verið hand- teknir frá því að uppreisnin hófst. Reuter Mitterrand Frakklandsforseti bitur í brauð sem bóndi, klæddur í miðaldabún- ing, færði honum i Gunzburg í Vestur-Þýskalandi. Þar hitti hann Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands. Símamynd Reuter A MORGUN! Við kveðjum veturinn með 30-50% AFSLÆTTI af skíðavörum. Tilboðið stendur fimmtudag-faugardag Opið laugardag: Ármúla kl. 10-14 Eiðistorgi kl. 10-16 Sendum i póstkröfu uflimél^ SPORTBÚÐIN Ármúla 40, Rvik, sími 83555 Eiðistorgi 11, 2. hæð, Seltjarnarnesi - sími 611055

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.